Kjaramál

Verkalýðsforystan lýsir miklum vonbrigðum og talar um smánarlegar skattalækkanir
Formaður Eflingar segir að skattalækkunin sé smánarleg.

Logi ósáttur við fyrirhugaðar skattabreytingar: "Ekkert hróflað við ofurlaunum eða fjármagnstekjum“
Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar gagnrýnir fyrirhugaðar skattabreytingar ríkisstjórnarinnar á Facebook-síðu sinni nú fyrir skömmu.

Tilkynntu um nýtt skattþrep fyrir lágtekjufólk
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, tilkynnti um nýtt skattþrep sem á að lækka skattbyrði lágtekjufólks.

Bein útsending: Fjármálaráðherra kynnir breytingar í skattamálum
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, kynnir núna klukkan 17 fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um breytingar í skattamálum á blaðamannafundi í fjármálaráðuneytinu.

Kynnir breytingar í skattamálum síðdegis
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í ráðuneytinu í dag klukkan 17 þar sem hann mun kynna fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um breytingar í skattamálum.

Lýsa yfir reiði og sárum vonbrigðum með tillögur ríkisstjórnarinnar
Stéttarfélögin hafa sent frá sér yfirlýsingu.

Telur tillögur ríkisstjórnarinnar ábyrgar og raunsæjar
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að tillögur ríkisstjórnarinnar um mögulegar aðgerðir til að liðka fyrir kjarasamningum séu ábyrgar og raunsæjar.

Sauð upp úr í stjórnarráðinu
Vilhjálmur Birgisson gekk út af fundi með ríkisstjórninni.

Ítreka að hækkun launa bankastjórans sé í samræmi við starfskjarastefnu
Bankaráð Landsbankans hefur svarað bréfi Bankasýslu ríkisins sem sent var bankanum í liðinni viku en þar var óskað eftir upplýsingum um sjónarmið ráðsins varðandi laun bankastjóra bankans.

Búist við að stjórnvöld sýni á spilin í dag
Stjórnvöld munu funda með aðilum vinnumarkaðarins í dag þar sem búist er við að þau muni kynna aðgerðir sem stjórnvöld eru reiðubúin að grípa til til að liðka fyrir gerð kjarasamninga.

Forstjóri Kviku segir engar heimildir fyrir því að rifta kaupum á Gamma
Hlutur VR í eignastýringu Kviku nemur um einu prósenti

Segir að ekki þurfi að velja milli hagsmuna ólíkra félaga
Formaður VR segir samstöðu stéttarfélaganna fjögurra sem eru í samfloti í viðræðum við Samtök atvinnulífsins góða. Ekki muni koma til þess að velja þurfi milli leiða sem henti ólíkum hópum misvel.

Ragnar Þór hvikar hvergi frá kröfum sínum
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórn VR standi fast á sínu og hafi þegar gert ráðstafanir um það hvert fjármunir félagsins verða fluttir ef Kviku banki kemur ekki í veg fyrir leiguhækkanir Almenna leigufélagsins.

Telur erindi Ragnars Þórs og VR á misskilningi byggt
Forstjóri Kviku minnir á að bankinn eigi enn sem komið er ekkert í Gamma. Fyrir vikið sé kröfu formanns VR að draga til baka hækkanir á leigu á húsnæði í eigu Almenna leigufélagsins, sjóðs í eigu Gamma, fljótsvarað.

Hóta því að taka 4,2 milljarða úr eignastýringu hjá Kviku
Þetta kemur fram í opnu bréfi VR til stjórnenda Kviku banka.

„Ótrúlegt að þurfa að svara svona fabúleringum“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, gefur lítið fyrir fréttaflutning Fréttablaðsins í dag um að brestir séu komnir í samstöðu verkalýðsfélaganna fjögurra sem sitja við samningaborðið hjá ríkissáttasemjara og eiga í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins.

Starfsgreinasambandið metur hvort vísa eigi kjaradeilu til ríkissáttasemjara
Á fundi samninganefndar Starfsgreinasambandsins í liðinni var samþykkt einróma að veita viðræðunefnd sambandsins umboð til þess að vísa kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara á næstu dögum ef nefndin telur ástæðu til.

Gunnar Smári hvetur fólk til þess að afþakka Fréttablaðið
Gunnar Smári Egilsson, sem kom að stofnun Fréttablaðsins og er einn af stofnendum Sósíalistaflokksins, hvetur fólk til þess að afþakka blaðið sem hann ritstýrði um árabil.

Brestur í blokkinni?
Ólíkir hagsmunir félagsmanna gætu gert verkalýðsfélögum í samfloti erfitt að klára kjaraviðræður saman. Fleiri félög gætu þó bæst í hópinn. Ráðherrahópur fundar um breytingar á skattkerfi í dag. Úrslitastund gæti runnið upp á fimmtudag

Stemmning fyrir verkföllum í mars
Forseti ASÍ segist ekki geta útilokað að undirfélög sambandsins muni boða til verkfalla á næstu vikum, lítist þeim ekki á tillögur stjórnvalda í kjaramálum

Efling gagnrýnir fréttaflutning DV um starfsmann Manna í vinnu
Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna fréttaflutnings DV varðandi mál Rúmena sem störfuðu hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu ehf.

Beðið eftir útspili stjórnvalda
Boltinn í kjaraviðræðum er kominn til stjórnvalda eftir að SA höfnuðu í gær gagntilboði VR, Eflingar, VLFA og VLFG. Fáist ekki niðurstaða í næstu viku stefnir í viðræðuslit að sögn formanns VLFA.

Kulnun í starfi vaxandi vandamál
Það er fyrst og fremst fólk sem er að vinna með fólk fær kulnun í starfi. Fólk innan heilbrigðisþjónustunnar, kennarar, háskólastarfsmenn, stjórnendur og þeir sem vinna innan félagsþjónustunnar og sögn prófessors og forstöðumanns streiturannsóknarstofnunar Gautaborgar

Slitnað gæti upp úr kjaraviðræðum á úrslitafundi í næstu viku
Formaður VR segir boltann hjá stjórnvöldum eftir að Samtök atvinnulífsins höfnuðu gagntilboði fjögurra verkalýðsfélaga um hækkun launa í nýjum kjarasamningum á fundi hjá ríkissáttasemjara í dag.

SA hafnar gagntilboði verkalýðsfélaga sem segja boltann nú hjá stjórnvöldum
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir að boltinn sé hjá stjórnvöldum eftir að Samtök atvinnulífsins höfnuðu gagntilboði VR, Eflingar og verkalýðsfélaganna á Akranesi og í Grindavík á fundi hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Lífskjarabati síðustu ár með fádæmum - árangur Þjóðarsáttarinnar
Eftir mesta efnahagslega hrun á Íslandi í langan tíma með gjaldþroti viðskiptabankanna í október 2008 hefur komið eitt allra mesta framfaraskeið lýðveldistímans.

Staða kjaraviðræðna gæti skýrst á fundi með stjórnvöldum í næstu viku
Verkalýðsfélögin fjögur sem ræða við Samtök atvinnulífsins á vettvangi ríkissáttasemjara lögðu sameiginlega fram gagntilboð við tilboð atvinnurekenda um hækkun launaliðar í samningi til þriggja ára á fundi hjá ríkissáttasemjara í morgun.

Tilboð SA eitt og sér heggur ekki á hnútinn
SA fá að vita örlög tilboðs sem þau lögðu fram í vikunni á fundi með verkalýðsfélögum í dag. Trúnaður um innihald tilboðsins. Heimildir innan verkalýðshreyfingar herma að eitt og sér leysi það ekkert.

Mæta með gagntilboð í Karphúsið
Samninganefnd Eflingar ætlar að leggja fram gagntilboð við tilboði Samtaka atvinnulífsins. Fundur er fyrirhugaður í Karphúsinu í Borgartúni á morgun.

Katrín skammar bankastjóra á ofurlaunum
Ekki í boði að segja fjöldanum að bara hafa sig hægan að sögn forsætisráðherra.