Tjaldsvæði

Tjaldsvæði vinsæl víða um land
Ferðasumarið virðist vera að hefjast og af því tilefni ákvað fréttastofa að taka saman og staðfesta verð og bókunarferli á tjaldsvæðum víða um land. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um tjaldsvæðin á tjalda.is.

Lok, lok og læs á hjólhýsasvæðið á Laugarvatni
Hjólhýsaeigendur á Laugarvatni verða að vera búnir að koma öllum sínum hýsum, pöllum og öðru í kringum hjólhýsin í burtu fyrir næstu áramót samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar. „Við erum sár og fólk er niðurbrotið“, segir formaður hjólhýsaeigenda á svæðinu.

„Gríðarlegt andlegt og félagslegt sjokk og fjárhagslegt tjón“
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnaði í dag tilboði Samhjóla, félags hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að hjólhýsabyggðin fái að vera áfram gegn því að félagið sinni nauðsynlegum framkvæmdum. Formaður félagsins segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og að sveitarfélagið hefði getað farið mannlegri leið að niðurstöðunni en hún gerði.

Salan eykst þó Íslendingar flykkist til útlanda
Sala á hjólhýsum er í hæstu hæðum þetta sumarið, þrátt fyrir að frelsið til utanlandsferða sé mun meira en síðustu tvö sumur. Sölumaður telur að kórónuveirufaraldurinn hafi valdið því að fólk hafi uppgötvað landið upp á nýtt. Aukin ferðalög innanlands séu komin til að vera.

Blíðviðri og ekkert lúsmý
Sólin kemur til með að leika við Austfirðinga næstu dagana ef veðurspár ganga eftir. Blíðu á Austurlandi fylgja jafnan margir gestir á tjaldsvæðum á svæðinu og er því undirbúningur á fullu á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík.

Komu að tjaldsvæðinu lokuðu og enduðu sem tjaldverðir
Tveir ungir karlmenn höfðu ætlað sér að búa í tjaldi á Eskifirði í sumar á meðan þeir ynnu í álveri Alcoa á Reyðarfirði. Skömmu eftir að þeir höfðu komið sér vel fyrir á tjaldsvæði kom í ljós að loka átti tjaldsvæðinu vegna skorts á tjaldvörðum. Þeir voru ekki lengi að taka starfið einfaldlega að sér sjálfir.

Parka Camping bókunarvélin bjargar buguðum ferðafjölskyldum
„Það gerir ferðalagið svo miklu ánægjulegra og þægilegra að geta kíkt í símann að morgni og séð hvort það er laust pláss þar sem besta veðrið er í stað þess að komast að því að allt er fullt þegar við erum mætt á staðinn með bugaða og grenjandi krakka í aftursætinu,“ segir Arna Haraldsdóttir markaðsstjóri Parka en á vefsíðu Parka er hægt að bóka pláss á tjaldstæðum um allt land á einfaldan hátt.

Nýir eigendur Galtalækjar taka því rólega en stefna á deiliskipulagningu
Vinjar ehf., félag í eigu nokkurra fjárfesta, hefur gengið frá kaupum á Galtalækjarskógi og hluta af Merkihvolslandi, sem liggur austur af skóginum. Stjórnarformaður félagsins segir stefnuna fyrst og fremst vera að koma svæðinu í sómasamlegt ástand. Sem stendur eru engin frekari áform um nýtingu landsins.

Um 100 húsbílar í Þorlákshöfn um helgina
Um eitt hundrað húsbílar og eigendur þeirra eru nú staddir í Þorlákshöfn þar sem síðasta sumar útilega Félags húsbílaeigenda fer fram. Elsti félaginn, sem er að verða 99 ára fór á húsbílnum sínum í tíu daga ferð um Norðurland í sumar með félaginu.

Ótrúlegar breytingar á gömlum fellihýsum
Það er alveg ævintýralegt hvað hægt er að gera úr gömlum þreyttum fellihýsum og jafnvel gera þau að töff húsum á hjólum.

„Það er náttúrulega verslunarmannahelgi og maður á að hafa það örlítið gaman“
Gestir tjaldsvæða halda nú heim á leið eftir vel heppnaða verslunarmannahelgi. Þetta segir umsjónarmaður tjaldsvæðis á Suðurlandi sem kveðst ánægður með helgina. Rólegra var á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri í gær en dagana á undan.

Reyndu að smygla sér inn á fullt tjaldsvæði
Þrátt fyrir að verslunarmannahelgin hafi verið óvenjuleg í ár virðast Íslendingar hafa skemmt sér vel á tjaldsvæðum víða um land. Umsjónarmaður á tjaldsvæðinu Hömrum á Akureyri segir talsverðan eril hafa verið þar í gærkvöldi og í nótt.

Stuð og stemming á harmonikkufjöri á Borg í Grímsnesi
Mikið stuð og stemming er á tjaldsvæðinu á Borg í Grímsnesi því þar eru harmoníkuleikarar, saxófónleikarar, trommuleikari og maður sem spilar á sög komnir saman til að skemmta sér og öðrum við dillandi tónlist og dans tjaldsvæðisgesta.

Einstaklega róleg byrjun á helginni: „Hér er allt eins og blómstrið eina“
Fólk á ferð um landið skemmti sér fallega í nótt, allavega í þeim lögregluembættum sem Vísir náði tali af nú í morgunsárið. Þetta virðist ætla að vera róleg verslunarmannahelgi í tvö hundruð manna samkomubanni, lögreglumönnum til einstakrar ánægju.

Umferðin þung á landinu en víða eru tjaldstæði enn laus
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur verið þung í dag, eftir að hafa verið stigvaxandi alla vikuna. Stærsta ferðahelgi ársins er gengin í garð og stríður straumur bíla hefur verið á leið úr Reykjavík, um Vesturlandsveg og austur fyrir fjall.

Tjaldsvæði á Suðurlandi eru að fyllast af fólki
Tjaldsvæði á Suðurlandi eru við það að fyllast af fóki enda spáir góðu veðri þar næstu daga. Strangar sóttvarnarreglur munu gilda á tjaldsvæðunum.

Margir ætla að tjalda á Suðurlandi um helgina þar sem sólin skein í dag
Margir ætla að elta góða veðrið og tjalda á suðurlandi um Verslunarmannahelgina. Þar verður sólskin - en líka í höfuðborginni þar sem sjaldséð sólin skein í dag.

Langar raðir og gestir tjaldsvæðisins í vandræðum með að finna sér mat
Tjaldsvæðið á Kirkjubæjarklaustri er alveg að fyllast og virðist kominn upp hálfgerður vöruskortur á svæðinu vegna fjölda gesta þar. Mjög langar raðir mynduðust í verslunum svæðisins í dag þar sem lítið er eftir af fýsilegum matvælum.

Ekki bruna af stað án brunavarna
Íslenska sumarið er dásamlegt og töfrandi – svo töfrandi að það fær okkur til að gleyma hinum dimmu vetrardögum. Með fullan tank og fullt skott fyllum við helstu tjaldsvæði landsins og tæmum matvöruverslanir.

Má tjalda alls staðar nema á tjaldstæðinu
Ferðamenn á húsbílum sem skoða fríkort af Mývatnssvæðinu reka margir hverjir upp stór augu. Í auglýsingu þar segir að einungis sé bannað að tjalda á tjaldsvæðinu.

Skemmtun skólafélags í Þrastalundi fór „algerlega úr böndunum“
Lögregla á Suðurlandi var kölluð út þegar skemmtun skólafélags í Þrastalundi í Grímsnesi var „algerlega komin úr böndunum“ síðasta laugardagskvöld.

Gríðarlegir vatnavextir fyrir norðan: Flæddi inn á tjaldsvæði við Vaglaskóg
Gríðarlegir vatnavextir eru í Þingeyjarsveit vegna leysinga og hefur Fnjóská flætt yfir bakka sína og inn á tjaldsvæðið við Vaglaskóg. Vatnsmagn í Glerá er einnig gífurlegt og segir umsjónaraðili virkjana í ánni að hér séu á ferð mestu sumarleysingar í mannaminnum.

„Ein stór bomba“ á tjaldsvæðum landsins um helgina
Mikill fjöldi fólks heimsótti tjaldsvæði landsins um helgina. Veðurblíða lék við landann víðs vegar um land í gær.

Hvetja ferðalanga til þess að forbóka tjaldsvæði
Þrátt fyrir góðan framgang bólusetningar landsmanna er útlit fyrir að margir Íslendingar muni ferðast innanlands. Forsvarsmenn Tjalda.is mæla með því að ferðalangar bóki pláss á tjaldsvæðum fyrirfram.

Kaffihús í gömlum amerískum skólabíl í Vík í Mýrdal
Margir af þeim sem hafa átt leið um Vík í Mýrdal í sumar hafa rekið upp stór augu þegar þeir hafa séð gamla gula ameríska skólarútu við tjaldsvæðið. Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta skólabílakaffihús.

Tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti lokað fyrr en vanalega
Tjaldsvæðinu við Þórunnarstræti á Akureyri hefur verið lokað frá og með deginum í dag. Þetta er nokkru fyrr en vanalegt er á haustin, en yfirleitt hefur tjaldsvæðinu verið lokað um miðjan september.

Gagnrýnir yfirvöld fyrir stuttan fyrirvara um hertar aðgerðir
Vísa þurfti mörgum frá tjaldsvæðum á Akureyri um helgina. Að sögn framkvæmdastjóra tjaldsvæða Skátanna á Akureyri var mikil aðsókn á tjaldsvæði á Akureyri um helgina en þurft hafi að vísa fólki frá vegna mannmergðar og kórónuveirutakmarkana.

Tjaldsvæðin búa sig undir að vísa fólki frá
Hert samkomubann sem tekur gildi á morgun hefur mikil áhrif starfsemi tjaldsvæða sem bjuggu sig undir eina stærstu ferðahelgi ársins um helgina. Forsvarsmaður tjaldsvæðanna á Akureyri ræður fólki sem ætlaði sér að tjalda þar frá því að leggja í hann.

Hækka aldurstakmark á tjaldstæðum í 20 ár
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri verður haldin með óhefðbundnu sniði á Akureyri nú um verslunarmannahelgina vegna faraldurs kórónuveiru.

Lögregla kölluð til vegna ófriðar í menntaskólaútilegu
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fjölskyldur á svæðinu sem ákváðu að yfirgefa tjaldsvæðið um miðnætti vegna láta í menntaskólahópnum.