Innlent
Yngsti lifrarþegi landsins Innlent 27.10.2005 17:34 Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. Innlent 27.10.2005 19:26 Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. Innlent 27.10.2005 19:26 Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. Innlent 27.10.2005 19:19 Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. Innlent 27.10.2005 19:14 Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:13 « ‹ ›
Segir útgerðarmenn eina eiga fiskinn í sjónum Það eru útgerðarmenn einir, en ekki landsmenn allir, sem eiga fiskinn í sjónum, að mati doktors Guðrúnar Gauksdóttur, formanns Rannsóknastofnunar í auðlindarétti. Innlent 28.10.2005 12:05
Rætt um stöðuna í varnarviðræðunum Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman til fundar klukkan kortér yfir átta í morgun, til að ræða stöðuna í viðræðum Íslendinga og Bandaríkjamanna um herstöðina á Keflavíkurflugvelli og varnarmál Íslands almennt. Innlent 28.10.2005 12:44
Búist við hækkun á vöxtum húsnæðislána Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Innlent 28.10.2005 12:00
Tekist á um aðfarahæfi dóms í máli Jóns gegn Hannesi Þingfesting var í morgun í máli Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors vegna aðfarahæfi dóms í meiðyrðamálið Jóns Ólafssonar gegn Hannesi. Innlent 28.10.2005 11:20
Bærinn vill kaupa starfsstöðina Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði. Innlent 28.10.2005 10:56
Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna. Innlent 28.10.2005 10:24
Allt flug til og frá höfuðborginni liggur niðri Allt flug til og frá Reykjavíkurflugvelli hefur legið niðri í morgun vegna hvassviðrisins sem er á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Flugfélagi Íslands verður næst kannað hvort hægt verði að fljúga klukkan tíu mínútur yfir ellefu. Innlent 28.10.2005 10:07
Tafir á umferð í morgun vegna hálku Talsverðar umferðartafir urðu víða á Reykjavíkursvæðinu í morgun vegna hálku og særok og ágjöf eru á Sæbrautinni. Nokkrir árekstrar hafa orðið, en ekki er vitað um slys. Þá er búist við hvassviðri Suðvestanlands þannig að vanbúnum bílum getur verið hætt. Innlent 28.10.2005 09:14
Varað við óveðri á vesturhluta landsins Vegagerðin varar við óveðri á Kjalarnesi, Holtavörðuheiði, Snæfellsnesi og á Klettshálsi. Hálkublettir og skafrenningur eru á Hellisheiði og í Þrengslum og hálkublettir á Reykjanesi. Innlent 28.10.2005 08:40
Samþykkt að selja hitaveitu Ólafsfjarðar Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að selja hitaveitu bæjarins til Norðurorku á Akureyri fyrir 535 milljónir króna. Talsverð andstaða hefur verið meðal bæjarbúa við þessum áformum, en megnið af söluandvirðinu verður notað til að greiða niður skuldir bæjarins. Innlent 28.10.2005 07:28
Aðalbjörg sæmd umhverfisverðlaunum Útgerðin Aðalbjörg sf. í Reykjavík hlaut umhverfisverðlaun Landssambands íslenskra útvegsmanna. Bræðurnir Sigurður, Guðbjartur og Stefán Einarssynir, sem eiga Aðalbjörgu, tóku við verðlaununum úr hendi Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á landsfundi LÍÚ í gær. Innlent 28.10.2005 07:25
Heimamenn afar ósáttir Vestmannaeyingar eru ósáttir við að heimsókn þingmanna Suðurkjördæmis, sem hefjast átti í dag, skyldi vera frestað fram í næstu viku vegna slæms veðurútlits. Innlent 28.10.2005 07:20
Einstaklingar tvöfalda lántökur Lántökur einstaklinga voru meira en tvöfalt hærri undir lok síðasta mánaðar en þær voru árið áður. Þetta kemur fram í Hagvísum Seðlabankans þar sem kemur fram að útlán bankanna jukust um 59 prósent á einu ári. Útlán til fyrirtækja jukust um 42 prósent á sama tíma og útlán til einstaklinga jukust um 118 prósent. Innlent 28.10.2005 07:26
Búast við hækkun vaxta af húsnæðislánum Allt stefnir í að vextir af húsnæðislánum hækki alveg á næstunni þar sem vextir á skuldabréfamarkaði hækka nú daglega. Sérfræðingar KB banka segja að miðað við stöðuna núna þyrftu vextir Íbúðalánasjóðs til dæmis að vera 4,65 prósent en ekki 4,15, eins og þeir eru nú. Innlent 28.10.2005 07:16
Tvískattlagt á leið til Reykjavíkur Umræðan um lagningu Sundabrautar hefur að undanförnu legið nokkuð í skugga flugvallarumræðunnar. Þrjár lausnir hafa verið kannaðar á fyrsta áfanganum sem er þverun Kleppsvíkur frá Gufuneshöfða. Þær eru í fyrsta lagi hábrú sem kæmi niður við Sæbraut, í öðru lagi göng undir sundið og í þriðja lagi innri leið, nær Elliðaárdal, með lábrú. Innlent 27.10.2005 22:23
Verið að meta tjón af völdum vatnavaxta Búið er að tilkynna um tjón í 16 byggingum á Höfn í Hornafirði. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið tjón varð af völdum þeirra miklu vatnavaxta sem áttu sér stað á Hornafirði nýverið en mat stendur yfir. Innlent 27.10.2005 21:15
Endurnýjaður réttur með helgarferð til útlanda Vinnumálastofnun synjaði beiðni starfsmanna 2B ehf. um atvinnuleyfi fyrir 36 Pólverja sem hér hafa verð við störf á hennar vegum. "Ætli verði ekki bara notað þetta klassíska úrræði að menn fari í helgarferð til Köben og komi svo aftur," segir Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, en við það myndi hefjast nýtt þriggja mánaða tímabil ferðamannaáritunar. Innlent 27.10.2005 22:21
Nýtt skip í stað Jaxlisins Flutningaskipið Jaxlinn sem selt var til Danmerkur um miðjan þennan mánuð fær fljótlega arftaka. "Og það verður enginn eftirbátur hans," segir Ragnar Magnús Traustason, framkvæmdastjóri Sæskipa sem gerðu út Jaxlinn. Innlent 27.10.2005 22:23
Situr inni í tvo mánuði Maður sem viðhafði kynferðislegt og klámfengið tal í fjölmörgum smáskilaboða í farsíma tveggja ungra stúlkna þarf að greiða þeim 400.000 krónur í bætur og var dæmdur í fimm mánaða fangelsi. Hæstiréttur staðfesti í gær fangelsisdóm Héraðsdóms Vesturlands yfir manninum, en hækkaði bótagreiðslur til hvorrar stúlku um 150.000 krónur. Innlent 27.10.2005 22:22
Meira að gera eftir rannsókn "Við höfum fengið ný viðskipti frá því að málið kom upp og höfum enga viðskiptavini misst þannig að málið hefur ekki haft tiltakanleg áhrif á reksturinn," segir Jóhannes B. Skúlason, framkvæmdastjóri Skúlason ehf. Húsleit var gerð í húsakynum fyrirtækisins í byrjun mánaðarins að frumkvæði breskrar efnahagsbrotalögreglu í tengslum við meintar blekkingar í viðskiptum og peningaþvætti. Innlent 27.10.2005 22:28
Reglur tilbúnar fyrir áramót Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir unnið að því að fara yfir lagaákvæði sem lúta að vernd fjarskipta og starfsháttum fjarskiptafyrirtækja með það fyrir augum að búa hugsanlega til vinnureglur þar að lútandi. Þetta er gert í kjölfar þess að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra fól stofnuninni að bregðast sérstaklega við vegna frétta í Fréttablaðinu um upphaf Baugsmálsins, en þær byggðu á skjölum sem blaðið komst yfir. Innlent 27.10.2005 22:23
Lamdi dyravörð Átján ára piltur brást harkalega við þegar dyravörður á Gauki á Stöng meinaði honum inngöngu skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt. Sló hann þá dyravörðinn í skyndingu milli augnanna. Lögreglan kom á svæðið og handsamaði piltinn sem sparkaði í lögreglubílin við handtökuna. Innlent 27.10.2005 22:23
Próflaus á stolnum bíl Rúmlega þrítugur maður var dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir að stela bíl við Barónsstíg í Reykjavík og aka um borgina. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum. Ökuferðin endaði í Breiðholti, en til að komast inn í bílinn braut maðurinn í honum hliðarrúðu. Innlent 27.10.2005 22:23
Ofsaakstur í Ártúnsbrekku Ökumaður var tekinn á 155 kílómetra hraða á klukkustund í Ártúnsbrekkunni fyrr í kvöld. Ökumaðurinn var sviptur réttindum á staðnum og getur búist við að þurfa að greiða vænar sektir fyrir athæfið. Innlent 27.10.2005 21:42
Brosað í gegnum tárin Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sagði Flateyringum að þeir ættu vináttu sína, þegar hún flutti ávarp á minningarfundi um þá sem fórust í snjóflóðinu fyrir tíu árum. Íbúar bæjarins gátu ekki haldið aftur af tárunum, þegar björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar, komu til fundarins. Innlent 27.10.2005 19:26
Norrænt samstarf að verða útflutningsvara Norðurlandasamstarfið og norrænt samfélag er að verða að útflutningsvöru, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, en þingi ráðsins lauk í Reykjavík í dag. Hún segir að hrakspár um að samstarf norrænu landanna yrði óþarft við inngöngu sumra þeirra í ESB, hafi ekki gengið eftir. Innlent 27.10.2005 19:26
Aðkeypt sérfræðiaðstoð hefur tvöfaldast Aðkeypt sérfræðiaðstoð ríkisstofnana og ráðuneyta hefur nærri tvöfaldast frá árinu 1998 samkvæmt úttekt ríkisendurskoðunar. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, telur nær að takmarka þessi útgjöld í stað þess að skera niður hjá þeim sem minnst hafa. Innlent 27.10.2005 19:19
Starfsmenn Flögu ósáttir Starfsmenn Flögu eru ósáttir við hvernig staðið var að uppsögnum en fjörtíu manns misstu vinnuna í vikunni. Starfsemin flyst í auknum mæli til Bandaríkjanna. Innlent 27.10.2005 19:14
Hagkerfið komið að ystu mörkum Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt. Innlent 27.10.2005 19:13