Fréttir
Krefst rannsóknar á framgöngu lögreglu gegn mótmælendum Flokksstjórn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að fram fari rannsókn á framferði lögreglunnar og meintu harðræði af hennar hálfu og aðgerðum sem falið hafa í sér óþarfa og jafnvel ólögmæta hindrun á ferðum fólks um öræfi landsins. Innlent 9.8.2006 11:14
Ótrygg söfn í Rússlandi Tilviljun ein réði því að stjórnendur ríkissafnsins í Rússlandi uppgötvuðu að búið var að stela mörg hundruð teikningum eftir virtan rússneskan arkitekt sem voru í eigu safnsins. Upp komst um þjófnaðinn þegar reynt var að selja níu teikningar eftir arkitektinn Yakov Chernkhov á uppboði í Bretlandi í júní. Ekki er vitað nákvæmlega hve mörgum teikningum var stolið en síðan í júní hafa hátt í þrjú hundruð til viðbótar fundist á mörkuðum í Rússlandi og annars staðar og eru þær samanlagt metnar á níutíu og tvær milljónir króna. Erlent 9.8.2006 09:41
Ástralir fjölga í herliði sínu í Afganistan Áströlsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda hundrað og fimmtíu hermenn til Afganistan til viðbótar þeim sem þar eru fyrir. John Howard, forsætisráðherra Ástralíu, tilkynnti þetta í morgun. Liðnir mánuðir hafa verið einhverjir þeir blóðugustu í Afganistan síðan fjölþjóðlegt herlið, undir forystu Bandaríkjamanna, steypti stjórn Talíbana árið 2001. Árásir Talíbana í suðri hafa verið nær daglegur viðburður síðustu vikur og kostað fjölmarga lífið. Erlent 9.8.2006 09:35
Kópavogskirkjugarður vígður á morgun Fyrstu hlutar Kópavogskirkjugarðs verða vígðir á morgun, fimmtudag. Teknir verða í notkun tveir reitir, einn kistugrafreitur og einn duftreitur. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, mun ávarpa viðstadda og Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands mun vígja garðinn. Duftker Guðmundar Helgasonar málarameistara verður jarðsett, en hann verður vökumaður garðsins. Athöfnin fer fram við sáluhliðið í Kópavogskirkjugarði og hefst klukkan ellefu á morgun. Innlent 9.8.2006 09:57
Askja afhendir Rauða krossinum átta sjúkrabíla Askja afhenti á dögunum Rauði krossi Íslands tvo sjúkrabíla af gerðinni Benz Sprinter. Sex bílar til viðbótar sömu gerðar verða afhentir á næstu mánuðum og fara þeir í notkun vítt og breytt um landið. Fyrstu bílarnir fóru til Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hafa reynst vel það sem af er, að sögn Benedikts Höskuldssonar deildarstjóra þar á bæ. Innlent 9.8.2006 10:55
Hætta á sprengigosi í Mayon Eldfjallasérfræðingar segja hættu á sprengigosi í eldfjallinu Mayon á Filippseyjum, en svo virðist sem eitthvað hafi stöðvað gasflæði frá fjallinu sem hefur gert vart við sig á síðustu dögum. Þetta gæti þýtt að eitthvað hafi stíflað fjallið og spenna magnist þannig að ef gjósi verði eldgos í fjallinu kröftugra en ella. Sérfræðingar benda þó á að þetta gæti einnig þýtt að fjallið hafi hægt á sér. Hættuástandi var lýst yfir á mánudaginn þar sem óttast var að eldgos væri á næsta leyti. Búið er að flytja um fjörutíu þúsund íbúa í tuttugu og fimm þorpum nálægt Mayon á brott frá heimilum sínum. Ekki hafa þó allir flúið heimili sín og margir íbúar við rætur eldfjallsins hafa neitað að færa sig um set. Erlent 9.8.2006 09:31
Rændi herbergi hótelgesta á meðan þeir brugðu sér frá Bíræfinn þjófur spennti upp glugga og braust þannig inn í hótelherbergi á Akureyri, þegar gestirnir brugðu sér út úr herberginu í gærkvöldi. Þjófurinn stal meðal annars tveimur myndavélum og veski með greiðslukortum og skilríkjum, sem kemur sér afar illa þar sem hjónin sem gistu í herberginu eru erlendir ferðamenn. Þjófurinn er ófundinn. Innlent 9.8.2006 08:33
Bíða niðurstöðu blóðsýnisrannsóknar Lögreglan á Selfossi bíður nú endanlegrar niðurstöðu rannsóknar á blóðsýni, sem tekið var úr rútubílstjóra, sem missti stjórn á bíl sínum á leið niður Kambana á sunnudagsmorgun, með sextán erlenda farþega um borð. Blásturssýni sem tekið var af ökumanninum á staðnum gefur til kynna að hann hafi verið ölvaður. Hann missti stjórn á bílnum, sem fór yfir á öfugan vegarhelming og barst langa leið utan í vegriðinu uns hann nam staðar og hafði þá annað framhjólið af-felgast. Það hefur því legið við stór slysi og fengu skelfingu lostnir farþegarnir far með öðrum hópferðabíl af vettvangi. Ákæruvaldið tekur afstöðu í málinu þegar áfengismagn í blóði bílstjórans liggur fyrir. Innlent 9.8.2006 08:27
Ísraelar flýja norðurhluta landsins Fleiri Ísraelar hafa nú flúið þorp og bæi í Norður-Ísrael, en Hizbollah-skæruliðar hafa látið flugskeytum rigna yfir svæðið síðustu daga. Ísraelsk stjórnvöld hafa aðstoðað fólk við að flytja sig um set og hafa boðist til að veita því fjárhagsaðstoð vegna flutninganna. Stjórnvöld hafa tryggt um tuttugu þúsund manns tímabundið húsaskjól. Um það bil þrjú hundruð þúsund íbúar í Norður-Ísrael höfðu þegar yfirgefið heimili sín fyrir brottflutninginn í gær. Það voru að mestu einungis fátækir og sjúkir auk gamalmenna sem sátu eftir. Erlent 9.8.2006 08:52
Rúmlega tvö þúsund einungis með fjármagnstekjur Tæplega tvö þúsund og tvö hundruð framteljendur til skatts höfðu einungis fjármagnstekjur af peningum sínum í fyrra, og rúmlega sex þúsund og sex hundruð, eða fjögur prósent allra framteljenda, höfðu hærri fjármagnstekjur en venjulegar launatekjur. Þetta kemur fram í tölum sem ríkisskattstjóri hefur tekið saman fyrir Morgunblaðið. Skattur af fjármangstekjum er tíu prósent, en en tæp 37 prósent af venjulegum launatekjum. Innlent 9.8.2006 08:26
Beðið um gæsluvarðhald yfir þremur mönnum Lögreglan á Akureyri krafðist í gærkvöldi gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þremur ungum mönnum, sem handteknir voru í fyrrinótt og í gær vegna gruns um ýmis afbrot. Þegar tveir þeirra voru handteknir í fyrrinótt, fannst talsvert af þýfi í bíl þeirra og er sá þriðji, sem handtekinn var í gær, grunaður um að vera vitorðsmaður þeirra. Innlent 9.8.2006 08:24
Líbanar bjóðast til að senda herlið til suðurhlutans Ísraelsk stjórnvöld ákveða í dag hvort herlið þeirra verður sent lengra inn í Líbanon til að berjast við Hizbollah-skæruliða. Frakkar og Bandaríkjamenn endurskoða nú uppkast sitt að ályktun sem lögð verður fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna og miðar að því að binda enda á átökin í Líbanon. Erlent 9.8.2006 08:07
Þurfa að greiða kennara bætur Sveitarfélagið Árborg hefur verið dæmt til að greiða Kristínu Stefánsdóttur, heimilisfræðikennara, tæpar átta hundruð þúsund krónur vegna launamissis sem hún varð fyrir í kjölfar gerðra kjarasamninga árið 2002. Innlent 8.8.2006 22:34
Ólöglegir innflytjendur láta lífið í bílslysi Bifreið full af ólöglegum innflytjendum valt í dag í Bandaríkjunum nálægt landamærunum við Mexíkó með þeim afleiðingum að níu menn létu lífið og tólf til viðbótar slösuðust. Innlent 8.8.2006 22:02
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sakað um aðgerðaleysi Fulltrúi Arababandalagsins sakaði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í dag um að standa aðgerðalaust hjá á meðan átökin í Líbanon kyntu undir hatri og öfgum í Miðausturlöndum. Innlent 8.8.2006 21:55
Lögregluyfirvöld á Austurlandi telja réttinn sín megin Lögregluyfirvöld á Austurlandi telja sig hafa skýra lagastoð fyrir aðgerðum sínum gegn mótmælendum Kárahnjúkavirkjunar. Mótmælendurnir hyggjast kæra lögregluna og segja hana hafa beitt þá víðtæku ofbeldi. Innlent 8.8.2006 21:47
Íslendingar ferðast meira innanlands Fjöldi þeirra Íslendinga sem gistir á hótelum hér á landi hefur aukist um fimmtung. Ferðamálastjóri segir ánægjulegt að Íslendingar ferðist meira innanlands. Innlent 8.8.2006 19:40
Árni segir rangt að hann geti ekki boðið sig fram Árni Johnsen segir rangt að halda því fram að hann geti ekki boðið sig fram í þingkosningum á næsta ári. Afar skiptar skoðanir eru meðal Vestmannaeyinga um hugsanlegt framboð Árna. Innlent 8.8.2006 19:30
Vonsvikinn með úrskurð eignarnámsnefndar Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar hefur verið gert að greiða húsasmiði á Akranesi sjö og hálfa milljón króna í bætur fyrir landspildu sem hitaveitan tók eignarnámi. Stjórnarformaður Hitaveitunnar segir niðurstöðu matsnefndarinnar vonbrigði. Innlent 8.8.2006 19:08
Nafn konunnar sem lést Konan sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Langsstaði aðfaranótt mánudags hét Rósa Björg Guðmundsdóttir til heimilis að Vallarási 1 í Reykjavík. Rósa var fædd 4. apríl 1970. Hún var ógift og barnlaus. Innlent 8.8.2006 19:01
Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu Kríuvarp virðist hafa brugðist á suðvesturhorninu og þá sérstaklega vestast á Seltjarnarnesi þar sem algjör viðkomubrestur varð hjá kríunni. Fuglafræðingur telur að sandsílaskorti sé um að kenna og segir hann það vera áhyggjuefni fyrir fleiri fuglategundir. Innlent 8.8.2006 18:51
Bílar á bið í Herjólf Svo mikil örtröð er í Herjólf, eftir Þjóðhátíð í Eyjum, að fólk með bíla kemst ekki frá Vestmannaeyjum í land. Innlent 8.8.2006 18:48
Hinsegin dagar framundan Hátíðin Hinsegin dagar er ein af stærstu árlegu hátíðum landsins og verður nú haldin í áttunda sinn, dagana 10.- 13. ágúst. Innlent 8.8.2006 16:23
Betur fór en á horfðist í hörðum árekstri strætó og fólksbíls Fólksbíll og strætisvagn lentu í hörðum árekstri á gangamótum, Stangar og Breiðholtsbrautar á ellefta tímanum í morgun. Í fyrstu var talið að um alvarlegt slys væri að ræða og því viðbúnaður slökkviliðs og lögreglu töluverður. Betur fór þó en á horfðist en ökumaður og farþegi fólksbílsins voru fluttir á slysadeild Landspítalans með skurð á höfði og ökumaður strætóins kenndi sér eymsla í hné. Töluvert tjón varð á ökutækjum. Innlent 8.8.2006 16:07
Fékk reykeitrun við störf á vettvangi Einn lögreglumaður þurfti að leggjast inn á sjúkrahús vegna reykeitrunar sem hann fékk við störf á vettvangi þegar eldur kviknaði í Síldarverksmiðjunni á Akranesi síðastliðinn föstudag. Hann er enn óvinnufær vegna eitrunarinnar. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en málið er í rannsókn og miðar henni vel. Innlent 8.8.2006 15:37
Annasöm helgi hjá lögreglunni á Eskifirði Helgin var nokkuð erilsöm hjá lögreglunni á Eskifirði vegna útihátíðarinnar Neistaflugs. Talið er að um 2000 manns hafi sótt hátíðina. Engin líkamsárás var kærð til lögreglu en þrjú fíkniefnamál komu upp um helgina. Alls voru 23 ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur og þá voru nokkrir ökumenn kærðir fyrir önnur umferðarlagabrot. Lögreglumenn voru þó almennt ánægðir með umferðina sem var mikil og þung alla helgina. Innlent 8.8.2006 15:16
Vatnsleki í íbúð í Safamýri Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan tvö í dag vegna vatnsleka í íbúð í Safamýri. Húsráðendur voru heima þegar heitt vatn tók að leka í baðherbergi í íbúðinni, sem eru í fjölbýli, en fólkinu var engin hætta búin. Slökkviliðsmenn vinna nú að því að stöðva lekann. Svo virðist sem gólfefni séu skemmd en vatnið hefur ekki borist inn í nærliggjandi íbúðir. Innlent 8.8.2006 14:33
Vilja að varnarsvæðið verði hreinsað á kostnað hersins Landvernd og sex norræn náttúruverndarsamtök beina því til ríkisstjórnar Íslands að menguð svæði á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli verði hreinsuð á kostnað mengunarvaldsins. Innlent 8.8.2006 12:07
Framtíð friðargæslu á Sri Lanka rædd Framtíð friðargæslu á Srí Lanka ræðst á næstu dögum en sendifulltrúi norræna eftirlitsins fundar með fulltrúum stríðandi fylkinga fram eftir vikunni. Tveir hjálparstarfsmenn fundust myrtir í bænum Muttur í morgun. Erlent 8.8.2006 12:02
Sprengjuæfing síðar í mánuðinum Fimmta og ef til vill síðasta fjölþjóðlega sprengueyðingaræfingin verður haldin á Keflavíkurflugvelli síðar í mánuðinum, með þáttöku hátt í 80 erlendra sérfræðinga. Æfingar þessar, sem bera heitið Northern Challenge, hófust eftir að bandaríkjaher hætti að efna til reglubundinna æfinga bandaríska heimavarnarliðsins hér á landi. Innlent 8.8.2006 12:01