Sigursteinn Másson

Fréttamynd

Hve­nær brýtur maður lög?

Þessa dagana hugsar gamla ísland sér gott til glóðarinnar. Gömlu hagsmunaöflin um óbreytt fyrirkomulag í sjávarútvegi, forherrta valdaklíkan sem ekki má anda á og það er Þórðargleði hjá stjórnarandstöðu sem sér færi á að fella ríkisstjórn með vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur út af framgöngu hennar í dýravelferðarmáli.

Skoðun
Fréttamynd

Sök bítur...

Í rúman aldarfjórðung hef ég fjallað um hegðun fólks við mismunandi kringumstæður. Þótt ég sé búinn að koma að gerð samtals hátt í hundrað sakamálaþátta fyrir sjónvarp og hljóðbókaveituna Storytel þá er ég enginn sérstakur áhugamaður um sakamál út af fyrir sig. Það sem heillar mig er annars vegar að reyna að skilja gjörðir fólks og viðbrögð við sérstakar aðstæður og hins vegar að rýna í tiltekin smáatriði sem stundum reynast skipta meira máli en virðist í fljótu bragði.

Skoðun
Fréttamynd

Að skjóta sig í stóru tána

Daginn eftir að forsprakki Sea Shepherd samtakanna hafði ásamt félaga sínum sökkt tveimur hvalveiðibátum í Reykjavíkurhöfn í nóvember 1986 spurði blaðamaður DV hann hvaða rétt hann hefði til að sökkva skipum þjóða sem hann teldi vera að brjóta lög.

Skoðun
Fréttamynd

Stjórn­mál náttúrunnar

Af hverju einkennir rörsýn stjórnmálakerfi heimsins? Öll einblína þau á skammtímahagsmuni einnar dýrategundar. Upphrópanir snúast um það sem stjórnmálamenn telja að fólk vilji heyra í stað þess sem ítarleg og fagleg skoðun leiðir í ljós þegar tillit hefur verið tekið til ólíkra sjónarmiða og hagsmuna.

Skoðun
Fréttamynd

Vin­gjarn­legir veitinga­staðir

Staðreyndin er sú að með því að merkja sig vingjarnlega gagnvart hvölum eru viðkomandi veitingastaðir einfaldlega að veita viðskiptavinum sjálfsagðar upplýsingar.

Skoðun
Fréttamynd

Já, til hvers?

Sú ranghugmynd að iðnaðarveiðar á hval séu hluti arfleiðar og sögu þjóðarinnar hefur með áróðri stjórnvalda orðið að fullvissu margra þótt ekki eigi við nokkur rök að styðjast. Þegar hvalveiðar við Ísland voru bannaðar með öllu í fimmtán ár árið 1913 varð Ísland eitt fyrst ríkja heims til að taka slíka ákvörðun.

Skoðun
Fréttamynd

Besta af­mælis­gjöfin

Í ár er haldið upp á 75 ára afmæli Tryggingastofnunar ríkisins og hálfrar aldar afmæli Öryrkjabandalags Íslands. Sem stjórnarmaður í TR til fjögurra ára og fyrrverandi formaður ÖBÍ finnst mér rétt að stinga niður penna á þessum tímamótum. Það var gríðarlegt framfaraspor í velferðarmálum á Íslandi þegar TR var stofnað. Margir þekkja þá sögu mun betur en ég en það er engum blöðum um það að fletta að lög um

Skoðun
Fréttamynd

Af geð­veiki og vangefni

Þú ert þroskaheftur segir ung vinkona mín stundum þegar hún gagnrýnir sjónarmið mín og er endurgoldið með vandlætingarsvip. Unglingar hafa undanfarin ár sagt um eitthvað sem er rosalega flott, töff og skemmtilegt að það sé geðveikt. Jafnvel er sagt að einhver sé geðveikur í merkingunni að viðkomandi sé frábær. Nú ber hátt umræðan um virkjanamál og stóriðju undir þeim formerkjum að virkjana- og stóriðjusinnar séu geðveikir, klikkaðir og jafnvel vangefnir. Hið merkilega er að umræðunni stýra ekki unglingar með takmarkaðan orðaforða og endalausa þörf fyrir magnþrungnari lýsingarorð heldur fullorðnir og vel menntaðir karlmenn.

Skoðun
Fréttamynd

Færi á allsherjaruppstokkun

Fyrir skemmstu gerði Ríkisendurskoðun alvarlegar athugasemdir við stöðu og stjórnun á málefnum fatlaðra. Geðhjálp tekur undir þá gagnrýni og sérstaklega það að stefnumótun og eftirlit með þjónustunni hefur verið í ólestri. Aðgreining ráðuneyta velferðarmála í heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti hefur lengi verið þyrnir í augum Geðhjálpar og höfum við lagt áherslu á að geðheilbrigðismál eru og verða ætíð heilbrigðis- og félagsmál sem líta verði heildstætt á. Þessi aðgreining er án efa stór hluti ástæðunnar fyrir því að svo er komið sem raun ber vitni og skýrsla Ríkisendurskoðunar varpar ljósi á. Þegar stefnan er óskýr, ábyrgð og stjórnun sömuleiðis er ekki von á góðu. Ráðuneytin hafa löngum kastað málefnum fatlaðra á milli sín eins og heitri kartöflu í því skyni að losna við kostnað. Þar að auki hefur verkaskipting ríkis og sveitarfélaga verið óskýr. Sameinað velferðarráðuneyti getur og verður að breyta þessu. Geðhjálp styður einnig flutning á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Málefni fatlaðra eiga heima sem hluti nærþjónustunnar rétt eins og þjónusta við aðra íbúa sveitarfélaganna. Þetta er grundvallaratriði og brýnt að hugmyndafræðin á bak við yfirfrærsluna sé á hreinu. Þess vegna er það áhyggjuefni að ekki liggi fyrir skýrt markmið stjórnvalda með yfirfærslunni eins og Ríkisendurskoðun bendir á.

Skoðun
Fréttamynd

Ný og virkari vel­ferð

Á undanförnum árum hefur spurningin um það hvað einkenni norræn velferðarkerfi orðið áleitnari. Sumir hafa viljað meina að til sé norrænt velferðarlíkan sem slái við öðrum velferðarkerfum og þá hefur verið spurt hvernig þetta líkan eiginlega sé?

Skoðun
Fréttamynd

Breyttir tímar kalla á nýjar lausnir

Á dögunum hélt Sheila Riddel, prófessor við Edinborgarháskóla, erindi á málstofu í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands um aðgengi fatlaðra að háskólanámi í Bretlandi. Hlutfall fatlaðra í háskólanámi á Íslandi hefur lengst af verið lágt og hefur slæmt aðgengi og skortur á stuðningi háð þeim í náminu.

Skoðun
Fréttamynd

Að meta fatlaða að verð­leikum

Það hljómar hugsanlega sem öfugmæli að segja að ýmis tækifæri liggi í efnahagskreppunni varðandi velferðarmálin. Það liggur beint við að horfa á hættumerkin sem felast í niðurskurði og auknum sparnaði í þjónustu. Algengt er að fólk fari í viðbragðsstöðu, jafnvel í skotgrafir og mótmæli ákaft því sem gert er án þess að leggja fram hugmyndir um leiðir að lausnum. Það er staðreynd að á næstu árum verður úr minna fjármagni að spila til velferðarmála jafnvel þótt stjórnvöld standi við ítrekuð loforð um minni niðurskurð í þeim málaflokki en öllum öðrum og jafnvel þótt skattar verði hækkaðir enn frekar. Þetta er staðreynd sem við verðum öll að horfast í augu við af yfirveguðu raunsæi. Þess vegna þurfum við að benda á nýjar leiðir.

Skoðun