Fréttir

Fréttamynd

Stoppaðir með handfarangur

Flugfarþegar sem millilenda í Bretlandi geta lent í því að vera stoppaðir með handfarangur sinn þar. Sérfræðingar um öryggismál segja að sennilega verði flugfarþegar að vera viðbúnir því að hertar reglur verði varanlegar.

Innlent
Fréttamynd

Rukkuðu Impregilo meira en aðra

Heilbrigðiseftirlit Austurlands braut jafnræðisreglu stjórnsýslulaga í viðskiptum sínum við verktakafyrirtækið Impregilo. Eftirlitið breytti gjaldskrá sinni á þann veg að Impregilo þurfti að borga 30 prósent umfram aðra viðskiptavini.

Innlent
Fréttamynd

Lýst eftir strokufanga

Lögreglan í Reykjavík lýsir eftir Hilmari Ragnarssyni 43 ára, sem strauk frá Litla-Hrauni síðastliðinn þriðjudag. Hilmar er dökkhærður og grannvaxinn og var klæddur í dökka úlpu, dökkar buxur og ljósa skó.

Innlent
Fréttamynd

Nauðgunartilraun í Breiðholti

Ráðist var á tuttugu og tveggja ára konu klukkan fögur í fyrri nótt í Breiðholti. Konan var á leið til vinnu þegar maður, ógnaði henni með hníf og keyrði hana í götuna þar sem hann reyndi að nauðga henni.

Innlent
Fréttamynd

Samkomulag í sjónmáli

Líklegt er talið að samkomulag náist á næstu klukkustundum milli Líbana og Bandaríkjamanna um orðalag ályktunar sem miðar að því að binda enda á átök Ísraela og Hizbollah skæruliða í Suður-Líbanon. Endanleg drög verða svo lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þar sem greidd verða atkvæði um þau.

Erlent
Fréttamynd

Brasilískir þingmenn kærðir fyrir að draga sér fé

Rannsóknarnefnd á vegum brasilíska þjóðþingsins hefur kært 72 þingmenn fyrir að hafa dregið sér fé úr sjóðum heilbrigðiskerfisins og mælir nefndin með því að þingmennirnir verði sóttir til saka fyrir meint brot sín.

Erlent
Fréttamynd

Ráðist á æfingabúðir Tamíltígra

Uppreisnarmenn Tamíltígra á Srí Lanka segja stjórnarherinn þar í landi hafa efnt til átaka á nýjum vígstöðvum í morgun þegar þeir vörpuðu sprengjum á æfingarbúðir tígranna í Batticaloa. Að sögn Tamíltígra féllu fjölmargir liðsmenn í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Enn deilt um orðalag ályktunar

Sprengjur hafa dunið á Beirút, höfuðborg Líbanons, í morgun um leið og forsætisráðherra landsins fundar þar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar. Vonast er til að samkomulag náist í dag um orðalag ályktunar í deilu Ísraela og Hizbollah-skæruliða.

Erlent
Fréttamynd

Húsaleiga hækkar til muna

Húsaleiga hefur hækkað til muna á þessu ári. Leiga á tveggja herbergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 10-20 þúsund krónur að meðaltali frá því í ágúst í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Höfuðpaurarnir sagðir í haldi lögreglu

Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaura hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar.

Erlent
Fréttamynd

Guðni segir flokksþingið velja forystu

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem býður sig fram til áframhaldandi varaformennsku, segist hvorki styðja Jón Sigurðsson né Siv Friðleifsdóttur til formennsku, það sé flokksþingsins að velja sér forystu.

Innlent
Fréttamynd

Norskir dagar á Seyðisfirði

Norskir dagar verða haldnir á Seyðisfirði á morgun, 12. ágúst og í ár er einnig haldið upp á 100 ára afmæli símasambands við útlönd.

Innlent
Fréttamynd

Samfylkingin minnir á lýðræðisleg réttindi borgaranna

Rétt er að minna yfirvöld á mikilvægi þess að virða lýðræðisleg réttindi borgaranna, segir í ályktun samráðsfundar Samfylkingarfélaganna í Reykjavík, í tilefni frétta af aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og ferðafólki við Kárahnjúka.

Innlent
Fréttamynd

Kona vinnur Hummer-jeppa

Kona nokkur sem hafði í tuttugu ár styrkt DAS með því að kaupa happdrættismiða fékk í gær afhentan fyrsta vinninginn, spánýjan Hummer-jeppa.

Innlent
Fréttamynd

Erlendir ferðamenn teknir fyrir hraðakstur

Erlendur ferðamaður á bílaleigubíl var stöðvaður á rösklega 160 kílómetra hraða á Suðurlandsvegi , skammt frá Hvolsvelli í gær og þrír aðrir útlendingar á 110 til 130 kílómetra hraða.

Innlent
Fréttamynd

Fagna framboði Sivjar

Stjórnir Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði fagna fram komnu framboði Sivjar Friðleifsdóttur , oddvita Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, til embættis formanns flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Bíll valt við Kirkjubæjarklaustur

Tveir menn sluppu ótrúlega lítið meiddir, að sögn lögreglu, þegar bíll þeirra fór út af þjóðveginum vestan við Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi og valt.

Innlent
Fréttamynd

Flug til Lundúna á áætlun

Flug milli Íslands og Lundúna er allt á áætlun í dag eftir miklar tafir í gær í kjölfar aðgerða gegn meintum hryðjuverkamönnum.

Innlent
Fréttamynd

Höfuðpaurar hryðjuverkahópsins í haldi

Breska lögreglan telur sig hafa handtekið höfuðpaurar hryðjuverkahóps sem lagði á ráðin um að sprengja í loft upp flugvélar á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Nokkrir úr hópnum eru þó sagðir ganga lausir. Æfa átti ódæðin um helgina og láta til skarar skíða nokkrum dögum síðar.

Erlent
Fréttamynd

Ætluðu að granda 10 flugvélum

Hryðjuverkamennirnir sem bresk yfirvöld stöðvuðu í dag, höfðu ráðgert að granda 10 flugvélum sem áttu að fljúga frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Frá þessu greindi bandaríska leyniþjónustan í kvöld.

Erlent
Fréttamynd

Skorar á yfirvöld að lengja kennaranám

Formaður Kennarasambands Íslands skorar á yfirvöld að lengja kennaranám til samræmis við nágrannalöndin til þess að bæta námsárangur í íslenskum skólum. Þá segir hann samfélagið í heild þurfa að taka á óstýrilæti og agaleysi til þess að ná sömu markmiðum.

Innlent