Flokksþing Framsóknar 2026

Fréttamynd

Úr hverju er þessi kona gerð?

Þetta er setning sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Lilju Dögg Alfreðsdóttur. Henni fylgir mikill kraftur, hún getur haldið fjölmörgum boltum samtímis á lofti, hún er með skýra framtíðarsýn, hefur brennandi áhuga á einstökum verkefnum, er klók og útsjónarsöm þegar koma þarf hlutum í framkvæmd, er með stórt og gott tengslanet og, síðast en ekki síst, þá elskar hún Ísland og Framsóknarflokkinn – alveg eins og ég.

Skoðun
Fréttamynd

Konur í Fram­sókn sjá að sér

Stjórn landssambandsins Konur í Framsókn segir að viðburður með Lilju Alfreðsdóttur hafi verið skipulagður áður en hún tilkynnti framboð sitt til formanns flokksins. Þá hafi Halla Hrund Logadóttir þingmaður upphaflega átt að vera frummælandi fundarins.

Innlent
Fréttamynd

Kæra freyði­vínsviðburð með Lilju Al­freðs

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er svo­lítið ó­venju­legt, ég er ekki á þingi“

Lilja Alfreðsdóttir, sem býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins, telur að það gæti verið styrkur fyrir flokkinn að hafa formanninn utan þings. Hún segist vera fullveldissinni, er á móti aðild að Evrópusambandinu og vill herða flóttamannalöggjöfina á Íslandi. Þá vill hún einnig ná betri tökum á efnahagsmálum. Fyrst og fremst langar hana að byggja flokkinn upp.

Innlent
Fréttamynd

Lilja sækist eftir því að leiða Fram­sókn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Willum fer ekki fram og styður Lilju

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssæti Framsóknarflokksins. Þess í stað styður hann Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um Fram­sókn muni snúast um sögu­lega stöðu

Fyrsti frambjóðandinn til að tilkynna framboð til formanns Framsóknar steig fram í dag. Tveir til viðbótar liggja undir feldi en flokkurinn velur sér nýjan formann á flokksþingi í febrúar. Stjórnmálafræðingur segir um tímamótaákvörðun að ræða enda hafi flokkurinn aldrei verið í erfiðari stöðu.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­björg býður sig fram í for­manninn

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar.

Innlent
Fréttamynd

Enn skorað á Willum

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ og fyrrverandi ráðherra og þingmann flokksins, að bjóða sig fram til formennsku í Framsókn á næsta flokksþingi sem haldið verður í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Margir skorað á Ingi­björgu í for­manninn

Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ýmsa hafa komið að máli við sig og hvatt hana til þess að bjóða sig fram til formanns flokksins. Hún segist þakklát fyrir traustið og hvatninguna, enn sé langt í flokksþing og of snemmt að segja til um formannsframboð.

Innlent
Fréttamynd

Skora á Lilju eftir hörfun Einars

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur skorar á Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann flokksins að bjóða sig fram til formanns Framsóknar á komandi flokksþingi og leiða flokkinn inn í nýja tíma. Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík tilkynnti í gær að hann hyggðist ekki bjóða sig fram.

Innlent
Fréttamynd

Takk Sigurður Ingi

Þegar leiðtogi tekur ákvörðun um að kveðja er ástæða til að staldra við, líta um öxl og þakka. Á nýafstöðnum miðstjórnarfundi Framsóknar gerði Sigurður Ingi grein fyrir ákvörðun sinni um að sækjast ekki eftir endurkjöri á komandi flokksþingi Framsóknar.

Skoðun
Fréttamynd

„Það er ó­á­kveðið“

„Það er óákveðið,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, aðspurð hvort hún hyggist bjóða sig fram til formanns. Hún hafi þó verið ítrekað hvött til þess að sækjast eftir embættinu.

Innlent