

Svik og prettir voru víðsfjarri þegar önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu var endurtekin í gær. Viktor Júsjenko er öruggur sigurvegari í kosningunum en mótherji hans, Janúkovítsj, neitar að viðurkenna ósigur.
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja fimm milljónir króna til mannúðar- og neyðaraðstoðar á hamfarasvæðunum í Asíu.
Stjórn Sálfræðingafélags Íslands fagnar yfirlýsingu heilbrigðisráherra sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær um að markmið ráðuneytisins væri að auka notkun viðtalsmeðferðar vegna þunglyndis. Um leið lýsir stjórnin yfir undrun sinni á því að ráðherra skuli ekki fylgja orðum sínum eftir með samningum við sálfræðinga um greiðsluþátttöku Tryggingastofnunar í sálfræðiviðtölum.
Reykjavíkurborg mælir ekki með því að kosið verði um sameiningu borgarinnar við Kjósarhrepp í allsherjarkosningu um sameiningu sveitarfélaga sem verður eftir fjóra mánuði. Mörg önnur sveitarfélög víða um land hafna einnig sameiningartillögu.
Ekki varð af fundi Masako Suzuki, lögmanns skákmeistarans Bobby Fischer, með fulltrúum japanska utanríkisráðuneytisins í gær, en á honum stóð til að ræða mögulega lausn hans úr haldi og komu hingað til lands.
"Siðlaus stefna og kaldar jólakveðjur" segir Ögmundur Jónasson alþingismaður um hækkanir á komugjöldum til lækna, krabbameinsleitar og vegna tiltekinna aðgerðir á sjúkrahúsum. Ný gjaldskrá tekur gildi um áramót.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að R-lista samstarfið gagnist stjórnarandstöðuflokkunum betur en Framsóknarflokknum. Hann telur almennt að farsælla sé að bjóða fram sér. </font /></b />
Georg Kr. Lárusson forstjóri Útlendingastofu var í gær skipaður forstjóri Landhelgisgæslu Íslands frá og með 1. janúar.
Fjármálaráðherra kynnti í liðinni viku kröfur ríkisins til þjóðlendna á Norðausturlandi. Svæðið er það fjórða sem Óbyggðanefnd hefur til úrskurðar. Landeigendur undrast kröfugerð ríkisins og telja að farið sé offari, meðan fjármálaráðuneytið segist bara uppfylla lögboðnar skyldur.
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gærmorgun að 12-14 milljónum skyldi varið til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Samhjálpar á næsta ári, að sögn Helga Jósefssonar verkefnisstjóra.
Leiðtogar ESB ákváðu í vikulokin að bjóða Tyrkjum að hefja formlegar viðræður á næsta ári um aðild að sambandinu. Þar með er hafið ferli sem gæti gerbreytt Evrópusambandinu. Hvernig því lyktar er þó opið, eins og Auðunn Arnórsson rekur hér. </font /></b />
Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmálafræði, telur að ígrunda hefði átt betur ákvörðunina um að bjóða Bobby Fischer landvistarleyfi. Hann telur málið ekki munu skaða samskipti Íslands, Bandaríkjanna og Japans. Lögmaður Fischers fundar með japanska utanríkisráðuneytinu.
Niðurskurðurinn hjá SÁÁ gerir allt forvarnarstarf mun erfiðara, að sögn forstöðumanns Fræðslumiðstöðvar forvarna. Hann segir að kallað verði eftir svörum frá stjórnvöldum um hvort markmið heilbrigðisáætlunar Alþingis til 2010 séu gleymd.
Heilbrigðisráðherra kveðst vilja hafa samskipti ráðuneytisins og SÁÁ í formi samninga og vísar til þjónustusamnings sem er í gildi nú. Hann segir að vilji menn endurskoða þann samning þá þurfi þeir að sækja formlega um það samkvæmt ákvæðum hans. Engin slík umsókn hafi borist frá SÁÁ.
Í lok nóvember stóð mikill styr um sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg og íbúar mótmæltu þegar steinsteypukerjum var stillt upp fyrir framan það. Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar, sagði þá að það kæmi til greina af sinni hálfu að farið yrði fram á að sendiráð
Stjórnvöld ætla ekki að verða við beiðni Bandaríkjanna um að draga til baka landvistarleyfi til handa skákmeistaranum Bobby Fischer. Hann verður ekki heldur framseldur héðan. Lögfræðingur Fischers fundar með japönsku útlendingastofnuninni í dag.
Samstarfsverkefni Fjölmenntar og Geðhjálpar er "algjörlega í uppnámi," að sögn Helga Jósefssonar verkefnisstjóra. Fjármunir til vorannar eru ekki fyrir hendi og engin loforð þar um.
"Verulegur áhugi og eindreginn vilji er meðal stjórnvalda til að einfalda umsóknarferli fyrir virkjanaframkvæmdir," segir Helgi Bjarnason, skrifstofustjóri orku- og stóriðjumála.
Margrét Frímannsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, gagnrýnir þá tilhögun að grunaðir einstaklingar sem dæmdir eru til gæsluvarðhalds þurfi að dvelja með dæmdum föngum á Litla-Hrauni.
Íslendingar og Vestur-Kongóbúar hafa tekið upp stjórnmálasamband en stjórnvöld í landinu hafa áhuga á þróun fiskveiða.
Landeigendur á Norðausturlandi eru undrandi yfir kröfum ríkisins um þjóðlendur í fjórðungnum. Þeir töldu að stjórnvöld hefðu dregið einhvern lærdóm af nýlegum Hæstaréttardómi vegna jarðamála í uppsveitum Biskupstungna. Ríkið gerir kröfu um 95 prósent lands Brúar í Jökuldal. </font /></b />
Alþingi setti nýlega lög sem marka að mörgu leyti tímamót í skattasögu Íslendinga því að með breytingu á lögum um tekjuskatt og eignarskatt var felldur niður eignarskattur einstaklinga og lögaðila. Síðasta álagning eignarskatts á sér því stað árið 2005 vegna eigna í árslok 2004.
Ungir jafnaðarmenn skora á Skeljung að skammast sín fyrir það sem kallað er í ályktun ósvífnar hótanir í garð Kópavogsbæjar. Skeljungur gerði athugasemdir við að Atlantsolíu væri úthlutað lóð að Dalbraut í Kópavogi, við hlið bensínstöðvar Skeljungs, og sendi Kópavogsbæ erindi þess efnis.
Hansína Á. Björgvinsdóttir tekur við sem bæjarstjóri í Kópavogi á fyrsta vinnudegi á nýju ári. Hún þurfti góðan umhugsunarfrest áður en hún ákvað að takast á við verkefnið. "Það hafði aldrei hvarflað að mér að þurfa að kljást við þetta verkefni," segir hún. </font /></b />
Aðgangseyri fyrir fullorðna í Sundlaug Kópavogs hækkar um tæpan þriðjung, úr 220 krónum í 280.
Orkuveita Reykjavíkur hefur óskað eftir svörum Skipulagsstofnunar um hvort sjö boranir til rannsóknar á Hellisheiði þurfi umhverfismat. Fjórar þeirra eru á nýju svæði.
Gremja og reiði ríkja í garð hafnfirskra bæjaryfirvalda, sem fyrr á árinu ákváðu að fela einkafyrirtæki að annast ræstingar stofnana bæjarins.
Bandaríska tímaritið Time hefur útnefnt George W. Bush Bandaríkjaforseta mann ársins og segir hann hafa mótað stjórnmálin upp á nýtt með endurkjöri sínu fyrr á árinu.
Sæmundur Pálsson heldur hugsanlega til Japan í dag til að fylgja Bobby Fischer til Íslands. Til greina kemur að fljúga beint til Tókýó og leigja til þess einkaþotu enda flugleiðin löng og hefðbundið farþegaflug tímafrekt.
"Þetta kemur mér á óvart í ljósi hæstaréttardómsins sem féll í haust," segir Rúnar Þórarinsson, oddviti sveitarstjórnar í Öxarfjarðarhreppi, um kröfugerð ríkisins um þjóðlendur á Norðausturlandi