Fréttir
Mannskæðar árásir á Gaza Óttast er að nokkuð mannfall hafi orðið þegar bílsprengja sprakk á Gaza-svæðinu í kvöld. Ekki liggur fyrir hve margir féllu í árásinni. Erlent 5.9.2006 22:52
Calderon réttkjörinn forseti Mexíkó Sérskipaður dómstóll í Mexíkó úrskurðaðið í dag að Felipe Calderon, frambjóðandi hægrimanna, væri réttkjörinn forseti landsins. Ætla má að vinstrimenn sætti sig ekki við þessa niðurstöðu enda hefur frambjóðandi þeirra sagt kosningasvik hafa tryggt Calderon sigur. Erlent 5.9.2006 22:48
Lögreglan gengur hart fram gegn mótmælendum og brýtur jafnvel stjórnarskrá. Hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson segir greinilegt að dagskipun lögreglunnar sé að mótmæli skuli alls ekki líðast.Hann veltir líka fyrir sér hvort andófsmenn séu á skrá lögreglunnar því reglur um þessi málefni séu ekki birtar og erfitt að afla upplýsinga. Innlent 5.9.2006 19:17
Barnasáttmáli S.þ. lögum ofar Börnum af erlendum uppruna er umsvifalaust hleypt inn í Austurbæjarskóla þó svo þau hafi ekki fengið kennitölu enda telur skólastjórinn fráleitt að brjóta gegn barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Á meðan fá utangarðsbörn af pólskum uppruna ekki að fara í skóla á Ísafirði vegna þess að dvalarleyfisumsóknir foreldra þeirra eru til meðhöndlunar í kerfinu. Innlent 5.9.2006 19:11
Níu grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Danmörku Danska lögreglan handtók í nótt níu menn, grunaða um skipulagningu hryðjuverka. Sjö þeirra búa í Vollsmose, einu úthverfa Óðinsvéa, þar sem meirihluti íbúanna er af erlendum uppruna. Flestir hinna handteknu eru þó danskir ríkisborgarar. Erlent 5.9.2006 18:40
Taka þarf höndum saman til að uppræta agaleysi í þjóðfélaginu Óvirðing í garð lögregluyfirvalda eykst stöðugt. Foreldrar, kennarar og aðrir sem koma að uppeldi barna þurfa að taka höndum saman til að uppræta agaleysi í þjóðfélaginu segir Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn. Innlent 5.9.2006 17:19
Bein íslenskra folalda notuð í vaxtahvetjandi lyf Bein íslenskra folalda eru notuð sem hráefni í vaxtahvetjandi lyf sem framleitt er í Þýskalandi. Bændur hér á landi njóta góðs af verkefninu þar sem þeir fá hærra verð greitt fyrir folöld sem notuð eru við lyfjaframleiðsluna. Innlent 5.9.2006 17:13
Stjórnarandstaða lýsi yfir samstarfsvilja Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins, telur að stjórnarandstöðuflokkarnir eigi að lýsa því yfir að þeir muni mynda velferðarríkisstjórn ef þeir fái fylgi til þess í komandi þingkosningum. Hann telur ekki aðeins mögulegt heldur líklegt að þeir nái saman ef þeir haldi rétt á spilunum. Innlent 5.9.2006 17:11
Enn barist á Srí Lanka Enn kom til átaka mili stjórnarhermanna og uppreisnarmanna Tamíltígra í austurhluta Srí Lanka í dag. Að minnsta kosti einn hermaður féll og þrettán særðust. Erlent 5.9.2006 16:37
Hálfs árs fangelsi fyrir 30 brot Tuttugu og sex ára karlmaður var í gær dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir fjölmörg hegningarlagabrot frá desember í fyrra til febrúar í ár. Um var að ræða alls þrjátíu brot á fíkniefnalögum, umferðarlögum og hegningarlögum en maðurinn á að baki langan sakaferil. Innlent 5.9.2006 16:15
Hefur afsalað sér þingmennsku Halldór Ásgrímsson, 7. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður, afsalaði sér þingmennsku með bréfi til forseta Alþingis í dag. Halldór hefur setið á þingi frá árinu 1974 til þessa dags, ef undan er skilið tímabilið nóvember til desember 1978 en þá var hann varaþingmaður Austrulandskjördæmis Sæunn Stefánsdóttir, nýkjörinn ritari Framsóknarflokksins tekur sæti Halldórs Ásgrímssonar á Alþingi. Innlent 5.9.2006 16:23
Átta ára fangelsi fyrir aðild að árásum á Balí Dómstóll á Indónesíu dæmdi í dag þrítugan mann, Abdul Aziz, í átta ára fangelsi fyrir þátt hans í sprengjuárásunum á Balí í október í fyrra. Erlent 5.9.2006 16:17
Þrír af hverjum fjórum félagsmönnum VR með hlunnindi Nær þrír af hverjum fjórum félagsmönnum VR njóta hlunninda af einhverju tagi sem hluta af launakjörum. Þetta kemur fram í launakönnun VR sem greint er frá á heimasíðu félagsins. Innlent 5.9.2006 14:32
Telur Breta verða farna frá Írak í lok árs 2007 Jalal Talabani, forseti Íraks, telur að allir breskir hermenn verði farnir heim frá Írak í lok næsta árs. Þessu lýsti hann yfir eftir fund með Margaret Beckett, utanríkisráðherra Bretlands, í dag. Erlent 5.9.2006 14:05
Boða aðgerðir vegna skerðingar á þjónustu Strætós Íbúar í Árbæ og nálægum hverfum hafa stofna undibúningshóp til að efna til aðgerða vegna niðurskurðar á þjónustu StrætóS í Árbæjarhverfi, Selási, Ártúnsholti og Norðlingaholti. Innlent 5.9.2006 14:01
Mesta hætta sem Dönum hafi stafað af hryðjuverkum Lene Espersen, dómsmálaráðherra Danmerkur, segir undirbúning hryðjuverka í landinu sem greint var frá í morgun mestu hættu sem Dönum hafi stafað af hryðjuverkum til þessa. Erlent 5.9.2006 14:00
Hraðakstursbrotum fjölgar mikið í V-Skaftafellssýslu Sjötíu prósentum fleiri ökumenn hafa verið teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Vík í Mýrdal á fyrstu átta mánuðum þessa árs en á sama tímabili í fyrra. Nærri helmingur þeirra sem teknir hafa verið eru erlendir ökumenn. Innlent 5.9.2006 12:18
Unglingsstúlkur hótuðu lögreglu öllu illu Lögreglan í Reykjavík hafði afskipti af tveimur unglingsstúlkum, 12 og 13 ára, sem létu mjög ófriðlega í fjölbýlishúsi í borginni í gærkvöld. Hvorug þeirra býr á umræddum stað en íbúar hússins kvörtuðu sáran undan framferði þeirra. Innlent 5.9.2006 12:14
Fjórir létust í sprengjutilræði í Líbanon Fjórir létust þegar vegsprengja sprakk nærri bifreið eins af yfirmönnum líbönsku leyniþjónustunnar í smábænum Remeile í Suður-Líbanon í morgun. Mennirnir sem létust voru allir lífverðir yfirmannsins sem heitir Samir Shehadeh, en hann særðist í tilræðinu ásamt þremur öðrum. Erlent 5.9.2006 12:08
Fyrrverandi lögreglumaður sektaður fyrir munntóbakssmygl Fyrrverandi lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli hefur verið dæmdur til 7.500 króna sektargreiðslu fyrir ólöglegan innflutning á munntóbaki. Maðurin var ákærður fyrir að misnota stöðu sína sem lögreglumaður á Keflavíkurflugvelli og tekið á móti 30 dósum af munntóbaki úr hendi karlmanns, sem kom með flugi frá Stokkhólmi. Innlent 5.9.2006 12:31
Ósætti með að tillaga var ekki rædd í menntaráði Samfylkingin segir meirihlutann í borgarstjórn hafa beitt fljótfærnislegum vinnubrögðum þegar tillaga um að borgin hefji undirbúning á rekstri framhaldsskóla í tilraunaskyni var felld í menntaráði í gær, án umræðu. Innlent 5.9.2006 12:32
Esso og Atlantsolía lækka eldsneytisverð Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og sextíu aura og lítrann af dísilolíu um ena krónu og tíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 122 krónur og sextíu aura en dísillítrinn kostar hins vegar 119 krónur og níutíu aura. Innlent 5.9.2006 12:05
Hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið Níu ungir menn voru handteknir í Óðinsvéum í Danmörku í nótt, grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. Danska leyniþjónustan hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið. Erlent 5.9.2006 12:02
Spá minni vöruskiptahalla Greiningardeild Glitnis segir útlit fyrir að innflutningur hafi dregist verulega saman í ágúst og útflutningur aukist nokkuð frá fyrri mánuði. Megi því búast við því að vöruskiptahalli hafi dregist töluvert saman milli mánaða. Methalli varð á vöruskiptum í júlí. Viðskipti innlent 5.9.2006 11:25
Fólk leggi tímanlega af stað fyrir landsleik Löregla beinir þeim tilmælum til þeirra sem ætla á landsleik Íslands og Danmerkur á Laugardalsvelli á morgun að leggja tímanlega af stað og sýna þolinmæði. Búist er við mikilli umferð vegna leiksins sem hefst um klukkan sex, en uppselt er á leikinn og verða áhorfendur tæplega 10 þúsund. Innlent 5.9.2006 11:05
Huntley fluttur meðvitundarlaus á spítala Ian Huntley, maðurinn sem dæmdur var fyrir morðin á tveimur stúlkum í Bretlandi árið 2003, var fluttur á sjúkrahús eftir að hann fannst meðvitundarlaus í fangaklefa sínum. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti Bretlands í dag. Erlent 5.9.2006 10:42
Atlantsolía lækkar eldsneytisverð Atlantsolía hefur ákveðið að lækka verð á bensínlítranum um eina krónu og lítrann af dísilolíu um fimmtíu aura. Eftir lækkunina kostar bensínlítrinn 123,2 krónur og 122,2 fyrir dælulyklahafa. Dísillítrinn kostar hins vegar 120,5 krónur og 119,5 krónur fyrir dælulyklahafa. Innlent 5.9.2006 10:39
Vináttuhlaupinu lýkur hér á landi World Harmony Vináttuhlaupinu lýkur formlega nú fyrir hádegi þegar hlauparar Vináttuhlaupsins ásamt krökkum úr Austurbæjarskóla hlaupa frá Hallgrímskirkju niður í Ráðhús Reykjavíkur. Innlent 5.9.2006 10:16
Gistinóttum fjölgar um 11 prósent milli ára Gistinóttum á hótelum í júlí fjölgaði um 11 prósent í júlí síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra. Þær voru tæplega 176 þúsund í þarsíðasta mánuði en 158.000 í sama mánuði árið 2005. Innlent 5.9.2006 09:55
Nýr yfirmaður Vodafone í Evrópu Vittorio Colao hefur verið ráðinn sem nýr yfirmaður farsímarisans Vodafone í Evrópu. Hann hefur störf í október. Colao tekur við að Bill Morrow, fyrrum yfirmanni Vodafone, sem lét af skyndilega af störfum hjá farsímarisanum af persónulegum ástæðum í júlí. Viðskipti erlent 5.9.2006 10:13