
Ástin og lífið

Brady og Shayk rugla saman reitum
NFL-goðsögnin Tom Brady og ofurfyrirsætan Irina Shayk sáust fara heim saman um helgina. Þau eru sögð hafa eytt nóttinu saman og á Brady að hafa skutlað Shayk heim morguninn eftir.

Vinaparið nefndi dótturina
Vinirnir og tónlistarmennirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson nefndu dótturina, sem kom í heiminn 4. júlí síðastliðinn. Stúlkan fékk nafnið Stella Katrín Sigurjónsdóttir Imsland í blíðviðrinu í gær.

Hildur Guðna og Sam giftu sig á ástarfleyi
Tónlistarkonan og Óskarsverðlaunahafinn Hildur Guðnadóttir og bandaríska tónskáldið Sam Slater giftu sig í Þýskalandi um helgina. Brúðkaupið fór fram á bát í borginni Berlín, eða á ástarfleyi eins og móðir Hildar orðar það.

Love Island stjörnur trúlofaðar
Love Island stjörnuparið Molly-Mae Hague og Tommy Fury eru trúlofuð. Tommy fór á skeljarar á spænsku eyjunni Ibiza um helgina en fjögur ár eru síðan þau kynntust í raunveruleikaþáttunum.

Dagur og Arna saman í aldarfjórðung
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Arna Dögg Einarsdóttir, læknir, hafa verið saman í aldarfjórðung. Dagur deilir þessu á samfélagsmiðlinum Facebook.

Fullkomnunarárátta og þrautseigja getur snúist upp í andhverfu sína
„Í samfélaginu okkar er vinnusemi og dugnaður mikil dyggð. Þess vegna eru eiginleikar eins og fullkomnunarárátta eða þrautseigja oft mjög eftirsóttir eiginleikar hjá starfsfólki,“ segir Helga Lára Haarde ráðgjafi og sálfræðingur hjá Attentus.

„Ef ekki væri fyrir þessa íslensku fjölskyldu þá væri ég ekki til“
„Með því að hjálpa þeim er ég í raun að endurgjalda þeim mitt eigið líf,“ segir hin breska Sue Frecklington í samtali við Vísi. Á hernámssárunum var faðir Sue heimtur úr helju af íslenskum bónda hér á landi. Mennirnir tveir þróuðu í kjölfarið með sér vináttu sem átti eftir að spanna marga áratugi og ná þvert yfir fjórar kynslóðir.

Einfaldar líf sitt eftir að hafa lent á vegg
Hannes Steindórsson fasteignasali og fyrrverandi bæjarfulltrúi Kópavogs stendur á tímamótum í lífinu eftir að hann lenti á vegg og féll eftir ellefu ár af edrúmennsku. Hann hefur ákveðið að einfalda líf sitt og einbeita sér að því sem skiptir hann hvað mestu máli; fjölskyldunni og starfinu sem fasteignasali.

Slagsmál á Kjarval vendipunkturinn: „Ég sá ekkert nema bara drauga“
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason opnaði sig í útvarpsviðtali í gær og segir það hafa verið ömurlegt að vera í neyslu á sínum tíma. Í dag hefur hann sagt skilið við vímuefni og einbeitir sér að tónlistinni. Lagið Skína sem er eftir Patrik og tónlistarmanninn Luigi kom út í dag og markmiðin eru háleit.

Leyndir hæfileikar þekktra Íslendinga
Hæfileikar einstaklinga eru mismunandi og tengjast oft á tíðum áhugamálum. Þá býr fólk stundum yfir leyndum og óútskýrðum hæfileikum sem gætu flokkast sem óhefðbundnir líkt og geta snert nefið á sér með tungubroddinum eða rappa á kínversku svo dæmi séu tekin.

Segist hafa stokkið of hratt í sambandið með Pete
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian, sagði frá því í nýjasta þætti raunveruleikaþáttanna The Kardashians, að hún hafi stokkið of hratt í ástarsamband með uppistandaranum Pete Davidson eftir skilnað hennar við rapparann Kanye West.

Dóttir Arnhildar og Alfreðs komin með nafn
Dóttir Arnhildar Önnu Árnadóttur kraflyftingarkonu og Alfreðs Más Hjaltalín, heilsunuddara og fyrrverandi knattspyrnumanns, er komin með nafn. Stúlkan heitir Úlfhildur Edda.

Barnalán hjá Barbie-hjónum
Leikstjórarnir Greta Gerwig og Noah Baumbach eignuðust annað barn sitt fyrr á árinu. Barnið kom því í heiminn í miðjum fjölmiðlatúr fyrir Barbie sem Gerwig leikstýrir og kom í bíó í vikunni.

Bleikklæddar stjörnur mættu á forsýningu Barbie
Forsýning á bandarísku kvikmyndinni Barbie fór fram í Sambíóunum Kringlunni í gærkvöldi. Stjörnur landsins mættu í litríkum klæðnaði í anda kvikmyndarinnar eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Vergara og Manganiello að skilja
Leikkonan Sofía Vergara og leikarinn Joe Manganiello eru að skilja. Tæp átta ár eru liðin síðan þau giftu sig í Palm Beach í Flórída.

„Enn með stjörnur í augunum yfir þér alla daga að bíða eftir að fiðrildin hverfi“
Parið Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar, og kærastinn Jóhann Sveinbjörnsson fögnuðu árs sambandsafmæli á dögunum. Brynja skrifaði einlæga færslu á samfélagsmiðlum í tilefni dagsins.

Ariana Grande skildi giftingarhringinn eftir heima
Tónlistarkonan Ariana Grande er sögð vera að skilja við eiginmann sinn, fasteignasalann Dalton Gomez. Hún var ekki með giftingarhringinn á sér þegar hún mætti á Wimbledon-mótið í London um helgina.

Þegar lífið hjá öllum öðrum er miklu æðislegra en þitt
Vá…. Þessi vinur er í ótrúlegri ævintýraferð í Indónesíu, annar vinur er með makanum sínum að gera upp meiriháttar flottan sumarbústað og síðan eru æðislega hamingjusamt par sem þú þekkir til, nýgift.

Hugljúf ástarsaga Arnars og Kamillu
Röð tilviljana leiddi til þess að Örn S. Kaldalóns, kerfisfræðingur og fálkaorðuhafi, kynntist eiginkonu sinni, Kamillu Suzanne Kaldalóns, í Englandi á fyrri hluta áttunda áratugarins. Hann var þá 29 ára og hún rétt rúmlega tvítug. Kamilla fluttist búferlum til Íslands til að vera með Erni sem á þeim tíma þótti nokkuð óvenjuleg og djörf ákvörðun.

Hitnar í kolunum hjá Shakiru og Jimmy Butler
Svo virðist sem að söngkonan kólumbíska Shakira og körfuboltastjarnan bandaríska Jimmy Butler séu að slá sér upp saman.

Ástin blómstrar hjá Nönnu og Ragnari í OMAM
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson, söngvarar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, hafa verið par í nokkurn tíma en lítið látið á því bera opinberlega.

Fyrsti kossinn til á filmu, skjalfest augnablik og ódauðlegt
Leikaraparið Aldís Amah Hamilton og Kolbeinn Arnbjörnsson kynntust við tökur á sjónvarpsþáttaseríunni Svörtu sandar. Aldís var handritshöfundur þáttanna en fór sömuleiðis með eitt af aðalhlutverkunum.

Látinn vinur opnaði himnana á brúðkaupsdaginn
Hjónin Eygló Rún Karlsdóttir og Sverrir Rúnarsson giftu sig með pomp og prakt fyrr í sumar en sama dag fagnaði Sverrir fertugsafmæli sínu. Eygló segist hafa alfarið séð ein um undirbúning og aldrei hafi neitt annað komið til greina en að brúðkaupsveislan færi fram á Hótel Geysi.

Á í stormasömu sambandi við stefnumótaöpp
Hlaðvarpsdrottningin og snyrtivörusnillingurinn Lilja Björg Gísladóttir starfar sem markaðsfulltrúi hjá Hagkaup. Hún á þó nokkra aðra auka atvinnuhatta sem hún smellir á sig af og til.

Kristín Péturs fann ástina í faðmi handboltadómara
Kristín Pétursdóttir, leikkona, flugfreyja og áhrifavaldur og handboltadómarinn Þorvar Bjarmi Harðarson hafa notið sólarinnar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga.

Brúðkaupsferð fegurðardrottningar draumi líkust
Fegurðardrottningin Arna Ýr Jónsdóttir og eiginmaður hennar Vignir Þór Bollason kírópraktor eru stödd í brúðkaupsferð á Ítalíu. Parið nýtur lífsins við Como vatn á Norður-Ítalíu.

Mikill aldursmunur geti valdið vandamálum
Theodór Francis Birgisson, klínískur félagsráðgjafi, segir að mikill aldursmunur geti valdið vandamálum. Honum finnst mikill aldursmunur í parasamböndum alveg dásamlegur því slíkt gefur honum svo mikla atvinnu.

„Gætiru látið gjósa í tilefni dagsins?“
Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir birti fyrr í dag hjartnæma færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún minnist eiginmanns síns, Stefáns Karls Stefánssonar sem lést eftir erfiða baráttu við krabbamein árið 2018. Stefán Karl hefði orðið 48 ára í dag.

Söfnuðu milljón krónum á einni viku fyrir bók um þriðju vaktina
Söfnun fyrir útgáfu bókar um þriðju vaktarina lauk á rúmri viku. Höfundur segir markmiðið vera að veita pörum aðgengilegt samansafn af upplýsingum um fyrirbærið. Þegar hafa á fimmta tug frásagna borist og segist höfundur trúa því að hægt og rólega muni hinar verstu karlrembur vakna úr dvala, karlar muni ekki lengur geta skýlt sér á bakvið skilningsleysi þegar komin er út heil bók um viðfangsefnið. Þriðja vaktin geti rústað hjónaböndum.

Líður best með moldina á milli tánna
Leikkonan Ásthildur Úa Sigurðardóttir gerði fjórar tilraunir áður en hún komst inn í leiklistarnám. Bekkurinn hennar fór í gegnum húsnæðisbreytingar og me too byltinguna sem hafði mikil áhrif en ekki síður sú upplifun að ganga með sitt fyrsta barn í miðjum heimsfaraldri. Stuttu eftir útskrift hlaut Ásthildur tvær Grímuverðlauna tilnefningar fyrir leik sinn í aðal- og aukahlutverki. Hún segir frægð aldrei neitt markmið enda líði sér best í sveitinni með moldina á milli tánna.