Bretland

Talibanar voru komnir til Kabúl mánuðum áður en borgin féll
„Í byrjun júlí hitti ég einn herforingja Talibana. Ég spurði hvenær hermenn hans myndu koma til Kabúl. Hann svaraði: Þeir eru hérna nú þegar.“

Einn stofnmeðlima UB40 er látinn
Saxófónleikarinn, lagasmiðurinn og liðsmaður bresku reggísveitarinnar UB40, Brian Travers, er látinn, 62 ára að aldri. Hann lést í gær af völdum krabbameins.

Ákvörðunin um að yfirgefa Afganistan byggð á „hálfvitalegum“ pólitískum frasa
Ákvörðun Bandaríkjamanna um að yfirgefa Afganistan var röng og drifin af „hálfvitalegum“ pólitískum frasa um að binda enda á svokölluð „eilífðarstríð“ (e. forever wars). Þetta segir Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.

Myndu leyfa mótefnalyfið ef Landspítali óskaði eftir því
Lyfjastofnun myndi samþykkja notkun mótefnalyfsins Ronapreve ef Landspítalinn óskaði eftir því að fá að nota það í meðferð sjúklinga með Covid-19. Lyfið fékk leyfi í Bretlandi í gær.

Mælirinn fullur hjá drottningu: Vill höfða meiðyrðamál gegn Harry og Meghan
Elísabet Englandsdrottning hefur skipað starfsmönnum hallarinnar að hefja undirbúning á málaferlum við hertogahjónin af Sussex, þau Harry Bretaprins og Meghan Markle. Hún hefur fengið nóg af ummælum þeirra um sig og konungsfjölskylduna í viðtölum við fjölmiðla vestanhafs þar sem hjónin búa nú.

Bretar gefa leyfi fyrir mótefnalyfi gegn Covid sem á að létta álag á spítölum
Lyfjastofnun Bretlands hefur veitt leyfi fyrir notkun mótefnalyfsins Ronapreve í meðferð við Covid-19. Lyfið er það fyrsta sinnar tegundar sem fær leyfi í Evrópu en Japanir samþykktu notkun þess fyrir rúmum mánuði. Menn binda vonir við að lyfið geti létt álag á breskum spítölum.

Búist við röskunum í London vegna loftslagsmótmæla
Lögreglan í London varar við því að raskanir verði á daglegu lífi í borginni næstu tvær vikurnar vegna boðaðra loftslagsmótmælum sem eiga að hefjast á mánudag. Boðað hefur verið til setuverkfalla og mótmælagangna.

Virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta virðist dvína
Greining á gögnum frá Bretlandi bendir til þess að virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta-afbrigði kórónuveirunnar dvíni nokkuð að þremur mánuðum liðnum. Þau veita þó áfram sterka vernd gegn alvarlegum veikindum.

Mínútu þögn á Anfield um helgina og 97. fórnarlambs Hillsborough minnst
Fjölmargir sjálfboðaliðar hafa lagt hönd á plóg í aðdraganda minningarathafnar vegna nýlegs fráfalls Andrew Devine, stuðningsmanns Liverpool, sem varð sá 97. til að láta lífið vegna Hillsborough-slyssins árið 1989. Hans, auk hinna 96 sem létu lífið vegna slyssins, verður minnst fyrir fyrsta heimaleik Liverpool gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Meghan sögð hafa boðið Katrínu samstarf
Samband þeirra Meghan Markle og Katrínar hertogaynju af Cambridge er talið hafa batnað til muna og á Meghan að hafa boðið Katrínu að vinna með sér að nýju sjónvarpsefni. Þetta þykir til tíðinda þar sem lengi hefur verið talið afar stirt á milli þeirra.

Grínistinn Sean Lock er látinn
Breski grínistinn Sean Lock er látinn, 58 ára að aldri. Umboðsmaður Locks staðfestir í samtali við BBC að hann hafi látist af völdum krabbameins.

Telur að talibanir þurfi að fá tækifæri til að sanna sig
Yfirmaður breska hersins telur að talibanar þurfi að fá tækifæri til þess að mynda nýja ríkisstjórn í Afganistan og að hugsanlega verði þeir hófsamari en þeir voru þegar þeir réðu landinu á 10. áratug síðustu aldar.

Ísland skiptir máli í áformum Breta um að skjóta flaug út í geim
Íslendingar hafa undirritað samkomulag við bresk yfirvöld um samstarf á vettvangi geimrannsókna. Það gerir Bretum meðal annars kleift að fljúga eldflaugum innan lofthelgi Íslendinga og gerir lendingar slíkra véla á Íslandi löglegar.

Skaut fyrst móður sína
Árásarmaðurinn í Plymouth skaut móður sína til bana í gær, áður en hann fór út og skaut á fólk af handahófi. Hinn 22 ára gamli Jake Davison skaut í heild fimm manns og þar á meðal þriggja ára gamla stúlku til bana, áður en hann beindi byssu sinni að sjálfum sér í gær.

Sherlock-stjarnan Una Stubbs er látin
Breska leikkonan Una Stubbs, sem þekktust er fyrir að hafa farið með hlutverk í þáttunum Till Death Us Do Part og Sherlock, er látin, 84 ára að aldri.

Fundu mann sem var í stúkunni í síðasta leik Brentford í efstu deild fyrir 74 árum
Derek Burridge er harður stuðningsmaður Brentford liðsins og í kvöld endar meira en sjö áratuga bið hans þegar liðið spilar sinn fyrsta leik í efstu deild á Englandi síðan 1947.

Þekkti fyrsta fórnarlambið en skaut aðra af handahófi
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið fimm til bana í Plymouth í Bretlandi hefur verið nafngreindur. Hann hét Jake Davison og var 22 ára gamall. Meðal fórnarlamba hans í skotárásinni var þriggja ára stúlka.

Rannsaka lyfjamisnotkun bresks spretthlaupara og Ólympíusilfrið í hættu
Breski spretthlauparinn CJ Ujah hefur verið dæmdur í keppnisbann fyrir meinta lyfjamisnotkun. Ujah var hluti af breska liðinu sem vann til silfurverðlauna í 4x100 metra spretthlaupi á Ólympíuleikunum, en verðlaunin gætu nú verið í hættu.

Miðgarður flyst frá Nýja-Sjálandi til Bretlands
Stjórnendur Amazon-kvikmyndastúdíósins hafa tilkynnt að tökur á annarri seríunni af nýjum sjónvarpsþáttum um ævintýraheim J.R. Tolkien muni fara fram á Bretlandseyjum.

Tíu ára barn meðal látnu í Plymouth
Byssumaður myrti fimm manns og var síðan sjálfur felldur af lögreglu í Plymouth í Bretlandi í gærkvöldi. Þrjár konur létust og tveir karlar auk byssumannsins. Lögregla skoðar árásina ekki sem hryðjuverk.

Nokkrir látnir eftir skotárás í Plymouth
Nokkrir eru látnir í Plymouth eftir alvarlega skotárás. Lögregluyfirvöld segjast ekki gera ráð fyrir að um hryðjuverk hafi verið að ræða og segjast komin með stjórn á aðstæðum á svæðinu.

Engin alvarleg blóðsegavandamál síðustu fjórar vikur
Engar tilkynningar um alvarleg blóðsegavandamál hafa verið tilkynnt á Bretlandseyjum í kjölfar bólusetninga síðustu fjórar vikur. Vísindamenn segja þetta mega rekja til þess að tilmælum var breytt þannig að yngri en 40 ára fá ekki bóluefnið frá AstraZeneca.

Skraut af brúðartertu Karls og Díönu selst á 325 þúsund krónur
Kökuskraut ofan af brúðkaupstertu Karls Bretaprins og Díönu prinsessu seldist nýverið á uppoði fyrir 1.850 pund, jafnvirði 325 þúsund íslenskra króna. Karl og Díana gengu í hjónaband fyrir rúmum fjörtíu árum, 29. júlí 1981.

Ganga á bak orða sinna um reikigjöld í Evrópu
Tvö fjarskiptafyrirtæki í Bretlandi hafa nú tilkynnt um fyrirætlanir sínar um að ganga á bak orða sinna og rukka viðskiptavini sína um svonefnd reikigjöld þegar þeir ferðast til Evrópu. Breytingin hefur ekki áhrif á íslenska ferðalanga í Bretlandi.

Afhjúpa hvernig glæpamenn geta keypt ensk knattspyrnulið til að þvætta illa fengið fé
Ef marka má rannsókn rannsóknarblaðamanna Al Jazeera geta glæpamenn keypt enskt knattspyrnulið með það að markmiði að þvætta illa fengið fé.

Getur ekki falið sig á bakvið „auð og vald og hallarveggi“
Hertoginn af York getur ekki falið sig á bakvið „auð og hallarveggi“ og verður að svara þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar fyrir bandarískum dómstólum. Þetta segir lögmaður Virginiu Giuffre, sem hefur sakað Andrés Bretaprins um nauðgun.

Dóttir Bernie Ecclestone sakar Sverri um svik og pretti
Fyrirsætan Tamara Ecclestone fer ófögrum orðum um athafnamanninn Sverri Einar Eiríksson á Instagram, þar sem hún segir hann meðal annars hafa leigt fasteign af góðri vinkonu sinni en ekki greitt leigu í tíu mánuði.

Umferð stöðvaðist þegar stóð á Turnbrúnni
Turnbrúin sögufræga í London festist í stöðu í nærri því hálfan sólarhring í gær með tilheyrandi umferðartöfum. Lögregla sagði að brúin hefði verið lokuð vegna „tæknilegrar bilunar“.

Andrés prins kærður fyrir nauðgun
Andrés prins, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, hefur verið kærður fyrir kynferðisofbeldi. Kærandi í málinu er Virginia Giuffre, sem segir brot Andrésar gegn sér hafa átt sér stað þegar hún var sautján ára gömul.

Dóttirin dó úr hungri á meðan mamman djammaði í sex daga
Ung bresk kona hefur verið dæmd til níu ára fangelsisvistar fyrir að yfirgefa tuttugu mánaða gamla dóttur sína í sex daga, á meðan hún hélt upp á átján ára afmæli sitt. Barnið dó úr inflúensu og hungri.