Fastir í helli í Taílandi

Fyrirliði taílenska drengjaliðsins sem festist í helli látinn af völdum höfuðáverka
Duangpetch Promthep, einn þeirra tólf taílensku drengja sem var bjargað úr helli í norðurhluta Taílands árið 2018, er látinn. Hann var sautján ára.

Hellabjörgunarmaður lést af völdum blóðeitrunar
Liðsmaður björgunarteymisins sem bjargaði tólf drengjum og fótboltaþjálfara þeirra úr helli í Taílandi á síðasta ári, er látinn af völdum blóðeitrunar sem hann fékk á meðan á björgunaraðgerðum stóð.

Elon Musk sýknaður í Pedo guy-málinu
Milljarðamæringurinn Elon Musk var í dag sýknaður í meiðyrðamáli sem breski hellakafarinn Vernon Unsworth háði gegn honum vegna ummæla Musk um Unsworth á Twitter.

Kafarinn segir ummæli Musk um hann ígildi lífstíðardóms
Vernon Unswoth, kafarinn sem milljarðamæringurinn Elon Musk kallaði barnaníðing (e. Pedo guy), segir að tíst Musk þess efnis hafi verið niðurlægjandi. Hann vill fá skaðabætur fyrir meiðyrði í sinn garð frá Musk vegna málsins.

Musk greiddi svindlara háar fjárhæðir til að rannsaka kafarann
Elon Musk, stofnandi SpaceX og Tesla, bar vitni í meiðyrðamáli breska kafarans Vernon Unsworth gegn milljarðamæringnum í gær. Í máli Musk kom fram að hann hafi ekki meint barnaníðsummæli sín um Unsworth bókstaflega

Taílenski hellirinn opnar á ný
Búið er að opna hellakerfið í Taílandi, þar sem tólf fótboltastrákar og þjálfari þeirra urðu innlyksa á síðasta ári, á ný fyrir gestum.

Elon Musk telur að kafarinn hafi misskilið barnaníðsummælin
Elon Musk, stofnandi Tesla og Space X, hefur gripið til varna í meiðyrðamáli breska kafarans Vernon Unsworth gegn bandaríska auðkýfingnum. Vörnin byggir á því að barnaníðsummæli Musk í garð Unsworth hafi ekki verið ásökun um barnaníð, heldur aðeins ætluð til þess að hæðast að kafaranum.

Musk þarf að mæta fyrir dóm vegna ærumeiðinga
Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur verið ákærður fyrir að kalla breskan kafara, sem kom drengjum sem festust í helli í Taílandi til bjargar, barnaníðing.

"Enginn hefur gert þetta í mannkynssögunni“
Líklega hafa fá alþjóðleg fréttamál vakið jafn mikla athygli undanfarin ár heldur en björgunarafrekið í Tælandi í sumar þar sem tólf fótboltastrákum og þjálfara þeirra var bjargað af lítilli syllu djúpt inn í helli fullum af vatni.

Fundu lyktina af strákunum í hellinum
Það var lyktin sem fyrst gaf bresku köfurunum Rick Stanton og John Volanthen til kynna að leit þeirra í þröngum og dimmum helli, fullum af vatni, í Chiang Rai héraði Tælands hefði borið árangur.

Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla
Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna.

Musk heldur barnaníðsásökunum á hendur kafaranum til streitu
Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, virðist enn vera á þeirri skoðun að kafarinn Vern Unsworth, einn af þeim sem kom að björgunaraðgerðum í Taílandi í sumar þegar fótboltalið festist inn í helli, sé barnaníðingur.

Björgunarmaðurinn svarar ítrekuðum ásökunum Musks
Musk kallaði Unsworth, sem var einn þeirra fyrstu á vettvang við björgun tælensku fótboltastrákanna í sumar, fyrst barnaníðing í júlí.

Strákar sem voru fastir í hellinum fá ríkisborgararétt
Þrír ungir strákar úr hópi fótboltadrengjanna sem fastir voru í helli í taílenska héraðinu Chiang Rai fyrr í sumar hafa ásamt 25 ára þjálfara sínum fengið taílenskan ríkisborgararétt.

Tælensku drengirnir fá hugarró í hofi
Bróðurpartur tælenska fótboltaliðsins, sem festist í helli rúmar tvær vikur, tók í dag þátt í trúarathöfn sem standa mun yfir næstu daga.

Misstu allt tímaskyn inni í hellinum og lýsa björguninni sem kraftaverki
Fótboltastrákarnir tólf sem sátu fastir í helli í norðurhluta Taílands í meira en tvær vikur ásamt þjálfaranum sínum, Ekaphol Chantawong, segjast hafa misst allt tímaskyn á meðan þeir þurftu að dvelja í hellinum.

Segir að allir fótboltastrákarnir hafi samþykkt að fara inn í hellinn
Hinn 25 ára gamli Ake, fótboltaþjálfari strákanna tólf sem festust í helli í norðurhluta Taílands, ásamt þjálfaranum í síðasta mánuði, segir að allir strákarnir hafi samþykkt að fara inn í hellinn.

Bein útsending: Tælensku drengirnir halda heim
Tælensku drengirnir tólf sem fastir voru í helli í tvær vikur eru nú loks á heimleið.

Skrifar barnaníðingsummælin á bræðiskast
Tæknitröllið Elon Musk hefur beðið breska kafarann Vern Unsworth afsökunar.

Fótboltastrákarnir útskrifaðir af spítala degi fyrr en áætlað var
Taílensku fótboltastrákarnir tólf og þjálfari þeirra verða útskrifaðir degi fyrr en áætlað var, nánar tiltekið á morgun.

Kafarinn mun kæra Musk: „Þessu er ekki lokið“
Breski kafarinn, sem sagður er hafa leikið lykilhlutverk í björguninni á tælensku fótboltadrengjunum tólf, íhugar nú að sækja tæknifrömuðinn Elon Musk til saka.

Elon Musk svarar björgunarmanninum: „Sorrý barnaperri, þú baðst um þetta“
Breski kafarinn sem gagnrýndi Elon Musk harðlega fyrir kafbát sem hann smíðaði fyrir björgunaraðgerðirnar í Taílandi hefur fengið ansi óvægin svör frá tæknifrumkvöðlinum á Twitter.

Wild Boars boðið á Gothia Cup
Mótshaldarar stærsta knattspyrnumóts unglinga í heimi hafa ákveðið að bjóða taílensku fótboltastrákunum að taka þátt á næsta ári, án endurgjalds.

Fótboltastrákarnir fá ekki að sjá úrslitaleikinn í dag
Taílensku fótboltastrákarnir fá ekki að sjá úrslitaleik HM í fótbolta í beinni útsendingu, læknar þeirra segja leikinn vera of seint og að drengirnir þurfi að hvílast.

Björgunarmaður vandar Musk ekki kveðjurnar: „Hann má stinga kafbátnum sínum þar sem hann verkjar“
Kafarinn, Vern Unsworth, er sagður hafa leikið lykilhlutverk í björgunaraðgerðunum í Tælandi.

Fótboltastrákarnir útskrifast á fimmtudag
Taílensku fótboltastrákarnir sem festust ásamt helli með þjálfara sínum hafa frá björgun verið á Chiang Rai sjúkrahúsinu. Stefnt er að því að þeir yfirgefi það á fimmtudaginn.

Sumir helladrengirnir án ríkisfangs og réttindalausir í Taílandi
Komið hefur í ljós að þrír drengjanna, sem var bjargað úr helli í Taílandi á dögunum, eru án ríkisfangs. Sömu sögu er að segja af fótboltaþjálfaranum sem dvaldi með þeim í hellinum.

Mátti litlu muna að björgun drengjanna yrði að stórslysi
Nýtt myndband sem taílenski sjóherinn birti á Facebook-síðu sinni í gær frá björgun fótboltastrákanna tólf og þjálfara þeirra sýnir vel við hversu erfiðar aðstæður björgunin fór fram.

Með tárin í augunum þegar foreldrarnir fengu að sjá drengina á ný
Foreldrar drengjannna sem fastir voru í hellinum í Taílandi í sautján daga fengu loksins að líta foreldra sína augum á ný.

„Ég vil bara faðma hann“
Faðir eins þeirra drengja sem fastir voru í hellinum segir að hann bíði eftir að fá að faðma son sinn og segja honum hvað hann sé hamingusamur að sonurinn hafi komist út heill á húfi. Faðirinn beið fyrir utan hellinn á meðan björgunaraðgerðir stóðu yfir.