Fréttir
Kemur í ljós hvort saksóknari þurfi að bera vitni Það kemur í ljós klukkan eitt í dag hvort settur saksóknari í Baugsmálinu, Sigurður Tómas Magnússon, og Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, þurfi að bera vitni í málinu. Innlent 12.6.2006 09:59
Verðbólgan 8 prósent Vísitala neysluverðs í síðasta mánuði var 261,9 stig og hækkaði um 1,16 prósent frá maí. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 242,0 stig, hækkaði um 1,0 prósent frá því í maí. Verð á bensíni og díselolíu lækkaði um 2,4 prósent. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs mælst 8 prósent en vísitala neysluverð án húsnæðis um 6 prósent. Viðskipti innlent 12.6.2006 09:26
Íbúðalán bankanna hrapa um rúma 11 milljarða Íbúðalán bankanna hafa hrapað úr rúmum nítján milljörðum króna í maí í fyrra niður í sjö og hálfan milljarð í maí í ár, samkvæmt tölum Seðlabankans. Upphæðin í nýliðnum maímánuði er jafnframt sú lægsta síðan bankarnir komu inn á íbúðalánamarkaðinn í ágúst árið 2004. Innlent 12.6.2006 09:03
Ölvun, slagsmál og fingurbit á Bolungarvík Helgin var fjörug hjá lögreglunni í Bolungarvík. Ball var haldið aðfaranótt laugardags í félagsheimilinu Víkurbæ og var talsverður erill í kringum það. Á laugardagsmorguninn hafði lögregla stöðvað tvo unga menn með stóran poka fullan af áfengi sem þeir höfðu stolið úr Víkurbæ. Mennirnir gistu fangageymslur en var sleppt seinna um daginn eftir að þeir viðurkenndu verknaðinn. Innlent 12.6.2006 08:18
Guðni Ágústsson vill opinbert álverð Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins tók undir það sjónarmið Einars Odds Kristjánssonar, varaformanns fjárlaganefndar, í þættinum Pressunni á NFS í gær, að Landsvirkjun eigi að opinbera orkusölusamning fyrirtækisins við Alcoa. Innlent 12.6.2006 08:10
Írönum ekki vel tekið Meira en þúsund þýskir gyðingar mótmæltu kröftuglega á götum Nurnberg í dag, þar sem Íranar spiluðu fyrsta leik sinn á HM. Lögreglan í Frankfurt þurfti að loka nokkrum hverfum í borginni vegna óláta eftir leik Englendinga og Paragvæ í gær. Erlent 11.6.2006 18:31
Sakaðir um að hafa barið Zarqawi til dauða Bandarískir hermenn eru sakaðir um að hafa barið al-Zarkawi, leiðtoga al-Kæda í Írak, til dauða. Samtökin hóta stórfelldum árásum í landinu til að hefna leiðtoga síns. Erlent 11.6.2006 18:29
Hengdu sig í Guantanamo Þrír fangar hengdu sig í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu um helgina. Hernaðaraðgerð gegn Bandaríkjunum, segir yfirmaður fangelsisins. Erlent 11.6.2006 18:27
Ráðherraskipti einstök vegna fjölda Ráðherraskipti ríkisstjórnarinnar á þessu kjörtímabili eru einstök vegna fjölda stólaskipta og þeirra sem draga sig út úr stjórnmálum. Þá þykir einstakt að formaður flokks skuli axla ábyrgð, eins og Halldór Ásgrímsson gerir, á slöku gengi í kosningum þar sem hann var þó ekki sjálfur í framboði. Innlent 11.6.2006 18:27
Sænska ríkið greiði skaðabætur vegna njósna Mannréttindadómstóll Evrópu hefur dæmt sænska ríkið til að greiða fimm Svíum á fimmtu milljón íslenskra króna í skaðabætur fyrir mannréttindabrot þegar öryggislögreglan njósnaði um þá og geymdi upplýsingar. Nýlega var upplýst að símar fjölda íslenskra þingmanna voru hleraðir á tímum kalda stríðsins. Innlent 11.6.2006 18:19
Íslendingar lögðu Svía í fyrri leik þjóðanna fyrir HM Íslenska landsliðið í handknattleik vann fjögurra marka sigur á Svíum, 32:28, í fyrri leik þjóðanna í undankeppni HM í dag. Leikið var í Globen í Stokkhólmi. Þetta er fyrsti sigur Íslands á Svíum í handbolta í 48 ár. Innlent 11.6.2006 17:26
Seinkun á öllum vélum Iceland Express Seinkun hefur orðið á öllum vélum Iceland Express til í dag. Vélin sem átti að fara til Gautaborgar í morgun bilaði. Farþegum var útvegað far með öðrum vélum og fara síðustu farþegarnir utan seinnipartinn. Þetta varð til þess að seinkun varð á Kaupmannahafnar- og Lundúnarflugi þar sem vélunum var millilent í Gautaborg. Þá varð seinkun á brottför vélar Iceland Express til Alicante sem fara átti nú klukkan fjögur. Brottför þeirrar vélar er nú áætluð snemma í kvöld. Innlent 11.6.2006 16:25
Fyrsti hitabeltisstormur ársins. Yfirvöld á Kúbu og Flórída í Bandaríkjunum hafa gefið út viðvörun vegna fyrsta hitabeltisstorms ársins. Hitabeltisstormurinn Albert stefnir nú óðfluga í átt að Kúbu og Cayman-eyjum, þar sem hefur hellirignt í dag, og óttast er að aurskriður kunni að fylgja. Erlent 11.6.2006 16:22
Hóta stórfelldum árásum í Írak Al Qaeda í Írak hóta stórfelldum árásum í landinu eftir að al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, var drepinn í vikunni. Þetta kemur fram á heimasíðu herskárra múslima í dag. Erlent 11.6.2006 16:17
Orkuverð til ALCOA birt Guðni Ágússtsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins tekur undir það sjónarmið að Landsvirkjun eigi að opinbera orkusölusamning fyrirtækisins við Alcoa. þetta kom fram í þættinum Pressan á NFS í dag. Innlent 11.6.2006 14:07
Tilboðið gallað en þó gott Ari Larijani, helsti samningamaður Írana í kjarnorkudeilu þeirra við Vesturveldin, sagði í morgun að margt væri gallað við tilboð stórveldanna sex um lausn deilunnar en einnig margt sem Íranar gætu sætt sig við. Erlent 11.6.2006 10:59
Naktir hjólreiðamenn mótmæla í Mexíkó Á þriðja tug mótmælenda komu saman naktir á hjólum í miðborg Mexíkóborgar í gær til að mótmæla bílamenningu í Mexíkó. Með aðgerðunum vildu hjólreiðamenn einnig krefja ökumenn bíla um að sýna þeim virðingu. Erlent 11.6.2006 10:56
Loka varð hverfum í Frankfurt Lögreglan í Frankfurt í Þýskalandi þurfti að loka nokkrum hverfum í borginni vegna óláta eftir leik Englendinga og Paragvæ í gær. Englendingar unnu leikinn 1-0. Erlent 11.6.2006 10:51
Abbas og Haniyeh funda Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ismail Haniyeh, forsætisráðherra heimastjórnarinnar, funduðu í gær eftir að Abbas boðaði til atkvæðagreiðslu í júlí um tillögu sem meðal annars tekur til þess hvort viðurkenna eigi Ísraelsríki. Erlent 11.6.2006 10:06
Umferðarslys í Ártúnsbrekkunni Einn liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild Landspítalans eftir umferðarslys sem var í Ártúnsbrekkunni um klukkan tvö í nótt nótt. Innlent 11.6.2006 10:05
Sjálfsvíg í Guantanamo-fangelsinu Þrír fangar í Guantanamo-fangelsi Bandaríkjamanna á Kúbu fundust látnir í klefum sínum í gær. Að sögn Bandaríkjahers hengdu þeir sig allir með snöru sem þeir höfðu sjálfir búið til úr rúmfötum og fatnaði. Erlent 11.6.2006 10:01
Mikið um hátíðarhöld vegna Sjómannadagsins Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land í dag. Dagskráin hefst á mörgum stöðum með guðþjónstu en nú klukkan tíu hófst minningarathöfn Sjómannadagsins í Fossvogskapellu í Fossvogskirkjugarði. Í Reykjavík verður í dag haldin Hátíð hafsins og er dagskráin fjölbreytt. Sjávarútvegsráðherra heldur sitt ávarp klukkan tvö en þetta er í fyrsta sinn sem Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, heldur slíkt ávarp. Innlent 11.6.2006 10:03
Vandasöm verkefni bíða nýrra ráðherra Vandasöm verkefni bíða nýrra ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde sem tekur við á fimmtudaginn. Maður utan þings tekur sæti í ríkisstjórninni og kona verður í fyrsta sinn utanríkisráðherra. Innlent 11.6.2006 09:52
Guðni sáttur Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segist ekki hafa sóst eftir öðru ráðuneyti en Landbúnaðarráðuneytinu. Hann lítur ekki svo á að verið sé að stilla Valgerði Sverrisdóttur upp sem formannsefni á móti sér. Innlent 10.6.2006 19:34
Slagsmál á bólivíska þinginu Til handalögmála kom á bólivíska þinginu fyrir helgi þegar stjórn og stjórnarandstaða deildu um löggjöf um vegaþjónustu sem stjórn landsins vill fella úr gildi. Stjórnarandstöðuþingmaður var ítrekað laminn í höfuðið áður en yfir lauk. Erlent 10.6.2006 17:49
Varnarmálin brýnust hjá Valgerði Valgerður Sverrisdóttir, verðandi utanríkisráðherra, segir að varnarmálin verði brýnasta verkefnið til að takast á við í utanríkismálum. Jón Sigurðsson, verðandi viðskipta- og iðnaðarráðherra segist hafa orðið að svara kalli skyldunnar og hverfa úr Seðlabankanum. Jónína Bjartmarz telur að sátt á milli framkvæmda og umhverfisverndarsinna verði hennar brýnasta verkefni í Umhverfisráðuneytinu. Innlent 10.6.2006 19:28
Þrír nýjir framsóknarráðherrar Þrír nýir framsóknarráðherrar verða í ríkisstjórn Geirs Haarde sem tekur við forsætisráðherrastólnum af Halldóri Ásgrímssyni næsta fimmtudag. Valgerður Sverrisdóttir flytur sig úr iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu í utanríkisráðuneytið en Jón Sigurðsson seðlabankastjóri tekur við stóli Valgerðar. Magnús Stefánsson tekur við af Jóni Kristjánssyni í Félagsmálaráðuneytinu en Jón lætur af ráðherradómi. Jónína Bjartmarz verður umhverfisráðherra en þaðan hverfur Sigríður Anna Þórðardóttir. Innlent 10.6.2006 19:24
3 fangar í Guantanamo látnir Þrír fangar sem eru í haldi Bandaríkjamanna í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu fundust látnir í klefum sínum í dag. Erlent 10.6.2006 19:00
Tveir ráðherrar hætta í ríkisstjórn Jón Kristjánsson segist hafa farið fram á það sjálfur að hann léti eftir ráðherrastól sinn til Magnúsar Stefánssonar. Hann kveður sáttur. Sigríður Anna Þórðardóttir kveður einnig Umhverfisráðuneytið. Sigríður Anna baðst undan viðtali í dag en sagði í samtali við NFS vera sátt. Á henni mátti þó heyra að tilfinningar hennar væru blendnar gagnvart þeirri stöðu sem hún er nú í. Hún sagðist ætla eyða deginum í dag með fjölskyldu sinni en væri hugsanlega til viðtals á morgun. Innlent 10.6.2006 18:57
Abbas boðar til þjóðaratkvæðagreiðslu Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, boðaði í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu síðla í júlí þar sem meðal annars verður tekin afstaða til þess hvort viðurkenna skuli tilverurétt Ísraelsríkis. Atkvæðagreiðslan er umdeild meðal Palestínumanna. Erlent 10.6.2006 17:44