Innlent
Ákærður fyrir árás á lögreglumenn Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tæplega fertugum manni fyrir eignaspjöll, hótanir, brot gegn valdstjórninni og sérstaklega hættulega líkamsárás á heimili sínu 6. júní í fyrra. Þegar lögregla hafði afskipti af hinum ákærða í kjölfar atvika þann dag lagði hann einu sinni með hnífi til eins lögreglumanns og tvívegis til annars lögreglumanns. Innlent 13.10.2005 19:14
Gáfu báta til hamfarasvæðanna Rótarýklúbburinn Reykjavík-Austurbær hefur gefið fjóra báta ásamt veiðarfærum til fiskimannafjölskyldna í Andra Pradesh héraði á Indlandi. Á þeim slóðum misstu þúsundir aleigu sína í flóðbylgjunni sem reið yfir Indlandshaf annan dag jóla. Innlent 13.10.2005 19:14
Lög um stofnfrumurannsóknir vantar Tekist hefur að búa til einstaklingsmiðaðar stofnfrumur sem þýðir að í framtíðinni gætu sjúklingar pantað sérsniða líffærahluta. Hér á landi hefur ekki farið fram stefnumótun um rannsóknir á stofnfrumum og sem stendur væri ólöglegt að fylgja rannsókn sem þessari eftir. Innlent 13.10.2005 19:14
Kaup Actavis frágengin Actavis er búið að kaupa bandaríska lyfjafyrirtækið Amide á 33 milljarða króna og var það staðgreitt. Sameiginlega eru þessi fyrirtækið með fimm hundruð samheitalyf á markaði og þar með eitt mesta lyfjaúrval á sínu sviði. Þá eru fyrirtækin með eitt hundrað og fjörutíu lyf í þróun. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Færeyskur kútter til Norðfjarðar Færeyski kútterinn Jóhanna TG 326 er væntanlegur til Norðfjarðar á sjómannadaginn að sögn færeyska blaðsins Norðlýsið. Jóhanna TG er einn þeirra færeysku kúttera sem sigldu á stríðsárunum með fisk milli Íslands og Skotlands. Innlent 13.10.2005 19:14
Dómstólar eiga síðasta orðið Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins segir að dómstólar eigi síðasta orðið í ættleiðingarmáli Lilju Sæmundsdóttur. Hann segir réttindi barnsins, öryggi og hamingju í fyrirrúmi í ákvarðanatöku ráðuneytisins hverju sinni. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Veittu 93 milljóna króna styrki Rauði kross Íslands fékk hæsta styrkinn þegar Pokasjóður úthlutaði styrkjum til 109 samtaka. Samtals námu styrkirnir 93 milljónum króna og fékk Rauði krossinn fimm milljónir vegna hamfaranna í Asíu í desember. Innlent 13.10.2005 19:14
Karlar fá margfalt fleiri punkta Karlar fá fleiri refsipunkta og valda fleiri alvarlegum slysum en konur. Þó telja þeir sig mun betri ökumenn.Nýleg rannsókn segir þó engan mun á kynjunum þegar kemur að ökuleikni. Innlent 13.10.2005 19:14
KEA vill undirbúa stóriðju Stjórn KEA hvetur til þess að byrjað verði á göngum undir Vaðlaheiði og lýsir vilja til að taka þátt í undirbúningi að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi. Þá áréttar stjórnin mikilvægi þess að samstarf verði á milli byggðarlaga um staðarval. Innlent 13.10.2005 19:14
Landbúnaðarráðherra til Noregs Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra verður í opinberri heimsókn í boði norska landbúnaðarráðherrans, Lars Sponheims, dagana 22.-24. maí í Hörðalandi í Noregi. Í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna nýsköpun í landbúnaði en norska ríkisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið verið með sérstakt átaksverkefni til að efla atvinnu og byggð í sveitahéruðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Kosið um flugvöll á landsfundi Lagt er til við landsfund Samfylkingar að Reykjavíkurflugvöllur hverfi úr Vatnsmýrinni í áföngum og verði farinn þaðan ekki síðar en árið 2010. Jafnframt er lagt til að byggður verði nýr flugvöllur í jaðri höfuðborgarsvæðisins, ekki lengra en tuttugu kílómetra frá Alþingishúsinu í loftlínu. Innlent 13.10.2005 19:14
Gengi bréfa í Actavis rauk upp Gengi bréfa í Actavis rauk upp í morgun eftir að tilkynnt var um kaup á bandarísku lyfjafyrirtæiki. Actavis keypti bandaríska lyfjafyrirtækið Amide í morgun fyrir þrjátíu og þrjá milljarða króna. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Rannsókn stendur enn yfir Rannsókn stendur enn yfir á máli þriggja ungra kínverskra stúlkna sem voru stöðvaðar við komu til landsins ásamt kínverskum manni og fylgdarmanni frá Singapúr. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, eru öll skref í málinu tekin í samráði við barnaverndaryfirvöld en í ljós kom við yfirheyrslur að stúlkurnar væru undir lögaldri. Innlent 13.10.2005 19:14
Landsfundurinn hefst í dag Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag en á fundinum verður kosið til formanns eins og kunnugt er. Formannskjöri verður lýst klukkan tólf á morgun en á dagskránni í dag eru kosningar í ýmis embætti á fundinum og skýrslur ýmissa hópa, þ.á m. framtíðarhóps flokksins sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stýrði. Innlent 13.10.2005 19:14
Samfylkingin vanbúin síðast Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Samfylkingin hafi farið vanbúin í kosningabaráttuna fyrir síðustu kosningar, stefnuvinnu hafi ekki verið gefinn nægur gaumur. Samfylkinguna hafi því skort trúverðugleika. Hún leggur til stofnun skuggaráðuneyta. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Kviknaði tvisvar í á sama stað Útkall barst til slökkviliðsins í Reykjavík klukkan 16:36 vegna bruna á horni Njálsgötu og Rauðarárstígs.Íbúar að Njálsgötu 112 létu vita af eldinum. Skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi var svo aftur tilkynnt um eld á sama stað. Innlent 13.10.2005 19:14
Hraðakstur á Suðvesturlandi Lögreglan á Suðvesturlandi hefur orð á því að ökumenn séu farnir að fara fullgeyst nú þegar sumarið er gengið í garð. Lögreglan í Kópavogi stöðvaði 10 ökumenn í gær og í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan tvöfalt fleiri í fyrradag Innlent 13.10.2005 19:14
Kosningar gætu eflt Samfylkinguna Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í dag að þúsundir hefðu gengið til liðs við Samfylkinguna vegna formannskosninganna. Kosningarnar gætu því markað tímamót og eflt flokkinn til langframa. Innlent 13.10.2005 19:14
Hæstiréttur dæmir Maitslandbræður Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tvíburabræðrunum Rúnari Ben og Davíð Ben Maitsland. Þeir höfðu áður verið dæmdir í fimm ára og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á 27 kílóum af kannabisefnum frá Þýskalandi hingað til lands í ellefu ferðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrír mánuðir í fangelsi fyrir árás Dráttur rannsóknar lögreglu á líkamsárás og breytingar til hins betra hjá árásarmanni urðu til þess að 15 mánuðir af 18 mánaða fangelsisdómi voru skilorðsbundnir í dómi Hæstaréttar í gær. Í héraði var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. Innlent 13.10.2005 19:14
Lönduðu tólf hákörlum Átta og hálft tonn af þorragóðgæti næsta árs kom í troll togarans Sundabergs við Grænland. Skipverjar lönduðu tólf hákörlum í gær. Innlent 13.10.2005 19:14
Lögreglumaður þurfti hjálp Lögreglumaður á Eskifirði stöðvaði í fyrrakvöld mann við reglubundið eftirlit. Þegar maðurinn steig út úr bílnum stafaði frá honum megn áfengislykt og upphófust átök þegar hann streittist á móti handtöku. Innlent 13.10.2005 19:14
Ökuníðingar hvergi óhultir Reykvískir ökuníðingar verða hvergi óhultir í sumar. Lögreglan í Reykjavík ætlar að beita sér sérstaklega gegn hraðakstri í íbúðahverfum og koma hraðamyndavélum fyrir í ómerktum lögreglubílum. Innlent 13.10.2005 19:14
Karlkennarar launahærri innan KHÍ Karlkennarar við Kennaraháskóla Íslands eru að jafnaði með fjórum prósentum hærri laun en kvenkennarar í sambærilegum stöðum, á samsvarandi aldri, með sambærilegt rannsóknarálag og menntun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um samanburð á launum starfsfólks við Kennaraháskóla Íslands sem unnin var af Félagsvísindastofnun. Innlent 13.10.2005 19:14
Strandaði um stund við Faxasker Betur fór en á horfðist þegar ísfisktogarinn Smáey VE 144 strandaði við Faxasker norðan við Heimaey á fjórða tímanum í nótt. Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk tilkynningu um strandið frá Vaktstöð siglinga og Neyðarlínunni og að Smáey hefði losnað af strandstað og væri á leið til hafnar. Björgunarbáturinn var Þór kallaður út í öryggisskyni en hann þurfti þó ekki að aðstoða. Innlent 13.10.2005 19:13
Aukin hætta á launaskriði Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur lækkað úr 3,1 prósenti í 2,3 prósent á einu ári. Vegvísir Landsbankans bendir á að reynslan síðasta áratuginn sýni að ekki séu dæmi um að saman geti farið atvinnuleysi undir tveimur prósentum og verðbólga undir fjórum prósentum. Nú þegar atvinnuleysið sé komið niður að tveggja prósenta mörkunum aukist hættan á því að launaskrið aukist verulega. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Fermetraverð fari yfir 200 þúsund Greining Íslandsbanka spáir 15 prósenta hækkun á íbúðarverði til viðbótar þar til það staðni síðla á næsta ári. Meðalfermetraverð yrði þá komið yfir 200 þúsund krónur. Þó er tekið fram að lítið megi út af bregða til að ekki komi til lækkunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Stúlkur líklega ekki kærðar Þrjár kínverskar stúlkur sem voru stöðvaðar ásamt ungum kínverskum manni og fylgdarmanni á fimmtugsaldri frá Singapúr eru 15 til 17 ára. Fylgarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 19:14
Samstarfssamningur í Kína Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn í Shanghai undirrituðu í gær samstarfssamning að viðstöddum forseta Íslands og borgarstjóra Shanghai. Í máli borgarstjórans kom meðal annars fram að efnahagur Shanghai hefði áttfaldast á síðustu 11 árum. Innlent 13.10.2005 19:14
Íslensk rannsókn vekur athygli Íslensk rannsókn synir að hófdrykkja dregur úr líkum á skýmyndun á auga en reykingar auka þær og sömuleiðis vinna úti undir beru lofti. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli og meðal annars verið kynntar í virtum læknatímaritum austan hafs og vestan. Innlent 17.10.2005 23:41
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti