Kjaraviðræður 2023-25

„Gjörsamlega misboðið yfir stöðunni“
Fundi dagsins í Karphúsinu er lokið og ekki hefur verið formlega boðað til þess næsta. Gert er þó ráð fyrir að fundað verði aftur á morgun. Formenn Starfsgreinasambandsins og Samiðnar eru sammála um að staðan sé flókin og erfið.

Fundar með samninganefnd um mögulega verkfallsboðun
Samninganefnd Eflingar mun funda í kvöld í ljósi þess að Samtök atvinnulífsins opnuðu á viðræður um launaliðinn við aðra en láglaunafólk. Formaður Eflingar segir vel koma til greina að boðað verði til verkfallsaðgerða.

Gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga viðhalda verðbólgunni
Hækkun á gjaldskrám sveitarfélaga ræður mestu um að minna dróg úr verðbólgu í febrúar en vænst hafði verið. Verðbólga mælist nú 6,6 prósent. Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er eftir þrjár vikur.

Bjartsýni og góður gangur í kjaraviðræðum
Fulltrúar nánast allra félaga innan Alþýðusambandsins annarra en verslunarmanna hafa haldið áfram viðræðum við Samtök atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í dag.

Drög að sátt lögð fyrir ríkisstjórn á næstu dögum
Fulltrúar Starfsgreinasambandsins, Samiðnar og Eflingar hafa fundað með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í allan dag. Reiknað er með að heildarpakki kjarasamninga verði lagður fyrir ríkisstjórn um eða upp úr miðri viku og ríkisstjórnin kynni þá þær aðgerðir sem hún er reiðubúin að grípa til í skiptum fyrir sátt á vinnumarkaði.

Tíðinda að vænta í kjaraviðræðum um miðja vikuna
Vonir eru bundnar við að niðurstaða fáist í kjaraviðræður um eða upp úr miðri þessari viku. Brotthvarf VR og Landssambands verslunarmanna úr breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins hefur hins vegar flækt stöðuna.

Fundi lokið og annar boðaður í fyrramálið
Samningsfundi breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins í Karphúsinu lauk fyrir skemmstu og hefur annar verið boðaður klukkan níu í fyrramálið.

Funda aftur í hádeginu á morgun
Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins lauk nú um klukkan hálf sex. Boðað hefur verið til annars fundar klukkan tólf á morgun.

„Við fylgjumst bara með stöðunni í kringum okkur“
Samninganefndir breiðfylkingar og Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá Ríkissáttasemjara, en VR sagði sig úr fylkingunni í gær. Á sama tíma undirbúa Fagfélögin verkfallsaðgerðir. Formaðurinn fylgist vel með en gefur ekki upp hvort VR sláist í för með þeim.

Hissa og sorgmædd yfir ákvörðun VR
Framkvæmdastjóri SA segir það miður að VR hafi slitið viðræðum í ljósi þess að félagið var búið að samþykkja launaliðinn og að horft væri til verðbólguviðmiða. Það væri sorglegt að 0,2 prósentustiga munur hafi gert útslagið.

Telur sig geta náð betri samningi utan breiðfylkingarinnar
Formaður VR telur sig geta náð betri samningi við Samtök atvinnulífsins með því að slíta félagið frá samstarfi við breiðfylkingu stéttarfélaga. Það gerði hann í dag vegna ágreinings innan fylkingarinnar um forsenduákvæði sem snýr að verðbólgu.

Fagfélögin undirbúa verkfallsaðgerðir
Fagfélögin, sem innihalda Rafiðnaðarsamband Íslands, Félag vélstjóra og málmtæknimanna og MATVÍS, samþykktu á fjölmennum fundi í dag að stofna aðgerðahóp til að undirbúa verkfallsaðgerðir.

VR klýfur sig frá breiðfylkingunni
Forsvarsmenn VR hafa klofið sig frá breiðfylkingu stéttafélaga í samningaviðræðunum við Samtök atvinnulífsins.

Engin önnur stór ágreiningsefni eftir í viðræðum
Stýrivaxtaákvæðið sem var til umræðu í kjarasamningsviðræðum breiðfylkingar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins er ekki hluti af forsenduákvæði sem samið var um í gær. Engin önnur stór ágreiningsefni eru eftir í viðræðum.

Ragnar Þór fundar með sínu baklandi í dag
Breiðfylking ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda klukkan níu. Fram kom í fréttum í gær að náðst hefði samkomulag á fundi þeirra í gær um forsenduákvæði um þróun verðbólgu.

Hafa náð saman um forsenduákvæði og funda aftur í dag
Breiðfylkingin svokallaða og Samtök atvinnulífsins hafa náð saman um forsenduákvæði kjarasamninga eftir langan samningafund í gær. Fundarhöld hefjast að nýju klukkan níu.

Fundi hjá ríkissáttasemjara lokið og annar boðaður í fyrramálið
Fundi breiðfylkingar stéttafélaga innan ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara er lokið. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan níu í fyrramálið.

Enn fundað í Karphúsinu um forsenduákvæðið
Breiðfylking stéttarfélaga innan ASÍ og Samtök atvinnulífsins funda hjá ríkissáttasemjara. Fundur hófst klukkan níu í morgun og stendur enn að sögn Elísabetar Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjara.

Atvinnurekstur er allra hagur
Öll höfum við sameiginlega hagsmuni af því að lífskjör séu sem best á Íslandi. Það á ekki síður við hjá fyrirtækjum en til eru þau sem vilja telja öðrum trú um að hagsmunirnir séu ekki þeir sömu. Slíkar staðhæfingar gætu ekki verið fjær sannleikanum.

Hótar aðgerðum fari hjólin ekki að snúast fyrir helgi
Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir að Samtök atvinnulífsins hafi fram á föstudag til þess að koma með eitthvað að samningaborðinu. Ellegar neyðist Fagfélögin til þess að grípa til aðgerða í kjaradeilunni.

Vildi einn lækka stýrivexti
Ekki voru allir meðlimir peningastefnunefnda Seðlabankans sammála um næstu skref á síðasta fundi nefndarinnar. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika vildi lækka stýrivexti.

Funda aftur á morgun
Fundi breiðfylkingar stéttarfélaga Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins lauk án niðurstöðu síðdegis í dag. Aftur verður fundað á morgun.

Aftur að borðinu eftir viðræðuslit
Boðað hefur verið til fundar hjá breiðfylkingu stéttarfélaga innan Alþýðusambandsins og Samtökum atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara í fyrramálið.

Sparar yfirlýsingar á ögurstundu
Ögurstund er runnin upp í kjaraviðræðum breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins að mati formanns VR. Það skýrist á allra næstu dögum hvort viðræðum verði haldið áfram eða ekki.

Sjómenn samþykktu kjarasamning
Sjómenn samþykktu kjarasamning til fimm ára með 62,84 prósent greiddra atkvæða. Formaður Sjómannasambandsins segir ánægjulegt að félagsmenn hafi ekki tekið mark á skítkasti og óhróðri sem beinst hafi að stjórn félagsins.

Segja krónutöluhækkanir hafa rýrt kjör háskólamenntaðra
Forsvarsmenn 22 stéttarfélaga, þar af átján innan BHM, hafa undirritað yfirlýsingu þar sem krafist er leiðréttingar á launum háskólamenntaðra. Félögin segja hópinn hafa setið eftir í kjaraviðræðum undanfarin ár.

Ráðast í undirbúning aðgerða eftir tíu daga náist ekki samningar
Samninganefndir Fagfélaganna, Matvís, Rafiðnaðarsambandsins (RSÍ) og Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM), hafa gefið fulltrúum sínum við samningaborðið tíu daga til að ná saman við Samtök atvinnulífsins (SA) um nýjan kjarasamning. Takist það ekki munu nefndirnar hefja undirbúning aðgerða.

Verkfallsaðgerðir breiðfylkingarinnar yrðu samræmdar
Forysta stéttarfélaga innan breiðfylkingarinnar segir aðgerðir félaganna verða samræmdar komi til þess að boðað verði til verkfalla. Ljóst sé að fyrirvari Samtaka atvinnulífsins um sjálfstæði Seðlabankans standist ekki og vonandi verði hægt að ganga til samninga á ný sem fyrst.

Seðlabankastjóri staðfesti sjálfstæðan samningsrétt á vinnumarkaði
Formaður VR segir seðlabankastjóra hafa staðfest að krafa breiðfylkingarinnar um forsenduákvæði varðandi þróun vaxta skerði ekki sjálfstæði Seðlabankans, enda hafi slík ákvæði verið í samningum áður. Samninganefnd VR fékk umboð trúnaðarráðs í gærkvöldi til að boða til verkfallsaðgerða.

Meiri verðbólga – meiri hagnaður fyrirtækja
Atvinnurekendur tala gjarnan um að verðbólga sé nær eingöngu launahækkunum um að kenna. Það stenst enga skoðun.