
Dýr

Banna flutning á alifuglum frá Dísukoti
Ástæða flutningsbanns er meintur ólöglegur innflutningur kalkúnafrjóeggja frá Færeyjum á síðasta ári. Undan eggjunum hafi komið svartir kalkúnar sem hafi verið í fréttum nýverið.

Griðland fugla í Kyrrahafinu illa leikið vegna plasts
Eyjan Midway, sem lengi hefur verið griðland fjölmargra fuglategunda, er nú þakin fuglahræjum sem drepast í massavís vegna plasts sem þeir innbyrða eða flækist um þá.

Selurinn Snorri allur
Selurinn Snorri, sem hefur dvalið í Húsdýragarðinum í Reykjavík frá 1990, kvaddi þessa jarðvist og hélt á fund feðra sinna á dögunum.

Klóna hunda og ketti í hundraðatali í Texas
Mörg hundruð manns hafa tekið á það ráð að láta klóna gæludýrin sín líkt og Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú. Lauren Aston, hjá ViaGEn Pets, segir eftirspurn eftir klónun gæludýra vera að aukast.

Sætasta og skemmtilegasta svín landsins
Gríshildur er sennilegasta eitt af sætustu og skemmtilegustu svínum landsins. Sigurbjörg Björgúlfsdóttir og Þórir Ófeigsson á bænum Hrafnatóftum í Rangárþingi ytra fengu Gríshildi í brúðargjöf í sumar og tíma alls ekki að slátra henni eða að éta hana um jólin.

Fyrstu svörtu kalkúnarnir á Íslandi
Fyrstu svörtu kalkúnarnir á Íslandi eru nú komnir í ræktun í Þykkvabæ. Eigandi fuglanna er Júlíus Már Baldvinsson.

Kona fannst látin með kyrkislöngu hringaða um sig
Lögregluþjónar í Indiana í Bandaríkjunum fundu á miðvikudaginn lík konu sem 2,4 metra löng kyrkislanga var búin að hringa sig um.

Veita útigangskisum mat og skjól
Nágrannar í Hafnarfirði hafa árum saman séð um villiketti sem hafast þar við í hrauninu. Þau hafa látið gelda um þrjátíu ketti til að koma í veg fyrir frekari fjölgun en færa þeim nú mat og gæta þess að köttunum líði vel.

Segir kæru Jarðarvina ekki vera í anda vísindanna
Jón Hávarður Jónsson, formaður Félags leiðsögumanna með hreindýraveiðum, segir furðulegt að Jarðarvinir þrýsti á Náttúrustofu Austurlands til að birta ótímabærar niðurstöður sem ekki sé hægt að styðja með marktækri rannsókn. Slík rannsókn yrði að taka til nokkurra ára.

Telja hreindýrskálfa falla í hundraða tali því veiðitímabilið hefjist of snemma
Dýra-og náttúruverndarsamtök telja að mörg hundruð hreindýrskálfar drepist árlega vegna þess þeir séu of ungir þegar veiðitímabilið hefst.

Dorrit líkir klónun hunda við hjónaband samkynhneigðra
Dorrit segir að hún gerii sér grein fyrir því að sumum finnist einræktun ósiðleg, sagðist hún skilja þá afstöðu fullkomlega.

Ógeðfellda hlið hinna krúttlegu mörgæsa
Í nýju kynningarmyndbandi BBC Earth má sjá hvernig mörgæsir losa sig við eigin úrgang.

Jarðarvinir kæra Náttúrustofu Austurlands
Dýra- og náttúruverndarsamtökin Jarðarvinir hafa kært Náttúrustofu Austurlands til lögreglu fyrir vanrækslu vegna skýrslu um afdrif og afföll hreindýrskálfa. Ole Anton Bieltvedt, forsvarsmaður samtakanna, segir að um 600 kálfar hafi drepist síðasta vetur.

Klón Sáms komið í heiminn
Dorrit Moussaieff lét klóna hundinn sinn Sám.

Smyrill í dekri í heimahúsi á Selfossi
Brynja Davíðsdóttir á Selfossi er með smyril í dekri heima hjá sér eftir að keyrt var á fuglinn og hann vængbrotnaði.

Veiðimaður drepinn af hirti sem hann hafði skotið
Atvikið átti sér stað á þriðjudaginn þegar hinn 66 ára gamli Thomas Alexander var við veiðar í Arkansas. Hann skaut hjartardýr og gekk að því til að tryggja að það væri dautt. Tarfurinn stóð hins vegar upp, réðst á Alexander og stakk hann á hol með hornum sínum.

Æsispennandi rimma sels og mörgæsar
Þeir eru fáir, ef einhverjir, sem framleiða betri náttúrulífsmyndir en BBC.

Þrestir á fylliríi eftir mjög gjöfult berjaár
Gengið hefur sú saga að skógarþrestir verði ölvaðir af berjaáti á haustin en það hefur lítt verið rannsakað. Reyniberjauppskeran í ár var fordæmalaus og hegðun þrastanna einnig.

Sparitréin í Kjarnaskógi fá sérstaka kanínuvernd
Tré sem flokkast sem sparitré í Kjarnaskóg við Akureyri njóta sérstakrar kanínuverndar. Samband staðarhaldara og kanínanna í skóginum er svokallað ástar/haturs samband.

Dýrin léku sér með grasker í aðdraganda hrekkjavöku
Þótt þrettán dagar séu í hrekkjavöku hafa dýrin í Detroit-dýragarðinum tekið forskot á sæluna.

Lítur út eins og sveppur en hagar sér eins og dýr
Dýragarður í París mun um helgina opna nýja sýningu þar sem gestir munu geta virt undarlega lífveru fyrir sér.

Kostir kisujóga miklir
Í byrjun mánaðar var haldinn í Kattholti fyrsti kisujógatíminn hér á landi og féll hann svo vel í kramið að leikurinn verður endurtekinn næsta laugardag og er þegar að verða uppselt.

Hval rak á land í Grindavík
Hvalur fannst rekinn á land í fjörunni við golfvöllinn í Grindavík í gærmorgun.

Söngelski hundurinn Snóker gerir upp á milli hljóðfæra
Hundurinn Snóker nýtur sín hvergi betur en við píanóið á heimilinu þar sem hann syngur gjarnan hástöfum með tónlistinni. Hann tekur þó ekki undir með hvaða lagi sem er og syngur alls ekki með harmonikku.

Erfðabreyttar bankarottur á leið til Íslands
Fyrirtækið ArcticLAS ehf. fékk á dögunum leyfi frá Umhverfisstofnun til afmarkaðrar notkunar á erfðabreyttum rottum.

Sérþjálfaður til þess að finna peninga
Grunur er um að farið sé með meira af peningum úr landi en tilkynnt er um. Stjórnvöld vinna að því að efla varnir við landamæri Íslands til að sporna við peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Leitarhundur hjá Tollgæslunni hefur verið þjálfaður til að finna peninga gagngert til þess að sporna við peningaþvætti.

Kalifornía bannar framleiðslu og sölu á dýrafeldum frá og með 2023
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníuríkis, hefur skrifað undir lagafrumvarp sem kveður á um bann á framleiðslu og sölu á nýjum dýrafeldum frá og með 2023.

Fúsi og Melabúðin vildu ekkert með ASÍ hafa
Þrjár ódýrustu fiskibúðirnar eru í Hafnafirði.

Husky-hundurinn í Vík greip gæsina af veiðimanni í þorpinu
Íbúar í Vík órólegir vegna Husky-hunds með vafasama fortíð.

Landnám moskítóflugunnar tímaspursmál
Gísli Már Gíslason prófessor í líffræði við Háskóla Íslands segir það tilviljun að moskítóflugur hafi ekki náð fótfestu á Íslandi.