Fréttir

Fréttamynd

Þarf í aðgerð vegna ökklameiðsla

Sóknarmaðurinn Kevin Phillips hjá Aston Villa þarf að fara í aðgerð á ökkla og verður frá í nokkurn tíma, því læknar félagsins telja víst að beinflís sé að skemma út frá sér í ökklanum á honum. David O´Leary, stjóri Villa, getur þó huggað sig við að Mark Delaney er óðum að braggast eftir að hafa verið frá nánast allt tímabilið og ekki veitir af, því varnarleikur Villa hefur ekki alltaf verið upp á marga fiska í vetur.

Sport
Fréttamynd

Kynþáttafordómar verða ekki liðnir á næsta ári

Lars-Christer Olsson, yfirmaður UEFA segir að knattspyrnufélög í Evrópu megi ekki búast við að verða tekin vettlingatökum á næsta ári og hefur gefið það út að sambandið ætli að herða enn frekar refsingu í garð liða ef stuðningsmenn þeirra gera sig seka um kynþáttafordóma, bæði í Evrópukeppnum og heimafyrir.

Sport
Fréttamynd

Persónulegir munir Bobby Fischer til sölu á ebay

Sautján stórir pappakassar eru til sölu á ebay og innihalda rúmlega eitt þúsund hluti sem eru eða voru í eigu skáksnillingsins Bobbys Fischers. Álitamál er hvort uppboðið sé lögmætt og hafa hópar hérlendis sem erlendis áhuga á að athuga hvort hægt verði að koma búslóðinni í hendur Fichers.

Innlent
Fréttamynd

Skip­stjóri Hörpunnar var ölvaður þegar báturinn steytti á skeri

Eigandi skemmtibátsins Hörpunnar sem steytti á Skarfaskeri á Viðeyjarsundi í haust og sökk með þeim afleiðingum að tveir fórust, var undir áhrifum áfengis þegar hann stýrði skipinu. Hann var einn við stjórn bátsins í ferðinni. Þetta er niðurstaða rannsóknar lögreglunnar á tildrögum slyssins.

Innlent
Fréttamynd

Liverpool verður í baráttunni um titilinn

Rick Parry hjá Liverpool segir að markmið Liverpool um að blanda sér í slaginn um toppsætið í úrvalsdeildinni sé raunhæft og segir Rafa Benitez vera rétta manninn til að stýra liðinu á sigurbraut.

Sport
Fréttamynd

Krafist verður gæsluvarðhalds vegna kannabisræktunar

Lögreglan í Árnessýslu hyggst fara fram á að maðurinn, sem handtekinn var í morgun eftir að um 150 kannabisplöntur fundust í sláturhúsi við Laugarás í Bláskógabyggð, verði úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki hafa þó fengist upplýsingar um hversu lengi það á að vera.

Innlent
Fréttamynd

Sprenging í fjölbýlishúsi í New Jersey

Eins er saknað og fjölmargir slasaðir eftir sprengingu í fjölbýlishúsi í New Jersey í Bandaríkjunum snemma í morgun að bandarískum tíma. Ekki er ljóst hvers vegna sprengingin varð en lögregla segir hugsanlegt að hana megi rekja til gasleka.

Erlent
Fréttamynd

Nýbygging við heilsugæslustöð á Skagaströnd

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í dag verksamning vegna nýbyggingar Heilsugæslustöðvar á Skagaströnd. Við sama tækifæri tók ráðherrann fyrstu skóflustungu að nýbyggingunni, en húsið verður reist austan við hús dvalarheimilisins Sæborgar og tengist því með tengigangi.

Innlent
Fréttamynd

Flest börn ganga eða hjóla í skólann

Tæplega 80 prósent grunnskólabarna fara fótgangandi eða á hjóli í skólann sinn að vetri til en einungis rúmlega 20 prósent með einkabíl eða í strætisvagni. Þetta kemur fram í símakönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Umhverfissvið Reykjavíkurborgar á ferðamáta grunnskólabarna í síðasta mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Reyna að slökkva síðustu eldana

Breskir slökkviliðsmenn reyna nú að ráða niðurlögum þriggja síðustu eldanna sem enn loga í olíubirgðastöðinni í Buncefield og vonast til að það takist jafnvel í dag.

Erlent
Fréttamynd

Skilorðsbundinn dómur vegna fíkniefnabrota

Ungur karlmaður var í dag í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í eins mánaðar fangelsi, sem skilorðsbundið er til þriggja ára, fyrir fíkniefnabrot. Maðurinn var handtekinn þegar lögregla fann á honum nokkur grömm af marijúana eftir að hafa stöðvað bíl hans. Við leit heima hjá manninum fundust um 80 grömm af hassi, hátt 40 grömm af marijúana auk kannabisfræja.

Innlent
Fréttamynd

Í fangelsi fyrir umferðarlagabrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag karlmann í mánaðarfangelsi og til sviptingar ökuréttinda ævilangt fyrir tvö umferðalagabrot á þessu ári. Maðurinn var ákærður fyrir of hraðan akstur annars vegar og ölvunarakstur hins vegar en hann hefur áður komist í kast við lögin og verið dæmdur fyrir bæði þjófnaði og umferðarlagabrot.

Innlent
Fréttamynd

Gætu þurft að fresta kosningunum

Vopnaðir menn réðust til inngöngu í nokkrar stærstu skrifstofur palestínsku yfirkjörstjórnarinnar í dag og ráku starfsmenn kjörstjórnar á dyr. Allri starfsemi var hætt í kjölfarið og óvíst hvenær hún hefst á ný.

Erlent
Fréttamynd

Stíga frekari skref í átt til gjaldfrjáls leikskóla

Bæjarstjórn Seyðisfjarðar hefur samþykkt að stefna að því ap tryggja öllum börnum með lögheimili á Seyðisfirði á aldrinum eins árs til fimm ára fjögurra tíma dvöl á leikskóla bæjarins án endurgjalds, en þetta er liður í fjölskyldustefnu bæjarins. Þetta er annað skrefið í átt að gjaldfrjálsum leikskóla en fyrir um ári var leikskólinn gerður gjaldfrjáls í 4 tíma fyrir 5 ára börnin.

Innlent
Fréttamynd

Komin í sögubækurnar

Sænski kylfingurinn Annika Sörenstam varð í dag fyrsta konan til að hljóta hina virtu nafnbót kylfingur ársins hjá íþróttafréttamönnum tvisvar á ferlinum, en það hefur ekki gerst áður í 55 ára sögu verðlauna þessara. Sörenstam vann verðlaunin síðast fyrir tveimur árum, en hún hlaut þau í ár eftir harða samkeppni við Colin Montgomerie og Michael Campbell.

Sport
Fréttamynd

Hugsaði um að taka eigið líf

Miðjumaðurinn og meiðslakálfurinn Kieron Dyer hjá Newcastle hefur gefið það út að löng og erfið barátta hans við þrálát meiðsli hafi gert það að hann hafi verið orðinn þunglyndur og hafi verið kominn með sjálfsvígshugsanir.

Sport
Fréttamynd

Kristján skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneyti

Kristján Skarphéðinsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu frá áramótum eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Kristján er 48 ára að aldri og hefur verið skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu frá árinu 1999 og settur ráðuneytisstjóri í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum frá 1. janúar 2003.

Innlent
Fréttamynd

Dregur úr ótta við fuglaflensu

Þýsk stjórnvöld hafa ákveðið að slaka á reglugerðum sem voru settar til að sporna við hættu á útbreiðslu fuglaflensu. Nú verður heimilt að halda hænsfugla utandyra en slíkt var bannað um miðjan október þegar farfuglar báru fuglaflensu til Rússlands, Tyrklands og Rúmeníu.

Erlent
Fréttamynd

Lét fjölmiðlamenn heyra það

Sir Alex Ferguson segir að fjölmiðlar séu á hausaveiðum þegar kemur að því að fjalla um Manchester United og segir þá gagnrýni sem lið hans hefur fengið undanfarið keyra úr hófi fram. Sá gamli stormaði út af blaðamannafundi í dag eftir að hafa aðeins svarað einni spurningu, en lið hans mætir Wigan í úrvalsdeildinni annað kvöld.

Sport
Fréttamynd

Settu upp jólaskreytingar innan um hákarla

Það er ekki aðeins í verslunargötum og á heimilum sem fólk keppist við að setja upp jólaskreytingar. Kafarar voru í morgun fengnir til að setja upp jólaskreytingar í stóru fiskabúri í sædýrasafninu í Madríd.

Erlent
Fréttamynd

Maður með hníf handtekinn í miðbænum í dag

Lögreglan í Reykjavík handtók í dag mann á sextugsaldri í miðborginni sem gengið hafði á milli verslana með stóran hníf. Að sögn lögreglu ógnaði hann þó engum en setti hnífinn, sem var með um 15 sentímetra blaði, milli tanna sér.

Innlent
Fréttamynd

Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi

Fasteignaverð hefur hækkað mest á Vesturlandi á undanförnum fimmtán árum. Verðið er þó hæst á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þróun fasteignaverðs hér á landi sem kynnt var í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sosoliso svipt flugleyfi

Olusegun Obasanjo, forseti Nígeríu, tilkynnti rétt í þessu að flugfélagið Sosoliso hefði verið svipt flugleyfi. Flugvél félagsins hrapaði í Port Harcourt síðasta laugardag og þá létust 106.

Erlent
Fréttamynd

Gunnar lagður af stað af suðurpólnum

Gunnar Egilsson, sem í gær bætti heimsmetið í að komast á suðurpólinn á sem stystum tíma ásamt breskum félögum sínum, er lagður af stað af pólnum aftur. Í samtali við vefinn Suðurland.net skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi sagði hann þá félaga vera búna að hvíla sig og að þeir væru að gera sig klára í heimferðina.

Innlent
Fréttamynd

Bikarmeistararnir mæta Þór Þorlákshöfn

Í dag var dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni KKÍ í karla- og kvennaflokki. Bikarmeistarar Njarðvíkur í karlaflokki sækja Þór frá Þorlákshöfn heim, en kvennalið Hauka sem sigraði í keppninni í vor, tekur á móti Tindastól.

Sport
Fréttamynd

Walcott verður eftirsóttur í janúar

Hinn ungi og efnilegi Theo Walcott hjá Southampton verður líklega eftirsóttur þegar opnar fyrir leikmannamarkaðinn á Englandi í janúar, en þessi 16 ára gamli framherji hefur þegar vakið athygli Chelsea og Arsenal. Talið er að verðmiðinn á drengnum verði um átta milljónir punda, en hann hefur lýst yfir áhuga sínum á að fara frá Southampton.

Sport
Fréttamynd

Ekkert frí hjá Schumacher í ár

Fyrrum margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, sleppti að taka sitt venjubundna vetrarfrí í ár eins og hann hefur gert undanfarið og hefur þess í stað fylgst náið með prófunum á Ferrari-bílnum og segist ekki geta beðið eftir að byrja að keyra á ný.

Sport