Gametíví

Gameveran og Shady_Love stíga dans
Marín Eydal eða Gameveran tekur á móti Shady_Love í streymi kvöldsins. Saman ætla þau að spila leikinn It Takes Two.

Babe Patrol á átakasvæðum
Það verður mikið um að vera hjá stelpunum í Babe Patrol í streymi kvöldsins. Þær taka stefnuna á Caldera eins og svo oft áður og ætla að skella sér í Warzone.

Valla og Dói setja saman draumalið í Valorant
Valla í Queens mun njóta aðstoðar Dóa í að setja saman sannkallað draumalið í skotleiknum Valorant. Með því liði stefna þau á fjölmarga sigra í kvöld.

Gameveran hrellir strákana
Gameveran ætlar að hrella strákana í GameTíví í kvöld. Hún mætir í streymi þeirra og spilar sem ófreskjan í Dead by Daylight.

Afmælisstreymi hjá Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum halda upp á afmæli streymisins í kvöld. Af því tilefni ætla þeir að halda smá drykkjuleik í Minecraft. Sá leikur gengur út á það að í hvert sinn sem þeir deyja, þurfa þeir að taka sopa.

Gameveran og Móna kíkja í drungalega skógarferð
Marín Eydal eða Gameveran tekur á móti Mónu í streymi kvöldsins. Saman ætla þær að láta reyna á taugarnar í hryllingsleiknum The Forest

Babe Patrol: Kíkja á nýjustu vendingarnar í Warzone
Stelpurnar í Babe Patrol fara í könnunarleiðangur til Caldera í kvöld. Þá munu þær kanna það nýjasta á eyjunni í kjölfar útgáfu þriðja tímabils Vanguard.

Hryllingskvöld hjá Queens
Það mun reyna á taugarnar á sannkölluðu hryllingsstreymi hjá Queens í kvöld. Rósa Björk, eða G69nHunter mætir í streymi kvöldsins og hún og Móna munu spila hryllingsleikina Phasmophobia og Lunch Lady.

Bræður berjast í GTA Online
Strákarnir í GameTíví munu taka á því í GTA Online í streymi kvöldsins. Þar munu þeir berjast sín á milli í hættulegum kappakstri, svokölluðum „Stunt Races“.

Fyrsta streymi Lil Curlys, Jakobs, Daða og Gauta
Þeir Lil Curly, Jakob, Daði og Gauti byrja með nýjan þátt á Twitch-síðu GameTíví í dag. Sá þáttur heitir Rocket mob.

Gameveran og Bjarto taka höndum saman
Marín Eydal eða Gameveran tekur á móti Bjarto í streymi kvöldsins.

Valda usla á Caldera
Stelpurnar í Babe Patrol setja stefnuna á Caldera í streymi kvöldsins. Eins og svo oft áður munu þær valda miklum usla þar og reyna að standa einar eftir í lokahringnum.

Förðun og Fortnite
Stelpurnar í Queens munu verja kvöldinu í tvo mikilvæga hluti. Það er að spila hinn gífurlega vinsæla leik, Fortnite, og vaða í förðunaráskorun.

Gameveran tekur á móti 354 eSports
Marín Eydal eða Gameveran tekur á móti 354 eSports í streymi kvöldsins.

Málshættir og Warzone hjá Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol munu taka á því í Warzone í kvöld. Auk þess að stráfella aðra spilara ætla þær að finna nýja málshætti.

Queens: Gestagangur í Undralöndum
Það verður margt um manninn í streymi Queens í kvöld. Dói og SifGaming mæta á svæðið og kíkja með stelpunum á leikinn Tiny Tina’s Wonderlands.

Sandkassinn: Sverðin og hakarnir á lofti í Minecraft
Strákarnir í Sandkassanum ætla að byggja frá sér allt vit í Minecraft, hinum gífurlega vinsæla leik.

Gestagangur hjá Gameverunni
Marín Eydal eða Gameveran tekur á móti góðum gesti í kvöld. Olalitla96 mun kíkja í heimsókn í streymi kvöldins og smaan munu þær spila tölvuleiki.

Afmæli hjá Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol halda upp á afmæli KamCarrier í streymi kvöldsins. Þær munu halda upp á það með allskonar áskorunum og með því að spila Warzone.

Drottningar í Undralöndum
Stelpurnar í Queens ætla að rífa upp byssurnar í tveimur leikjum í kvöld. Sá fyrri er Tiny Tina's Wonderlands en síðan ætla þær að kíkja á hinn vinsæla leik Fortnite.