Frakkland

Frakkar létta verulega á takmörkunum
Emmanuel Macron Frakklandsforseti kynnti í gærkvöldi tilslakanir vegna kórónuveirufaraldursins sem hann segir þær mestu í Evrópu en í dag mega kaffihús og veitingastaðir í París opna auk þess sem ferðalög til annarra Evrópulanda verða leyfð.

Stolið Bataclan-verk Banksy fannst á ítölskum bóndabæ
Lögregla á Ítalíu hefur fundið hurð neyðarútgangs tónleikastaðarins Bataclan í París með verki Banksy á ítölskum bóndabæ. Hurðinni var stolið á síðasta ári.

Frakkar segjast hafa fellt hryðjuverkaleiðtoga í Malí
Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda í Norður-Afríku féll í aðgerðum franska hersins í Malí fyrr í vikunni, að sögn franska varnarmálaráðherrans. Þá segjast Frakkar hafa tekið einn leiðtoga Ríkis íslams í landinu höndum í síðasta mánuði.

Frakkar og Þjóðverjar deila ekki áhuga Trump á að fá Rússa inn í G7
Hvorki þýsk né frönsk stjórnvöld eru spennt fyrir því að bjóða Rússum aftur inn í hóp stærstu iðnríkja heims sem kalla sig G7. Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það „heilbrigða skynsemi“ að leyfa Rússum að slást aftur í hópinn.

Börnin sem enginn vill fá heim
Um 900 börn vestrænna ISIS-liða sitja enn föst við ömurlegar aðstæður í fangabúðum í norðausturhluta Sýrlands. Forsvarsmenn heimaríkja foreldra þeirra segjast ekki geta tekið á móti þeim.

Frestar fundi G7 aftur
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann myndi þrátt fyrir allt fresta fundi G7 ríkjanna í ár fram í september. Trump sagði í síðustu viku að líklegast yrði fundurinn haldinn í Washington, þar sem leiðtogarnir myndu hittast augliti til auglits.

Samdrátturinn 20 prósent í Frakklandi
Franska hagstofan gerir ráð fyrir að samdrátturinn í frönsku efnahagslífi muni nema heilum 20 prósentum á öðrum ársfjórðungi. Er það rakið til lokana og annarra aðgerða yfirvalda vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Gert að draga úr útblæstri um 50 prósent í skiptum fyrir ríkisaðstoð
Stjórnvöld í Frakklandi hafa sett ströng skilyrði um að flugfélagið Air France dragi hressilega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, ætli það sér að fá ríkisaðstoð til að bjarga sér úr ástandinu vegna heimsfaraldursins.

Vonast til að leiðtogafundur G7 geti farið fram í Washington í júní
Leiðtogar G7 ríkjanna munu hittast á fundi í lok júní sagði Robert O‘Brien, þjóðaröryggisráðgjafi Hvíta hússins í dag.

Fyrrum leikmaður PSG og franskur unglingalandsliðsmaður látinn
Hinn 24 ára gamla Jordan Diakiese er látinn en þetta staðfestir fyrrum félag hans A.S. Furiani-Agliani í dag en hann lék á sínum yngri árum með franska stórliðinu Paris Saint-Germain, betur þekkt sem PSG.

Varar við að ríkari aðildarríki ESB verði látin borga brúsann
Friedrich Merz, fyrrverandi leiðtogi þingflokss Kristilegra demókrata í Þýskalandi, segir Evrópusambandið þurfa að gæta sín að verða ekki „millifærslusamband“ þar sem ríkari aðildarríki eru látin borga brúsann fyrir fátækari aðildarríkin.

Macron missir meirihlutann á þinginu
Þingmenn sem hafa sagt sig úr þingflokki LREM, flokki Emmanuel Macron Frakklandsforseta, hafa tekið höndum saman og stofnað nýjan flokk á franska þinginu.

Merkel gefur eftir og samþykkir styrkveitingar
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu í kvöld að þau hefðu komist að samkomulagi um drög að 500 milljarða evra neyðarsjóð, sem nota á til að aðstoða þau ríki sem hafa orðið hvað verst úti vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.

Einn af lykilmönnum þjóðarmorðsins í Rúanda handtekinn
Lögregla í Frakklandi hefur handtekið Félicien Kabuga, einn af lykilmönnum þjóðarmorðsins í Rúanda á tíunda áratugnum. Kabuga hefur verið leitað um margra ára skeið.

Jóhanna af Örk dýrlingur í hundrað ár
Hundrað ár eru liðin í dag frá því Benedikt 15. páfi gerði hina frönsku Jóhönnu af Örk að dýrlingi kaþólsku kirkjunnar. Þetta var engin geðþóttaákvörðun. Áratugalangt ferli var að baki ákvörðuninni enda var Jóhanna þessi ein helsta þjóðhetja Frakka.

Slaka á takmörkunum þrátt fyrir að ná ekki eigin skilyrðum
Verið er að slaka á takmörkunum á viðskiptalífinu og ferðarfrelsi víða um Evrópu. Mörg Evrópuríki hafa þó ekki náð eigin skilyrðum fyrir tilslökunum en yfirvöld þeirra halda samt ótrauð áfram.

Mörg ríki ekki undirbúin fyrir tilslakanir á félagsforðun
Víða um heim er verið að draga úr takmörkunum á ferðafrelsi og félagsforðun. Það er þó óljóst hve mörg ríki eru í raun undirbúin og sérfræðingar vara við því að mörg ríki séu það ekki.

75 ár liðin frá uppgjöf nasista
Sjötíu og fimm ár eru liðin í dag frá því Nasistar gáfust upp fyrir herjum Bandamanna í seinni heimsstyrjöldinni. Kórónuveirufaraldurinn setur svip sinn á fagnaðarlæti dagsins.

Hvetja Frakka til að hjóla þegar slakað verður á takmörkunum
Biðraðir hafa myndast við hjólaverslanir og verkstæði í París eftir að frönsk stjórnvöld hvöttu landsmenn til að hjóla til að draga úr mannmergð í almenningssamgöngum þegar slakað verður á takmörkunum vegna kórónuveirufaraldursins á mánudag.

WHO hvetur ríki heims til að rannsaka gömul sýni
Christian Lindmeier, talsmaður stofnunarinnar, sagði á blaðamannafundi í Genf í gær að það hefði ekki komið Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni á óvart að eitt af tuttugu og fjögur sýnum sem voru tekin úr lungabólgusjúklingum í Frakklandi í desember hefði reynst jákvætt fyrir Covid-19.

Fundu kórónuveiru í sýni teknu í desember
Útlit er fyrir það að kórónuveiran hafi borist mun fyrr til Frakklands en áður hefur verið talið.

Reyna að bjarga Air France og Norwegian
Hluthafar í norska lággjaldaflugfélaginu Norwegian samþykktu í morgun björgunaraðgerðir, en félagið rambar á barmi gjaldþrots um þessar mundir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti sjö milljarða evra aðstoðarpakka fyrir Air France.

Neymar og félagar sófameistarar
Þriðja árið í röð er Paris Saint-Germain franskur meistari.

Var í sjálfskipaðri sóttkví í þessu þrettán fermetra herbergi í París
Jay Swanson heldur úti eigin YouTube-rás þar sem hann sýnir ítarlega frá lífi sínu á skemmtilegan hátt.

Frakkar aflýsa tímabilinu: Byrja upp á nýtt í ágúst
Samkvæmt fréttum frá Frakklandi þá verður franska fótboltadeildin sú fyrsta af þeim stóru fimm sem tekur þá ákvörðun að gefast upp í baráttunni við kórónuveiruna.

Vinna við Notre Dame hafin að nýju
Vinna við endurreisn Notre Dame kirkjunnar í París er hafin að nýju eftir að hlé var gert vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Lögðu hald á 140.000 grímur sem átti að selja á svörtum markaði
Franska lögreglan hefur greint frá því að sveitir hennar hafi lagt hald á 140.000 andlitsgrímur sem selja átti með ólögmætum hætti á svarta markaðnum.

Evrópuríki undirbúa afnám takmarkana vegna faraldursins
Yfirvöld í Evrópuríkjum eru farin að huga að afnámi hinna ýmsu takmarkana sem samfélögum hefur verið sett vegna faraldurs kórónuveirunnar undanfarna mánuði.

Takmarka sölu á niktótínvörum í Frakklandi
Eftir að athuganir vísindamanna bentu til þess að notkun nikótíns gæti dregið úr líkum á því að smitast af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum hafa frönsk yfirvöld bannað sölu nikótínvara á netinu.

668 sjóliðar á frönsku herskipi smitaðir
Þriðjungur sjóliða á franska flugvélamóðurskipinu Charles de Gaulle, 668 af nærri tvö þúsund, hafa greinst með kórónuveirusmit.