Innlent

Fréttamynd

Kvóti nýttur til sjóstangaveiða

Nýtt útgerðarmynstur leit dagsins ljós á Tálknafirði í gær þegar níu Þjóðverjar réru til fiskjar á nokkrum hraðfiskibátum og veiddu af kvótum þeirra, en útgerðarmennirnir sátu heima í stofu og horðu á.

Innlent
Fréttamynd

Fl Group selur hlut sinn í easyJet

FL Group er að selja tæplega 17% hlut sinn i lággjaldaflugfélaginu easyJet fyrir um það bil þrjátíu milljarða króna og hagnast félagið um 12 milljarða miðað við kaupverð bréfanna á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Páll talinn hæfastur umsækjenda

Meirihluti Hæstaréttar telur að Páll Hreinsson prófessor sé hæfastur þeirra fjögurra, sem sóttu um stöðu Hæstaréttardómara. Allir umsækjendurnir séu hæfir en næst komi Hjördís Hákonaróttir dómstjóri og sigríður Ingvarsdóttir og loks Þorgeir Ingi Njálsson.

Innlent
Fréttamynd

97 tillögur bárust um nafn á nýju sveitafélagi

Alls bárust 97 tillögur um nafn á hið nýja sameinaða sveitafélag á Ólafsfirði og Siglufirði. Fréttavefurinn Dagur greinir frá því að nokkrar tillögur hafi verið að sama nafni svo það eru rúmlega 70 nöfn sem nafnanefndin þarf að taka afstöðu til. Nafnanefndin mun funda í dag og að þeim fundi loknum verða nafnatillögurnar upplýstar.

Innlent
Fréttamynd

Felldur úr stjórn sparisjóðsins

Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og einn stærsti hluthafinn í Straumi-Burðarási, náði ekki endurkjöri í stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja á aðalfundi sparisjóðsins á dögunum. Gísli G. Guðlaugsson, Skæringur Georgsson og Þór Í. Vilhjálmsson voru hins vegar kosnir.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Moodys segir stöðuna góða

Matsfyrirtækið Moody's segir að ekki steðji hætta að greiðsluhæfi og lausafjárstöðu Íslands. Í skýrsku sem fyrirtækið birti í gær er komist að þeirri niðurstöðu að landið standi ekki frammi fyrir óhóflegum greiðsluhæfis- eða lausafjárvandræðum vegna óstöðugleika sem gætt hefur í viðskipta- og fjármálaumhverfinu. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er Aaa.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

FL kaupir í Finnair

FL Group hefur aukið við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósenta hlut í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur fyrirtækið aukið við hlut sinn í Finnair jafnt og þétt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Enn rætt um RÚV-frumvarp á þingi

Önnur umræða um frumvarp til nýrra laga um Ríkisútvarpið stendur enn á Alþingi en hún hófst um klukkan eitt í dag. Fimm manns hafa tekið til máls frá því að umræðan hófst en skömmu fyrir klukkan tíu voru tólf á mælendaskrá og því líklegt að þingfundur standi að minnsta kosti til miðnættis. Umræðunni lýkur þó varla í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Hlutfall vinnuslysa á Austurlandi eykst umtalsvert

Um þriðjungur vinnuslysa hér á landi hefur verið á Austurlandi undanfarin tvö ár samkvæmt tölum Vinnueftirlitsins. Hefur hlutfall þeirra af öllum vinnuslysum í landinu aukist umtalsvert frá aldamótum. Þá leiða tölur Vinnueftirlitsins í ljós að byggingariðnaðurinn er hættulegasta starfsgreinin.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælaaðgerðir ófaglærðra geti breiðst út um landið

Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins segja að vel geti farið svo að ófaglært starfsfólk á heilbrigðisstofnunum úti á landi grípi til mótmælaaðgerða eins og setuverkfalls til að knýja á um bætt kjör. Fundað verður með heilbrigðisráðherra í fyrramálið vegna stöðunnar.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja manna leitað

Lögreglan í Reykjavík rannsakar frásögn ungrar stúlku sem segir tvo menn hafa rænt sér og annar þeirra hafi reynt að nauðga sér, skammt utan við borgina.

Innlent
Fréttamynd

Þýska safnið komið til Hafnarfjarðar

Bókasafn Hafnarfjarðar mun framveigis hýsa þýska bóksafnið fyrir Goethe-Zentrum á Íslandi. Um er að ræða bækur, geisladiska, hljóðsnældur og myndbönd á þýskri tungu, alls 6500 titla.

Innlent
Fréttamynd

Fundað með heilbrigðisráðherra vegna umönnunarstarfa

Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins funda á morgun með heilbrigðisráðherra meðal annars vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjarabaráttu ófaglærðra starfsmanna á elliheimilum á suðvesturhorninu. Starfsmennirnir hafa boðað setuverkfall í lok þessarar viku vegna óánægju með kjör sín, en þeir vilja sömu laun og fólk í sambærilegum störfum hjá sveitarfélögunum.

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta sérhæfða geðdeildin fyrir aldraða

Geðdeild fyrir aldraða verður sett á laggirnar á Landakotsspítala, sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þetta er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag sem ætlaðar eru til að bæta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Óbreytt lánshæfismat Glitnis banka

Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s staðfesti lánshæfiseinkunnir þriggja stærstu banka landsins í dag. Langtímaeinkunn Glitnis banka er A1 en skammtímaeinkunn er P1. Þá segir Moody´s horfur Glitnis banka stöðugar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lánshæfiseinkunnir KB banka staðfestar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's staðfesti lánshæfiseinkunnir KB banka í dag og gefur langtímaeinkunnina A1 og skammtímaeinkunnina P-1. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika C+ verður tekin til endurskoðunar til hugsanlegrar lækkunar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Lánshæfiseinkunn Landsbankans staðfest

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s staðfesti í dag A-2 og P-1 lánshæfismatseinkunnir Landsbankans. Samhliða þessu hefur Moody’s breytt horfum á lánshæfismatseinkunn á fjárhagslegum styrkleika, sem í dag er C, úr stöðugum í neikvæðar.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

FL Group kaupir í Finnair

FL Group hefur bætt við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósent í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur Finnair skilað góðri afkomu og er það góður fjárfestingakostur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Konan ekki í lífshættu

TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar lenti á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi í Fossvoginum um klukkan eitt með konu sem slasaðist í umferðarslysi rétt sunnan við Laugarvatn. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er konan ekki í lífshættu. Hún er þó með mikla ákverka og hefur verið lögð inn á handlækningadeild.

Innlent
Fréttamynd

Velti nær fjórfalt meira en fyrir ári

Hlutabréf seldust fyrir nær fjórum sinnum hærri upphæð í Kauphöll Íslands fyrstu þrjá mánuði þessa árs en á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Alls jókst veltan í Kauphöllinni um nær 160 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Varar Íslendinga við erfðatækninni

Hættan sem mönnum getur stafað af erfðabreyttum matvælum og lyfjum hefur ekki verið útilokuð. Þetta segir fyrrverandi umhverfisráðherra Breta sem staddur er hér á landi. Hann varar Íslendinga við því að taka upp slíka tækni í landbúnaði og lyfjaframleiðslu.

Innlent
Fréttamynd

TF-SIF sótti slasaða konu

TF-SIF þyrla Landhelgisgæslunnar er nýlent við Landsspítala-Háskólasjúkrahús í Fossvogi með konu sem slasaðist í umferðarslysi rétt sunnan við Laugarvatn.

Innlent