Fréttir
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn samþykkja Mikill meirihluti slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna samþykkti kjarasamning félagsins við Launanefnd sveitarfélaganna. Tæp 78% þeirra sem greiddu atkvæði sögðu já en tæp 21% sögðu nei. Kjörsókn var góð og greiddu eða um 91%. Innlent 13.3.2006 13:57
Fá greitt frá klámiðnaðinum Tölvuþrjótar fá greitt frá fyrirtækjum í klámiðnaði til að koma af stað svokölluðum pop-up gluggum hjá tölvunotendum um allan heim. Í grein sem birtist í Washington Post segir að þrjótarnir eru með leitarvélar sem eru starfandi allan sólarhringinn og finna óvarðar vélar sem ekki hafa veiruvarnarforrit og koma fyrir hugbúnaði sem gefur þeim fulla stjórn á viðkomandi tölvum. Þegar notandinn opnar vafra þá opnast sjálfkrafa ótal klámsíður svo kallaðir pop-up gluggar, með þessu eykst umferð á klámsíður og fyrir þetta borgar klámiðnaðurinn tölvuþrjótum stórfé. Erlent 13.3.2006 13:30
Ökumaðurinn ekki í lífshættu Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi og var Sæbrautinni lokað um tíma. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar á gatnamótum Súðavogar og Sæbrautar. Rútan var á leið vestur eftir Sæbrautinni þegar henni var að því er virðist ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar sem var að koma frá Súðavogi. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Innlent 13.3.2006 13:02
Ekki útilokað að Milosevic hafi verið byrlað eitur Ekki er útilokað að Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Júgóslavíu, hafi verið byrlað eitur en Milosevic lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Þrálátur orðrómur er á kreiki um að hann hafi stytt sér aldur, jafnvel að eitrað hafi verið fyrir honum. Erlent 13.3.2006 12:29
Fleiri ökuníðingar á Akureyri nú en í fyrra Hátt í þrjátíu ökumenn voru sektaðir fyrir of hraðan akstur á Akureyri í gærdag, sem er langt yfir meðallagi, og frá mánaðamótum er búið að svipta fimm ökumenn réttindum vegna ofsaaksturs. Frá áramótum er Akureyrarlögreglan búin að sekta 350 ökumenn fyrir hraðakstur, sem er hátt í sex sinnum fleiri en á sama tíma í fyrra. Þá sektaði Blönduósslögreglan 85 ökumenn um helgina, sem er líka vel yfir meðallagi. Innlent 13.3.2006 12:32
Standard & Poor's staðfestir lánshæfismat á Íbúðalánasjóði Alþjóða matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur staðfest fyrra lánshæfismat sitt á Íbúðalánasjóði og segir horfur sjóðsins vera neikvæðar. Matsfyrirtækið gaf Íbúðalánasjóði lánshæfiseinkunnina AA+ fyrir langtímaskuldbindingar í innlendri mynt 10. mars síðastliðinn og setti sjóðinn á athugunarlista með neikvæðum horfum út annan ársfjórðung 2006. Viðskipti innlent 13.3.2006 12:34
Viðurkenndi að hafa fyrirskipað aftökur Einn af samstarfsmönnum Saddams Hussein viðurkenndi í morgun fyrir rétti að hann hefði gefið út fyrirskipun um aftöku 148 manna. Awad Hamed al-Bandar var áður yfirmaður byltingardómstólsins í Írak og er ásamt hinum sjö verjendunum kærður fyrir að bera ábyrgð á drápunum í sjítabænum Dujail árið 1982. Verði áttmenningarnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. Erlent 13.3.2006 12:26
Mótmæli stúdenta í og við Odda Hópur stúdenta við Háskóla Íslands stendur nú fyrir mótmælum í og við Odda, en þar hefst eftir nokkrar mínútur fyrirlestur bandaríska fræðimannsins og stjórnmálaráðgjafans Michael Rubin. Eftir því sem næst verður komist vilja mótmælendurnir andæfa þætti hans í stefnumótun bandarískra stjórnvalda vegna innrásarinnar í Írak. Innlent 13.3.2006 12:24
Auðveldar stuðning við nýsköpun og hátækni Auðveldara verður fyrir lífeyrissjóði að styðja við nýsköpun og hátækni, samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra kynnti í dag. Þá fá slík fyrirtæki auknar skattaívilnanir til að auðvelda rannsóknar -og þróunarstarf. Í fyrsta lagi verður reglugerð breytt þannig að fyrirtæki í þróunarstarfi geta verið með svokallaða fyrirfram skráningu í virðisaukaskattskerfnu í 12 ár í stað 6. Þá ætlar ráðherra að leggja fram frumvarp um að svokallað leiðréttingar tímabil vegna fasteigna lengist úr 10 árum í 20. Innlent 13.3.2006 12:01
Alvarlegt umferðarslys á Sæbrautinni Mjög alvarlegt umferðarslys varð á Sæbraut, laust fyrir hádegi, og er hún nú lokuð frá Kleppsmýrarvegi og Miklubraut. Bráðasveitir lögreglu og slökkviliðs eru nú á Sæbrautinni vegna slyssins. Áreksturinn varð milli rútu og fólksbifreiðar og virðist sem rútan hafi ekið inn í hlið fólksbifreiðarinnar. Aðstæður á vettvangi benda til þess að þetta hafi verið mjög alvarlegt slys, og hefur lögreglan staðfest að svo sé. Ökumennirnir voru einir í farartækjum sínum. Innlent 13.3.2006 11:59
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Gengi hlutabréfa hækkaði á flestum mörkuðum í Asíu í kjölfar hlutabréfahækkana á mörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í síðustu viku. Gengi hlutabréfa hækkaði jafnframt á mörkuðum á Nýja-Sjálandi og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 13.3.2006 11:25
Iðnaðarnefnd fundar vegna vatnalaga Iðnaðarnefnd Alþingis kemur saman nú klukkan ellefu þar sem ræða hin umdeildu vatnalög. Önnur umræða um málið hófst á þingi fyrir viku en deilur um hvort kveða eigi skýrt um eignarhald á vatni urðu til þess að stjórnarandstaðan greip til málþófs. Innlent 13.3.2006 10:01
Áfram réttað yfir Saddam Hussein Réttarhöldin yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samstarfsmönnum hans, hófust að nýju í Bagdad í morgun. Verið er að taka skýrslur af sakborningunum, sem ákærðir hafa verið fyrir glæpi gegn mannkyninu með því að skipuleggja fjöldamorð á shitamúslinum. Erlent 13.3.2006 09:57
Sterling missir stærsta viðskiptavin sinn Lágjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu FL Group, hefur misst stærsta viðskiptavin sinn yfir til SAS. Þetta á við um farþegaflutninga fyrir Star Tour næstu tvö ferðatímabil og snýst um flutning á umþaðbil 200 þúsund manns. Það jafngildir að þrjár flugvélar með tilheyrandi áhöfnum séu í stanslausum flutningumn fyrir Star Tour. Sölustjóri ferðaskrifstofunnar segir þetta stærsta samning í sögu dönsku ferðarþjónustunnar, en talsmaður Sterling segir að félagið hafi ekki getað teygt sig lengra í tilboði sínu, en gert var. Innlent 13.3.2006 09:50
Mannskæðir skýstrókar fara um Bandaríkjunum Tveir létust þegar bíll sem þeir voru í lenti í skýstrók í Missouri í Bandaríkjunum. Bíllinn þeyttist upp á gastank með fyrrgreindum afleiðingum. Skýstrókar hafa eyðilagt um tuttugu heimili á um þrjátíu kílómetra leið frá Missouri að Illinois og hafa nokkrir særst í ósköpunum að sögn lögregluyfirvalda á staðnum. Erlent 13.3.2006 09:46
Bitist um Lundúnakauphöllina Verðið á Kauphöllinni í Lundúnum hækkaði um 22 prósent í morgun í kjölfar vangaveltna um hvort Nasdaq og Kauphöllin í New York taki að bítast um að kaup á kauphöllinni. Fréttavefur Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Viðskipti innlent 13.3.2006 09:44
Rauð viðvörunarljós blikka á Íslandi Rauð viðvörunarljós eru farin að blikka á Íslandi, segir í fyrirsögn norska blaðsins Dagens Næringsliv um helgina. Þar er meðal annars vitnað í nýlega greiningu Fitch Rating, sem leiddi til lækkunar á gengi og verðbréfum í síðustu viku. Blaðamenn blaðsins, sem voru hér við efnisöflun, segja að Ísledingar hafi með gríðarlegri lántöku, náð að kaupa nokkur eftirsóknarverð fyrirtækið í Evrópu. Innlent 13.3.2006 09:09
Sex látast í miklum eldum Sex hafa látist í miklum eldum í Texas og hafa sex til viðbótar slasast. Tveir hinna látnu voru að reyna að flýja heimili sín þegar þeir létust. Eldarnir ná yfir meira en 120 þúsund hektara lands og hefur erfilega gengið að ráða niðurlögum þeirra. Flugvélar og þyrlur hafa ekki getað tekið þátt í slökkvistarfinu vegna vinda en vindhraðinn hefur farið upp í 89 kílómetra á klukkustund í mestu hviðunum. Erlent 13.3.2006 08:46
Styðja forseta Kólombíu Samkvæmt fyrstu tölum virðist sem að flokkar sem styðja forseta Kólumbíu, Alvaro Uribe, ætli að vinna sannfærandi sigur í þingkosningunum þar í landi. Búið er að telja tvo þriðju hluta atkvæða. Kólumbíumenn gengu í kosninga í gær og það gekk nokkuð greiðlega fyrir sig eftir að hótanir uppreisnarmanna um ofbeldisverk urðu að engu. Erlent 13.3.2006 08:44
Æfa sig fyrir Afganistan í Noregi Yfir þrjú þúsund breskir friðargæsluliðar undirbúa nú för sína til Afganistan með stífum heræfingum í Noregi. Yfirmaður í breska hernum, Jim Booney, sagði í samtali við fréttastofuna Sky í gær, að ekkert væri eins erfitt og að lifa af og berjast í kulda, og því væri norður Noregur góður staður til að æfa sig á. En æfingarnar eru ansi strembnar og svo sannarlega ekki fyrir alla. NATO vill auka og styrkja friðargæslustarfsemina í Afganistan og verða því yfir sex þúsund hermenn, aðallega frá Bretlandi, Kanada og Hollandi sendir til Afganistan fyrir nóvemberlok. Erlent 13.3.2006 07:29
Yfir sjö tonn af kokaíni fundust í Kolombíu Lögreglan í Kólumbíu lagði hald á yfir sjö tonn af kókaíni í borginni Barrankía, norður af Bogota höfuðborg landsins í gær. Um er að ræða efni að andvirði tíu milljarða íslenskra króna og hafa tveir menn verið handteknir vegna málsins. Lang stærsti hluti kókaíns í heiminum er framleiddur í Kólumbíu og fer yfir níutíu prósent þess í sölu í Bandaríkjunum. Verði mennirnir fundnir sekir, gætu þeir átt yfir höfði sér dauðadóm. Erlent 13.3.2006 07:23
Leita að báti fullum af rotnandi líkum Yfirvöld á Grænhöfðaeyjum leita nú að báti fullum af rotnandi líkum sem tilkynnt var um að ræki stjórnlaust á hafi úti. Það var skipstjóri á bátnum Matiota sem tilkynnti yfirvöldum um bátinn en að hans sögn voru í það minnsta tólf lík af afrískum karlmönnum um borð. Lyktin af rotnandi líkunum hefði hins vegar verið svo sterk að hann treysti sér ekki til að fara um borð til að kanna hvort fleiri lík væri þar að finna. Erlent 13.3.2006 07:45
Þrjár bílsprengjur í Bagdad Það var blóðugur sunnudagur í Írak í gær. Að minnsta kosti fimmtíu manns féllu í þremur bílsprengjutilræðum í Bagdad, höfuðborg landsins. Þá særðust um eitt hundrað manns. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins. Erlent 13.3.2006 07:16
Treystir sér ekki til að halda þyrlunum starfandi Tæknistjóri flugtæknideildar Landhelgisgæslunnar hefur sagt upp störfum og segir í viðtali við Fréttablaðið að hann treysti sér ekki til að halda vélum gæslunnar starfandi út árið fyrir þá fjármuni, sem til þess eru ætlaðir. Stóra þyrlan er enn í skoðun, en sú minni komst í gagnið fyrir nokkrum dögum eftir að hafa verið frá um tíma vegna bilunar. Georg Lárusson forstjóri Gæslunnar segir í viðtali við Fréttablaðið að hann telji fjármuni til viðhalds vélanna duga út allt árið, ef rétt sé á haldið. Innlent 13.3.2006 07:26
Tugir þúsunda steraskammta fundust Tugir þúsunda ólöglegra steraskammta fundust við húsleit í líkamsræktarstöð í Reykjavík fyrir helgi. Að sögn Morgunblaðisns hefur lengi leikið grunur á að þar væru seldir ólögleglir sterar og var því aflað húsleitarheimilda. Einn maður var handtekinn vegna rannsóknarinnar, en hann hefur verið látinn laus þar sem málið telst að mestu upplýst. Ekki liggur fyrir hvort maðurinn smyglaði efnunum sjálfur til landsins, eða var einungis viðriðinn sölu þess. Innlent 13.3.2006 07:04
Deilur um hvar eigi að jarða Milosevic Deilur hafa blossað upp milli ættingja Milosevic, um hvar eigi að jarða hann. Ekkja Milosevic, Mirjana Markovic, og sonur þeirra Marko vilja að hann verði jarðaður í Moskvu þar sem þau búa, að sögn Beta, fréttastofunnar serbnesku, en bæði eru þau eftirlýst fyrir valdníðslu í valdatíð Milosevic. Þau yrðu því handtekin myndu þau mæta til útfara Milosevic yrði hún í Serbíu. Erlent 13.3.2006 06:58
Dánarorsok Milosevic líklega hjartaáfall Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Bosníu Serbar hafa lýst yfir efasemdum um dauða Milosevic og telja að eitrað hafi verið fyrir honum. Erlent 13.3.2006 06:55
Ráðleggja fjárfestum að selja íslensk skuldabréf Danska fjárfestingafélagið Nykredit beinir því til fjárfesta sinna að losa sig við skuldabréf í íslensku bönkunum vegna þess að hættan á að glata þeim fjármunum sé orðin of mikil. Þetta kom fram á vefsíðu Jótlandspóstsins seint í gærkvöldi. Þar segir yfirmaður greiningadeildar Nykredid að hann geti til dæmis ekki ráðlagt nokkrum manni að fjárfesta í KB banka, við núverandi aðstæður bankans, og víðar í evrópu séu stórir fjárfestar hættir að taka þátt í útrás íslenskra fyrirtækja. Innlent 13.3.2006 06:53
Sauðfé rúið Mikið líf og fjör var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag. Þar fylgdust börn og fullorðnir með því þegar sauðféð í garðinum var rúið og fengu að sjá hvað verður um ullina. Guðmundur Hallgrímsson ráðsmaður á Hvanneyri mætti til að rýja fé en það hefur hann gert síðustu ár. Innlent 12.3.2006 19:33
Fögnuðu 90 ára afmæli Alþýðuflokkurinn og Alþýðusamband Íslands fögnuðu í dag 90 ára afmæli sínu. Í tilefni af því voru hátíðarhöld í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sá staður er valinn þar sem stofnfundurinn var á sínum tíma haldinn í Bárubúð sem þá stóð þar. Leiðtogar jafnaðarmanna frá ýmsum tímum héldu ávörp í tilefni dagsins. Innlent 12.3.2006 19:27