Erlent

Fréttamynd

Umdeildur meðal starfsfólksins

Mikil óánægja starfsmanna Sameinuðu þjóðanna með yfirstjórn samtakanna hefur hvað eftir annað beinst að framkvæmdastjóranum Kofi Annan, þótt hann hafi sloppið með skrekkinn á föstudaginn

Erlent
Fréttamynd

Skuldum létt af Írak

Þjóðverjar skýrðu í gær frá samkomulagi um að létta skuldum af Írökum í því skyni að gera þeim kleift að hefja fyrir alvöru uppbyggingu í landinu án þess að þurfa að sligast undir skuldabyrði.

Erlent
Fréttamynd

Aftökurnar halda áfram

Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Nýnasistar skipuleggja hryðjuverk

Hópur sænskra nýnasista hefur verið handtekinn, grunaður um áætlun um morð og hryðjuverk. Fjórir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Nýnasistarnir höfðu gert áætlun sem gerði ráð fyrir að lama mikilvægar stofnanir samfélagsins, svo sem orkuver, skóla, sjúkrahús og ráðhús.

Erlent
Fréttamynd

Berlusconi hótar afsögn

Ef samstarfsflokkar Forza Italia, flokks Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu, samþykkja ekki skattalækkanatillögur hans er Berlusconi vís til að segja af sér. Þetta kom fram í viðtölum hans við fréttamenn í gær.

Erlent
Fréttamynd

Dánartíðnin minnki um helming

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með nýrri lyfjameðferð fyrir HIV-smituð börn sem rannsóknir sýna að geti dregið úr dánartíðni þeirra um helming. Meðferðin felst í því að gefa börnunum algengt sýklalyf sem kostar um tíu krónur á dag. Á hverjum degi látast u.þ.b. 1.300 börn af völdum alnæmisveirunnar í heiminum.

Erlent
Fréttamynd

Annan ekki treyst

Reiknað er með að starfsfólk Sameinuðu þjóðanna muni kjósa um vantraustsyfirlýsingu gegn Kofi Annan, framkvæmdastjóra stofnunarinnar samkvæmt heimildum innan verkalýðsfélags starfsfólksins. Ástæðan er röð hneyksla sem stofnunin hefur verið tengd síðan hann tók við starfi framkvæmdastjóra.

Erlent
Fréttamynd

Sonur Thatchers verði framseldur

Stjórnvöld í Afríkuríkinu Miðbaugs-Gíneu eru að leggja lokahönd á beiðni til Suður-Afríku um að framselja Mark Thatcher, son Margrétar Thatchers, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Thatcher er sakaður um að hafa átt þátt í samsæri um að steypa ríkisstjórn Miðbaugs-Gíneu af stóli.

Erlent
Fréttamynd

Ályktað gegn hryðjuverkum

Á ráðstefnu ríkja Mið- og Suður-Ameríku, auk Spánar og Portúgal, náðist sátt um að styðja ályktun gegn hryðjuverkum, sem lögð var fram af Kúbverjum. Í henni eru stjórnvöld í Panama ámæld fyrir að veita fjórum Kúbverjum sakaruppgjöf fyrir tilraun til að ráða Fidel Castro, forseta Kúbu, af dögum árið 2000.

Erlent
Fréttamynd

Danskar stúlkur fara ránshendi

Penar unglingsstúlkur, stolt foreldra sinna, uppáhald kennara sinna og sakleysið upmálað fara nú sem eldur í sinu um verslanir í Kaupmannahöfn og stela þar öllu steini léttara. Að sögn lögreglunnar er þetta alveg nýr hópur búðaþjófa sem starfsfólk verslana á erfitt með að átta sig á.

Erlent
Fréttamynd

Studdist við óstaðfesta heimild

Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, notaðist við óstaðfesta heimild þegar hann sagðist hafa gögn undir höndum sem gæfu til kynna að Íranar ætluðu sér að þróa eldflaugar sem gætu borið kjarnorkusprengjur til skotmarka í öðrum löndum. Þetta hefur Washington Post eftir ónafngreindum embættismanni innan bandaríska stjórnkerfisins.

Erlent
Fréttamynd

Hótar látum ef upp kemst um svindl

Frambjóðandi frjálslyndra í forsetakosningunum sem fram eiga að fara í Úkraínu á sunnudaginn hefur hótað að vera með læti ef grunur leikur á svindli í kosningunum. Frambjóðandinn, Viktor Yushchenko sem er fyrrverandi forsætisráðherra landsins, segir að hann muni ganga fylktu liði um götum borgarinnar ef upp kemst að maðkur sé í mysunni.

Erlent
Fréttamynd

Vill friðargæslu til Sómalíu

Nýkjörinn forseti Sómalíu óskaði eftir því við Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að friðargæslulið yrði sent til lands síns. Abdullahi Yusuf Amed forseti sagði þörf á öflugu friðargæsluliði ef koma ætti á friði og stöðugleika í Sómalíu, sem hefur einkennst af stjórnleysi í meira en áratug.

Erlent
Fréttamynd

Refaveiðibannið fyrir dómstóla

Þrátt fyrir að breska þingið hafi samþykkt að banna refaveiðar með hundum er baráttunni ekki lokið. Andstæðingar bannsins höfðuðu mál og vonast til að dómstólar komist að þeirri niðurstöðu að bannið fái ekki staðist.

Erlent
Fréttamynd

Kosningarnar í uppnámi?

Herskár íslamskur hópur ógnar væntanlegum frambjóðendum og kjósendum í fyrirhuguðum kosningum í Írak í janúar. Hópurinn hótar því að hver sá múslimi sem bjóði sig fram í kosningum verði refsað í nafni guðs.

Erlent
Fréttamynd

Árásum verður að linna

Fyrrverandi yfirmaður í öryggissveitum Palestínumanna, Mohammad Dahlan, sagði í dag að harðlínumenn verði að hætta árásum sínum á Ísrael til þess að skapa ró í kringum kosningarnar um eftirmann Jassers Arafats þann 9. janúar næstkomandi.

Erlent
Fréttamynd

Vopnahlé í Súdan

Stríðandi fylkingar í Súdan undirrituðu í morgun heit um að ná friðarsamningum fyrir árslok á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í Kenía. Talið er að yfir tvær milljónir Súdana hafi látið lífið vegna borgarastríðsins.

Erlent
Fréttamynd

Hefja sölu á hluta úr Yukos

Rússnesk yfirvöld hafa tekið ákvörðun um nauðungarsölu á hlut Yukos í stærstu framleiðsludeild fyrirtækisins, Yuganskneftegaz. Söluverðið rennur í ríkissjóð upp í greiðslu skatta sem skattayfirvöld segja fyrirtækið og forsvarsmenn þeirra hafa svikist um að borga.

Erlent
Fréttamynd

Fölsuðum legókubbum fargað

Finnskir tollverðir hafa malað yfir tíu tonn af fölsuðum legókubbum, mélinu smærra, og verður duftið síðan brennt. Eins og allir vita eru hinir einu og sönnu legókubbar framleiddir í Danmörku. Kubbarnir sem finnska tollgæslan lagði hald á voru hins vegar framleiddir í Kína og var verið að flytja þá til Rússlands til sölu þar. </font /></font />

Erlent
Fréttamynd

Mannréttindi einskis virt

Stríðandi fylkingar sýna mannúðarsjónarmiðum enga virðingu í Írak sagði aðgerðastjóri Rauða krossins þegar hann fordæmdi hvort tveggja vígamenn og bandaríska og íraska herinn fyrir framgönguna í bardögum.</font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Endir bundinn á ógnaröldina

Stríðandi fylkingar í Súdan undirrituðu í morgun heit um að binda enda á ógnaröldina í landinu fyrir árslok. Sameinuðu þjóðirnar heita í staðinn Súdönum friðargæslu og neyðaraðstoð. Hjálparsamtök segja hjálpina koma of seint.

Erlent
Fréttamynd

Týndi hlekkurinn fundinn?

Fornleifafræðingar hafa fundið 13 milljón ára gamla beinagrind prímata sem talinn er síðasti sameiginlegi forfaðir bæði manna og mannapa. Mannapar, svo sem górillur og sjimpansar, eru taldir hafa skilið sig frá öðrum og minni öpum á þessum tíma og því er þetta hugsanlega hinn svokallaði „týndi hlekkur“.

Erlent
Fréttamynd

Ópíumræktun í blóma

Ræktun ópíumvalmúa blómstrar sem aldrei fyrr í Afganistan og hefur aukist um 64 prósent frá því í fyrra. Þetta segir í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Þar kemur jafnframt fram að ræktun ópíumvalmúa er vaxtarbroddurinn í afgönsku efnahagslífi. 

Erlent
Fréttamynd

Banamein Arafats upplýst?

Það ætti jafnvel að liggja fyrir í dag hvert banamein Jassers Arafats, fyrrverandi leiðtoga Palestínumanna, var. Sögusagnir hafa verið á kreiki um dánarorsök Arafats og menn hafa velt fyrir sér hvort eitrað hafi verið fyrir honum. Frændi leiðtogans er væntanlegur til Parísar í dag og munu frönsk yfirvöld láta honum í té sjúkraskýrslu Arafats.

Erlent
Fréttamynd

Danir mótmæla reglum ESB

Danir munu berjast hart gegn nýjum reglum Evrópusambandsins um flutning á sláturdýrum. Í nýju reglunum er mönnum gefnar nánast frjálsar hendur um hversu lengi dýrin eru látin hírast á flutningabílum, auk þess sem ekkert er kveðið á um lágmarkspláss.

Erlent
Fréttamynd

Andspyrnan brotin á bak aftur

Talsmenn Bandaríkjahers segja að andspyrna í borginni Fallujah í Írak hafi nú verið brotin á bak aftur. Uppreisnarmenn láta þó enn til sín taka og hóta þeim ofbeldi sem taka þátt í boðuðum kosningum í janúar.

Erlent
Fréttamynd

ESB kemur sér upp her

Evrópusambandið mun hafa fjórar viðbragðssveitir hermanna tilbúnar á næsta ári til þess að senda hvert sem er í heiminum, ef þörf krefur. Átta sveitir til viðbótar eiga að vera til staðar árið 2007. Um fimmtán hundruð hermenn verða í hverri sveit.

Erlent
Fréttamynd

Ósló dýrasta verslunarborg Evrópu

Það kveinka sér fleiri undan háu verðlagi en Íslendingar. Norðmenn eru nú í nokkurri geðshræringu yfir nýrri könnum sem sýnir að Ósló er dýrasta verslunarborg í Evrópu. Að strauja kortið á Karl Jóhannsgötu kostar 21 prósenti meira en meðaltalið er í ríkjum Evrópusambandsins.

Erlent
Fréttamynd

Snjórinn veldur usla í Noregi

Íbúar í Norður-Noregi veltast nú um af hlátri yfir brölti landa sinna í suðri. Fyrsti snjórinn féll í Ósló í vikunni og það var eins og við manninn mælt - það fór allt í steik á götum höfuðborgarinnar.

Erlent
Fréttamynd

Do They Know It´s ...? endurtekið

Tuttugu ára jólalag, „Do They Know It´s Christmas“, hefur verið endurvakið með söngstjörnum nútímans. Upprunalega útgáfan er með mest seldu plötum allra tíma. Tilgangurinn er að hvetja til meiri aðstoðar við fátæk Afríkuríki. U2-stjarnan Bono er sá eini sem syngur í báðum útgáfum.

Erlent