Stj.mál
Ekki kjósa Bush frænda
Sjö fjarskyldir ættingjar George W. Bush Bandaríkjaforseta hafa opnað vefsíðu þar sem kjósendur eru beðnir um að kjósa ekki frænda þeirra.

Nýr meirihluti L-lista og D-lista á Héraði
Forráðamenn L-lista félagshyggjufólks og D-lista Sjálfstæðisflokks, undirrituðu í kvöld samkomulag um samstarf í meirihluta bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Listarnir eru sammála um að ganga til viðræðna við Eirík Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóra Austur-Héraðs, um starf bæjarstjóra hins nýja sveitarfélags.
Framsókn sökuð um sinnaskipti
Elsa B. Friðfinnsdóttir, Framsóknarflokki segir að svo virðist sem flokkurinn hafi breytt um stefnu og opni á skólagjöld í framhaldsnámi. Vitnar hún til orða Dagnýjar Jónsdóttur, þingkonu flokksins í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Dagný: "Framsóknarflokkurinn...hafnar skólagjöldum í grunnnámi í ríkissreknum háskólum."

Þingflokkur biðjist afsökunar
Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, er í fullu samræmi við almennan vilja kjósenda flokksins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélagsins í Dalasýslu. Á fundinum var stuðningsyfirlýsing við Kristinn samþykkt einróma.
Jarðakaup gagnrýnd
Framsóknarfélagið Dalasýslu lýsir þungum áhyggjum af söfnun fárra auðmanna á jörðum, og ríkisstuðningi þeim tengdum.

Hefur dælt peningum í borgina
Stefán Jón Hafstein er að snúa málum á haus með því að saka ríkisstjórnina um að halda Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum í fjársvelti að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa og þingmanns Sjálfstæðisflokksins.
9 ráðherrar á Norðurlandaráðsþing
Búast má við að Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra verði starfandi forsætisráðherra öðru sinni í næstu viku vegna þátttöku Halldórs Ásgrímssonar og átta annarra ráðherra í þingi Norðurlandaráðs í næstu viku frá 1. til 3. nóvember.
Heimildamynd um Kabúl
"Íslenska sveitin" heimildamynd í fullri lengd um íslensku friðargæsluna í Kabúl, verður frumsýnd í kvikmyndahúsum í Reykjavík á fullveldisdaginn 1. desember.

Blá föt og rautt bindi
Þótt þeir George W. Bush og John Kerry séu á öndverðum meiði í flestum málum þá eru þeir samstiga í fatavali: dökkblá jakkföt, hvít skyrta og rautt bindi.
Staða Samfylkingar óásættanleg
Staða Samfylkingarinnar innan Reykjavíkurlistans er óásættanleg miðað við fylgi flokksins í borginni. Þetta kom fram í máli Andrésar Jónssonar, formanns Ungra jafnaðarmanna, á fundi Samfylkingarfélags Reykjavíkur í gærkvöld þar sem rætt var um Reykjavíkurlistann, árangur hans og framtíð.

Misbeita ríkisvaldi vegna R-lista
Sveitarfélögin fá ekki auknar tekjur á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og Reykjavíkurlistinn er við völd í Reykjavík. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Góð rödd gerir gæfumuninn
Nýleg rannsókn á röddum formanna íslensku stjórnmálaflokkanna sýnir að djúpar, yfirvegaðar raddir eru mest sannfærandi. Leiðtogarnir fimm eru afar misjafnir í þessu tilliti.

Gögnin lágu fyrir
Viðeigandi gögn lágu fyrir þegar Kópavogsbær úthlutaði byggingarfélaginu Viðari ehf. byggingarrétt fyrir fjölbýlishús við Ásakór í Kópavogi í febrúar síðastliðnum, að mati Gunnars I. Birgissonar, formanns bæjarráðs.

Boðað til fundar í kennaradeilu
Ríkissátasemjari boðaði til fundar í kennaradeilunni í dag eftir fund ríkisstjórnarinnar með deilendum í gær.

Áttu ekki að fara af flugvelli
Upplýst hefur verið að íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsmorðsárás í miðborg Kabúl hafi verið í einkaerindum. Arnór Sigurjónsson yfirmaður Friðargæslunnar sagði í DV í vor eftir að norskur hermaður var myrtur að Íslendingarnir færu ekki útaf vallarsvæðinu nema brýna nauðsyn bæri til.

Þinghlé eftir mánuð
Alþingi Íslendinga kemur ekki saman til fundar alla þessa viku vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík segist undrandi á þessu vikufríi frá þingstörfum."

Hjálmar gagnrýnir uppsögn samninga
Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins gagnrýnir í pistli á heimasíðu sinni þá innan vébanda verkalýðshreyfingarinnar sem hafa hótað uppsögn kjarasamninga ef kennarar nái góðum samningum.

Rétt að innheimta skólagjöld
Ungir Sjálfstæðismenn segja rétt að veita ríkisháskólum rétt til innheimtu skólagjalda, enda verði þau lánshæf. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Kópavogur braut eigin reglur
Kópavogsbær úthlutaði tveggja mánaða gömlu fyrirtæki byggingarétti fyrir fjölbýlishús. Fyrirtækið var selt hæstbjóðanda. Eigendur högnuðust um tugmilljónir og eru verktakar ósáttir með vinnubrögð bæjarins.
Ingibjörg Sólrún tekur frumkvæðið
Varaformaður Samfylkingarinnar hefur í þessari viku tekið pólitískt frumkvæði og snúið aftur í stjórnmálinn við stjórnvöl framtíðarhópsins. Sá hópur hannar nú stefnuna sem samþykkt verður á sama landsfundi og kýs á milli Ingibjargar og Össurar

Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum?
Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu.
Fréttamenn til hliðar
Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að stjórnarmenn í Félagi fréttamanna skuli ekki fjalla um kennaradeiluna í fréttum. Þessi ákvörðun er tekin eftir að stjórn Félags fréttamanna ákvað að veita verkfallssjóði Kennarasambands Íslands 220 þúsund króna styrk.

Deilendur kallaðir á fund Halldórs
Ákveðið var á ríkisstjórnarfundi í morgun að kalla fulltrúa deilenda í kennaradeilunni á fund með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra á mánudag.

Ekki verið rætt um lög
Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudaginn. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið.

Ungt fólk getur tryggt Kerry sigur
John Kerry hefur mikið forskot á George W. Bush meðal yngstu kjósendanna. Vegna þess hversu jöfn baráttan er getur það ráðið úrslitum ef ungt fólk greiðir atkvæði í meiri mæli en undanfarin ár líkt og búist er við.

Þvers og kruss í félagsmálum
Þrátt fyrir að George W. Bush Bandaríkjaforseti og demókratinn John Kerry hafi deilt hvað harðast um stríðið í Írak og atvinnumál kemur munurinn á þeim einna best í ljós þegar litið er til afstöðu þeirra til ýmissa félags- og réttlætismála.

Um 5 þúsund fyrirmæli frá Brussel
Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að EES-samningurinn tók gildi hafa hátt á fimmta þúsund lög og reglugerðir Evrópusambandsins öðlast gildi á Íslandi. "Ólýðræðislegasti alþjóðasamningur sem um getur," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, sérfræðingur í Evrópumálum. </font /></b />

Danski þingmaðurinn gerður útlægur
Danski þingmaðurinn, Flemming Oppfeldt, sem grunaður er um kynferðislega misnotkun á 13 ára dreng, hefur verið tekinn af lista frambjóðanda Venstre flokksins til þings.

Fyrsti innflytjandi í ráðherrastól
Ibrahim Baylan varð í gær fyrsti innflytjandinn í sögu Svíþjóðar til að taka við embætti ráðherra í stjórn landsins. Göran Persson forsætisráðherra skipaði Baylan í embætti menntamálaráðherra í uppstokkun sinni á ráðherrum sænsku stjórnarinnar.
Kaup bújarða gagnleg þróun
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra segir enga ástæðu til að grípa til aðgerða vegna kaupa auðmanna á bújörðum og samþjöppun framleiðsluréttar. "Við megum ekkert gera til að stöðva þessa þróun sem er á margan hátt mjög gagnleg" sagði landbúnaðarráðherra í utandagskrárumræðum á Alþingi.