Ferðaþjónusta

Bein útsending: Hvaða fjórir staðir verða að fyrirmyndaráfangastöðum?
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra kynnir uppbyggingu Fyrirmyndaáfangastaða og nýtt vörumerki á fundi í dag sem streymt verður frá á Vísi.

Vottorð á landamærum reynst áreiðanleg
1106 farþegar framvísuðu vottorði við komuna til landsins fyrri hluta apríl. Enginn þeirra greindist með virkt smit í sýnatöku. Um er að ræða vottorð um bólusetningu, fyrra smit eða mótefni.

„Suðurnes eru heitasti sumardvalastaðurinn á árinu“
Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum segir aukna bjartsýni á svæðinu. Eldgosið hafi reynst mikil landkynning og verkefni í kringum uppbyggingu í Geldingadölum skapi mörg atvinnutækifæri. Hún telur að Suðurnes verði heitasti sumardvalarstaðurinn í ár.

„Mjög ólíklegt að gjaldtaka verði tekin fyrir að ganga upp að gosinu“
Ferðamálaráðherra segir brýnt að hefja uppbyggingu innviða á eldgosavæðinu í Geldingadölum. Ekki hefur verið ákveðið hversu miklum fjármunum verður varið í verkefnið. Hún býst ekki við að gjald verði tekið fyrir að göngutúr að gosinu.

Alls smituðust um 2700 af franska afbrigðinu sem rakið er til ferðamanns
Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa rakið upphaf þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins til erlends ferðamanns sem kom til landsins í ágúst og virti ekki sóttkví. 2700 smit eru rakin til ferðamannsins.

Sektaðir um 250 þúsund krónur í september en ekki borgað
Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til að hækka sektir vegna brota á sóttkví. Sektarheimildir séu þegar ríflegar miðað við sektir almennt hér á landi.

Skarphéðinn stýrir starfshópi um uppbyggingu á gosstöðvum
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri mun stýra starfshópi sem verður falið að koma með tillögur um uppbyggingu eldgosasvæðisins í Geldingadölum til skemmri og lengri tíma.

United Airlines hyggst fljúga til Keflavíkur í sumar
Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur tilkynnt að það hyggist hefja aftur flug til Íslands nú í sumar. Flogið verður frá Keflavík til New York og Chicago.

Ólafur Laufdal byggir tíu lúxus svítur í Grímsborgum
Ólafur Laufdal, veitingamaður í Grímsborgum í Grímsnesi lætur engan bilbug á sér finna þrátt fyrir heimsfaraldur og nánast enga erlenda ferðamenn því hann er að fara að byggja tíu lúxusvítur fyrir 400 milljónir króna.

Úr tíu í tuttugu og sundlaugar og líkamsræktarstöðvar opna
Fjöldatakmarkanir fara úr tíu í tuttugu aðfaranótt fimmtudags. Íþróttastarf verður aftur heimilt bæði fyrir börn og fullorðna og sundlaugar og líkamsræktarstöðvar opna aftur og mega taka við helming venjulegs fjölda.

Ólafur greiði Sveini í Plús film 20 milljónir
Eyrarbúið ehf., félag í eigu Ólafs Eggertssonar, bónda undir Eyjafjöllum, þarf að greiða Plús film ehf., félagi í eigu kvikmyndagerðarmannsins Sveins M. Sveinssonar, 20 milljónir króna. Um er að ræða hluta af hagnaði Ólafs af sýningu og sölu á heimildamyndinni Eyjafjallajökull Erupts.

Hóflegri tilboð í ár fyrir Íslendinga á faraldsfæti
Annað árið í röð vona rekstraraðilar hótela að innlendir gestir komi til með að bjarga ferðamannasumrinu. Vísir tók stöðuna á þremur af stærstu hótelkeðjunum en forsvarsmenn þeirra sammælast um að þó bjartara sé yfir ríki áfram mikil óvissa um komu erlendra ferðamanna.

Gestir sóttkvíarhótela eiga nú kost á útivist
Nýjar reglur um útivist gesta á sóttkvíarhótelum eru þegar komnar í gildi en enn er margt í útfærslu. Áhyggjuraddir hafa heyrst undanfarið um skerta útivist gesta sem þurfa að vera í sóttkví í fimm daga. Áður máttu gestir hótelsins ekki fara út vegna sóttvarnaástæðna.

Ískalt á gosstöðvunum og ekki í sóttkví
Þau Leyla og Usama frá Marokkó voru mætt í gallabuxum og úlpu á Suðurstrandarveg í dag á leiðinni í fjallgöngu. Þau komu til landsins í gær en töldu sig ekki þurfa að vera í sóttkví sökum þess að þau hefðu farið í próf og sýnt vottorð við komuna til landsins.

Að gjamma burt veiruna
Fyrir nokkrum árum var á vefnum Dýrahjálp auglýst eftir nýju heimili fyrir íslenskan fjárhund sem var til heimilis í Reykjanesbæ. Sá hafði tekið upp á þeim leiða sið að alltaf þegar flugvélar komu inn til lendingar eða tóku á loft þá gelti hundurinn þar til vélin var farin úr augsýn, en þá kom hann til húsbændanna ótrúlega stoltur eins og sá sem hrakið hefur óvin í burtu.

90% af hagkerfinu í lagi? Frekar 10%
Kastljósviðtal við Gylfa Zoëga, hagfræðiprófessor og nefndarmann í peningastefnunefnd Seðlabankans, fyrir páska vakti nokkra athygli. Þar sagði Gylfi að „stóra myndin er sú að 90 prósent af hagkerfinu eru í lagi“ og að aðeins væri kreppa í ferðaþjónustu sem í eðlilegu árferði leggur til um 10% af landsframleiðslu.

Innan við tíu prósent farþega ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið
Aðeins fjórtán af 170 farþegum sem komu með flugi til landsins í dag ákváðu að fara á sóttkvíarhótelið í Þórunnartúni. Sumir farþeganna vissu ekki hvar þeir ætluðu að vera í sóttkví á meðan aðrir voru bólusettir og hér í þeim tilgangi að sjá eldgosið.

Hinir smituðu starfsmenn í ferðaþjónustu
Fimm starfsmenn á vinnustað tengdum ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi smituðust af Covid-19 eftir að smitaður einstaklingur kom í heimsókn til þeirra í vikunni. Að sögn Þorbjargar Gísladóttur, sveitarstjóra í Mýrdalshreppi, er ekki talið að smitin hafi nálgast þéttbýli í Vík í Mýrdal.

Opna Geysi á ný og hefja þróun snyrtivörulínu
Hótel Geysir hefur fest kaup á öllum vörubirgðum úr þrotabúi Geysis verslananna og hyggst endurvekja verslunina í Haukadal. Er stefnt að því að opna hana aftur með vorinu og um leið færa vöruþróun merkisins á nýjar slóðir.

Gríðarleg gleði og stemning á Húsavík í kjölfar Óskarstilnefningar
„Við náttúrulega áttuðum okkur ekki á því þá að þetta ætti eftir að spila svona rosalega stóran þátt í okkar uppbyggingu til framtíðar,“ segir Örylgur Hnefill Örygsson hótelstjóri á Húsavík í viðtali við Ísland í dag.

Segir mæðgurnar beittar ólögmætri nauðungarvistun
Lögmaður konu sem dvelur nú á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni segir að um ólögmæta nauðungarvistun sé að ræða og hún geri kröfu um að fá að vera í sóttkví á heimili sínu.

Hyggst ekki endurskoða umdeilda reglugerð um sóttkvíarhótel
Heilbrigðisráðherra segir það ekki koma til greina eins og er að endurskoða reglugerð sína um takmarkanir á landamærum. Reglugerðin sem tók gildi síðasta fimmtudag skyldar alla sem koma til landsins frá hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví eða í einangrun í sóttvarnahúsi.

Langflestir virðast hafa afbókað ferðina til Íslands
Hundrað og tuttugu manns dvöldu í sóttkvíarhótelinu við Þórunnartún í nótt. Útlit er fyrir að langflestir hafi afbókað ferð sína til landsins því viðbúið var að ríflega sex hundruð manns yrðu þar í nótt.

Á fimmta tug mætt á sóttkvíarhótelið og óvíst hvort fólkið megi fara út af herbergjum sínum
Á fimmta tug hafa nú skráð sig inn á sóttkvíarhótelið við Þórunnartún sem var opnað í morgun. Önnur flugvél er væntanleg til landsins í kvöld og bætist þá í hópinn. Umsjónarmaður hótelsins segir óvíst hvort fólkið muni megi fara út af herbergjum sínum eða ekki. Unnið sé að útfærslu reglna.

Von er á allt að þrjú hundruð manns frá dökk rauðum eða gráum löndum
Fyrstu tveir farþegarnir komu á sóttkvíarhótelið í Reykjavík í morgun, í samræmi við nýjar sóttvarnareglur reglur sem tóku gildi í dag. Samkvæmt reglunum þurfa þeir sem koma hingað til lands frá skilgreindum áhættusvæðum að fara á sóttkvíarhótel á milli fyrri og seinni sýnatöku. Von er á allt að þrjú hundruð manns á sóttkvíarhótelið í dag.

Ferðamennska framtíðarinnar
Íslensk náttúra hefur heldur betur gert vart við sig á síðustu dögum. Eftir tæplega 800 ára svefn rennur nú funheitt hraun í eldgosi á Reykjanesi.

Ræða grímuskyldu við gosstöðvarnar
Almannavarnir skoða nú hvort tekin verði upp grímuskylda við gosstöðvarnar í Geldingadölum. Tugir þúsunda manna hafa lagt leið sína að gosinu undanfarna viku en engin grunur hefur komið upp um að kórónuveira hafi smitast á milli fólks þar enn sem komið er.

Fjarlægja Spán af lista yfir lönd skilgreind sem áhættusvæði
Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveðið að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis þar sem tilgreint er hvaða lönd eru skilgreind áhættusvæði vegna mikils nýgengis COVID-19 smita. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu því sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli.

Vísar ummælum Jóhannesar Þórs til föðurhúsanna
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hafnar því alfarið að sóttvarnayfirvöld séu að grafa undan stefnu ríkisstjórnarinnar varðandi svokallað litakóðakerfi sem stefnt er á að taka upp á landamærunum þann 1. maí.

Framtíð ferðaþjónustunnar: Sigmundur Davíð ræðir stöðu og horfur
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins er næsti gestur í þættinum Samtal við stjórnmálin sem Samtök ferðaþjónustunnar stendur að.