Innlent

Engar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili
Engar breytingar verða gerðar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili, aðrar en að laga stöðu sjóðsins að ríkisstyrkjareglum EES-samningsins og hugsanlega til að fara eftir tillögum stýrihóps um málefni Íbúðalánasjóðs.

Margir ökumenn lentu í vandræðum á Hellisheiði í gærkvöldi vegna ófærðar
Margir ökumenn lentu í vandræðum á Hellisheiði í gærkvöldi vegna krapa og hálku og var bjrögunarsveitin í Hveragerði kölluð út til að aðstoða þá.

Vill innflytjendur í íslensku lögregluna
Lögreglan þarf að bregðast við auknum fjölda nýbúa á Íslandi með því að auðvelda þeim inngöngu í Lögregluskólann. Frumkvæðið þarf að koma frá Alþingi.

Gögn Þjóðskjalasafns um hleranir birt á vefnum
Þjóðskjalasafnið hefur birt á vef sínum þau gögn sem eru þar í vörslu og varða dómsmál um hleranir á kaldastríðsárunum.

Starfsmenntasjóðir atvinnulífsins misnotaðir
Það er mat Starfsgeinasambandsins að óeðlilegt sé að starfsmenntasjóðir atvinnulífsins, sem ætlaðir séu lægst launaða fólki landisins til menntunar, séu notaðir í jafn ríkum mæli og raun beri vitni, til styrktar íslenskukennslu útlendinga. Þetta kemur fram í pistli á vefsíðu sambandsins. Þar segir að slíkt eigi að vera á ábyrgð samfélagsins alls. Samtök atvinnulífsins og SGS muni sameiginlega óska eftir því við ríkisstjórnina að brugðist verði nú þegar við fyrirséðum vanda, vegna stöðugt vaxandi fjölda útlendinga á vinnumarkaði.

Dæmdur fyrir áfengisauglýsingu
Stjórnarformaður Karls K. Karlssonar var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag til að greiða 200 þúsund krónur í sekt vegna áfengisauglýsingar sem birt var í tímaritinu Gestgjafanum árið 2003.

Engar breytingar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili
Engar breytingar verða gerðar á hlutverki Íbúðalánasjóðs á þessu kjörtímabili, aðrar en þær sem áður hefur verið lýst, þ.e. breytingar til að laga stöðu sjóðsins að ríkisstyrkjareglum EES-samningsins og hugsanlegar breytingar til að fara eftir tillögum stýrihóps um málefni Íbúðalánasjóðs. Þetta kom fram í ræðu Magnúsar Stefánssonar, félagsmálaráðherra, á ársfundi ASÍ í dag. Hann segir að samkvæmt tillögum stýrihópsins sé m.a. lagt til að Íbúðalánasjóði verði heimilað að fjármagna útlán sín með öðrum hætti en verið hafi og geti þannig lánað án ríkisábyrgðar.

Félag vélstjóra og málmtæknimanna inn í ASÍ
Nýtt sameinað félag, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, var samþykkt sem aðildarfélag Alþýðusambands Íslands á ársfundi ASÍ, sem var settur í morgun.

ASÍ: Hagkerfið nær mjúkri lendingu
Samkvæmt hagspá Hagdeildar ASÍ fyrir næstu tvo ár er gert ráð fyrir að við lok núverandi stóriðjuframkvæmda nái hagkerfið mjúkri lendingu sem feli í sér að ekki verði harkalegur samdráttur þó verulega hægi á. Í frétt á vefsíðu ASÍ segir að aðlögunin að jafnvægi verði þó alls ekki sársaukalaus því kaupmáttur margra dragist saman og gjaldþrotum fjölgi. Á næsta ári verði hagvöxtur lítill og atvinnuleysi muni aukast. Þá muni gengið veikjast, stýrivextir lækka samhliða lækkandi verðbólgu og draga úr viðskiptahallanum.

Ekki til skoðunar að breyta opnunartíma skemmtistaða
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir hrottalegar nauðganir og önnur ofbeldisverk í borginni kalla á eflt samstarf lögreglu og borgaryfirvalda. Skoða verði hvort fjölga eigi lögreglumönnum og öryggismyndavélum í borginni. Hann segir hins vegar ekki á dagskrá að endurskoða opnunartíma vínveitingastaða í miðborginni.

Krefjst 26 milljóna í skaðabætur
Alcoa krefst 26 milljóna króna í bætur af 12 mótmælendum sem eru ákærðir fyrir að hafa farið í óleyfi inn á virkjanasvæðið við Kárahnjúka. Fólkið er ákært fyrir að hafa brotið hegningarlög með því að leggjast á vegi og stöðva umferð og vinnu á svæðinu. Aðalmeðferð hófst í málinu í dag.

Gefur ekki upp hvorn hann styður
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segist ekki gefa upp hvort hann styðji Björn Bjarnason eða Guðlaug Þór Þórðarson í annað sætið í Reykjavík. Vilhjálmur hefur lýst opinberlega yfir stuðningi við Guðlaug Þór en prýðir einnig forsíðu kosningabæklings Björns.

Dæmdur fyrir nauðgun
Karlmaður á þrítugsaldri var í héraðsdómi í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga tvítugri stúlku á göngustíg í Breiðholti í sumar.

Malaví býður íslendingum þróunaraðstoð í fótboltanum
Ísland er nú í 95. sæti á styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, einu sæti fyrir neðan Malaví sem er þiggjandi stórs hluta þróunaraðstoðar Íslendinga. Yassín Osman, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Malaví, undrast stöðu Íslands á lista FIFA og telur að landsliðin ættu að leika vináttuleik svo Íslendingar geti séð hvernig fátæku litlu ríki tekst að færast ofar á styrkleikalistanum.

Hvalveiðar skaða Icelandair
Forstjóri Icelandair segir hvalveiðar vanhugsaðar og geti valdið félaginu miklum skaða. Fyrsta afbókun frá stórum ferðaheildsala barst fyrirtækinu nú síðdegis.Eigandi hvalaskoðunarfyrirtækis leggur til að farin verði eins konar millileið í hvalveiðimálinu og leggur til að afmörkuð verði stór hval-griðasvæði við landið.

Óánægðir með að vera kallaðir "jeppagengi"
Íslenskir starfsmenn friðargæslunnar í Afganistan eru afar óánægðir með tal utanríkisráðherra um að þeir hafi starfað í "jeppagengjum", en ráðherrann vill mýkja ásýnd friðargæslunnar. Íslensk hjúkrunarkona og ljósmóðir eru nú í Afganistan og hefja störf á laugardag. Þær verða ávallt í fylgd vopnaðra fylgdarmanna.

Skjöl um símahleranir 1949 til 1968 verða birt
Þjóðskjalasafnið hefur ákveðið að birta skjöl um símhleranir frá árunum 1949 til 1968. Safnið segir að ákvörðunin sé tekin í samræmi við þá skoðun Menntamálaráðuneytisins sem birtist í úrskurði vegna stjórnsýslukæru Kjartans Ólafssonar, að veita skuli aðgang að gögnunum meðal annars að teknu tilliti til 71. gr. stjórnarskrár um friðhelgi einkalífsins.

Umhverfisslys yfirvofandi á Frakkastígsreit
Umhverfisslys er yfirvofandi á horni Frakkastígs og Laugavegar, segir borgarfulltrúi frjálslyndra sem gagnrýnir það hvernig nýtt deiliskipulag er kynnt - kynningarferlið, segir hann, er alltof veikt.

Fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni
Hæstiréttur dæmdi í dag karlmann í fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni á sex ára tímabili, eða þegar hún var átta ára og þar til hún var fjórtán ára. Með þessu staðfesti rétturinn dóm hérðasdóms.

Fimm sinnum tekinn fullur á tæpum tveimur mánuðum
Hæstiréttur Íslands dæmi í dag karlmann á fimmtugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur. Maðurinn ók bifreið sinni undir áhrifum áfengis og var sviptur ökurétti fimm sinnum á tímabilinu frá 5. desember 2005 til 21. janúar 2006.

HS samþykkir 10 milljóna dollara tilboð bandaríska hersins
Stjórn Hitaveitu Suðurnesja hefur ákveðið að samþykkja tilboð frá bandaríska hernum um 10 milljóna dollara greiðslu, jafnvirði um 680 milljóna, til að jafna ágreining vegna uppsagnar hitaveitusamnings í kjölfar brotthvarfs varnarliðsins.

Möguleikinn til náms mikilvægasti þáttur samstarfs
Íslendingar telja að möguleikinn til náms og rannsókna í öðrum norrænum ríkjum sé mikilvægasti þáttur norræns samstarfs. Nærri 40 prósent þjóðarinnar eru þeirrar skoðunar en einungis á bilinu 6-11 prósent eru sammála þessu í hinum norrænu ríkjunum.

Landsbankinn selur í Straumi-Burðarás og Gretti
Landsbanki Íslands hefur selt 6,76 prósenta hlut sinn í Straumi-Burðarási Fjárfestingabanka hf til fjárfestingafélagsins Grettis hf. á genginu 17,3. Virði hlutanna nemur rétt rúmum 12 milljörðum króna. Þá keypti Landsbankinn 9,9 prósenta hlut í TM af Gretti hf. á genginu 41. Landsbankinn seldi sömuleiðis allan hlut sinn í Gretti ehf. eða alls 35,39 prósent.

Forstjóraskipti hjá Kögun
Breytingar hafa verið gerðar á yfirstjórn Kögunar hf., dótturfélags Dagbrúnar. Gunnlaugur M. Sigmundsson hefur látið af störfum sem forstjóri Kögunar og hefur Bjarni Birgisson tekið við starfi hans. Þá hefur Jóhann Þór Jónsson verið ráðinn fjármálastjóri Kögunar hf.

Reglur um innihald og magn vökva í flugi breytast
Flugmálastjórn hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að breyttar reglur um innihald og magn vökva sem farþegar mega hafa með sér í flug taki gildi innan Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna þann 6. nóvember. Reglur sem takmarka stærð handfarangurs sem farþegar mega taka með sér í flug taka gildi 6. maí 2007.

Lífeyrisgreiðslur TR 44 milljarðar á næsta ári
Búist er við að lífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar verði 44 milljarðar króna á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið. Fram kemur í vefriti fjármálaráðuneytisins að miðað við þetta hafi útgjöld til lífeyristrygginga aukist um 84 prósent á árunum 1998 til 2007 að teknu tilliti til verðlagsbreytinga.

Lést í slysi á Vopnafirði
Fullorðin kona lést þegar bíll hennar fór fram af klettum við heilsugælsustöðina í Vopnafirði og hafnaði út í sjó um klukkan ellefu í morgun. 30-40 menn frá lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitinni Vopna á Vopnafirði voru kallaðir á vettvang og notuðu þeir bæði slöngubáta og björgunaskip við leit að konunni.

Óvenjulegur afli
Það er ekki allt fiskur sem kemur í veiðarfæri skipa eins og þeir á Kleifaberginu komust að í gær á hinum frægu Halamiðum. Þegar verið var að vinna aflann úr einu holinu kom ökuskírteini rúllandi eftir færibandi í átt að hausara, frekar en ekkert.

Skora á Sturlu að beita sér fyrir því að hvalveiðar verði stöðvaðar
Hvalaskoðunarsamtök Íslands skora á Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra og ráðherra ferðamála, að hlutast til um að hvalveiðar verði stöðvaðar og málið tekið upp að nýju innan ríkisstjórnarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum í dag.

Hæstiréttur Danmerkur stórherðir refsingar fyrir brot gegn börnum
Hæstiréttur Danmerkur hefur tekið þá stefnu að herða til muna refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum, og segir að með því sé verið að taka tillit til samþykktar danska þingsins árið 2002 um herta refsilöggjöf