Skattar og tollar

Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að Bandaríkin muni tvöfalda tolla á innflutt stál og ál, úr 25 prósent í 50 prósent. Breytingin tekur gildi næsta miðvikudag. Trump greindi frá þessu á baráttufundi í Pittsburgh í Pennsylvaníu.

Dómstóll ógilti tollahækkanir Trump
Dómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að þeirri niðurstöðu að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi farið út fyrir valdheimildir sínar þegar hann fyrirskipaði tollahækkanir á fjölmörg ríki fyrr á árinu í skjóli laga um neyðarvald.

Hvað er markaðsverð á fiski?
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun sértækrar skattlagningar á sjávarútveg byggir á þeirri meginforsendu, að verið sé að leiðrétta veiðigjöld til samræmis við markaðsverð á fiski.

Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt
Helstu niðurstöður úr fyrirhuguðu fasteignamati fyrir árið 2026 verða kynntar á opnum fundi sem fram fer klukkan 10. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

„Vestfirska efnahagsævintýrið“ í hættu verði veiðigjöldin hækkuð
Guðmundur Fertram, stofnandi og forstjóri Kerecis, hefur miklar áhyggjur af því að hærri veiðigjöld muni hafa slæm áhrif á efnahag Vestfjarða. Það hafi verið mikill uppgangur, nýsköpun og fólksfjölgun en líklegt sé að sjávarútvegsfyrirtækin minnki fjárfestingar sínar hækki veiðigjöldin eins mikið og stjórnvöld fari fram á.

Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum
Jón Mýrdal, sem hefur verið vert á veitingastaðnum Kastrup við Hverfisgötu, hefur gefist upp á samningum við skattinn og leigusala og skilið skiptum við staðinn.

Frestar fimmtíu prósenta tollum á Evrópusambandið
Donald Trump Bandaríkjaforseti segist ætla að fresta gildistöku fimmtíu prósenta tolla á vörur frá Evrópusambandinu fram til níunda júlí næstkomandi. Hann ræddi tollamálin við Ursulu von der Leyen, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins símleiðis í kvöld.

Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira?
Í umræðum um aukna tekjuöflun ríkissjóðs hefur sú hugmynd komið fram að hækka lægra þrep virðisaukaskatts – sem nær m.a. yfir mat, gistingu og ferðaþjónustu – til að „láta ferðamenn greiða meira“.

Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump
Viðskiptaráðherra Evrópusambandsins kallar eftir tollasamningi milli sambandsins og Bandaríkjanna sem byggi á virðingu en ekki hótunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði í gær að leggja fimmtíu prósent innflutningstoll á vörur frá Evrópusambandinu.

Hótar Evrópusambandinu og Apple háum tollum
Bandaríkjaforseti hótaði því að leggja fimmtíu prósent innflutningstoll á vörur frá Evrópusambandinu og 25 prósent toll á Apple-vörur í samfélagsmiðlafærslum í dag. Hann segir hvorki ganga né reka í viðræðum við ESB um viðskipti.

Var meiri áhætta að stöðva lækkunarferlið og sjá aðhaldið aukast yfir sumarið
Ólíkt því sem var fyrir ári síðan þá taldi peningastefnunefndin núna meiri áhættu fylgja því að halda vöxtunum óbreyttum yfir þriggja mánaða tímabil, að sögn seðlabankastjóra, sem hefði getað aukið aðhaldsstigið enn frekar þegar verðbólgan færi að síga niður í sumar. Hann leggur áherslu á að tollastríð Bandaríkjanna gagnvart öllum sínum helstu viðskiptaþjóðum, sem hefur aðeins verið slegið á frest, muni „ekki hafa neitt jákvætt í för með sér fyrir Ísland“ heldur valda minni hagvexti og þá muni ferðaþjónustan líklega verða fyrir höggi vegna veikari Bandaríkjadals.

Niðurstöður álagningar birtar á fimmtudag
Niðurstöður álagningar einstaklinga 2025, vegna tekna 2024, verða birtar á þjónustuvef Skattsins á fimmtudag 22. maí. Inneignir verða greiddar út á föstudegi 30. maí og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.

Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum
Jón Ólafur Halldórsson er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins er bjartsýnn á horfur í íslensku atvinnulíf en segir stjórnvöld þurfi að vinna með atvinnulífinu. Það sé gríðarlega mikilvægt að samtalið sé virkt og opið þar á milli. Jón Ólafur ræddi efnahags- og tollamál í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Ferðaþjónustan er burðarás í íslensku efnahagslífi
Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum þróast úr jaðarstarfsemi yfir í að vera ein af meginstoðum íslensks efnahagslífs. Með mikilli gjaldeyrissköpun, fjölbreyttri atvinnu og víðtækri verðmætasköpun hefur hún skipað sér sess sem einn mikilvægasti vaxtarbroddur þjóðarbúsins.

Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár
Landsbjörg hefur skorað á stjórnvöld að afnema virðisaukaskattsskyldu björgunarsveita, og telja það geta sparað tugi milljóna á ári hverju. Þá kallar félagið eftir því að brugðist verði við húsnæðisvanda viðbragðsaðila sem allra fyrst.

Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti
Slysavarnarfélagið Landsbjörg segir nauðsynlegt að rekstrar- og skattaumhverfi björgunarsveitanna sé ekki óhóflega íþyngjandi, og eðlilegt væri að veita þeim undanþágu frá virðisaukaskatti.

Virðisaukaskattur í ferðaþjónustu: Skattfríðindi eða röng túlkun? Eðli virðisaukaskatts, alþjóðlegt samhengi og hlutverk ferðaþjónustunnar sem gjaldeyrisskapandi útflutningsgreinar
Í opinberri umræðu er því stundum haldið fram að ferðaþjónustufyrirtæki njóti sértækra skattfríðinda vegna þess að þau kaupa aðföng og fjárfesta í tækjum og búnaði með 24% virðisaukaskatti (VSK) en selja þjónustu sína með 11% VSK. Þessar fullyrðingar byggja á misskilningi um eðli virðisaukaskatts og hlutverki fyrirtækja í skattheimtunni.

Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður yfir því hver erfiðlega honum hefur gengið að binda enda á átök sem hann hafði heitið að stöðva fljótt. Fyrir forsetakosningarnar í fyrra hafði forsetinn heitið því að stöðva átökin í Úkraínu og á Gasaströndinni mjög fljótt.

Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað
Útflutningur Kínverja til Bandaríkjanna dróst verulega saman í síðasta mánuði, eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, beitti umfangsmiklum tollum á vörur frá Kína. Þrátt fyrir að jókst útflutningur Kínverja á heimsvísu, samkvæmt nýjum tölum frá Kína, þar sem kínversk fyrirtæki hafa leitað til annarra markaða.

Bretar fyrstir til að semja við Trump
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, opinberaði í dag „sögulegan“ viðskiptasamning við Bretland sem opna ætti á aukinn útflutning fyrir Bandaríkjamenn. Bretar urðu þar með fyrstir til að semja við Trump eftir að hann boðaði umfangsmikla tolla í síðasta mánuði.

Miklum meirihluta finnst auglýsingar SFS slæmar
Tveir af hverjum þremur telja auglýsingar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi um „norsku leiðina“ svokölluðu slæmar. Enn meiri meirihluti er hlynntur frumvarpi atvinnuvegaráðherra um hækkun á veiðigjöldum.

Staðreyndir eða „mér finnst“
Staða sjávarútvegs á Íslandi er enn og aftur orðin að bitbeini. Að þessu sinni vegna frumvarps um tvöföldun á veiðigjaldi sem ríkisstjórn hefur gert að forgangsmáli. Enn hafa engar greiningar verið lagðar fram um áhrifin af þeirri tvöföldun.

Byggð í Norðvesturkjördæmi: lífæð framtíðar Íslands
Það má segja að byggðirnar í Norðvesturkjördæmi séu hjarta og lífæð íslenskrar sjálfsmyndar. Hér má finna einhverjar sterkustu rætur okkar þjóðar – í sjávarútvegi, landbúnaði, menningu og sögu.

Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent
Alvotech áætlar að mögulegir tollar á innflutning lyfja til Bandaríkjanna hefðu hverfandi áhrif á tekjur félagsins af sölu lyfja á árinu.

„Þetta er salami-leiðin“
Formaður Framsóknarflokksins vill frekar að þrepaskiptur tekjuskattur verði lagður á sjávarútvegsfyrirtæki heldur en að sjá frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld verða að veruleika. Slíkt kerfi vill hann meina að sé líklegra til að tryggja að stærri og efnameiri fyrirtæki sem hagnast mest greiði meira af auðlindinni til samfélagsins en lítil og meðalstór fyrirtæki. Hann telur áform ríkisstjórnarinnar „andlandsbyggðarlega“ „salami-aðferð“ til að sækja tekjur af greininni.

Leiðréttingin leiðrétt
Í lok mars síðastliðnum héldu atvinnuvegaráðherra og fjármálaráðherra blaðamannafund undir yfirskriftinni Veiðigjöld í sjávarútvegi leiðrétt. Þar var m.a. fjallað um verðlagningu makríl og mun á Íslandi og Noregi.

Varalitur á skattagrísinum
Upphafsmánuðir stjórnartíðar ríkisstjórnarinnar hafa spilast nokkurn veginn líkt og búast mátti við, ef undanskilin eru ákveðin skakkaföll. Boðaðar hafa verið ýmsar skattahækkanir, bæði á einstaklinga og fyrirtæki. Fiskeldisgjald hækkar, veiðigjöld hátt í tvöfaldast og fella á niður samnýtingu skattþrepa í tilviki hjóna og sambýlisfólks. Í ríkisstjórn sem samanstendur af tveimur vinstri flokkum og einum miðju flokki ættu þessi áform svo sem ekki að koma neinum á óvart.

Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“
Leikstjórinn Baltasar Kormákur segir óvissu ríkja í kvikmyndaiðnaðinum vestanhafs eftir að Bandaríkjaforseti boðaði hundrað prósenta tolla á kvikmyndir framleiddar utan Bandaríkjanna. Hann hafi áhyggjur af mögulegum áhrifum á eigin verkefni sem og íslenskan kvikmyndaiðnað í heild en að áætlanir forsetans komi fyrst og fremst til með að bitna á Bandaríkjamönnum sjálfum.

Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“
„Við viljum kvikmyndir framleiddar í Bandaríkjunum aftur,“ skrifaði Trump í hástöfum á miðli sínum Truth Social í nótt. Þar boðaði hann að kvikmyndir framleiddar utan Bandaríkjanna yrðu tollaðar um eitt hundrað prósent. Fjögur til sex stór kvikmyndaverkefni eru í undirbúningi á Íslandi á næstu misserum.

Þetta má ekki gerast aftur! - Álag á útsvar
Ársreikningur Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2024 sem kynntur var á bæjarstjórnarfundi sl. mánudag sýnir stórkostlegan viðsnúning í rekstri Árborgar. Samstillt átak bæjarstjórnar og starfsmanna sveitarfélagsins hefur skilað sér í ábyrgari rekstri og stöðvað skuldasöfnun.