
Samfylkingin

Greiða atkvæði um lista Samfylkingarinnar í Reykjavík á laugardag
Uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur lokið störfum og mun kynna tillögu sínar að framboðslistum flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir komandi þingkosningar á allsherjarfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík á laugardag. Kjördæmisráð flokksins í borginni mun svo greiða atkvæði um tillöguna.

Þórunn mögulega aftur í framboð í Kraganum
Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM og fyrrverandi ráðherra og þingmaður, er nú orðuð við þingframboð fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi.

Varaformaðurinn sagður nú sækjast eftir sæti á lista
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfrulltrúi og varaformaður Samfylkingar, er sögð hafa látið þau boð berast til uppstillingarnefndar Samfylkingarinnar í Reykjavík að hún sé reiðubúin taka sæti á lista flokksins fyrir komandi þingkosningar.

Opið bréf til formanns Samfylkingarinnar
Sæll félagi Logi Már Einarsson. Ástæða þess að ég sendi þetta bréf fyrir framan alþjóð er sú, að ég heyrði skýringu þína í fjölmiðlum þegar út spurðist, að Ágústi Ólafi alþingismanni Samfylkingarinnar hafði verið sparkað niður framboðslista flokksins.

Hefur áhyggjur af því að fólk hætti að þora að tjá sig
Ellen Calmon, formaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, segir hljóðið í félagsmönnum þungt eftir að skotið var á bíl borgarstjóra. Hún hefur áhyggjur af því atvikið leiði til þess að fólk hætti að þora að tjá sínar skoðanir.

Samfylkingin í Reykjavík fordæmir árásirnar
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík fordæmir þær árásir sem starfsstöðvar stjórnmálaflokka á Íslandi hafa orðið fyrir síðustu misserin sem og skotárás sem gerð var á einkabíl borgarstjóra.

Engin dæmi um „jafnalvarlega árás í garð stjórnmálamanns á Íslandi“
Samfylkingin lýsir yfir þungum áhyggjum af skotárásum á skrifstofur stjórnmálaflokka og heimili stjórnmálafólks, sem greint hefur verið frá undanfarna daga. Flokkurinn segir engin dæmi um „jafn alvarlega árás í garð stjórnmálamanns á Íslandi“ og í tilfelli árásar á Dag B. Eggertsson, borgarstjóra.

Albertína á von á sínu fyrsta barni og hættir á þingi
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir þingmaður Samfylkingarinnar hyggst ekki gefa kost á sér til að taka sæti ofarlega á lista flokksins fyrir næstu Alþingiskosningar. Hún hyggst einbeita sér að nýju verkefni; fyrsta barni hennar og eiginmannsins.

Spyr hvers vegna 83 prósent vilji Samfylkinguna ekki í stjórn
Fjármálaráðherra segir Ísland skipa sér í flokk með ríkjum þar sem spilling sé minnst. Ísland hefur samt fallið úr ellefta sæti í það sautjánda á viðurkenndum alþjóðlegum mælikvarða.

Hugmyndakreppa hægrisins og hnignunarskeið Valhallar
Gunnar Smári Egilsson veltir fyrir sér inntaki greinar Friðjóns Friðjónssonar sem hann segir ástarjátningu og heróp.

Jóna Þórey vill á þing fyrir Samfylkinguna
Jóna Þórey Pétursdóttir ætlar að gefa kost á sér á lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi.

Steinunn Ýr segir kvenfyrirlitningu grassera innan Samfylkingarinnar
Mikil ólga er innan Samfylkingarinnar vegna uppstillingar lista. Logi Einarsson formaður hefur sigið inn í heitar umræður og reynt að lægja öldur.

Kristrún hættir hjá Kviku
Kristrún Mjöll Frostadóttir mun láta af störfum sem aðalhagfræðingur hjá Kviku banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marinó Erni Tryggvasyni bankastjóra til starfsmanna þar sem Kristrúnu er óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Skotið á skrifstofur þriggja flokka og SA á einu ári
Lögregla telur að skotið hafi verið á skrifstofur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins og nú Samfylkingarinnar á einu ári. Talið er að notast hafi verið við loftriffil í öllum tilvikum.

Endurtekið skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka
Svo virðist sem endurtekið sé skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka hér á landi. Starfsmenn á skrifstofu Samfylkingarinnar sáu göt á rúðum skrifstofu flokksins í Sóltúni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fundust litlar byssukúlur á vettvangi.

Rósa Björk vill leiða lista Samfylkingarinnar í Kraganum
Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona Samfylkingarinnar, hefur sóst eftir að leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum.

Telja að skotið hafi verið á skrifstofur Samfylkingarinnar
Starfsfólk skrifstofu Samfylkingarinnar gerði lögregu viðvart í morgun þegar það mætti til vinnu og sá göt á gluggarúðum húsnæðisins við Sóltún 26, sem virðast vera eftir byssukúlur. Tæknideild lögreglu rannsakar nú málið.

Sáttatillögu hafnað og Ágúst Ólafur ekki á lista Samfylkingar
Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingar, mun ekki taka sæti á lista flokksins í næstu alþingiskosningum. Þetta staðfestir hann í samtali við fréttastofu.

Óttast að Samfylkingin fremji ódæðisverk gegn óvirkum alkóhólistum
Birgir Dýrfjörð, sem situr í flokksstjórn Samfylkingarinnar, segir að hans eigin reynsla af alkóhólisma og vanmætti sínum gagnvart áfengi hafi litað ákvörðun hans um að segja sig úr uppstillingarnefnd flokksins.

Illska hlaupin í uppstillingarnefnd Samfylkingar
Birgir Dýrfjörð hefur sagt sig frá uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar en veruleg ólga er innan Samfylkingarinnar í tengslum við uppstillingu á lista fyrir komandi Alþingiskosningar.

Guðjón keyrði mest þingmanna á síðasta ári
Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, var með mestan aksturkostnað allra þingmanna árið 2020.

Samfylkingin leggur til bráðabirgðaákvæði um tvöfalda skimun og sóttvarnahús
Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur fram frumvarp á Alþingi á morgun með bráðabirgðaákvæðum við sóttvarnarlög sem myndu heimila að skylda fólk í tvöfalda skimun við landamærin eða tveggja vikna sóttkví í sóttvarnahúsi. Þá hefur formaður flokksins óskað eftir því að Alþingi verði kallað saman til fundar um málið strax á morgun.

Ágúst Ólafur ekki einn af fimm efstu í könnun Samfylkingarinnar
Aðeins einn karlmaður, Jóhann Páll Jóhannsson, fyrrverandi blaðamaður á Stundinni, er á meðal fimm efstu í skoðanakönnun sem haldin var meðal félaga í Samfylkingunni í Reykjavík í desember.

„Það var bara ekki sérstök stemning fyrir því“ að kalla saman þing
Ekkert verður af því að þing komi saman til fundar á morgun líkt og þingmenn stjórnarandstöðu höfðu kallað eftir.

Ungliðahreyfingar bregðast við: UJ skorar á Framsókn og VG að slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkanna hafa í dag og undanfarna daga brugðist við vegna þeirrar gagnrýni sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur sætt eftir að hann sótti fjölmennt samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláksmessu.

Samfylkingin vill að Alþingi verði kallað saman fyrir áramót
Þingflokksformaður Samfylkingarinnar hefur óskað eftir að Alþingi komi saman þann 29. desember þar sem fram fari sérstök umræða við forsætisráðherra um „þá hættu sem skapast getur vegna hópamyndana um áramótin,“ að því er segir í tilkynningu frá Samfylkingunni.

Fjöldi þekktra vill á framboðslista Samfylkingarinnar
Samfylkingin í Reykjavík sendi í dag frá sér lista af fólki sem býður sig fram til uppstillingar á framboðslistum Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir næstu Alþingiskosningar. Listinn er ekki endanlegur framboðslisti heldur gafst flokksmönnum tækifæri til að stinga upp á fólki sem gæti prýtt framboðslista samfylkingarinnar.

Samfylkingin auglýsir grimmt á Facebook
Síðustu níutíu dagana hafa íslenskir stjórnmálaflokkar eytt fimm milljónum króna í auglýsingar á Facebook.

Rósa Björk til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar
Rósa Björk Brynjólfsdóttir gekk í dag til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar. Hún hefur setið sem óháður þingmaður á Alþingi síðastliðna þrjá mánuði, en var þar áður í þingflokki Vinstri grænna.

Formaður félags fanga ætlar á þing
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu - félags fanga, hefur ákveðið að gefa kost á sér til framboðs fyrir Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum. Hann greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.