Íþróttir

Fréttamynd

Anderlecht sigraði Standard Liege

Anderlecht sigraði Standard Liege með þremur mörkum gegn tveimur í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Anderlecht er í 2. sæti, þremur stigum á eftir Club Brugge, sem á leik við Beerschot til góða í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Silja önnur í 400 m grindahlaupi

Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona úr FH, varð í 2. sæti í undanrásum í 400 metra grindahlaupi á bandaríska háskólamótinu í frjálsum íþróttum í Tallahassie í Flórída í gærkvöldi. Silja hljóp á 58,26 sekúndum.

Sport
Fréttamynd

Schumacher í samningaviðræðum

Michael Schumacher hefur staðfest að hann eigi í samningaviðræðum við Jean Todt, stjóra Ferrariliðsins í Formúlu 1 kappakstrinum.

Sport
Fréttamynd

ÍA vann Fylki

Nú er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum deildabikarkeppni karla í knattspyrnu en riðlakeppninni lauk í gær. ÍA sigraði Fylki 2-1 með mörkum Deans Martins og Kára Steins Reynissonar en Guðni Rúnar Helgason skoraði mark Fylkis. ÍA mætir Keflavík í 8-liða úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Scott á níu undir pari

Ástralinn Adam Scott lék á níu höggum undir pari á Johny Walker mótinu í golfi í Peking í morgun. Scott lék á 63 höggum og setti vallarmet.

Sport
Fréttamynd

Ajax féll úr leik

Óvænt úrslit urðu í gærkvöldi þegar Ajax féll úr hollensku bikarkeppninni. Ajax tapaði fyrir Willem í Tilborg, 1-0. Willem, sem lék síðast til úrslita 1963, mætir PSV Eindhoven í úrslitum.

Sport
Fréttamynd

Schumacher skoðar nýjan samning

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, sagði frá því í samtali við ítalska fjölmiðla í gær að hann ætti í viðræðum við Jean Todt um hugsanlega framlengingu á samningi hans, sem rennur út á næsta ári.

Sport
Fréttamynd

SR vann fyrsta leikinn

Keppni um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí hófst í gærkvöldi þegar Skautafélag Reykjavíkur sigraði Skautafélag Akureyrar með 9 mörkum gegn 6. Gauti Þormóðsson var markahæstur og skoraði fjögur mörk fyrir Skautafélag Reykjavíkur. Liðin mætast öðru sinni á Akureyri á laugardag.

Sport
Fréttamynd

Ragna í æfingabúðir

Badmintonkonunni Rögnu Ingólfsdóttur, Íslandsmeistara í einliðaleik síðustu þrjú árin, hefur hlotnast sá heiður að vera boðin þátttaka í æfingabúðum á vegum Badmintonsambands Evrópu. Þessar æfingabúðir eru eingöngu fyrir þá spilara sem Evrópusambandið telur að eigi mikla möguleika á að komast á Ólympíuleikana í Kína 2008 og þurfa þeir að vera fæddir 1983 eða síðar.

Sport
Fréttamynd

Schumacher aðvarar Alonso

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, virðist vera kominn í sálfræðistríð við Fernando Alonso hjá Renault, sem er efstur í keppni ökuþóra það sem af er móti.

Sport
Fréttamynd

Ísland enn í 95. sæti

Ísland er í 95. sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem birtur var í morgun og stendur í stað frá síðasta mánuði. Besti árangur Íslands á styrkleikalistanum er 37. sæti í september 1994 og september1995. Þegar núverandi landsliðsþjálfarar tóku við var Ísland í 60. sæti en hefur fallið um 35 sæti síðan þá.

Sport
Fréttamynd

FH-ingar vígja knattspyrnuhús

FH-ingar vígja nýtt knattspyrnuhús á svæði félagsins í Kaplakrika í dag. Framkvæmdin hefur vakið athygli annarra íþróttafélaga og bæjarfélaga þar sem FH ingar fara þá leið að byggja yfir hálfan knattspyrnuvöll og yfirbyggingin er stálgrind þar sem dúkur er strengdur yfir.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Guðmundi og Malmö

Guðmundur Stephensen og félagar hans í Malmö unnu í gær Eslövs með fimm vinningum gegn tveimur í úrslitum um sænska meistaratitilinn í borðtennis. Guðmundur var maðurinn á bak við sigur Malmö en hann sigraði í báðum sínum leikjum. Hann lagði Mattias Anderson að velli 3-2 og sömu úrslit urðu þegar hann sigraði sænska landsliðsmanninn Robert Svensson.

Sport
Fréttamynd

Nadal sá yngsti í 22 ár

18 ára Spánverji, Rafael Nadal, sigraði á Masters-mótinu í tennis í Monte Carlo í gær. Nadal varð þar með yngsti tenniskappinn til þess að sigra á þessu móti frá 1983 þegar Svíinn Mats Wilander hafði sigur.

Sport
Fréttamynd

Valsstúlkur unnu Blika

Víkingur og Þór gerðu 2-2 jafntefli í deildabikar karla í knattspyrnu í gær. Valur, Breiðablik og ÍA hafa tryggt sér keppnisrétt í 8-liða úrslitum. Í deildabikar kvenna sigraði Valur Breiðablik með tveimur mörkum gegn einu.

Sport
Fréttamynd

Síðasta mótið hjá Armstrong

Sexfaldur Tour de France meistari í hjólreiðum, Lance Armstrong sagði í dag að keppnin í sumar verði hans síðasta. Armstrong sem greindist með krabbamein 1996 náði sér eftir það og vann í kjölfarið eitt magnaðasta afrek í íþróttasögunni þegar hann sló met í sögu Tour de France en hann hefur unnið keppnina 6 ár í röð frá 1999 - 2004.

Sport
Fréttamynd

Lonard sigraði á Heritage-mótinu

Ástralinn Peter Lonard sigraði á Heritage-mótinu í golfi sem lauk á Hilton Head í Suður-Karólínu í gær. Þrátt fyrir að hafa leikið á fjórum höggum yfir pari í gær dugði það honum til sigurs. Lonard lék samtals á sjö höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Grétar og Veigar á skotskónum

Grétar Rafn Steinsson skoraði fyrsta mark sitt í svissnesku knattspyrnunni í þegar lið hans, Young Boys, gerði 1-1 jafntefli við Basel á útivelli í gær. Veigar Páll Gunnarsson skoraði fyrir Stabæk í 2-0 sigri á Hönefoss í norsku 1. deildinni.

Sport
Fréttamynd

Kasparov barinn með taflborði

Fyrrverandi heimsmeistari í skák og með þeim frægari í bransanum fyrr og síðar, Garry Kasparov, var sleginn í höfuðið með taflborði á föstudag. Atvikið átti sér stað á samkomu í Moskvu þegar Kasparov hafði áritað taflborðið fyrir ungan "aðdáanda". Hann var nýbúinn að árita taflborðið þegar maðurinn tók sig til og barði hann í höfuðið með því.

Sport
Fréttamynd

Radcliffe best í Lundúnum

Paula Radcliffe bar sigur úr býtum í kvennaflokki í Lundúnamaraþoninu sem lauk nú á hádeginu. Hin 31 árs gamla Radcliffe vann Lundúnarmaraþonið í þriðja sinn á ferlinum en tími hennar var 2 klukkustundir, 15 mínútur og 25 sekúndur sem er þriðji besti tími í kvennamaraþoni en Radcliffe á heimsmetið sjálf.

Sport
Fréttamynd

Ragnar og Þorbjörg aftur meistarar

Ragnar Ingi Sigurðsson úr FH varð Norðurlandameistari í skylmingum með höggsverði í gær, annað árið í röð. Ragnar sigraði Svíann Erik Wigren 15:5 í úrslitum. Þorbjörg Ágústsdóttir úr Skylmingafélagi Reykjavíkur varð einnig Norðurlandameistari annað árið í röð en hún sigraði finnska stúlku í úrslitum 15:10.

Sport
Fréttamynd

Clarke með góða forystu

Darren Clarke frá Norður-Írlandi hefur sex högga forystu að loknum tveimur hringjum á PGA-móti í golfi sem fram fer í Suður-Karólínu. Clarke lék á sex höggum undir pari í gær og er samtals á 12 höggum undir pari. Ástralinn Peter Lonard og Bandaríkjamaðurinn Patrick Seehan koma næstir á sex höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Auðunn Jónsson Íslandsmeistari

Það var mikið um dýrðir á Íslandsmótinu í kraftlyftingum í gær, þegar Auðunn Jónsson og Benedikt Magnússon háðu sögulegt einvígi á Grand Hótel. Íslands- og Norðurlandamet féllu á mótinu, sem var það besta sinnar tegundar til þessa.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmótið í kraftlyftingum

Íslandsmótinu í kraftlyftingum lauk seinnipartinn í dag og varð mótið í alla staði sögulegt. Auðunn Jónsson varð fyrsti Íslendingurinn til að lyfta 1100 kílóum í samanlögðu og sigraði í þyngsta flokknum eftir harða keppni við Benedikt Magnússon.

Sport
Fréttamynd

Tveir Svíar efstir í Andalúsíu

Á Opna Spánarmótinu í golfi sem fram fer í Andalúsíu er Svíinn Peter Hansson með forystuna, en hann lék á fjórum höggum undir pari í gær og er samtals á sex höggum undir pari. Nafni hans og landi, Peter Gustafsson, er í öðru sæti einu höggi á eftir Hansson.

Sport
Fréttamynd

Björn í aðra umferð í Madrid

Tækvondó kappinn Björn Þorleifsson er við keppni á heimsmeistaramótinu í Madrid í dag og um helgina. Björn fer vel af stað í keppninni og lagði fyrsta andstæðing sinn 6-3, sem var Norðmaður að nafni Robert Honningsdalsnes.

Sport
Fréttamynd

Sjö jafnir á Opna spænska

Sjö kylfingar eru efstir og jafnir á Opna Spánarmótinu í golfi í Andalúsíu á tveimur höggum undir pari. Á eftir þeim koma sex kylfingar á einu höggi undir pari. Í sjö efstu sætunum eru Jose Rivero, Santiago Luna og Diego Bortrego frá Spáni, Peter Gustafsson og nafni hans Hanson frá Svíþjóð, Emanuel Canonica frá Ítalíu og Steven O'Hara frá Skotlandi.

Sport
Fréttamynd

Barrichello sáttur við nýja bílinn

Brasilíski ökuþórinn Rubens Barrichello segist vera mjög ánægður með nýja Ferrari bílinn og segir sína menn vera komna á beinu brautina eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Sport
Fréttamynd

Björn úr leik í Madrid

Tækvondó kappinn Björn Þorleifsson er úr leik á heimsmeistaramótinu í Madrid á Spáni, eftir að hann tapaði mjög naumlega fyrir Ástralanum Daniel Jukic í dag, 6-5.

Sport