Erlent
Íranar hóta að segja sig frá sáttmála Íranska þingið hótaði í morgun að ríkið segði sig frá sáttmála um takmörkun við útbreiðslu kjarnorkuvopna létu Vesturveldin ekki af þrýstingi sínum í þess garð. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar í fyrramálið um kjarnorkuáætlun Írans. Erlent 7.5.2006 12:20
Togstreita milli Blair og Brown Togstreitan á milli þeirra Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands, og Gordons Brown, fjármálaráðherra, hefur náð nýjum hæðum eftir útreiðina sem Verkamannaflokkurinn fékk í sveitarstjórnarkosningunum á Englandi í síðustu viku. Erlent 7.5.2006 12:14
Blóðug átök í Basra Til blóðugra átaka kom í borginni Basra í Írak í dag eftir að bresk herþyrla var skotin þar niður í morgun. Fregnir herma að minnst 4 hermenn sem voru um borð hafi farist en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 6.5.2006 18:19
Enn loga eldar í Noregi Skógareldar loga enn á eyjunni Sotru í Noregi og óvíst hvenær slökkviliðsmönnum tekst að ráða niðurlögum þeirra. Flytja þurfti um sjötíu manns frá heimilum sínum í nótt af ótta við að eldarnir myndu læsa sig í heimili þeirra. Erlent 6.5.2006 18:15
Íraksstríði mótmælt með nýstárlegum hætti Íraksstríðinu var mótmælt með sérstæðum hætti í Mexíkóborg í gær. Friðarsinnar stilltu upp 1500 leikfangahermönnum fyrir utan bandaríska sendiráðið til að mótmæla stríði og biðja um frið. Erlent 6.5.2006 14:13
Vinsælir Marcosar minnka Um það bil 1000 vinstrisinnar gengu um götur smábæjar í Mexíkó í gær til að mótmæla aðgerðum lögreglu gegn mótmælendum um miðja viku. Einn féll þá og fjölmargir særðust. Marcos, hinn grímuklæddi skæruliðaforingi Zapatista, leiddi gönguna. Erlent 6.5.2006 14:08
Átök í Basra Til átaka kom milli hermanna og íbúa í borginni Basra í Írak í dag eftir að bresk herþyrla var skotin þar niður í morgun. Minnst tveir hafa fallið í átökum en fjórir hermenn fórust þegar þyrlan var skotin niður. Erlent 6.5.2006 14:04
Skógareldar í Noregi Skólgareldar kviknuðu á tveimur stöðum í og við Björgvin í Noregi í gær. Greiðlega gekk að slökkva eldinn á öðrum staðnum á meðan enn logar á hinum. Flytja þurfti um 70 manns frá heimilum sínum um miðja nótt. Erlent 6.5.2006 14:00
Bresk herþyrla skotin niður í Basra Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar bresk herþyrla var skotin niður í borginni Basra í Írak í morgun. Erlent 6.5.2006 12:20
Varað við of mikilli bjartsýni Fulltrúar stjórnvalda í Súdan og stærsta uppreinsarhópsins í Darfur héraði undirrituðu friðarsamkomulag í gær. Varað er við of mikilli bjartsýni þar sem tveir uppreisnarhópar höfnuðu samkomulaginu. Erlent 6.5.2006 12:16
Friðarsamkomulag undirritað í tengslum við ástandið í Darfur Fulltrúar stjórnvalda í Súdan og stærsta uppreinsarhópsins í Darfur-héraði undirrituðu friðarsamkomulag í gær. Mikil fagnaðarlæti brutust út þegar samningamenn munduðu pennann í gær og rituðu nafn sitt á samkomulagið. Erlent 6.5.2006 10:11
Björgunarmenn nálgast námamennina Björgunarmenn eru enn að bora sig að tveimur áströlskum námamönnum sem hafa setið fastir í námagöngum í 11 daga. Mennirnir eru sagðir við góða heilsu þó dvölin neðanjarðar sé orðin þetta löng. Erlent 6.5.2006 10:08
2000 ára gamlar rústir í París Leifar af 2000 ára gamalli rómverskri götu og húsum hafa fundist neðanjarðar í París. Skammt frá fundust heillegar rústir af rómverskum böðum frá sama tíma. Leifarnar fundust við framkvæmdir við Pierre og Marie Curie háskólann við bakka Signu, skammt frá Sorbonne. Erlent 6.5.2006 10:04
Bush aldrei óvinsælli Bandarísk stjórnvöld verja sem fyrr meðferð sína á grunuðum hryðjuverkamönnum sem þau hafa í sínu haldi en vísa ásökunum um pyntingar á bug. Aðeins þriðji hver Bandaríkjamaður styður Bush forseta ef marka má nýjustu skoðanakannanir. Erlent 5.5.2006 18:58
Beckett verður utanríkisráðherra Bretlands Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, gerði róttækar breytingar á ráðuneyti sínu í dag eftir að Verkamannaflokkurinn beið mikinn ósigur í sveitarstjórnarkosningunum á Englandi. Margaret Beckett verður utanríkisráðherra. Hún er fyrst kvenna til að gegna því embætti. Erlent 5.5.2006 18:56
Porter Goss hættur hjá CIA Porter Goss, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, hefur verið leystur frá störfum. Erlent 5.5.2006 18:54
Verkamannaflokkurinn galt afhroð Kosið var í 176 sveitastjórnum í gær og samkvæmt nýjustu tölum hlaut Verkamannaflokkurinn 1174 sæti í 26 stjórnum og tapaði 288 sætum og þar með 18 sveitastjórnum. Á sama tíma hlaut Íhaldsflokkurinn 68 stjórnir. Erlent 5.5.2006 14:52
Mannfall í handsprengjuárás á Srí Lanka Þrír öryggissveitarmenn féllu og fjórtán særðust, þar af tíu óbreyttir borgarar, í tveimur sprengingum og handsprengjuárás á norðurhluta Srí Lanka í dag. Talið er að uppreisnarmenn Tamíl tígra bergi ábyrgð á árásunum sem voru gerðar í bæ rúmum tvö hundruð kílómetrum norður af höfuðborginni Colombo. Erlent 5.5.2006 14:43
Fáar nýráðningar í Bandaríkjunum Nýráðningar voru með minnsta móti í Bandaríkjunum í síðasta mánuði, samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar Bandaríkjanna. Nýráðningar voru 138.000 talsins og er það með minnsta móti samanborið við síðustu sex mánuði. Laun hafa hins vegar hækkað nokkuð og vekur það ugg manna um yfirvofandi verðbólgu. Atvinnuleysi stóð í stað á milli mánaða en það mældist 4,7 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 5.5.2006 13:08
Breytingar á friðarsamningum í Súdan Stjórnvöld í Súdan hafa samþykkt breytingar á friðarsamningum milli stríðandi fylkinga í Darfur-héraði. Þetta er haft eftir háttsettum sáttasemjara á vegum Afríkubandalagsins. Erlent 5.5.2006 13:26
Olíuverð hækkaði lítillega Olíuverð hækkaði lítillega á mörkuðum í dag í kjölfar lækkana síðustu daga og fór yfir 70 dollara markið á ný á helstu mörkuðum. Verð á olíu, sem afhent verður í næsta mánuði, hækkaði um 14 sent í kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum og stendur verðið í 70,08 dollurum á tunnu. Verð á Norðursjávarolíu hækkaði um 21 sent á markaði í Lundúnum í Bretlandi og stendur nú í 70,50 dollurum á tunnu. Viðskipti erlent 5.5.2006 10:17
Ráðherrabreytingar í bresku ríkisstjórninni Charles Clarke, innanríkisráðherra í bresku ríkisstjórninni, lætur af embætti sínu og Jack Straw utanríkisráðherra verður forseti neðri deildar þingsins. John Prescott varaforsætisráðherra verður þó ekki látinn víkja en einhver verkefni tekin af honum. Erlent 5.5.2006 10:02
Heldur í helstu landnemabyggðir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hét því að halda í helstu landtökubyggðir Ísraela á Vesturbakkanum þegar ríkisstjórn hans sór embættiseið í gær. Fjórir flokkar eiga aðild að ísraelsku ríkisstjórninni en Olmert sagðist stefna að því að fá fleiri flokka til samstarfs. Erlent 5.5.2006 08:08
Sagðir ætla að myrða teiknarana Tólf öfgafullir múslimar eru sagðir á leið til Danmerkur til þess að myrða mennina, sem teiknuðu skopmyndirnar af Múhameð spámanni, sem birtar voru í Jótlandspóstinum. Erlent 5.5.2006 07:58
Blair stokkar upp stjórn sína Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hóf uppstokkun í ríkisstjórn sinni nú í morgun eftir slæmt gengi Verkamannaflokksins í sveitastjórnarkosningum. Blair vill þó ekkert gefa upp um hvaða breytingar sé um að ræða að svo stöddu. Erlent 5.5.2006 07:50
Olíuverð lækkaði Olíuverð lækkaði um rúman dal á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því í vikulegri greinargerð sinni að olíubirgðir í landinu hefðu aukist. Þetta er annar dagurinn í röð sem olíuverð lækkar. Viðskipti erlent 4.5.2006 15:57
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Seðlabanka Bretlands ákvað á fundi sínum í morgun að halda stýrivöxtum í landinu óbreyttum. Stýrivextir í Bretlandi hafa staðið óbreyttir í 4,5 prósentum síðastliðna níu mánuði. Almennt var ekki búist við vaxtabreytingum. Viðskipti erlent 4.5.2006 12:07
Hagnaður Shell jókst á milli ára Hollenska olíufélagið Royal Dutch Shell hagnaðist um 3,31 milljarð punda á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir því að olíufélagið hafi hagnast um 1,5 milljónir punda, rúmar 205 milljónir íslenskar krónur á klukkustund frá janúar til marsloka. Viðskipti erlent 4.5.2006 11:05
Hagnaður UBS jókst um 33 prósent Svissneski bankinn UBS hagnaðist um 3,5 milljarða svissneskra franka, jafnvirði 210 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 33 prósenta aukning frá frá sama tímabili í fyrra. Stór hluti hagnaðarins er vegna sölu á svissneska orkufyrirtækinu Motor-Clumbus AG. Viðskipti erlent 4.5.2006 09:17
Ekkert gos í grunnskólum Bandaríkjanna Nokkrir af stærstu drykkjarvöruframleiðendum í Bandaríkjunum hafa skrifað undir samkomulag um að kaloríuríkir drykkir verði framvegis teknir úr sölu í grunn- og miðskólum. Framvegis geta börnin því aðeins keypt ósykraðan ávaxtasafa, mjólk eða vatn í skólunum. Hitaeiningasnauðari gosdrykkir verða hins vegar leyfðir í framhaldsskólum. Erlent 4.5.2006 09:10