Erlent
Vígamenn á ferli í Bagdad Vígamenn í Írak víla nú ekki fyrir sér að ráðast á hverfi þar í landi sem hingað til hafa verið friðhelg. Mikil spenna er í landinu og mannfall hefur verið töluvert hvern dag síðan ein helgasta moska sjía-múslima í Írak var sprengd í loft upp í síðustu viku. Minnst þrettán féllu í árásum í höfuðborginni í morgun og undir hádegi var gerð árás á bílalest Adnas al-Dulaimi, helsta leiðtoga súnnía í Írak. Erlent 2.3.2006 14:47
Vissi af hættunni George Bush Bandaríkjaforseti vissi að fellibylurinn Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir New Orleans degi áður en fellibylurinn skall á borgina. Eftir að neyðaraðstoð hafði gjörsamlega brugðist sagði forsetinn hins vegar að enginn hefði getað séð fyrir hve miklar afleiðingarnar yrðu. Erlent 2.3.2006 13:28
Tímamótasamkomulag um kjarnorkuþróun Bandaríkjamenn og Indverjar skrifuðu í morgun undir tímamótasamkomulag um kjarnorkuþróun. Tugþúsundir manna hafa í allan dag mótmælt heimsókn Bush Bandaríkjaforseta til Indlands og í Pakistan féllu tveir í sprengjuárás fyrir utan ræðismanns skrifstofu Bandaríkjanna. Erlent 2.3.2006 13:21
20 dauðir fuglar finnast í Oskarshamn Tuttugu dauðir fuglar fundust í gær við kjarnorkuverið í Oskarshamn í Suður-Svíþjóð. Óttast er að fuglaflensa hafi orðið þeim að bráð. Erlent 2.3.2006 13:21
Stýrivextir hækka á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn (ECB) hækkaði stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent í dag og standa þeir nú í 2,50 prósentum. Með hækkuninni, sem er í samræmi við spár fjármálasérfræðinga, er horft til þess að styrkja efnahag þeirra 12 aðildarlanda Evrópusambandsins (ESB), sem tekið hafa upp evruna. Viðskipti erlent 2.3.2006 13:06
Olíuverð fór yfir 62 dollara Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði enn í dag þrátt fyrir að opinberar tölur bentu til að olíubirgðir hefðu aukist í Bandaríkjunum. Hráolía, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 74 sent á mörkuðum í New York og fór 62,71 dal á tunnu en verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 76 sent í Lundúnum og fór í 63,21 dal á tunnu. Viðskipti erlent 2.3.2006 11:45
Tilræði við stjórnmálaleiðtoga súnnía Byssumenn gerðu nú fyrir hádegi árás á bílalest Adnans al-Dulaimi, eins helsta stjórnmálaleiðtoga súnní-múslima í Írak. Öryggisvörður hans lést í árásini og þrír særðust. Erlent 2.3.2006 11:22
Öll tiltæk ráð Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, hefur fyrirskipað ísraelskum öryggissveitum að beita öllum tiltækum ráðum í baráttu sinni við herskáa Palestínumenn. Ofbeldisverk þeirra geng Ísraelum hafa verið tíð síðustu vikur og hefur það aukið þrýsting á Olmert í aðdraganda þingkosninganna síðar í mánuðinum. Erlent 2.3.2006 10:29
Grunur um kúariðu í Svíþjóð Grunur leikur á að fyrsta tilfelli kúariðu hafi greinst í Mið-Svíþjóð. Þegar hræ af tólf ára gamalli kýr var rannsakað komu í ljós einkenni sjúkdómsins. Sýni hafa verið send til rannsóknarstöðvar Evrópusambandsins í Bretlandi svo hægt sé að fá staðfest hvort um kúariðu er að ræða. Erlent 2.3.2006 10:26
Barn og tvær konur meðal látinna Að minnsta kosti 8 létu lífið og 14 særðust þegar vegsprengja sprakk nálægt markaði í suð-austurhluta Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Meðal þeirra sem létu lífð voru barn og tvær konur. Lögregla rýmdi markaði eftir að önnur sprengja fannst þar skömmu síðar. Hún var þegar gerð óvirk. Erlent 2.3.2006 10:57
Fuglaflensa í Serbíu Fuglaflensa hefur greinst í fyrsta sinn í Serbíu. Yfirvöld þar í landi greindu frá því í morgun. H5 stofn flensunnar greindist í svanshræi sem fannst nálægt landamærunum að Króatíu. Erlent 2.3.2006 10:22
Launamunur kynjanna innan ESB 15 prósent Launamunur kynjanna í löndum Evrópusambandsins er 15 prósent samkvæmt nýrri skýrslu frá framkvæmdastjórn sambandsins. Þar kemur fram að hægt þokist í þessum málum og að margar konur innan ESB fari af vinnumarkaði vegna þess að þeim gangi illa að samtvinna vinnu og fjölskyldulíf. Erlent 2.3.2006 07:54
Fleiri fuglar finnast dauðir í Svíþjóð Hátt í tuttugu dauðir fuglar fundust í gær nærri kjarnorkuverinu í Oskarshamn í Suður-Svíþjóð, en þar fundust á þriðjudag endur sem taldar eru hafa drepist úr hinum banvæna H5N1-stofni fuglaflensunnar. Fuglarnir hafa verið sendir til rannsóknar. Stjórnvöld í Svíþjóð hafa aukið eftirlit á svæðinu og hyggjast nú fela strandgæslunni að að leita að dauðum fuglum meðfram ströndum landsins. Erlent 2.3.2006 10:11
Bók sem allir verða að lesa "To kill a Mockingbird" eftir Harper Lee var valin, á Degi bókarinnar í Bretlandi, sú bók sem allir ættu að lesa áður en þeir deyja. Bókin sló við ekki ómerkari bókum en Biblíunni, sem lenti í öðru sæti og Hringadróttinssögu sem hafnaði í því þriðja. Bókin gerist á fjórða áratugnum í Suðurríkjum Bandaríkjanna og fjallar um svartan mann sem er ranglega sakaður um að hafa nauðgað hvítri stúlku og hlaut höfundurinn Pulitzer Prize verðlaunin fyrir hana á sínum tíma Erlent 2.3.2006 07:42
Biðja Skandinava að yfirgefa Vesturbakkann Sameinuðu þjóðirnar hafa beðið alla skandinavíska starfsmenn sína að yfirgefa Vesturbakkann vegna alvarlegra hótana um að nema á brott eða drepa skandinavíska erindreka á svæðinu. Erlent 2.3.2006 07:52
Gorbatsjev 75 ára í dag Míkhaíl Gorbatsjev, fyrrverandi forseti Sovétríkjanna, er 75 ára í dag. Gorbatsjev er enn í fullu fjöri og beitir nú kröftum sínum aðallega í þágu umhverfisverndar og góðgerðamála. Erlent 2.3.2006 07:42
Réttarhöld yfir Gary Glitter hafin Réttarhöldin yfir rokkstjörnunni Gary Glitter hófust í morgun. Hann er ákærður fyrir að hafa misnotað tvær stúlkur, tíu og ellefu ára gamlar, á heimili sínu í suðurhluta Víetnams. Erlent 2.3.2006 07:38
Vissi að Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir George Bush Bandaríkjaforseti vissi að fellibylurinn Katrín kynni að brjóta niður flóðvarnir New Orleans degi áður en fellibylurinn skall á borginni. Erlent 2.3.2006 07:17
Indverjar og Bandaríkjamenn handsala kjarnorkusamning Indverjar og Bandaríkjamenn hafa skrifað undir samkomulag um þróun kjarnorku. Þetta kom fram á sjónvarpsstöð í Indlandi fyrr í morgun. George Bush Bandaríkjaforseti er á Indlandi og fundaði með forseta Indlands í morgun. Ekki liggur enn fyrir hvað felst í samkomulaginu sem var handsalað í morgun. Erlent 2.3.2006 07:24
Árás við ræðismannsskrifstofu BNA í Pakistan Tveir létust og átján slösuðust í sprengjuárás fyrir utan bandarísku ræðismanns skirfstofuna í Karachi í Pakistan í morgun. Tvær sprengjur sprungu með skömmu millibili á bílastæði Marriot-lúxushótelsins sem er við hliðina á ræðismannsskrifstofunni. Erlent 2.3.2006 07:11
Kaupa hástökkvara Straumur-Burðarás hefur eignast 5,5 prósenta hlut í norska netleikjaframleiðandanum Funcom. Verðmæti hlutarins er í kringum 750 milljónir króna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57
Strax kaupir more Velta Strax-samstæðunnar, sem framleiðir aukabúnað fyrir farsíma, verður um 250 milljónir bandaríkjadala á þessu ári, sem samsvarar tæpum sextán milljörðum króna, eftir að félagið keypti þýska dreifingaraðilann more International. Velta samstæðunnar meira en tvöfaldaðist við yfirtökuna. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57
Framleiða í Tékklandi Skortur á verkfræðingum í Danmörku er ástæðan fyrir því að raftækjaframleiðandinn Bang & Olufsen hefur opnað sína fyrstu verksmiðju í útlöndum. Viðskipti erlent 1.3.2006 22:57
Ónóg lög um leyniþjónustur Evrópuríki þurfa strangari reglur um eftirlit með leyniþjónustum sínum og betra eftirlit með erlendum útsendurum sem starfa innan landamæra þeirra. Þetta sagði Terry Davis, forseti Evrópuráðsins, þegar hann kynnti skýrslu Evrópuráðsins um fangaflug bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Erlent 1.3.2006 14:07
Brestir í viðræðum um stjórnarmyndun Brestir eru komnir í samningaviðræður um nýja ríkisstjórn í Írak. Forseti landsins er æfur út í forsætisráðherrann fyrir að fara í opinbera heimsókn til Tyrklands. Erlent 1.3.2006 12:39
Bush í fyrsta sinn til Afganistan George Bush kom í morgun í óvænta heimsókn til Afghanistan og er þetta í fyrsta sinn sem forsetinn heimsækir landið eftir hryðjuverkaárásirnar ellefta september 2001. Erlent 1.3.2006 09:37
Halda stjórnarmyndun áfram Ofbeldið í Írak undanfarna daga mun ekki koma í veg fyrir myndun nýrrar ríkisstjórnar á næstu vikum. Þetta segir Ibrahim al-Jafaari, forsætisráðherra Íraks, sem nú er í opinberri heimsókn í Tyrklandi. Erlent 1.3.2006 07:58
Felldu þrjátíu uppreisnarmenn Pakistanskar hersveitir felldu þrjátíu uppreisnarmenn í áhlaupi við landamæri Afganistan snemma í morgun. Fjölmennt herlið lét til skarar skríða á þyrlum og af jörðu niðri, án þess að uppreisnarmennirnir fengju rönd við reist. Erlent 1.3.2006 07:53
Yfirtökuviðræðum slitið í Low & Bonar Formlegum yfirtökuviðræðum í Low & Bonar hefur verið slitið eftir margra vikna viðræður stjórnar félagsins og þriðja aðila. Nafn Atorku Group var nefnt í því sambandi en félagið er stærsti hluthafinn í Low & Bonar með um þriggja milljarða eignarhlut að marksvirði. Viðskipti erlent 28.2.2006 22:55
Methagnaður Sparikassans Föroya Sparikassi, stærsti stofnfjáreigandinn í SPRON, skilaði methagnaði á síðasta ári eða 1,3 milljörðum króna. Hagnaður fyrir skatta jókst um 47 prósent. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var um 12,8 prósent. Viðskipti erlent 28.2.2006 22:54