Fréttir
Eftirlit með utanvegaakstri úr lofti Þeir sem stunda utanvegaakstur geta átt von á eftirliti úr lofti en lögreglan og Landhelgisgæslan hafa tekið höndum saman um að stemma stigu við slíkum akstri. Nokkrir brotlegir voru bókaðir af lögreglunni um helgina og geta átt von á sektum. Innlent 5.6.2006 20:14
Dveljast á Íslandi mánuðum saman án þess að fá skólavist Dæmi eru um að börn frá Austur-Evrópu dveljist hér mánuðum saman án þess að fá skólavist, þó að barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveði á um skýlausan rétt þeirra til að ganga í skóla. Enn hefur ekki reynt á hvort börnum, sem hér dveljast án lögheimilis, yrði synjað um skólavist. Innlent 5.6.2006 19:11
Nýjar fjöldagrafir fundnar í Írak Átján nýjar fjöldagrafir, frá stjórnartíð Saddams Hussein, hafa fundist í Írak. Líklegt er talið að í þeim séu fórnarlömb sjíta-múslima sem Saddam lét myrða. Grafirnar fundust í eyðimörkinni í suðvesturhluta landsins. Talið er að þær séu frá því sjíamúslimar gerðu uppreisn gegn Saddam árið 1991. Í annarri gröfinni hafa fundist líkamsleifar tuttugu og átta karlmanna á aldrinum 20 til 35 ára. Hendur þeirra hafa verið bundnar fyrir aftan bak, og það hefur verið bundið fyrir augu þeirra, áður en þeir voru skotnir. Réttarlæknar sem eru að grafa upp beinagrindurnar hafa einnig fundið mikið magn af skothyklkjum og byssukúlum. Aðeins er búið að grafa upp eina af fjöldagröfunum átján, enn sem komið er. Hinar verða opnaðar ein af annarri, á næstu misserum. Talið er að yfir eitthundrað og áttatíu þúsund shía múslimar hafi verið myrtir árið 1991, þegar þeir gerðu uppreisn gegn forsetanum, í kjölfar fyrra persaflóastríðsins. Erlent 5.6.2006 19:12
Efnahagshorfurnar neikvæðar Matsfyrirtækið Standard og Poor´s hefur breytt mati á efnahagshorfum á Íslandi úr stöðugum í neikvæðar. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir þetta staðfestingu á því að ríkisstjórnin verði að ganga í lið með Seðlabankanum í baráttunni við verðbólgudrauginn. Innlent 5.6.2006 18:54
Framsókn fundar um forystu í flokknum Landsstjórn og þingflokkur Framsóknarmanna hittast í kvöld til að freista þess að ná sáttum um forystu í flokknum. Að minnsta kosti fjögur framsóknarfélög hafa skorað á Guðna Ágústsson, varaformann flokksins, að taka við formannssætinu við brotthvarf Halldórs Ásgrímssonar. Talið er hins vegar líklegt að Halldór Ásgrímsson endurskoði ákvörðun sína um að hætta hverfi Guðni ekki af sviðinu á sama tíma og hann. Innlent 5.6.2006 18:26
Af og frá að lækka aflahlutfallið fyrir næsta fiskveiðiár Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir af og frá að aflahlutfallið verði lækkað fyrir næsta fiskveiðiár. Hann afskrifar þó ekki breytingar á aflareglunni en segir að ekki megi rasa um ráð fram, slíkar breytingar taki tíma þar sem um gríðarmikla hagsmuni sé að ræða fyrir íslensku þjóðina. Innlent 5.6.2006 12:24
Sparisjóður Siglufjarðar tekur yfir reksturinn Glitnir hefur ákveðið að hjætta rekstri útibús á Siglufirði og hefur tekist samkomulag um að Sparisjóður Siglufjarðar kaupi og taki yfir rekstur útibúsins. Markmiðiði er að tryggja viðskiptavinum á Siglufirði áframhaldandi þjónustu í heimabæ en Glitnir telur ljóst að ekki sé rekstrarlegur grundvöllur fyrir tvær fjármálastofnanir í bænum. Innlent 5.6.2006 11:57
Íhuga málaferli Aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Reykjavík Trópík íhuga höfða mál á hendur þeim sem ábyrgir eru en ekki fékkst skemmtanaleyfi fyrir tónleikana sem vera áttu í kvöld. Hátíðin hefur verið færð á skemmtistaðinn Nasa við Austurvöll þar sem tónleikar munu fara fram í kvöld. Innlent 4.6.2006 18:53
Hvítasunnan haldin hátíðleg víða um land Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag og voru bekkir víða þéttsetnir í kirkjum landsins í dag. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pásktatímanum. Innlent 4.6.2006 18:51
Hátíðarmessa í Hallgrímskirkju Kristnir menn halda Hvítasunnuna hátíðlega í dag. Sr.Sigurður Pálsson predikaði í hátíðarmessu í Hallgrímskirkju í morgun. Sr. Sigurður mun brátt láta af störfum sem sóknarprestur og í hans stað kemur sr. Jón Dalbú. Þá söng mótettukórinn söng undir stjórn Harðar Áskelssonar organista. Hvítasunnan er þriðja stórhátíð kristninnar og með henni lýkur pástatímanum. Koma heilags anda í kirkju Krists er minnst en dagurinn er stofndagur kirkjunnar. Innlent 4.6.2006 12:06
Manneskjubókasafn í Hafnarfirðinum Kynlífsfíkill, ungur stjórnmálamaður, múslimi og innflytjandi voru meðal þeirra einstaklingar sem hægt var að fá lánaða í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði í dag. Tilgangur útleigunnar er að upplýsa fólk og koma í veg fyrir fordóma. Innlent 3.6.2006 18:51
Sumarblíða í borginni Veðrið hefur leikið við borgarbúa í dag sem kunna svo sannarlega að njóta góða veðursins. Á meðan sumir dilliðu sér við ljúfan djass, fengu sér aðrir pólskar pylsur eða sýndu breikdans við mikinn fögnuð áhorfenda. Innlent 3.6.2006 18:48
Maður vankaðist í fótboltaleik Maður á þrítugsaldri vankaðist í fótboltaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði á öðrum tímanum í dag. Þar fór fram leikur í utandeild þar sem lið Kónganna og FC-Pump tókustu á. Sjúkrabíll kom á staðinn skömmu síðar en þá var maðurinn með meðvitund og því var neyðarbíll afturkallaður. Maðurinn var síðan fluttur á slysadeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss til frekari rannsóknar. Innlent 3.6.2006 15:24
Pólskir læknar ráðnir til starfa í Danmörku Á meðan danskir hjúkrunarfræðingar eru ráðnir á Landspítala-háskólasjúkrahús, þá eru pólskir læknar ráðnir til starfa í Danmörku. Á fréttavef Jyllands Posten er greint frá að pólskir læknar hafi nú verið ráðnir á einkastofur á Norður Jótlandi en í fyrstu voru þeir einkum ráðnir á ríkisreknu sjúkrahúsin. Pólsku læknarnir eru ráðnir samkvæmt dönskum samningum en þeim er frjálst að segja upp samningum hvenær sem er. Erlent 3.6.2006 14:38
Danir vilja kalla danska hermenn heim frá Írak Um helmingur Dana vill kalla heim danskar hersveitir frá Írak samkvæmt nýlegri skoðanna könnun þar í landi. Politiken greinir frá því að stuðningur Dana við þátttöku í Íraksstríðinu sé hverfandi en árið 2004 voru um 72% Dana fylgjandi því að senda danska hermenn til Írak en einungis um 40% nú. Samkvæmt varnarmálaráðherra Danmerkur, Søren Gade, eru þó litlar líkur á að danskir hermenn verði kallaði heim í nánustu framtíð. Erlent 3.6.2006 14:16
Metfjöldi göngufólks á Hvanndalshnjúki Metfjöldi fjallgöngumanna mun hafa náð hæsta tindi Íslands í dag. Að mati Ferðafélags Íslands eru það alls um 300 manns sem horfa ofan af Hvannadalsnjúknum í dag. Þar af eru 132 í för með Ferðafélaginu sem eru mun fleiri en í fyrra. Þá eru Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Einar í Hofsnesi með skipulagðar ferðir, auk þess sem erfitt er að slá tölu á alla þá sem leggja á Hnjúkinn á eigin vegum. Innlent 3.6.2006 13:32
Serbía lýsir brátt fyrir sjálfstæði Júgóslavía heyrir sögunni til í næstu viku þegar Serbía, síðast lýðveldanna, lýsir opinberlega yfir sjálfstæði. Aðeins Svartfjallaland og Serbía eru eftir af því lýðveldum sem Júgóslavía eitt sinn var en landið samanstóð af Slóveníu, Bosníu-Herzegovinu, Króatíu, Makedóníu, Albaníu, Svartfjallalandi og Serbíu. Erlent 3.6.2006 12:07
Tólf manns slösuðust í sprengingu í Tyrklandi Alls slösuðust tólf manns þegar sprengja sprakk við verslunarmiðstöð í borginni Mersin um 450 kílómetra suður af höfuðborginni Ankara í morgun. Enginn hefur lýst ódæðinu á hendur sér en kúrdískir hryðjuverkamenn hafa áður notað svipaðar aðferðir. Enginn þeirra slösuðu eru í lífshættu. Þá brotnuðu rúður í nokkrum verslunum í verslunarmiðstöðinni. Erlent 3.6.2006 12:05
Sjálfstæðismenn og Samherjar mynda meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál. Innlent 3.6.2006 11:56
Maður særðist í aðgerðum hryðjuverkalögreglu Maður særðist, þó ekki alvarlega, þegar hryðjuverkalögreglan í Bretlandi réðst inn í hús hans í Lundúnum í gær og skaut hann. Talið var að í húsinu væru búin til efnavopn. Yfir 250 lögreglumenn tóku þátt í árásinni og er aðgerð hryðjuverkalögreglunnar þar í landi ein sú umfangsmesta í langan tíma. Maðurinn sem skotinn var er 23 ára. Hann er nú á sjúkrahúsi og á batavegi. Grunsemdir lögreglunnar virtust þó ekki á rökum reistar því engin ummerki um vopnagerð, funndust í húsinu. Erlent 3.6.2006 12:01
Segja Finn ekki vera lausn fyrir Framsókn Það væri heimskulegt fyrir Framsóknarflokkinn að gera Finn Ingólfsson að formanni, segir Össur Skarphéðinsson alþingismaður og fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar. Kolbrún Halldórsdóttir þingmaður Vinstri grænna segir slíkan leik vondan fyrir Framsókn sem þegar hafi orð á sér fyrir að vera hagsmunaklíka, en ekki stjórnmálaflokkur. Innlent 3.6.2006 11:51
Dæmdur til að greiða 200.000 vegna náttúruspjalla Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann til að greiða 200.000 króna sekt fyrir að hafa rutt slóða í þeim tilgangi að gera reiðveg utan vega ofan Hveragerðis, alls tæpa fjóra kílómetra. Maðurinn hafði ekki aflað framkvæmdaleyfis sveitastjórnar líkt og lög kveða á um, né fengið samþykki landeiganda. Innlent 3.6.2006 11:14
Vilja endurskoða lög um vaxtabætur Stjórnarandstaðan krafðist þess á þingi fyrir stundu að lög um vaxtabætur vegna fasteignakaupa yrðu endurskoðuð strax. Þúsundir lágtekjufjölskyldna stæðu frammi fyrir mikilli skerðingu ella. Innlent 3.6.2006 10:11
Sjálfboðaliðar á Suðureyri Hópur sjálfboðaliða á vegum samtakanna Seeds Iceland hefur dvalið á Suðureyri undanfarna daga. Á fréttavefinum Bæjarins besta kemur fram að sjálfboðaliðarnir hafa unnið að almennum umhverfismálum í bænum, gróðursetningu og við að mála. Alls eru 14 einstaklingar í hópnum frá hinum ýmsu löndum, svo sem Slóvakíu, Póllandi, Tékklandi og Spáni. Sjálfboðaliðarnir bera sjálfir allan kostnað af komu sinni til Suðureyrar en fá frítt fæði og húsnæði á meðan á verkefninu stendur. Innlent 3.6.2006 09:41
Tvö minniháttar fíkniefnamál á Akureyri Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp á Akureyri í nótt. Lögregla fann fíkniefni í fórum tveggja einstaklinga, en þeir höfðu ætlað efnið til eigin neyslu. Málin teljast upplýst. Þá var einn ökumaður stöðvaður vegna gruns um ölvunarakstur en hann hafði keyrt á. Innlent 3.6.2006 09:28
Ólga vegna kílómetragjalds hjá björgunarsveitamönnum Ólga er meðal björgunarsveitamanna vegna laga um olíugjald og kílómetragjald sem til stendur að samþykkja frá Alþingi fyrir þinglok. Þar er lagt til að björgunarsveitum verði heimilt að nota litaða gjaldfrjálsa olíu á ökutæki sín en í staðinn greiði þær sérstakt kílómetragjald af akstri þeirra. Innlent 2.6.2006 22:25
Eins árs fangelsi fyrir tvær líkamsárásir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann í eins ár fangelsi fyrir tvær líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur haustið 2004. Hann var ákærður fyrir að hafa slegið mann í andlitið svo að hann féll og höfuð hans skall í gangstéttina og hann hlaut nokkur meiðsl og fyrir hafa slegið annan í andlitið með þeim afleiðingum að hann nefbrotnaði. Innlent 2.6.2006 22:10
Frumvarpi um RÚV hf. og nýsköpunarmiðstöð frestað til hausts Afgreiðslu á furmvörpum um hlutafélagavæðingu ríkisútvarpsins og Nýsköpunarmiðstöð Íslands verður frestað til haustsins samkvæmt samkomulagi sem formenn þingflokka og forseti alþingis gerðu í kvöld. Einnig var samið um að ljúka sumarþingi á morgun. Þingmenn vinna nú hratt á lokasprettinum og kvöld hafa að minnsta kosti 38 frumvörp orðið að lögum. Innlent 2.6.2006 22:06
Sex mánaða fangelsi fyrir að ráðast á lögregluþjón Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að ráðast á lögregluþjón. Lögreglan hafði komin manninum til hjálpar eftir að hann hafði ekið á skilti á umferðareyju og slasast á andliti. Innlent 2.6.2006 22:33
Sjö fræðimenn fá afnot af Jónshúsi Sjö fræðimenn fá afnot af húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn. Alls bárust 16 umsóknir og því færri sem komust að en vildu. Þessir fræðimenn fengu afnot af íbúðinni: Innlent 2.6.2006 20:53