Fimmvörðuháls

Fréttamynd

Tvö út­köll á svipuðum slóðum á há­lendinu með stuttu milli­bili

Þyrla Landhelgisgæslunnar var send að austanverðum Sólheimajökli í kjölfar útkalls vegna manns sem hafði slasast á fæti um tvöleytið í dag, sunnudaginn 23. ágúst. Hann var hífður upp og fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur en skömmu áður höfðu björgunarsveitir sótt annan slasaðan mann á svipuðum slóðum.

Innlent
Fréttamynd

Bráð veikindi á Fimm­vörðu­hálsi

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út og er á leið að Fimmvörðuhálsi vegna alvarlegra veikinda sem upp komu hjá göngumanni. Aðgerðir eru enn yfirstandandi.

Innlent
Fréttamynd

Eld­gosið sem lýsti upp nætur­himinninn og lamaði Evrópu

Óhætt er að fullyrða að enginn einn atburður í sögunni hafi gert garð Íslands eins og frægan og eldgosið í Eyjafjallajökli árið 2010. Öskugosið í toppgígnum ógnaði sveitabyggðinni við rætur fjallsins og raskaði flugumferð í Evrópu vikum saman. En gosið var jafnframt mikið sjónarspil, eins og sést á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af Vilhelm Gunnarssyni, ljósmyndara Vísis, nokkrum dögum eftir að sprengigos hófst undir jökli í Eyjafjallajökli sjálfum.

Lífið
Fréttamynd

„Varla gang­fær“ og „skulfu eins og hríslur“

Björgunarsveitir hjálpuðu þremur ferðamönnum á Fimmvörðuhálsi í nótt. Fólkið var orðið blautt, skalf af kulda og var varla gangfært. Einnig þurfti að aðstoða ferðamenn sem festu bíl í Stóru-Laxá í nótt og hafa björgunarsveitir sinnt tveimur útköllum á Snæfellsnesi í dag.

Innlent
Fréttamynd

Göngumaðurinn fannst látinn

Göngumaður sem björgunarsveitir frá Hvolsvelli og Hellu leituðu á Fimmvörðuhálsi fannst látinn í dag. Frá þessu er greint í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Innlent