Byggingariðnaður

Bein útsending: Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi
„Byggjum til framtíðar – með gæði, heilnæmi og sjálfbærni að leiðarljósi“ er yfirskrift málþingsins á vegum Healthy Buildings Europe sem fram fer í Háskólanum í Reykjavík milli klukkan 13 og 17 í dag.

Vilja endurbyggja verkstæðið en nágrannar mótmæla harðlega
Eigendur lóðar að Grettisgötu 87 í Reykjavík, þar sem réttingaverkstæði brann árið 2016, hafa fengi leyfi byggingarfulltrúa til að endurbyggja húsið og innrétta þar réttingaverkstæði og heildverslun. Nágrannar mótmæla áformunum harðlega.

Staðfesta byggingaráform á Fannborgar- og Traðarreit
Bæjarstjórn Kópavogs hefur staðfest að byggingaráform á Fannborgarreit og Traðarreit séu í samræmi við deiliskipulag miðbæjar Kópavogs. Í tilkynningu segir að uppbygging á reitunum marki fyrstu áfangana í uppbyggingu á svæðinu og sé liður í að skapa lifandi og fjölbreyttan miðbæ fyrir íbúa, gesti og atvinnulíf í miðbæ Kópavogs. Undirbúningur hefur staðið yfir frá árinu 2017.

Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“
Við skulum byrja á því að sjá fyrir okkur eftirfarandi staðreynd:

Íbúðaverð hækkað um 14,5 prósent á tveimur árum
Á fasteignamarkaði voru umsvif á fyrsta ársfjórðungi áþekk því sem þau voru á sama tíma í fyrra samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Íbúðaverð hefur hækkað mikið síðustu tvö ár og merki eru um að fasteignamarkaði sé haldið uppi af efnameiri kaupendum.

Sveitarfélög gegna lykilhlutverki í vistvænni mannvirkjagerð
Mannvirkjageirinn ber ábyrgð á um 40% af losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu samkvæmt sameinuðu þjóðunum ásamt því að mikil efnanotkun fylgir framkvæmdum. Það er ljóst að aðgerðir innan byggingariðnaðarins sem snúa að umhverfismálum eru mikilvægar.

Vilja fá að hafa áhrif á nærumhverfið og segja „ekki fleiri kassa“
Íbúar í grennd við gömlu höfnina í Reykjavík eru ósáttir við fyrirætlanir borgarinnar um stórfellda uppbyggingu í Vesturbugt og segjast ekki vilja „fleiri kassa“ og vísa þar í nýtískuleg fjölbýlishús í naumhyggjustíl. Umhverfissálfræðingur segir ótækt að byggja án þess að hirða um sögu og menningu staðarins og segir samráð við almenning vera leikrit.

Styður tillögur að róttækum breytingum á byggingareftirliti
Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að sér lítist vel á tillögur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um róttækar breytingar á byggingareftirliti. Grundvallaratriði sé að tryggja rétt kaupenda sem kaupi fasteignir í gölluðum nýbyggingum.

Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur
Kaup á nýju heimili er oftast ein stærsta fjárfesting sem einstaklingur gerir á lífsleiðinni. Því er mikilvægt að í lagi sé með eignina og/ eða kaupendur upplýstir ef um einhverja galla er að ræða áður en kaup eru gerð. Því miður kemur það fyrir að ófaglærðir einstaklingar framkvæma viðgerðir eða endurbætur fyrir seljanda, sem getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir húskaupendur.

Tími til umbóta í byggingareftirliti
Húsnæðismál eru eitt stærsta hagsmunamál almennings. Þegar fólk fjárfestir í íbúð, leggur það oft stærstu fjárhagslegu skuldbindingu ævi sinnar undir. Þá skiptir öllu máli að sú íbúð sé örugg, vönduð og án leyndra galla.

Þakkantinum var haldið saman með kústskafti
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til að farið verði í róttækar breytingar á eftirliti með byggingaframkvæmdum. Maður sem keypti ónýtt hús þar sem kústskaft var notað til að halda þakkkantinum uppi vonast eftir réttlæti handa húsnæðiskaupendum.

Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun kynnti í dag nýjan vegvísi um breytt byggingareftirlit. Gert er ráð fyrir því að byggingareftirlit færist frá byggingarfulltrúum sveitarfélaga til óháðra skoðunarstofa. Forstjóri segir núverandi ástand á byggingamarkaði óásættanlegt.

Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stendur fyrir fundi þar sem fjallað um þann mikla vanda sem blasir við vegna myglu, rakaskemmda og byggingargalla hér á landi.

Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni
Steinullareiningarnar frá Límtré Vírnet henta í flestar gerðir bygginga, frá smáhúsum og einbýlishúsum til stærri bygginga á borð við íþróttahús, landbúnaðarbyggingar og ýmsar gerðir atvinnuhúsnæðis.

„Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“
Fjórir læknar mótmæla fyrirætlunum hjúkrunarheimilisins Sóltúns um að framkvæmdir fari fram ofan á byggingunni á meðan heimilisfólkið er vistað þar. Þeir segja múrborar og hamarshögg vanhelga síðustu stundir íbúa með fjölskyldu og vinum.

Fasteignaviðskipti – tímabært að endurskoða leikreglurnar?
Margir fagaðilar veigra sér við að taka að sér ástandsskoðanir í tengslum við sölu eða kaup á fasteignum. Ástæðurnar má meðal annars rekja til flókins lagalegs umhverfis og skorts á samræmdum verkferlum um hvernig skuli meta ástand fasteigna.

Svansvottaðar íbúðir – fjárfesting í lífsgæðum
Það er engin tilviljun að Svansvottaðar íbúðir eru sífellt algengari á fasteignamarkaði. Neytendur gera meiri kröfur en áður og byggingaraðilar bregðast við með því að huga betur að umhverfi, heilsu og lífsgæðum. En hvað felst í Svansvottun og hvers vegna ættir þú að hafa áhuga á henni sem væntanlegur íbúðareigandi?

BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu!
BAUHAUS fagnar afmæli sínu með veglegri afmælishátíð sem stendur út maí mánuð. Mikið verður um dýrðir og þér er boðið að taka þátt í fögnuðinum! Verslunin hefur verið skreytt og stemningin er öll hin besta, alveg eins og í bestu afmælisveislum.

Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins
Landsvirkjun hefur samið við Ístak hf. um ýmis mannvirki fyrir Vaðölduver, eða Búrfellslund, þar sem fyrsta vindorkuver landsins rís. Upphæð samningsins nemur rúmum 6,8 milljörðum króna.

Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast
Unnið er að viðgerðum á húsi sem er einungis sex ára gamalt í Vogahverfi í Reykjavík vegna lekavandamála. Fleiri dæmi eru um slík fjölbýlishús í Reykjavík en formaður Meistarafélags Húsasmíða segir græðgi um að kenna frekar en flötum þökum. Áður fyrr hafi hús verið í lagi í fjörutíu, fimmtíu ár.

Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar
Nýjar íbúðir seljast verr en gamlar íbúðir vegna þess að nýjar íbúðir eru á þrengra stærðarbili. Tvöfalda þyrfti magn smærri íbúða á fasteignamarkaði til að anna eftirspurn. Meiri verðhækkun og minni sveiflur á fasteignamarkaði en á markaði innlendra hlutabréfa er til marks um óeðlilega stöðu á eignamarkaði á Íslandi samkvæmt HMS.

Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt
Formaður Húseigendafélagsins segir að allur gangur sé á því hvernig kaupendum íbúða í nýjum fjölbýlishúsum takist að tryggja rétt sinn þegar upp koma lekavandræði. Fjöldi dæma er um lekavandræði í nýlegum fjölbýlishúsum.

Engin mygla í 200 húsum byggingameistara á Selfossi
„Húsin þurfa að anda eins og mannfólkið,“ segir 93 ára byggingameistari á Selfossi, sem hefur byggt um tvö hundruð hús í bæjarfélaginu en mygla hefur aldrei greinst í þeim húsum. Þá segir hann að timbur hafi verið miklu betra í gamla daga heldur en í dag því nú sé það svo gljúpt og lélegt.

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Íslenskt samfélag hefur í gegnum tíðina notið góðs af þeim fjölmörgu Pólverjum sem hafa flust hingað til lands, unnið hörðum höndum og lagt sitt af mörkum til samfélagsins. En stundum virðist eins og við gleymum að meta það sem þeir gera – eða verra, lítum niður á þá. Það er bæði ósanngjarnt og vanþakklátt.

Sjötíu sagt upp og fyrirtækið tekið til gjaldþrotaskipta
Sjötíu manns var sagt upp hjá Kömbum í gær og starfsfólki þess tilkynnt að fyrirtækið væri á leið í gjaldþrot. Laun voru ekki greidd út um síðustu mánaðamót.

Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík
Nýtt íbúðahverfi sprettur upp við Kringluna á næstu árum. Framkvæmdastjóri þróunar hjá Reitum segir hönnun hverfisins sækja innblástur frá gömlu Reykjavík.

BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun
Í gær, fimmtudaginn 27. mars, opnaði BYKO glæsilega og endurbætta timburverslun að Skemmuvegi 2a í Kópavogi. Af því tilefni var haldið veglegt opnunarteiti þar sem viðskiptavinum, hönnuðum, starfsfólki og velunnurum var boðið í heimsókn til að skoða nýju verslunina, nýja festingardeild, tvo nýja sýningarsali og um leið nýju skrifstofur fyrirtækisins.

Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal
Nýr starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar og verkalýðsfélaganna BSRB og ASÍ á að skoða nýjar leiðir til þess að auka framboð og hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík. Hópurinn á að skila sínum tillögum í maí. Starfshópurinn mun skoða sérstaklega hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfársárdal auk þess sem hann á að kortleggja helstu möguleika á uppbyggingu næstu 10 til 15 árin.

Bein útsending: Borgarstjóri ræðir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri boðar til húsnæðisfundar í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan níu. Yfirskrift fundarins er Byggjum borg fyrir fólk og verður sú áhersla í erindi borgarstjóra og fyrirlesara.

Ný íbúðabyggð með betri loftgæðum
Um þessar mundir er verið að reisa 436 íbúða byggð á Orkureitnum við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Þar verða kynntar til sögunnar nýjar lausnir í loftræstingu íbúða sem tryggja betra loft innandyra en áður hefur þekkst. Hver íbúð stýrir sínu eigin loftstreymi sem tryggir jákvæða orku alla daga og hefur um leið þau áhrif að verulega er dregið úr hljóðmengun í íbúðum því ekki þarf að opna glugga til að fá frískt loft.