Heilbrigðismál

Fréttamynd

Vill að læknar reki sjúkrahús

Spítali sem rekinn er af læknum myndi skapa faglega samkeppni, bætta þjónustu við sjúklinga og aukið starfsöryggi lækna. Þetta segir Tómas Helgason prófessor, sem vill sjá slíkan spítala. Framkvæmdastjóri lækninga LSH er ósammála. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Heilsuverndarstöðin sett í sölu

Ráðgert er að auglýsa gömlu Heilsuverndarstöðina til sölu innan tveggja vikna. Forstjóri Heilsugæslunnar, sem þar er til húsa, telur meira liggja á að finna húsnæði fyrir miðstöð heimahjúkrunar sem þarf að flytja fyrir vorið. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Bóluefni gegn lifrarbólgu B búið

Bóluefni gegn lifrarbólgu B er nú ófáanlegt hjá innflytjanda hér. Ný sending er komin til landsins og er í gæðaeftirliti. Bóluefnið verður aftur fáanlegt í næstu viku, að sögn Hjörleifs Þórarinssonar forstjóra Glaxo á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Tugir tilkynninga um aukaverkanir

Tilkynningar frá læknum um aukaverkanir lyfja hafa streymt inn til Lyfjastofnunar það sem af er árinu. Þær eru nú orðnar 50-60 talsins, sem er meira en helmings aukning miðað við mörg undangengin ár, að sögn Magnúsar Jóhannssonar læknis. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn á Vioxx að hefjast

Landlæknisembættið er að hrinda úr vör rannsókn á afleiðingum aukaverkana gigtarlyfsins Vioxx hér á landi. Hæstaréttarlögmaður segir niðurstöður hennar geti hugsanlega leitt til málshöfðunar af hendi þeirra sem notuðu Vioxx og fengu hjartaáfall. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Fjárskortur tefur rannsókn

Yfirdýralæknir sótti um fjárveitingu upp á eina og hálfa milljón króna í maí til að rannsaka hugsanlega fuglaflensu í fuglum hér á landi. Hún hefur ekki verið afgreidd enn. Sérfræðingur í smitsjúkdómum fugla segir liggja á að hraða rannsókn ekki síst í ljósi stöðunnar erlendis. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Nautakjöt frá Argentínu sagt ósýkt

Samtök verslunar og þjónustu hafa fengið svar við fyrirspurn sinni um heilbrigðisástand nautgripa í Argentínu. Samkvæmt Alþjóðadýraheilbrigðisstofnuninni er nautakjöt þaðan í lagi. Formaður samtakanna gagnrýnir landbúnaðarráðherra fyrir að banna innflutning. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ekkert barnaklám fannst í tölvum

Ekkert barnaklám fannst í tölvubúnaði 32 ára Íslendings sem Europol sendi tilkynningu um til lögreglunnar í Reykjavík. Samkvæmt henni hafði maðurinn tengst netbúnaði alþjóðlegs barnaklámhrings. Rannsókn á tölvubúnaði hans er lokið. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Varað við saurgerlum í neysluvatni

Dvalargestir í orlofshúsunum í Munaðarnesi í Borgarfirði hafa verið varaðir við að drekka neysluvatn í bústöðunum ósoðið. Ástæðan er sú, að nokkurt magn af saurgerlum fannst í vatninu.

Innlent
Fréttamynd

Miðlæg bólusetningarskrá

Miðlæg bólusetningarskrá er það sem koma skal, nái tillögur stýrihóps á vegum sóttvarnalæknis og heilbrigðisráðherra fram að ganga. 

Innlent
Fréttamynd

Tugir látast úr blóðeitrun árlega

Blóðeitrun, öðru nafni sýklasótt, er stóralvarlegt og vaxandi vandamál hér á landi, sem og á öðrum vesturlöndum. Talið er að 50 - 60 manns látist árlega hér á landi af völdum þessa skæða sjúkdóms.

Innlent
Fréttamynd

Frjókornaofnæmi blossar upp

Frjókornaofnæmi blossar nú upp í kjölfar hlýinda og vætu undanfarinna daga, að sögn Dóru Lúðvíksdóttur sérfræðings í lungna- og ofnæmissjúkdómum.

Innlent
Fréttamynd

Sjálfsvígum fækkar

Sjálfsvígum 24 ára og yngri karla hefur fækkað um rúmlega helming frá árabilinu 1999 til 2001.

Innlent
Fréttamynd

Víðtækur harmleikur

"Við tölum um sjálfsvíg sem harmleik, sem heldur áfram meðal ættingja og vina sem eftir lifa," segir Salbjörg Bjarnadóttir er stýrir verkefninu Þjóð gegn þunglyndi, sem er á vegum Landlæknisembættisins.

Innlent
Fréttamynd

Ungar konur reyna oftar sjálfsvíg

Af þeim hundruðum sem reyna að fremja sjálfsvíg á ári hverju eru tveir þriðju ungar konur. Sjálfsvígum hjá ungum mönnum hefur fækkað verulega á undanförnum þremur árum. Þunglyndi og námsörðugleikar fara oft saman

Innlent
Fréttamynd

Heilsugæslan neydd á brott

Hafinn er undirbúningur að flutningi Heilsugæslunnar úr gömlu Heilsuverndarstöðinnni við Barónsstíg. Þá þarf að flytja miðstöð heimahjúkrunar við Grensásveg. Það er leiguhúsnæði sem nú hefur verið selt og verður tekið til annarra nota

Innlent
Fréttamynd

Ógnvænlegt ástand vegna offitu

Offita er samfélagslegt vandamál, sem allir verða að taka saman höndum gegn, segir Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur hjá Landlæknisembættinu. Hún segir ástandið hér á landi ógnvænlega.

Innlent
Fréttamynd

Úrbætur gegn heimilisofbeldi

Verkefnisstjórn um heilsufar kvenna hefur verið falið að athuga sérstaklega nokkra þætti er varða heilbrigðisþjónustu við konur sem eru fórnarlömb heimilisofbeldis, og vinna að úrbótum.

Innlent
Fréttamynd

Fölsun lyfseðla í hverjum mánuði

Tilkynningar um falsaða lyfseðla berast til Lyfjastofnunar í hverjum mánuði. Þar eru á ferðinni einstaklingar sem eru að reyna að svíkja út morfínlyf og önnur ávanabindandi efni. Fíklar beita öllum brögðum til að komast yfir þau.

Innlent
Fréttamynd

Brýr og krónur greiddar niður

Aldraðir og öryrkjar með 75 prósent örorkumat geta nú fengið greiddan niður kostnað við föst tanngervi, það er brýr og krónur, um 40 - 80 þúsund krónur á hverju almanaksári

Innlent
Fréttamynd

Nær 50 nýir morfínfíklar í fyrra

Á síðasta ári greindust 47 nýir morfínfíklar á Vogi, að sögn yfirlæknisins þar. Að meðaltali hefur þeim fjölgað um rúmlega fjörutíu á ári undanfarin ár. Síðastliðin tíu ár hafa verið skráðir á Vogi samtals 272 morfínfíklar sem sprauta sig í æð. Af þeim eru fjórtán látnir. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Innra eftirlit verði hert

Heilbrigðisráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til heilbrigðisstofnana að herða innra eftirlit til varnar fjölómæmu bakteríunnni, MÓSA, að sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigðisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Læknar átaldir fyrir morfínávísun

Landlæknisembættið hefur að undanförnu átalið hóp lækna fyrir óeðlilegar ávísanir á morfínlyf og önnur ávanabindandi lyf. Sumir hafa fengið áminningu. Sérstaklega er tekið í lurginn á þeim sem hagnast með þessum hætti. Nytsemi nýs lyfjagagnagrunns er farin að skila sér.

Innlent
Fréttamynd

Átti ekki rétt á styrkveitingu

"Staða þessa einstaklings gagnvart sjúkrasjóði Eflingar var sú, að hann var fyrir nokkru farinn af vinnumarkaði og því höfðu vinnuveitendur ekki greitt af honum iðgjöld til sjóðsins. Þess vegna átti hann ekki rétt á styrkveitingu til kaupa á heyrnartækjum."

Innlent
Fréttamynd

Yfir 20.000 tryggingakort

Rúmlega tuttugu þúsund evrópsk sjúkratryggingakort voru gefin út í maí, fyrsta mánuðinn eftir að útgáfa kortanna hófst.

Innlent
Fréttamynd

Fáir öryrkjar aftur á vinnumarkað

Einungis 12 prósent kvenna og 9 prósent þeirra karla sem metnir voru til örorku árið 1992, voru að líkindum komin aftur á vinnumarkað 30. nóvember 2004. Fyrrnefnda árið voru samtals 725 metnir til örorku, 428 menn og 297 konur.

Innlent