Fréttir
Koizumi heimsækir umdeildan helgidóm Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, ætlar í pílagrímsför að Yasukuni-helgidómum í Tókýó á morgun. Helgidómurinn er til minnis um þá Japana sem fallið hafa í styrjöldum, þar á meðal dæmda stríðsglæpamenn. Kínverjar og Suður-Kóreumenn líta svo á að helgidómurinn sé tákn um herveldisstefnu Japana á árum áður og því má búast við að heimsókn Koizumis þangað verði umdeild. Forsætisráðherrann lætur af embætti í næsta mánuði og var búist við að hann myndi heimsækja helgidóminn þann fimmtánda ágúst en þá verða liðin sextíu og eitt ár frá því að Japanar gáfust upp í síðari heimsstyrjöldinni. Erlent 14.8.2006 21:52
Myndirnar af tungllendingunni týndar Skjalaverðir í gagnasöfnum Bandarísku geimferðastofnunarinnar leita nú logandi ljósi að upprunalegu myndunum af lendingu Apollo ellefta á tunglinu. Erlent 14.8.2006 19:08
Hertar öryggisreglur í Leifsstöð Öryggisreglur hafa verið hertar til muna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Íslendingar sem hyggjast ferðast erlendis eru vafalítið óöruggir um hvað þeir mega og eiga að gera. Innlent 14.8.2006 20:52
Rafmagn komið á að nýju Rafmagn er komið á að nýju í Fellahverfi í Breiðholti, en þar og við Vesturberg og á nærliggjandi götum varð rafmangslaust um kl. 18:40 í kvöld. Bilun varð í háspennukerfinu og er nú unnið að fullnaðarviðgerð. Innlent 14.8.2006 20:19
Útilokar ekki að fjölga friðargæsluliðum Jonas Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs, leggur mikla áherslu á þátttöku Íslendinga í friðargæslu á Srí Lanka. Ákvörðun verður tekin síðar í vikunni en Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að íslenskum friðargæsluliðum verði fjölgað, þrátt fyrir vaxandi ólgu. Erlent 14.8.2006 19:03
Öryggisreglur gilda um alla flugfarþega Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að þær kröfur sem gerðar hafa verið til flugfarþega á leið til Bretlands og Bandaríkjanna gildi nú um alla farþega þar til annað verður ákveðið. Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu. Erlent 14.8.2006 18:57
Vilja stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda Sitjandi formaður fjárlaganefndar Alþingis segir að ræða verði við fjármálaráðuneytið og forstöðumenn helstu stofnana til að stöðva agaleysi í framúrkeyrslum fjárheimilda. Sem dæmi fóru Háskólinn á Akureyri og Landhelgisgæslan langt fram úr heimildum eða samtals um nærri hálfan milljarð króna. Innlent 14.8.2006 18:41
Byssurnar þagnaðar Vopnahlé Ísraelshers og Hizbollah-skæruliða gekk í gildi klukkan fimm í morgun og eftir því sem næst verður komist ríkti að mestu ró og friður á átakasvæðunum í dag. Erlent 14.8.2006 18:53
Kristinn H. býður sig fram til ritara Kristinn H. Gunnarsson hefur ákveðið að gefa kost á sér til ritara á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Hann segir áherslur sínar í velferðarmálum og öðrum málaflokkum vera þau vopn sem flokkurinn þarf á að halda til að ná sínu fyrra fylgi. Innlent 14.8.2006 18:48
Á ekki þátt í auglýsingu um "meðferð " við samkynhneigð Þjóðkirkjan þvær hendur sínar af auglýsingu Samvinnuhóps kristinna trúfélaga, þar sem fólki er boðin meðferð til að losna úr viðjum samkynhneigðar. Hún er ekki sögð í samræmi við þær áherslur sem nú eru til umræðu innan Þjóðkirkjunnar. Innlent 14.8.2006 18:35
Mótmælendur héldu starfsfólki í gíslingu Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar stormuðu inn á skrifstofu fyrirtækisins Hönnunar á Reyðarfirði í dag og héldu starfsfólki þar í gíslingu. Samtímis var farið inn á byggingarsvæði Bechtel og ALCOA og vinna þar stöðvuð. Mótmælendurnir eiga nú yfir höfði sér kæru vegna skemmdarverka og frelsissviptingar. Innlent 14.8.2006 18:43
Rafmagnslaust í Breiðholti Rafmagnslaust er í Fellunum í Breiðholti og eins Vesturbergi, Rjúpnahæð og hverfunum þar í kring. Talið er að um háspennubilun sé að ræða og er verið er að leita að biluninni. Innlent 14.8.2006 18:43
Mannskæð sprengjuárás á Srí Lanka Að minnsta kosti sjö létu lífð og tíu særðust þegar sprengja sprakk um borð í vélknúnum léttivagni í Colombo, höfuðborg Srí Lanka, í dag. Sendiherra Pakistana í landinu slapp ómeiddur úr árásinni en talið er að hún hafi beinst gegn honum. Erlent 14.8.2006 17:32
Barist við skógarelda á Spáni Svo virðist sem slökkviliðsmenn á norð vestur Spáni séu að ná tökum á skógareldum sem þar hafa logað í u.þ.b. viku. Enn logar þá á 40 stöðum. Fjórir hafa farist í eldunum. Erlent 14.8.2006 17:28
Myndir frá sjúkrabeði Castro Kúbanska ríkisdagblaðið Granma birti í dag myndir af Fidel Castro, forseta landsins, þar sem hann sem bróðir hans Raul og Hugo Chavez, forseti Venesúela heimsóttu hann á sjúkrabeði hans. Myndirnar, sem eru sjö talsins, voru birtar á vefsíðu blaðsins. Erlent 14.8.2006 17:24
11 torfærustólar teknir í notkun Íþróttasamband fatlaðra tekur í notkun 11 torfæruhjólastóla á morgun, en þeir hafa staðið óhreyfðir í átta mánuði vegna deilna sambandsins við tollayfirvöld hér á landi. Stólarnir komu til landsins í janúar. ÍF sótti um niðurfellingu aðflutningsgjalda en var hafnað. Málið var kært og var niðurfelling gjalda staðfest nú í júlí. Innlent 14.8.2006 17:09
Viðbótarfé til Líbanons Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita viðbótarfé til mannúðar- og neyðaraðstoðar í Líbanon. Það framlag nemur fjórtán komma tveimur milljónum króna. Það kemur til viðbótar tíu milljónum króna sem veittar voru í lok júlí. Framlagið núna skiptist jafnt á milli Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða Rauða krossins. Innlent 14.8.2006 17:28
Flóttamenn halda heim Líbanskir flóttamenn héldu margir hverjir til síns heima í dag þegar vopnahlé í átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða tók gildi. Þeir vonast til að geta haldið lífi sínu áfram þar sem frá var horfið áður en árásir Ísraela á Líbanon hófust fyrir rúmum fjórum vikum. Erlent 14.8.2006 17:20
FL Group tapar á öðrum ársfjórðungi FL Group hagnaðist um rúma 5,7 milljarða króna eftir skatta á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er tæpum 3,8 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Hagnaður fyrirtækisins fyrir skatta nam 6,3 milljörðum króna en hann var rúmir 2,3 milljarðar króna fyrir ári. FL Group tapaði 118 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi, sem er nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið skilaði rúmlega 1,9 milljarða króna hagnaði. Viðskipti innlent 14.8.2006 17:02
Sprengjutilræði í Pakistan á þjóðhátíðardegi Tveir létust og níu særðust þegar sprengjur sprungu á tveimur stöðu í Suðvestur-Pakistan í dag. Sú fyrri sprakk við sölubás í bænum Hub þar sem verið var að selja pakistanska fánann í tilefni af þjóðhátíðardegi Pakistana og þar létust tveir og sex særðust. Erlent 14.8.2006 14:04
Segir mótmælendur hafa haldið starfsfólki í gíslingu Hópur andstæðinga Kárahnjúkavirkjunar lét að sér kveða á Reyðarfirði í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Eskifirði fór einn maður inn á byggingarsvæði álvers Alcoa og stöðvaði þar vinnu í eina til tvær klukkustundir. Þá fór um 10 manna hópur inn á skrifstofur. Innlent 14.8.2006 14:07
Kristinn H. vill í ritaraembættið Kristinn H. Gunnarsson þingmaður Framsóknarflokksins gefur kost á sér í embætti ritara Framsóknarflokksins. Þar með hafa þrír lýst yfir vilja til að gegna embætti ritara flokksins en ný forysta verður kjörin á flokksþingi Framsóknarflokksins um næstu helgi. Auk Kristins hafa Birkir Jón Jónsson þingmaður og Haukur Logi Karlsson formaður SUF gefið kost á sér í embættið. Innlent 14.8.2006 13:58
Sandgerðisvegur lokaður í dag og á morgun Sandgerðisvegur verður lokaður frá Miðnesheiðarvegi að Garðskagavegi í dag og á morgun vegna. Fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinna að vegurinn verði þó opinn í nótt til kl. níu í fyrramálið. Vegfarendum er bent á að aka Garðskagaveg. Innlent 14.8.2006 13:15
Dregur úr sölu á nýjum íbúðum Nýjum fullbúnum íbúðum, sem standa tómar og seljast ekki, fjölgar dag frá degi á höfuðborgarsvæðinu. Á sama tíma verður víða vart tómra íbúða í grónum hverfum þaðan sem fólk er flutt í nýjar íbúðir en getur ekki selt þær gömlu. Innlent 14.8.2006 12:34
Ýjar að því að Fons kaupi aftur Sterling Berlingske Tidende í Danmörku lætur að því liggja að eignarhaldsfélagið Fons, sem í fyrra keypti dönsku flugfélögin Mersk og Sterling og seldi þau sameinuð til FL Group, muni aftur eignast Sterling á næstunni. Innlent 14.8.2006 12:31
Reglur um handfarangur rýmkaðar í Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi hafa lækkað viðbúnaðarstig í landinu vegna hryðjuverkahættu úr hættuástandi í viðbragðsstig. Um leið hafa reglur um handfarangur farþega í flugvélum verið rýmkaðar. Erlent 14.8.2006 12:26
Maður handtekinn fyrir að reyna að aka niður lögreglumenn Ökumaður á aflmiklum bíl gerði tilraun til að aka niður tvo lögreglumenn á Neshaga í Reykjavík í nótt, en þeir náðu að kasta sér frá á síðustu stundu. Innlent 14.8.2006 12:19
Ólíklegt að friðargæsluliðar verði kallaðir heim Engar ákvarðanir voru teknar um framtíð friðargæslunnar á Srí Lanka á fundi Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra með starfsbróður hennar frá Noregi sem fram fór í morgun. Ólíklegt er þó talið að íslensku friðargæsluliðarnir verði kallaðir heim. Innlent 14.8.2006 12:23
Stöðvuðu vinnu á byggingarsvæði álvers Hópur fólk sem er andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar stöðvaði í morgun vinnu á byggingarsvæði Bechtel og Alcoa á Reyðarfirði til þess að láta í ljós andstöðu sína við virkjuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá hópnum. Innlent 14.8.2006 12:15
Hjálpargögn farin að berast til S-Líbanons Hjálpargögn eru farin að berast til Suður-Líbanons, nokkrum klukkustundum eftir að vopnahlé milli Ísraels og Líbanons tók gildi. Ekki geta þó allir íbúar á svæðinu snúið til síns heima strax og hjá mörgum virðist að fáu að hverfa. Erlent 14.8.2006 11:00