Innlent

For­sætis­ráð­herra Noregs fundaði með Krist­rúnu

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kristrún og Jonas ræða málin á fundi sínum.
Kristrún og Jonas ræða málin á fundi sínum. Facebook

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, fundaði með Jonas Gahr Støre, formanni Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Noregs, í dag.

Kristrún greindi frá fundinum í Facebook-færslu þar sem hún segir Jonas hafa hvatt sig til að halda sínu striki og „tala fyrir raunhæfum leiðum til að bæta kjör, velferð og efnahag venjulegs fólks.“

Meðal umræðuefna fundarins voru, að sögn Kristrúnar, leiðin frá stjórnarandstöðu til ríkisstjórnar, atvinnu- og auðlindamál og samhengið milli skatta og velferðar.

Í færslunni skrifar Kristrún „Það er mikils virði fyrir mig að geta leitað til reynslubolta eins og Jonasar. Hann var einn af nánustu ráðgjöfum Gro Harlem Brundtland, utanríkisráðherra í ríkisstjórnum Jens Stoltenbergs og hefur nú sjálfur leitt ríkisstjórn síðan árið 2021.“

„Listin við að leiða sósíaldemókratískan flokk er að finna rétt jafnvægi fyrir samfélagið hverju sinni. Á milli þjóðfélagshópa og landshluta til dæmis – en líka jafnvægi á milli breytinga og varðveislu þess sem vel hefur gefist. Í Noregi hefur það tekist vel og Verkamannaflokkurinn verið stærsti flokkurinn á Stórþinginu frá árinu 1927, algjörlega óslitið. Við getum lært af þeim,“ skrifar Kristrún.

Støre er þriðji stjórnmálaforinginn af Norðurlöndunum sem Kristrún fundar með á síðustu sex vikum. Hún hitti Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, þann 17. maí síðastliðinn og Aksel V. Johannesen, lögmann Færeyja, daginn þar áður.


Tengdar fréttir

Sam­fylkingin lang­stærsti flokkurinn og ríkis­stjórnin fellur enn

Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×