Lög og regla

Fréttamynd

Tekinn á 165 kílómetra hraða

Lögreglan á Akranesi stöðvaði í morgun ökumann á 165 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi í Kollafirði. Samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi í dag, um sektir og viðurlög vegna brota á umferðarlögum, getur maðurinn átt von á 90.000 króna sekt og ökuleyfissviptingu í sex mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Fernt játar á sig tilraun til hraðbankaþjófnaðar

Þrír ungir menn og stúlka hafa viðurkennt að hafa reynt að stela hraðbanka í útibúi Landsbankans við Klettháls í Reykjavík í fyrradag. Eftir því sem kemur fram á vef lögreglunnar fór mennirnir þrír inn í anddyri bankans og reyndu að fjarlægja hraðbankannen gáfust upp við hálfnað verk því bankinn reyndist þeim ofviða.

Innlent
Fréttamynd

Neitar að hafa ekið á yfir 200 kílómetra hraða

Ökumaðurinn sem lögreglan í Keflavík mældi á rétt liðlega tvö hundruð kólómetra hraða á Reykjanesbraut í fyrrinótt neitaði sök við yfirheyrslur í gær. Lögregla fann bílinn í iðnaðarhúsi í Keflavík í gær og lagði hald á hann með samþykki eigandans og verður meðal annars athugað hvort upplýsingar finnast í aksturstölvunni.

Innlent
Fréttamynd

Tólf mótmælendur sektaðir vegna aðgerða á álverslóð

Tólf af fjórtán manns sem ákærðir voru fyrir að hafa farið í heimildarleysi inn á vinnusvæði Bectels á álverslóð í Reyðarfirði og neitað að hlíta fyrirmælum lögreglu um að hafa sig á brott þaðan voru í Héraðsdómi Austurlands í gær dæmd til greiðslu sektar vegna athæfisins.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla í átak gegn ölvunarakstri

Lögreglan í Reykjavík stöðvaði þrjá ökumenn, grunaða um ölvunarakstur í gærkvöldi og í nótt. Nú er hafið átak lögreglunnar gegn ölvunarakstri, líkt og verið hefur á aðventunni undanfarin ár, og verða óvenju margir ökumenn stöðvaðir á næstunni til að kanna ástand þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir teknir vegna fíkniefnabrota í Kópavogi

Lögreglan í Kópavogi handtók fjóra menn um tvítugt í nótt eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra. Í framhaldi af því var gerð húsleit hjá einum og fannst þar nokkuð af e-töflum, lítilræði af hassi og amfetamíni auk peninga, sem taldir eru vera ágóði af sölu.

Innlent
Fréttamynd

Sex fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Sex voru fluttir á slysadeild Landsspítalans, þar af tveir með höfuðáverka, eftir harðan árekstur tveggja bíla á mótum Reykjanesbrautar og Hnoðraholts um kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Engin mun þó vera alvarlega slasaður.

Innlent
Fréttamynd

Eins árs fangelsi fyrir tvær líkamsárásir

Hæstiréttur staðfesti í dag eins árs fangelsisdóm héraðsdóms yfir karlmanni vegna tveggja líkamsárása á Laugaveginum í september 2004. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa kýlt tvo menn í andlitið þeirra með þeim afleiðingum að annar þeirra hlaut meðal annars blæðingu á bak við vinstri hljóðhimnu og inn í höfuðkúpu og hinn nefbrotnaði.

Innlent
Fréttamynd

Bílvelta á Hafnarfjarðarvegi

Bílvelta varð á Hafnarfjarðarvegi til móts við Aratún fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hvort alvarleg slys hafi orðið á fólki en bílnum mun hafa verið ekið á ljósastaur. Lögregla og sjúkralið eru enn á vettvangi og segir lögreglan í Hafnarfirði að tafir verði á umferð þar sem önnur akreinin á veginum til norðurs er lokuð vegna slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Búið að handsama ökuníðing

Lögreglan í Keflavík hafði uppi á ökumanninum, sem er grunaður um að hafa ekið bílnum, sem mældist á rúmlega 200 kílómetra hraða í nótt og nú rétt fyrir fréttir var enn verið að yfirheyra hann. Bíllinn er ófundinn.

Innlent
Fréttamynd

Tíu Íslendingar afplána dóm í útlöndum

Tíu Íslendingar sitja í fangelsum í útlöndum eftir því sem utanríkisráðuneytinu er kunnugt um samkvæmt svari Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðjóns Ólafs Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins.

Innlent
Fréttamynd

Aðalmeðferð í BMW-smyglmáli í dag

Aðalmeðferð í máli á hendur fimm mönnum í tengslum við stórfellt smygl á amfetamíni og hassi landsins hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og stendur í allan dag. Um er að ræða fjóra Íslendinga og einn Hollending sem taldir eru viðriðnir smygl á um 15 kílóum af amfetamíni og tíu kílóum af hassi í BMW-bifreið til landsins.

Innlent
Fréttamynd

Ríkið í mál við olíufélögin

Dómsmálaráðuneytið hefur falið Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni lögmanni að höfða skaðabótamál á hendur stóru olíufélögunum vegna ólöglegs verðsamráðs á tíunda áratug síðustu aldar. Vilhjálmur sagði í samtali við fréttastofu að krafan varðaði einkum meint samráð vegna útboða á olíuvörum fyrir Landhelgisgæsluna og lögregluembættin í landinu en sagði kröfugerð ekki hafa verið mótaða

Innlent
Fréttamynd

Hafði afskipti af manni sem skemmdi eigin bíl

Lögreglan í Reykjavík fær oft óvenjuleg mál á sitt borð og í gær kom eitt slíkt upp í höfuðborginni. Þá hafði lögrela afskipit af karlamanni sem var að vinna skemmdir á bíl. Við nánari athugun kom í ljós að maðurinn var sjálfur eigandi bílsins en lögregla segir ekki vitað hvað honum hafi gengið til.

Innlent
Fréttamynd

Reyndu að hafa hraðbanka á brott með sér

Lögregla leitar nú óprúttinna manna sem reyndu í nótt að hafa hraðbanka í útibúi Landsbankans að Klettshálsi í Reykjavík á brott með sér. Mennirnir höfðu náð að losa hraðbankann og drösla honum út úr anddyri útibúsins en þar virðast þeir hafa gefist upp enda eru hraðbankar níðþungir.

Innlent
Fréttamynd

Hald lagt á átta kíló af kókaíni það sem af er ári

Íslenskur karlmaður á þrítugsaldri situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið handtekinn í Leifsstöð með stærstu kókaínsendingu sem fundist hefur í fórum eins manns til þessa. Tollgæslan hefur lagt hald á samtals átta kíló af kókaíni það sem af er árinu eða áttfalt meira en allt árið í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

50 þúsund króna bætur vegna hlerana

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða karlmanni 50 þúsund krónur í miskabætur vegna þess að sími hans var hleraður í tvær vikur í tengslum við bruna á Sauðárkróki fyrir tveimur árum.

Innlent
Fréttamynd

Allt að 300 þúsund króna sekt fyrir hraðakstur

Sektir vegna umferðarlagabrota hækka umtalsvert og viðurlög við brotum á reglum um aksturs- og hvíldartíma varða nú bæði sekt og punkti eða punktum í ökuferilsskrá samkvæmt tveimur nýjum reglugerðum sem taka gildi á föstudag.

Innlent
Fréttamynd

Keyrði ítrekað á annan bíl

Lögreglan í Reykjavík fékkst í gær við heldur óvenjulegt mál tengt umferðinni. Þannig ók maður bíl sínum ítrekað og vísvitandi á annan bíl sem var mannlaus og kyrrstæður á bílastæði og hlutust af því nokkrar skemmdir.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar manns sem áreitti unga stúlku

Lögreglan í Reykjavík leitar nú karlmanns á miðjum aldri sem áreitti unga framhaldsskólastúlku kynferðislega við strætóskýli nálægt Laugalækjarskóla í morgun. Að sögn lögreglu átti atvikið sér stað á milli klukkan níu og tíu og er talið að maðurinn hafi berað á sér kynfærin fyrir framan stúlkuna.

Innlent
Fréttamynd

Innbrotum fækkar í Reykjavík

Innbrotum í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík hefur fækkað nokkuð frá árinu 2003 samkvæmt nýjum tölum sem birtar eru á vef lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á gangandi vegfaranda í Reykjanesbæ

Ekið var á gangandi vegfaranda á mótum Vesturgötu og Hringbrautar í Reykjanesbæ nú skömmu eftir hádegið. Lögregla hefur eftir vitnum að slysinu að ungur maður hafi hlaupið yfir götu og orðið þá fyrir bíl sem kom akandi en þó ekki á miklum hraða.

Innlent
Fréttamynd

Tveggja mánaða fangelsi fyrir brot gegn barni og vörslu barnakláms

Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands í dag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu 300 þúsund króna í miskabætur fyrir að hafa sært blygðunarsemi ungrar stúlku með því að sýna henni tvær klámmyndir í tölvu sinni, þar á meðal aðra sem sýndi barn á kynferðislegan og klámfenginn hátt, og fyrir að hafa rúmlega 40 ljósmyndir og 21 hreyfimynd í tölvu sinni með barnaklámi.

Innlent
Fréttamynd

Peningafalsari á ferð í borginni

Peningafalsari var á ferðinnni um helgina því tveimur fölsuðum fimm þúsund króna seðlum var framvísað í verslunum. Báðir höfðu þeir verið ljósritaðir og báru þeir sama númer. Fram kemur á vef lögreglunnar að af því megi ráða að þeir komi frá sama aðila.

Innlent
Fréttamynd

30 þúsund króna sekt fyrir ólöglegar veiðar

Karlmaður var í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra dæmdur til greiðslu 30 þúsund króna fyrir að hafa brotið lög um lax- og silungsveiði með því að hafa í vor veitt í tvö silungsnet í sjó sunnan við bæ sinn í Hörgárbyggð en bannað er að veiða göngusilung í sjó frá 15. maí til 15. ágúst ár hvert

Innlent
Fréttamynd

65 umferðaróhöpp í Reykjavík um helgina

Sextíu og fimm umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Flest þeirra voru minniháttar en í aðeins einu tilviki þurfti að flytja slasaðan með sjúkrabíl. Fram kemur á vef lögreglunnar að í átta tilfellum hafi menn stungið af frá vettvangi óhappsins.

Innlent
Fréttamynd

Ný flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll undirrituð

Forsvarsmenn almannavarna á Keflavíkurflugvelli og ríkislögreglustjóri undirrituðu í dag nýja og endurskoðaða flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll. Áætlunin segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í kjölfar flugslyss á Keflavíkurflugvelli eða annars staðar á Reykjanesskaga.

Innlent