
Stj.mál

Mikið rætt en lítið gert
Allar líkur eru á því að frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um að auka valdheimildir lögreglu til að fjarlæga ofbeldismenn af heimilum sínum dagi upp í allsherjarnefnd í annað sinn, þrátt fyrir að um þennan málaflokk virðist ríkja þverpólitísk sátt.

Vilja flýta landsfundi enn frekar
Tveir þingmanna Samfylkingarinnar segja að flýta eigi landsfundi flokksins enn frekar svo að langur slagur um formannsembættið skaði ekki flokkinn. Formannsefnin gefa ekki upp hvað þeim finnst um þessi áform.

Ákvörðun um Fischer frestað
Allsherjarnefnd Alþingis frestaði í morgun að taka afstöðu til bréfs Bobbys Fischers, fyrrverandi heimsmeistara í skák, þar sem hann fer fram á að honum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Bréf Fischers var lagt fram en efni þess vísað til næsta fundar eftir viku.

Segir við orkufyrirtækin að sakast
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir verðhækkanir á raforku í kjölfar nýrra raforkulaga bersýnilega stafa af því að orkufyrirtækin hafi notað tækifærið til að bæta hag sinn. Þetta kom fram á Alþingi í dag. Þar boðaði ráðherrann jafnframt auknar niðurgreiðslur ríkissjóðs til að milda verðhækkanir í strjálbýli þannig að þær færu ekki upp fyrir tíu prósent.

Gerðu athugasemdir við vinnubrögð
Þingmenn Samfylkingarinnar gerðu alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð ráðherra ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær og gagnrýndu þá fyrir að svara fyrirspurnum seint, illa eða alls ekki.
Frétt dregin til baka
Í frétt Stöðvar tvö í gærkvöldi um að Ísland hefði verið komið á lista hinna viljugu þjóða fyrir ríkisstjórnarfund þann 18. mars 2003 voru gerð þau mistök að tímasetning fréttar CNN um atburðinn var mislesin. Sú ályktun sem dregin var af tímasetningunni er því röng. Fréttastofan dregur því frétt sína til baka og biðst velvirðingar á þessum mistökum.

Mengunarkvótar skapa skriffinsku
Ekki er ástæða til að setja mengunarkvóta á losunarheimildir fyrirtækja á innanlandsmarkaði, sagði Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra á þingfundi Alþingis í gær.

Verðhækkanir komu á óvart
Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að fullyrt hafi verið á þingi að raforkuverð myndi ekki hækka svo nokkru næmi. Nú sé annað að koma í ljós. Þingmaður Frjálslyndra segir hækkanir allt að 75 prósent. </font /></b />

Rétt að fá álit nefndar
Sigurður Líndal lagaprófessor segir að sér finnist að rétt hefði verið að fá álit utanríkismálanefndar vegna Íraksmálsins en vill ekkert fullyrða um lögbrot í því sambandi.

Hvíta húsið með yfirlýsingu Davíðs
Í yfirlýsingu Davíðs Oddssonar frá 18. mars 2003, sem finna má á vef Hvíta hússins, vísar hann til yfirlýsingar íslensku ríkisstjórnarinnar um deilurnar í Írak. Ekki var hægt að fá uppgefið frá ráðuneytum hvaða yfirlýsingu var verið að vísa til. </font /></b />
Fólk ætti að fá að brugga
Leyfa verður fólki að framleiða léttvín og líkjöra, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á þingfundi Alþingis í gær.

Á listann fyrir ríkisstjórnarfund
Ísland var komið á lista hinna viljugu áður en ríkisstjórnarfundur var haldinn þann 18. mars 2003. Forsætisráðherra sagði í yfirlýsingu á dögunum að ákvörðun um að styðja innrásina hefði verið tekin í kjölfar fundarins.

Kosningarnar breyta litlu
Kosningarnar í Írak á sunnudag eru aðeins þær fyrstu af þremur sem eru fyrirhugaðar í landinu fyrir árslok. Ekki er talið að þær breyti miklu enda sitja þingmennirnir sem verða kosnir aðeins til bráðabirgða.
Grafið undan embætti umboðsmanns
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að stjórnvöld og sérstaklega dómsmálaráðherra hafi með ummælum sínum grafið undan embætti Umboðsmanns Alþingis og virðingu þess.

Ráðuneyti bíður svars frá Kópavogi
"Umsögn borgarstjóra við beiðninni var send Kópavogsbæ og yfirvöldum þar gefið tækifæri til að bregðast við röksemdum borgarinnar. Við búmst við svörum innan tveggja vikna og tökum efnislega afstöðu í framhaldinu," segir Pétur Örn Sigurðsson, lögfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, um lögnámsbeiðni Kópavogsbæjar á landi í Vatnsendakrika.

Óeðlileg yfirlýsing Gylfa
Þingflokkur Frjálslynda flokksins telur óeðlilegt að forsvarsmenn samtaka launamanna lýsi því yfir að einn forystumaður í stjórnmálaflokki sé öðrum fremri, eins og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, kaus að gera. Gylfi sagði stuðning verkalýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ótvíræðan.

Vill fund
Guðmundur Árni Stefánsson, Samfylkingunni, skýrði frá því á Alþingi í gær að hann hefði beðið formann utanríkismálanefndar um að halda fund í nefndinni fyrir hvatningu forsætisráðherra.

Landsfundur Samfylkingar í vor
Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 22.-23. maí í vor. Þetta var ákveðið á fundi framkvæmdastjórnar flokksins í gærkvöldi eftir umræður um að halda fundinn jafnvel fyrr. Í upphafi fundarins verður tilkynnt um hver verður formaður flokksins, að undangenginni póstkosningu, en varaformaður verður kjörinn á fundinum sjálfum.

Heilbrigðisvottorða krafist
EES borgarar hafa forgang að vinnu hér, heilbrigðisvottorða verður krafist með umsókninni og reglugerð flýtt. Þannig bregst félagsmálaráðherra við gagnrýni ASÍ á Impregilo og atvinnuleyfin. </font /></b />

Þróunarhjálp í stað öryggisráðsins
Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að það geti verið allt eins skynsamlegt að verja meiri fjármunum til þróunarhjálpar í stað þess að eyða allt að milljarði til að reyna að komast í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna.

Stjórnin framdi stjórnarskrárbrot
Stjórnvöld frömdu stjórnarskrárbrot með því að heimila notkun landsins til árásar á Írak segir Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar. Hann hyggst krefja forsætisráðherra skýringa á því hvers vegna herir bandamanna fengu leyfi til að hafa hér viðdvöl vegna árásarinnar, löngu áður en listi hinna staðföstu þjóða varð að veruleika.

Grjóthörð láglaunapólitík
Almennir starfsmenn Hafnarfjarðar vilja að bærinn taki upp sjálfstæða launastefnu gagnvart þeim og hætti að láta launanefnd sveitarfélaganna semja um kjör þeirra á milli.

Þingið ítrekað samþykkt gölluð lög
Eftirlaunafrumvarpið er ekki eina lagasetningin sem hefur verið samþykkt á Alþingi og reynst gölluð eftir á. Ríkisstjórnin hefur tapað þó nokkrum fjölda mála fyrir dómstólum er varða nýsamþykkt lög. Stjórnarþingmaður segir að Alþingi verði að vanda sig betur.

Pólitísk endalok Ingibjargar?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir mögulegt að hún hætti í stjórnmálum bíði hún ósigur fyrir Össuri Skarphéðinssyni í formannskosningu í Samfylkingunni. Hún segir að komið sé að hugmyndafræðilegri endurnýjun í flokknum.

Gaf leyfi til yfirflugs
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra staðfesti á Alþingi í gær að veitt hefði verið leyfi til yfirflugs yfir Ísland þremur vikum áður en ráðist var inn í Írak. Hann segir þetta ekki hafa verið stuðning við stríð.

Afhendir ekki minnisblöð
Stjórnarandstaðan krafði forsætisráðherra svara við því á Alþingi í dag hvort íslensk stjórnvöld hefðu leyft aðgang að lofthelgi og flugvelli vegna innrásar í Írak, þremur vikum áður en nafn Íslands var birt á lista yfir hinar viljugu þjóðir. Utanríkisráðuneytið vill ekki veita aðgang að minnisblöðum vegna þessa þar sem um sé að ræða samskipti við erlent ríki.

Halldór neitar ásökunum
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra þvertekur fyrir að málflutningur hans um þá ákvörðun að setja Ísland á lista hinna staðföstu þjóða í Íraksstríðinu hafi verið villandi. Hann segir utanríkismálanefnd Alþingis frjálst að birta það sem hún vill varðandi málið.

Stuðningurinn hófst í febrúar 2003
Íslensk stjórnvöld gáfu leyfi til þess í febrúar árið 2003 að herflugvélar gætu flogið um íslenska lofthelgi og haft hér viðdvöl vegna innrásar í Írak. Listi hinna staðföstu þjóða var ekki birtur fyrr en 18. mars. Í millitíðinni töluðu formenn stjórnarflokkanna í austur og vestur í afstöðunni til Íraksdeilunnar.
Öll mismunun máð úr lögum
Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur þingmenn til þess að má úr lögum alla mismunun á grundvelli kynhneigðar. Stjórn SUS segir lög um staðfesta samvist og lög um tæknifrjóvganir fela í sér mismunun sem byggist á fordómum en ekki rökum.

Reiði Össurar tilefnislaus
IMG Gallup er ekki að gera skoðanakönnun fyrir stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, eins og Össur Skarphéðinsson hélt fram í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Varaþingmaður Samfylkingarinnar segir Össur hafa sýnt tilefnislausa reiði með ummælum sínum.