

Benedikt Sigurðsson og Valur Grettisson, fréttamenn á Ríkisútvarpinu, hafa ákveðið að segja skilið við fréttastofu RÚV. Annar er hættur en hinn að vinna sínar síðustu vaktir. Þeir hófu störf á svipuðum tíma í ársbyrjun 2023.
Skarphéðinn Guðmundsson hefur sagt starfi sínu sem dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins Sjónvarps lausu. Hann hættir um áramótin og segist ekki vita hvað taki við.
Snorri Másson, oddviti Miðflokksins í Reykjavík suður, telur það boða gott að Stefán heitinn Jónsson, fyrrverandi alþingismaður, hafi vitjað sonar síns Kára Stefánssonar í draumi vegna þingframboðs Snorra.
Snorri Másson, það er stundum erfitt að spá fyrir um áhrif nýrra aðstæðna sem maður kemur sér í. Þær aðstæður sem hafa reynst mér erfiðastar og hafa haft með öllu ófyrirsjáanleg áhrif eru nýir skór. Ég hef farið í bestu skóbúðir landsins og fest kaup á fallegustu og gerðarlegustu skóm sem hægt er að ímynda sér og ætlað mér að brúka þá á alls konar sigurgöngum á lífsleiðinni.
Snorri Másson ber Ríkisútvarpið þungum sökum í nýju myndbandi sem farið hefur eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Hann segir fjölmiðilinn vera líklega einna lengst til vinstri á hinum pólitíska kvarða á Íslandi, og segir hann hafa fjallað undarlega um Miðflokkinn á Tiktok.
Ljósvakamiðlarnir Sýn, Sjónvarp Símans og Ríkisútvarpið hafa stofnað til sérstakra íslenskra sjónvarpsverðlauna. Stefnt er að því að verðlaunin verði afhent í fyrsta sinn maí næstkomandi á sérstökum viðburði.
Guðni Tómasson, fráfarandi menningarritstjóri Ríkisútvarpsins, hefur verið verið ráðinn framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Opið bréf til Stefáns Eiríkssonar úvarpsstjóra og Ingólfs Bjarna Sigfússonar.
Birgir Þórarinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn og beint til Lilju D. Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra; hann vill fá að vita hvort eitthvað sé um kvartanir vegna fréttaflutnings Ríkisútvarpsins.
Arnar Björnsson fréttamaður vann sína síðustu vakt á fréttastofu RÚV í gær. Og var kvaddur með virktum. Hann á að baki 45 ára gifturíkan feril, sem hlýtur að teljast dágott og má hann teljast goðsögn. En Arnar segir nú komið gott.
Stjórn Ríkisútvarpsins hefur ákveðið að endurráða Stefán Eiríksson í stöðu útvarpsstjóra til fimm ára. Fimm stjórnarmeðlimir RÚV greiddu atkvæði með því að bjóða Stefáni endurráðningarsamning en fjórir vildu auglýsa stöðuna.
Höfundar Áramótaskaupsins 2024 verða þau Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Friðgeir Einarsson, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson, Hugleikur Dagsson og María Reyndal sem einnig er leikstjóri og yfirhandritshöfundur.
„Þetta eru einhverjar örfáar raddir sem virðast nýta sér Kveik sem einhvers konar vopn gagnvart okkur í einhverri óánægju. Þetta er högg sem kom okkur á óvart og við fundum okkur knúin til að svara fyrir það áður en það færi eitthvað lengra. Mér finnst sorglegt ef Kveikur ætlar að gera sér einhver eldsmat úr þessu. Við höfum heyrt að þau séu að leita sérstaklega af einhverjum sem hafi liðið nægilega illa þarna í ferðinni til að tala við. Mér finnst það mjög ósmekklegt að ráðast þannig að ungmennum.“
Hópur þingmanna Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á rekstrarumhverfi fjölmiðla. Verði frumvarpið samþykkt verður Ríkisútvarpið ohf. lagt niður og Ríkisútvarpið gert að ríkisstofnun. Frumvarpið var fyrst lagt fram á síðasta löggjafarþingi en hlaut ekki afgreiðslu.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hefur gert stjórn Ríkisútvarpsins grein fyrir því að hann sé reiðubúinn til að gegna starfinu áfram en skipunartímabili hans lýkur í byrjun næsta árs.
Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hefur undanfarin ár getið sér gott orð á íþróttafréttadeild Ríkisútvarpsins og sem stjórnandi Gettu betur.
Atli Sigurður Kristjánsson hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Rekstrarafkoma Ríkisútvarpsins ohf. var neikvæð um 470 milljónir króna á fyrstu sjö mánuðum ársins. Tapið er sagt skýrast af eldsumbrotum á Reykjanesskaga, forsetakosningum og íþróttamótum.
Fréttamaðurinn Bogi Ágústsson hefur starfað á RÚV í áratugi. Hann byrjaði að lesa fréttir þegar hann var aðeins 25 ára, og er enn að hátt í fimm áratugum seinna.
Gísli Marteinn Baldursson sjónvarpsmaður fékk dónaskapinn sem hann auglýsti eftir og gott betur.
RÚV mun halda sig við Söngvakeppnina á næsta ári til þess að velja framlag Íslands í Eurovision og mun hún fara fram í febrúar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem segir að þegar hafi verið opnað fyrir innsendingar á lögum og að til skoðunar sé breytt fyrirkomulag á vali á sigurvegara.
„Ég veit ekki alveg hvað hún vildi vita. Hún náttúrulega bara heldur áfram með það að reyna að fá okkur blaðamenn til að brjóta lög, því eins og þú veist þá gefum við ekki upp heimildarmenn.“
Ríkisreknar sjónvarpsstöðvar Norðurlanda, að RÚV undanskildu, héldu í síðustu viku sérstakan sjónvarpsviðburð sem sýndur var á öllum stöðvunum. Þátturinn bar titilinn „Svar Norðurlanda við stríði Pútíns“ og sátu utanríkisráðherrar landanna fyrir svörum, auk sérfræðinga og Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins.
Ísland mun taka þátt í Eurovision á næsta ári. Þetta kemur fram í svörum frá Ríkisútvarpinu til fréttastofu. Áður hafði ákvörðun um þátttöku í keppninni verið frestað. Fram kemur að fyrirkomulag á vali á framlagi Íslands verði kynnt síðar.
Ákvörðun um þátttöku Íslands í Eurovision á næsta ári hefur verið frestað þar til í næstu viku. Rúnar Freyr Gíslason, framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar og fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, sagði fyrr í vikunni að ákvörðunin yrði tekin í þessari viku en henni hefur verið frestað þar til eftir helgi. Ísland lenti í seinasta sæti á Eurovision í ár.
Ríkisútvarpið mun á morgun tilkynna hvort Ísland muni taka þátt í Eurovision í Basel á næsta ári. Fararstjóri íslenska hópsins sagði eftir keppnina í ár að hann gerði ráð fyrir því að Ísland tæki aftur þátt í ár, en ekkert væri meitlað í stein.
Það vakti athygli í gærkvöldi að innsetning Höllu Tómasdóttur sem sjöundi forseti lýðveldisins hafi ekki verið fyrsta frétt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. Þess í stað var frétt um að samhæfing í viðbrögðum við jökulhlaupum væri ábótavant. Brýnar upplýsingar til almennings, að sögn vaktstjóra kvöldfrétta RÚV.
Starfsmaður hjúkrunarheimilis segir síðbúinn kvöldfréttatíma og endalausa íþróttadagskrá RÚV í sumar hafa valdið nokkrum usla á heimilinu. Deilt sé um það hvort horfa eigi á íþróttirnar eða eitthvað annað, og margir séu ósáttir við fréttaleysið. Dóttir eldri konu með eigið sjónvarp segir hana ekki treysta sér í slaginn við fjarstýringuna og hún sé því tilneydd til að glápa á íþróttir.
Fréttir Ríkisútvarpsins af Ólympíuleikunum í París til þessa hafa verið merktar með vörumerkistákni. Íþróttastjóri sjónvarps hjá RÚV segir þetta gert að kröfu Alþjóðaólympíunefndarinnar en til standi að fjarlægja táknin.
Kristján Hreinsson skáld, kenndur við Skerjafjörðinn er ósáttur við að Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hafi vísað kæru hans á hendur Ríkisútvarpinu frá. En hann er hvergi nærri af baki dottinn.