Fréttir
Réðum illa við eldinn ef kviknaði í í Örfirisey Olíubirgðastöðin fyrir norðan Lundúnir sem stendur í ljósum logum er af svipaðri stærð og olíubirgðastöðin í Örfirisey. Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir ekki nægar froðubirgðir til í landinu til þess að slökkva eld eins og þann sem logar í Bretlandi. Innlent 12.12.2005 19:36
Óttast að missa starfsfólk til álversins Framkvæmdastjóri Eskju, stærsta fyrirtækis Eskifjarðar, óttast að missa gott starfsfólk þegar samkeppni um vinnuafl á Austurlandi eykst með mannaráðningum til álversins á næsta ári. Innlent 12.12.2005 19:49
Hættu slökkvistarfi vegna sprengihættu Breskir slökkviliðsmenn við olíuhreinsunarstöðina norðan við Lundúnir, drógu sig í hlé síðdegis, af ótta við enn eina sprenginguna. Búið er að slökkva elda í tólf eldsneytisgeymum af tuttugu og þykir slökkvistarfið hafa gengið vel. Erlent 12.12.2005 19:33
5.000 til 6.000 manns leitar aðstoðar fyrir jólin Það er ekki sjálfgefið að allir geti haldið gleðileg jól. Á milli fimm og sex þúsund manns leita á ári hverju aðstoðar til að geta haft hátíðarmat á borðum um jólin. Frestur til að sækja um jólaaðstoð hjá Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarfi kirkjunnar og Reykjavíkurdeild RKÍ rennur út á morgun. Innlent 12.12.2005 19:22
Virkjunarleyfi verða framseljanleg Virkjunarleyfi verða framseljanleg, ef frumvarp iðnaðarráðherra um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, verður að lögum. Það er þó háð sérstöku leyfi. Samkvæmt frumvarpinu fá þau fyrirtæki, sem afla sér leyfis til rannsókna, sjálfkrafa nýtingarleyfi - en þar eru milljarðahagsmunir í húfi. Innlent 12.12.2005 19:17
Óljóst um tildrög banaslyss Maður lést þegar bifreið hafnaði utan vegar í Eyjafirði snemma í morgun. Eldur kom upp í bifreiðinni og var maðurinn úrskurðaður látinn þegar slökkvilið Akureyrar kom á staðinn. Innlent 12.12.2005 19:14
Jónarnir báðir álitleg ráðherraefni Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson koma sterklega til álita sem ráðherraefni Samfylkingarinnar, ef sú staða kemur upp að leita þurfi út fyrir þingflokkinn. Þetta segir formaður flokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún telur að stór hópur framsóknarmanna eigi samleið með Samfylkingunni en telur umræðu um sameiningu flokka ekki tímabæra. Innlent 12.12.2005 19:01
Eiður Smári og Ásthildur knattspyrnumenn ársins Eiður Smári Guðjohnsen og Ásthildur Helgadóttir voru nú síðdegis kosin knattspyrnumenn ársins við árlega athöfn á Hótel Nordica. Í öðru sæti í karlaflokki varð Hermann Hreiðarsson, en Margrét Lára Viðarsdóttir varð önnur í kvennaflokki. Sport 12.12.2005 19:12
Steinunn Valdís segir ummæli Kristins H. Gunnarsonar spaugileg Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður framsóknarflokks krefst afsagnar borgarstjóra vegna nýgerðra samninga borgarinnar. Hann segir samningana vera óábyrgan leik í kosningaslag. Innlent 12.12.2005 19:40
Enn á gjörgæslu eftir bruna en á góðum batavegi Annar drengjanna sem brenndust illa þegar þeir voru að fikta með eldfiman vökva í Grafarvogi fyrir um þremur vikum er enn á gjörgæslu en á góðum batavegi að sögn vakthafandi læknis. Innlent 12.12.2005 18:04
Grjót féll á veginn um Óshlíð Óshlíðin lokaðist fyrir fáeinum mínútum þegar grjót féll á veginn þar um. Að sögn lögreglunnar á Ísafirði eru menn Vegagerðarinnar að meta aðstæður og kemur þá í ljós hversu langur tími líður áður en hægt verður að opna veginn aftur fyrir umferð. Innlent 12.12.2005 18:12
Ekið á barn Ökumenn virðast ekki hafa gætt nægilega vel að sér í umferðinni í dag því óvenju mikið hefur verið um umferðaróhöpp þrátt fyrir að aðstæður til aksturs væru góðar. Sex umferðaróhöpp og eitt umferðarslys voru tilkynnt til lögreglu milli klukkan þrjú og sex. Ekið var á ellefu ára barn á gatnamótum Sæbrautar og Dalbrautar en meiðsl þess voru lítilsháttar. Innlent 12.12.2005 18:03
Verðum að sýna meiri hörku Steve Bruce hefur gefið það út til leikmanna sinna að þeir verði að sýna meiri hörku og harðfylgni ef þeir ætli sér að sleppa við fall úr ensku úrvalsdeildinni, en gengi liðsins það sem af er vetri hefur verið langt undir væntingum. Sport 12.12.2005 16:28
Verður í hóp Tottenham í kvöld Miðjumaðurinn ungi hjá Tottenham Hotspurs, Wayne Routledge, sem félagið keypti frá Crystal Palace í sumar verður í hóp liðsins gegn Portsmouth í kvöld eftir að hafa verið frá keppni síðan síðla sumars vegna fótbrots. Sport 12.12.2005 15:41
Fundu annað leynifangelsi í Írak Írakskir og bandarískir embættismenn hafa fundið nýtt fangelsi á vegum innanríkisráðuneytis Íraks í Bagdad þar sem útlit er fyrir að fangar hafi verið pyntaðir. Eftir því sem yfirvöld greina frá voru 625 fangar í haldi í miklum þrengslum í fangelsinu en þrettán þeirra þurftu á læknisaðstoð að halda, af því er talið er vegna pyntinga. Erlent 12.12.2005 17:42
Fékk þrjú 400 kílóa fiskikör á sig Kalrmaður slasaðist þegar hann fékk þrjú fiskikör ofan á sig í vinnuslysi í Grindavík um miðjan dag í dag. Hvert fiskikaranna vegur um 300 kíló og því talsverður þungi sem maðurinn fékk á sig. Maðurinn kramdist en slapp við beinbrot og að sögn lögreglu er merkilegt hversu vel hann slapp. Innlent 12.12.2005 17:40
Féll á höfuðið í vinnuslysi Maður slasaðist á höfði þegar hann féll tvo og hálfan til þrjá metra af millilofti í nýbyggingu í Hveragerði þar sem hann var við vinnu skömmu fyrir klukkan fimm. Innlent 12.12.2005 17:30
Ragnick hættur hjá Schalke Ralf Rangnick hefur sagt starfi sínu lausu og er hættur að þjálfa þýska úrvalsdeildarliðið Schalke. Rangnick hafði ætlað að hætta eftir að samningur hans rynni út í sumar, en hann hefur átt erfitt samband við stjórn liðsins að undanförnu og gengi liðsins hefur ekki þótt nógu gott. Sport 12.12.2005 15:05
Játar á sig heimabankarán Tæplega þrítugur karlmaður hefur gengist við því í yfirheyrslum hjá lögreglu að hafa stolið um tveimur milljónum króna úr heimabönkum í nokkrum færslum. Hann hefur hins vegar ekki viljað segja hvað hann gerði við peningana og lögregla hefur ekki haft upp á þeim. Innlent 12.12.2005 17:13
Vill lengri tíma til að rannsaka morðið á Hariri Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar morðið á Rafiq Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, hefur farið fram á það að rannsóknartíminn verði lengdur um hálft ár vegna samstarfstregðu sýrlenskra yfirvalda í málinu. Erlent 12.12.2005 17:06
Tólf í framboði í Garðabæ Tólf taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ þar sem valið verður í efstu sæti á lista flokksins við bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Innlent 12.12.2005 16:45
Við verðum með í baráttunni Roberton Mancini hefur fulla trú á því að lið hans Inter Milan geti veitt AC Milan og Juventus verðuga samkeppni í baráttunni um ítalska meistaratitilinn eftir að lið hans lagði erkifjendur sína í AC í Milanoslagnum í gær, 3-2. Sport 12.12.2005 15:28
Kosningin hefur gengið vel fyrir sig Fyrri degi atkvæðagreiðslu félaga í Eflingu um nýjan kjarasamning við Reykjavíkurborg er nú að ljúka. Ekki liggur fyrir hversu margir tóku þátt í atkvæðagreiðslunni í dag en Þórir Guðjónsson hjá Eflingu segir að kosningin hafi gengið ágætlega fyrir sig. Innlent 12.12.2005 16:18
Tap hjá Leverkusen Það gengur vægast sagt erfiðlega hjá félagi Jakobs Sigurðarsonar í þýska körfuboltanum þessa dagana, en í gær tapaði liðið enn einum leiknum og er liðið sem stendur næstneðst í deildinni. Jakob skoraði 3 stig í gær þegar liðið tapaði fyrir Bonn 94-85. Sport 12.12.2005 14:38
Vill að öryggisráð SÞ rannsaki morðið á Tueni Fouad Siniora, forsætisráðherra Líbanons, hyggst biðja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að rannsaka morðið á líbanska þingmanninum Gebran Tueni sem ráðinn var af dögum í Beirút í morgun. Tueni lést ásamt þremur öðrum þegar sprengja sprakk nærri bifreið hans en auk þess slösuðust tíu manns í tilræðinu. Erlent 12.12.2005 16:14
Gunnlaugur verður forseti Hæstaréttar Gunnlaugur Claessen verður forseti Hæstaréttar á næsti ári og árið 2007 og Hrafn Bragason verður varaforseti réttarins. Þetta var niðurstaðan af fundi dómara við Hæstarétt í dag þar sem þeir kusu dómstólnum forseta og varaforseta. Innlent 12.12.2005 15:32
Elsta manneskja í heimi 116 ára Elsta manneskja í heimi er Ekvadori. Það er Maria Esther Capovilla en hún er fædd 14. september árið 1889 og er því 116 ára og tæpum þremur mánuðum betur. Heimsmetabók Guinnes hefur staðfest að hún sé elst jarðarbúa eftir að hafa fengið fæðingar- og giftingarvottorð hennar. Erlent 12.12.2005 15:55
Leggja út fé fyrir fíkniefnaleitarhund KEA og Sparisjóður Norðlendinga ætla að leggja til tvær milljónir króna svo hægt sé að kaupa fíkniefnaleitarhund sem lögreglumenn á Norðurlandi geta notað við fíkniefnaleit á fjölmennum stöðum á borð við skemmtistaði og útisamkomur. Innlent 12.12.2005 15:44
Glæpir gegn mannkyni framdir í Darfúr? Bandarísku mannréttindasamtökin Human Rights Watch krefjast þess að rannsókn verði gerð á því hvort háttsettir menn innan stjórnarinnar í Súdan, þar á meðal forseti landsins, hafi gerst sekir um glæpi gegn mannkyni í Darfúr-héraði. Erlent 12.12.2005 15:42
Liverpool vill sigur og ekkert annað "Við komum hingað til að vinna, það er svo einfalt," sagði Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, sem í dag lenti í Japan þar sem liðið tekur þátt í heimsmeistarakeppni félagsliða á næstu dögum og mætir Deportivo Saprissa frá Kosta Ríka á fimmtudaginn. Sport 12.12.2005 14:29