Viðskipti erlent

Elon Musk telur að kafarinn hafi misskilið barnaníðsummælin

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Elon Musk, forstjóri og stofnandi SpaceX.
Elon Musk, forstjóri og stofnandi SpaceX. AP/Chris Carlson
Elon Musk, stofnandi Tesla og Space X, hefur gripið til varna í meiðyrðamáli breska kafarans Vernon Unsworth gegn bandaríska auðkýfingnum. Vörnin byggir á því að barnaníðsummæli Musk í garð Unsworth hafi ekki verið ásökun um barnaníð, heldur aðeins ætluð til þess að hæðast að kafaranum.

Ummæli Musk vöktu mikla athygli á síðasta ári en hann og Unsworth höfðu skipst á skotum í fjölmiðlum eftir að Unsworth, sem var einn þeirra fyrstu á vettvang við björgun tælensku fótboltastrákanna sem festust í helli á síðasta ári, sakaði Musk um að nýta sér harmleikinn fyrir athygli.

Musk svaraði með því að kalla Unsworth barnaníðing (e. Pedo guy). Var hann harðlega gagnrýndur fyrir ummælin og baðst afsökunar á þeim. Sú afsökunarbeiðni virðist þó ekki hafa verið einlæg, enda hélt Musk ásökunum til streitu, meðal annars í tölvupóstum til blaðamanns Buzzfeed, líkt og Vísir hefur áður fjallað um, sem og á Twitter.

Vern Unsworth er breskur hellakafari og verðbréfamiðlari. Hann hefur verið búsettur í Tælandi um árabil.Vísir/EPA
Það varð til þess að Unsworth höfðaði meiðyrðamál á hendur Musk og nú hefur lögmaður Musk skilað inn greinargerð vegna málsins. Þar er því haldið fram að Unsworth geti ekki byggt meiðyrðamál á því að Musk hafi móðgað hann á Twitter og í tölvupósti til blaðamanns.

Þar segir einnig að hugtakið Pedo guy sé vel þekkt í Suður-Afríku, þar sem Musk ólst upp, og sé þar ekki notað sem ásökun um að sá sem kallaður sé því viðurnefni væri barnaníðingur. Viðurnefnið sé notað yfir „óþægilega eldri karlmenn“ og sé notað til þess að hæðast að viðkomandi.

Málið verður tekið fyrir í desember en lögmenn Musk hafa farið fram á það að dómari úrskurði Musk í vil áður en réttarhöldin hefjast. Búist er við því að lögmenn Unsworth muni svara greinargerð Musk í næsta mánuði.


Tengdar fréttir

Musk þarf að mæta fyrir dóm vegna ærumeiðinga

Elon Musk, forstjóri bílaframleiðandans Tesla, hefur verið ákærður fyrir að kalla breskan kafara, sem kom drengjum sem festust í helli í Taílandi til bjargar, barnaníðing.

Kafarinn lögsækir Musk vegna barnaníðsummæla

Unsworth var meðal þeirra sem stóðu að björgun fótboltastrákanna 12 og þjálfara þeirra úr Chiang Rai hellunum í Taílandi í sumar. Kafarinn hafði gagnrýnt áform Musk um að senda smákafbát á staðinn í þeim tilgangi að aðstoða við björgun drengjanna.

Musk heldur barnaníðsásökunum á hendur kafaranum til streitu

Elon Musk, stofnandi Tesla og SpaceX, virðist enn vera á þeirri skoðun að kafarinn Vern Unsworth, einn af þeim sem kom að björgunaraðgerðum í Taílandi í sumar þegar fótboltalið festist inn í helli, sé barnaníðingur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×