Innlent

Fréttamynd

Enginn misskilningur

Vegna ummæla Steinars Arnar Magnússonar friðargæsluliða um að misskilningur milli stofanna hefði valdið því að þeir hefðu ekki fengið bætur frá Tryggingarstofnun vill Karl Steinar Guðnason forstjóri Tryggingarstofnunar árétta að einskis miskilnings gætti af hálfu stofnunarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg

Flugvél Landhelgisgæslunnar sá sjö sjóræningjaskip að veiðum á karfaslóð á Reykjaneshrygg í dag. Skipin eru skráð á smáeyju í Karabíska hafinu.

Innlent
Fréttamynd

Sagði eiginkonu hafa viljað deyja

Magnús Einarsson, sem ákærður er fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Kópavogi í nóvember í fyrra, sagði fyrir dómi í morgun að hún hefði beðið sig að hjálpa sér að deyja. Hann sagði hana ítrekað hafa sagst vilja deyja eftir að hafa verið honum ótrú.

Innlent
Fréttamynd

Meiri halli á vöruskiptum

Fyrstu fjóra mánuði ársins var mun meira flutt inn til landsins en frá því og var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um sextán milljarða króna, samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands. Á sama tímabili í fyrra var hallinn á vöruskiptum hins vegar 3,4 milljarðar. Í prósentum jókst hallinn tæplega fjórfalt. Vöruskiptin í apríl voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna, sem er mikil breyting frá apríl árið 2004 þegar hallinn var 2,9 milljarðar á föstu gengi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Endurskoðun hafin

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lýsti því yfir á fundi með Samtökum um kvennaathvarf, Stígamót og fleiri samtök í gærmorgun að vinna væri hafin við að endurskoða kynferðiskafla almennra hegningarlaga.

Innlent
Fréttamynd

Kærum Kers og Olís vísað frá

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur vísað frá kærum Kers og Olís vegna þeirrar ákvörðunar Samkeppnisstofnunar að veita Landssambandi íslenskra útvegsmanna aðgang að upplýsingum tengdum samráði olíufélaganna sem áður höfðu verið felldar úr úrskurði samkeppnisráðs vegna trúnaðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Ánægja með leikskólana

Menntaráð Reykjavíkurborgar kynnti í gær niðurstöður úr viðhorfskönnun foreldra leikskólabarna í Reykjavík. Í niðurstöðunum kemur fram að 99% foreldra telja að barni sínu líði mjög eða frekar vel í leikskólanum.

Innlent
Fréttamynd

Varð bráðkvaddur á báti

Maðurinn sem var á bátnum sem hafnaði uppi í fjöru við Stigahlíð í Ísafjarðardjúpi laust fyrir hádegi reyndist látinn þegar björgunarskip komu á vettvang. Samkvæmt lögreglunni í Bolungarvík varð hann bráðkvaddur. Varðskip og tvö björgunarskip fóru á vettvang eftir að það sást í sjálfvirku kerfi tilkynningaskyldunnar að báturinn var kominn upp í fjöru. Báturinn var hann í kjölfarið dreginn til land.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt fagfélag stofnað

Í dag verður stofnað Félag fagfólks í frítímaþjónustu, FFF, en það með rætist draumur um þúsund manns sem starfa á sviði æskulýðsmála víðs vegar um landið.

Innlent
Fréttamynd

Refsirammi rúmur en dómar of vægir

Ragnheiður Bragadóttir lagaprófessor segir að refsirammi kynferðisbrota sé sé rúmur og geri ráð fyrir þungum refsingum. Dómar séu hins vegar oft vægir. Dómsmálaráðherra hefur falið Ragnheiði að skoða ákvæði í kynferðisbrotakafla hegningarlaganna.

Innlent
Fréttamynd

Endurskoða lög um kynferðisbrot

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur falið Ragnheiði Bragadóttir lagaprófessor að semja drög að frumvarpi um breytingar á kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga. Um er að ræða þau ákvæði sem eru um nauðgun og önnur brot gegn kynfrelsi fólks, kynferðisbrot gegn börnum og vændi.

Innlent
Fréttamynd

Björguðu trillu út af Látrabjargi

Björgunarsveitin á Patreksfirði bjargaði í morgun sex tonna trillu sem varð aflvana eina og hálfa sjómílu suður af Látrabjargi. Vörður, björgunarbátur félagsins, var kallaður út klukkan sex í morgun og var kominn að bátnum um tveimur klukkustundum síðar og er nú að draga hann til Patreksfjarðar.

Innlent
Fréttamynd

Nýja Hringbrautin opnuð

Syðri akrein hinnar nýju Hringbrautar til austurs verður opnuð fyrir umferð um hádegisbil á morgun en verið er að leggja lokahönd á tengingar og prófun umferðarljósa.

Innlent
Fréttamynd

Alvarlegt umferðarslys í Hvalfirði

Sjúkrabílar og lögregla eru nú á leið í Hvalfjörð, en tilkynnt var um alvarlegt umferðarslys þar. Upplýsingar um slysið eru takmarkaðar en þó er vitað að um árekstur er að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Miðar við tveggja milljóna árslaun

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt að tjón konu, sem var bjargað frá drukknun úr hvolfdri bifreið í Hólmsá árið 2000, sé að fullu bætt með því að miða við tveggja milljóna króna árslaun. Hún gerði kröfu um þriggja milljóna króna viðmið. Konan, sem er tæplega þrítug, hlaut varanlegan heilaskaða og er metin 100 prósent öryrki eftir slysið og getur ekki snúið aftur á almennan vinnumarkað.

Innlent
Fréttamynd

Disney dreifir Latabæ í Evrópu

Forsvarsmenn Latabæjar og Disney-samsteypunnar skrifuðu í dag undir samning um rétt til að sýna Latabæjarþættina í Frakklandi, á Ítalíu og á Spáni. Enn er ekki ákveðið hvenær næsta þáttaröð verður framleidd.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhaldið framlengt

Gæsluvarðhald yfir fylgdarmanni fjögurra kínverskra ungmenna sem komu hingað á leið til Bandaríkjanna á dögunum hefur verið framlengt um viku. Maðurinn er grunaður um skipulagt mansal.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys í Hvalfirði

24 ára karlmaður beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í morgun. Slysið varð á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman skammt hjá Meðalfellsafleggjara í Hvalfirði, sunnan megin, og var flutningabíllinn á leið inn fjörðinn en fólksbíllinn út. Ökumennirnir voru einir í bílunum og var áreksturinn mjög harður og lést ökumaður fólksbílsins.

Innlent
Fréttamynd

Símtal breytti bankasölunni

Selja átti Landsbankann og Búnaðarbankann til almennings og tryggja dreifða eignaraðild. Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson skiptu um skoðun og ákváðu að selja bankana til eins fjárfestis hvorn um sig eftir að Björgólfur Guðmundsson hringdi í Davíð og vildi kaupa annan hvorn bankann.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja bíla árekstur í Hvalfirði

Sjúkraflutningamenn og lögregla eru enn á slysstað í Hvalfirði þar sem varð alvarlegt umferðarslys laust fyrir klukkan níu í morgun, vestan við Fell í Hvalfirði. Upplýsingar af slysinu eru af skornum skammti en þó er vitað að tveir bílar lentu þar í árekstri. Vegfarendur komast þó um fjörðinn með því að fara Eyrarfellsveg.

Innlent
Fréttamynd

Þarf tvo milljarða í bætt öryggi

Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra telur að það þurfi að verja um tveimur milljörðum króna á næstu fjórum árum til að auka öryggi í heilbrigðiskerfinu.

Innlent
Fréttamynd

Beið bana í Hvalfirði

Karlmaður á þrítugsaldri beið bana í umferðarslysi í Hvalfirði í gærmorgun. Slysið átti sér stað á níunda tímanum þegar flutningabíll og fólksbíll rákust saman. Hinn látni var ökumaður fólksbílsins.

Innlent
Fréttamynd

Lyfjasala undir væntingum

Sala á lyfjum frá Actavis stóð ekki undir væntingum á fyrsta fjórðungi ársins. Afkoman var jákvæð um rúmar 900 milljónir króna sem er 900 milljónum minna en á sama tíma í fyrra þegar Ramipril-hjartalyfin fóru á markað.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Davíð opnar verksmiðju Lýsis

Davíð Oddsson utanríkisráðherra tekur nýja verksmiðju Lýsi hf. formlega í notkun í dag. Verksmiðjan, serm er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum, er við Fiskislóð í Örfirisey og er hún 4.400 fermetrar að stærð. Í verksmiðjunni verður hægt að framleiða 6.000 tonn af lýsi á ári en 90 prósent framleiðslunnar fara á markað erlendis.

Innlent
Fréttamynd

Lífeyrissjóðir sameinast

Fjórði til fimmti stærsti lífeyrissjóður landsins verður til um næstu áramót þegar Samvinnulífeyrissjóðurinn og Lífeyrissjóðurinn Lífiðin sameinast.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Játaði að hafa banað hermanni

Scott Ramsey játaði fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag að hafa orðið 33 ára dönskum hermanni að bana á skemmtistaðnum Traffic í Keflavík í nóvember í fyrra. Málið var þingfest í héraðsdómi í dag.

Innlent
Fréttamynd

4,4 milljarða halli á vöruskiptum

Vöruskipti landsmanna við útlönd voru óhagstæð um 4,4 milljarða króna í síðasta mánuði, borið saman við sama mánuð í fyrra. Fluttar voru út vörur fyrir liðlega 17 milljarða en inn fyrir rúmlega 21 milljarð króna. Verðmæti útflutningsins jókst um tvö prósent í apríl 2005 miðað við apríl 2004 en verðmæti innflutningsins jókst um 21 prósent. Sjávarafurðir voru meirihluti þess sem flutt var út en mest var flutt inn af fólksbílum, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vinnulyfta hrundi af þriðju hæð

Vinnulyfta með tveimur mönnum hrundi niður af þriðju hæð á fjölbýlishúsi við Hátún í Reykjavík á tólfta tímanum í dag. Annar mannann náði að halda sér og skríða inn á svalir en hinn féll með lyftunni niður. Hann var fluttur á slysadeild. Ekki er ljóst hversu alvarlega hann er slasaður en þó vitað að hann er beinbrotinn.

Innlent
Fréttamynd

Mesta síld í þrjátíu ár

Það eru miklar gleðifréttir að norsk-íslenska síldin finnist aftur innan íslenskrar lögsögu að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. Sjómenn segja hennar ekki hafa orðið vart í jafn miklu magni í þrjátíu ár.

Innlent