ÍSÍ

Þorleifur keilari hvergi nærri af baki dottinn
Þorleifur Jón Hreiðarsson keilari hefur ekki haft erindi sem erfiði en lögmaður hans sendi erindi til Keilusambandsins (KLÍ) þar sem kvartað var að fram hjá honum hafi verið gengið í vali á landsliði öldunga.

Vill fá úr skorið hvort „annarlegar hvatir“ liggi að baki sniðgöngunni
Þorleifur Jón Hreiðarsson hefur leitað til lögfræðings sem sent hefur forseta- og íþróttastjóra bréf þar sem hann krefst svara við því hvers vegna gengið var fram hjá honum við val á landsliði keilara.

Áfengi og íþróttaviðburðir geti átt samleið sé farið að lögum
Nýr formaður Íþrótta- og ólympíusambands Íslands segir áfengi og íþróttaviðburði geta átt samleið að því gefnu að farið sé að landslögum og tryggt sé að börn og unglingar hafi ekki aðgengi að því. ÍSÍ vilji taka forystu í því að móta sterkari umgjörð um áfengisveitingar á íþróttaviðburðum.

Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþróttaviðburðum
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segist ekki vita til þess að áfengissala á íþróttaviðburðum hafi skapað sérstök vandamál síðustu ár. Það sé áríðandi að regluverkið verði uppfært en íþróttafélögunum sé almennt treystandi til að skipuleggja söluna og fólki til að fara rólega í neysluna.

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
ÍSÍ, UMFÍ, ÍBR og KSÍ, héldu á dögunum málþingi mundir yfirskriftinni „Veðmál, íþróttir og samfélagið - hvert stefnum við?“. Nánar tiltekið var efni þingsins kynnt með þessum hætti: „Erlendar veðmálasíður verða sífellt fyrirferðarmeiri á Íslandi.

Óbreytt ástand kemur ekki til greina
Koma þarf böndum á áfengissölu íþróttafélaganna að mati formanns menningar- og íþróttaráðs Reykjavíkurborgar, óbreytt ástand komi ekki til greina. Hann segir áfengisneyslu á íþróttaleikjum illa samræmast forvarnar- og lýðheilsustefnum borgarinnar.

Nú er nóg komið af aðdróttunum og afvegaleiðingum körfuboltaþjálfarans
Að gefnu tilefni – og mér þvert um geð - sé ég mig knúinn til að svara fyrir síendurteknar ásakanir, rógburð og yfirgang körfuboltaþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar og hans fylgisfólks í minn garð.

„Þurfum að fara í miklu öflugra samtal við stjórnvöld“
„Það eru alls konar tilfinningar en fyrst og fremst þakklæti og auðmýkt. En ég er vissulega mjög meðvitaður um ríka ábyrgð sem að hvílir á þessu embætti,“ segir Willum Þór Þórsson eftir að hafa verið kjörinn nýr forseti ÍSÍ með miklum yfirburðum.

Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum
Willum Þór Þórsson var í dag kjörinn nýr forseti ÍSÍ, á 77. íþróttaþingi sambandsins. Fimm buðu sig fram í embættið og vann Willum algjöran yfirburðasigur.

Keilusambandið sakað um djúpstæða spillingu
Þorleifur Jón Hreiðarsson keilari er afar ósáttur svo vægt sé til orða tekið. Hann vann nýverið Íslandsmót öldunga í keilu, það er í flokki 50+, en fær ekki sæti í öldungalandsliðinu. Hann segir þetta ekkert minna en skandal.

Óheillaskref að áfengi sé selt á vellinum
Íþrótta-, æskulýðs- og tómstundafulltrúar telja óheillaskref að farið sé að selja áfengi á íþróttaviðburðum. Mikilvægt sé að umræða fari fram um þetta og að sveitarfélögin komi að henni þar sem þau taki þátt í að fjármagna íþróttastarfið.

Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum
Líkja má aðstæðum sem skapast hafa í kringum áfengissölu á íþróttaviðburðum við villta vestrið að mati stjórna Íþróttabandalaga Reykjavíkur og Reykjanesbæjar sem kalla eftir skýrari reglum. Málið verður rætt á íþróttaþingi.

Aldarfjórðungs ferli á enda: Öll íþróttafélög landsins orðin aðildarfélög UMFÍ
Íþróttabandalag Vestmannaeyja, ÍBV, er orðinn aðili að Ungmennafélagi Íslands, UMFÍ. Lýkur þar með vegferð sem hófst fyrir rúmum aldarfjórðungi, nú þegar öll íþróttafélög landsins eru orðin aðildarfélög UMFÍ.

Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra?
Brynjar Karl Sigurðsson hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu í aðdraganda Íþróttaþings ÍSÍ sem fram fer um helgina vegna framboðs síns til formanns sambandsins, loksins þegar að hann fékk verðskuldaða athygli fjölmiðla eftir að hafa vælt og skælt á samfélagsmiðlum yfir áhugaleysi þeirra á framboði sínu, eins og hann orðaði það sjálfur.

Halda málþing um veðmál í íslensku íþróttalífi
Veðmál eru orðin stór hluti af íþróttum og íþróttaáhorfi í dag. Fjögur sambönd innan íslenskra íþrótta skipuleggja umræður um þessa hlið íþróttanna.

Ákalli svarað með afreksmiðstöð
Afreksmiðstöð Íslands, stjórnstöð afreksíþrótta hér á landi var ýtt úr vör í gær. Tilgangur hennar er að skapa okkar fremsta íþróttafólki vettvang til að komast í hóp þeirra bestu á alþjóðlegum vettvangi. Miðstöðin er ekki fjármögnuð að fullu en samtakamátt alls samfélagsins þarf til að sjá til þess að hún blómstri.

Persónulegar ástæður fyrir brotthvarfi Vésteins
Það er af persónulegum ástæðum sem Vésteinn Hafsteinsson hverfur nú úr starfi afreksstjóra ÍSÍ eftir að hafa starfað sem slíkur við afar góðan orðstír undanfarin tvö ár. Hann er stoltur af því sem náðst hefur að áorka á þeim tíma.

Kristín Birna í stað Vésteins sem verður ráðgjafi
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands opnaði í dag Afreksmiðstöð Íslands. Miðstöðinni er ætlað að hjálpa íslensku afreksfólki að ná betri árangri í íþróttum og efla faglega umgjörð afreksstarfsins hér á landi.

Brynjar Karl svarar fyrir sig: „Ég má ekki verja mig opinberlega“
Körfuboltaþjálfarinn og frambjóðandi til forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Brynjar Karl Sigurðsson, svarar framkvæmdastjórn ÍSÍ fullum hálsi á Facebook-síðu sinni.

Birti myndir af fólki, kalli það illum nöfnum og saki um einelti á meðan
Framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands lýsir yfir stuðningi og samstöðu með starfsfólki samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs í kjölfar þess að frambjóðandi til forseta ÍSÍ bar samskiptaráðgjafann þungum sökum í vikunni. Hann er sagður ráðast harkalega með ofbeldi og hótunum að fagmennsku, heiðri og mannorði einstaklings sem sinnir hlutverki samskiptaráðgjafa.

Á að sameina ÍSÍ og UMFÍ?
Það eru breytingar í farvatninu hjá ÍSÍ við kjör á nýjum formanni ÍSÍ og einnig fylgir því sú breyting að það verður gert að hlutastarfi. Sjálfur vona ég að að það gæfu spor á þinginu verði stigið að það verði gert að fullu starfi og að það verði sett tímamörk á hversu mörg ár hægt sé að gegna starfinu samfleytt.

Forseti ÍSÍ fær laun og framboðin aldrei verið fleiri
Í fyrsta sinn síðan 2006 verður forseti ÍSÍ ekki sjálfkjörinn og aldrei hafa jafn mörg framboð borist til embættisins, sem núverandi stjórn ÍSÍ stefnir á að gera að launuðu starfi.

Tvö ólík framboð bárust áður en fresturinn rann út
Tvö mjög ólík framboð til forseta Íþrótta- og Ólympíusambandsins bárust áður en fresturinn til að tilkynna framboð rann út á föstudag.

Brynjar studdur af KSÍ en Willum af Sundsambandinu
Forsetaframboðin fimm sem höfðu verið tilkynnt voru öll úrskurðuð lögleg af kjörnefnd. Skila þurfti inn stuðningsyfirlýsingu frá einu sérsambandi og einu héraðssambandi, sem formenn sambandanna skrifuðu undir.

Magnús býður sig fram til forseta ÍSÍ
Magnús Ragnarsson, formaður Tennissambands Íslands, hefur nú bæst í hóp þeirra sem sækjast eftir því að verða næsti forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Valdimar verður með í forsetaslagnum
Valdimar Leó Friðriksson, stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, hefur tilkynnt framboð til forseta ÍSÍ.

„Út með ruslið og inn með íþróttaandann“
Brynjar Karl Sigurðsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ. Það gerir hann eftir langa baráttu við ríkjandi öfl og núverandi valdhafa, sem Brynjar líkir við mafíustarfsemi. Hann fór yfir sín helstu áherslu- og stefnumál í viðtali sem var tekið fyrr í dag og má finna í heild sinni hér fyrir neðan.

Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ
Körfuknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Hann greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni nú í kvöld.

Olga ætlar ekki í slag við Willum
Olga Bjarnadóttir tilkynnti framboð til embættis forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem hún hefur sinnt stjórnarstörfum hjá síðan 2019, aðallega á afrekssviðinu. Hún kveðst mjög ólík mótframbjóðanda sínum, Willum Þór Þórssyni, en lítur ekki á framboð þeirra tveggja sem slag. Hún hefur heldur ekki trú á öðru en að fleiri eigi eftir að bjóða sig fram.

Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“
Leikmenn kvennalandsliðs Íslands í handbolta hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna leikja liðsins við Ísrael og aðdragandans að þeim. Þær spyrja hvers vegna Ísrael sé enn leyft að taka þátt í alþjóðlegum keppnum og skora á íþróttayfirvöld að knýja fram breytingar.