Fréttamaður

Magnús Jochum Pálsson

Magnús er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Endur­skipu­leggja reksturinn „í vin­semd og virðingu“

Stofnendur umboðsskrifstofunnar Atelier Agency, Guðmundur Birkir„Kíró“ Pálmason og Kristjana Björk Barðdal, hafa endurskipulagt rekstur fyrirtækisins og stofnað nýju umboðsskrifstofuna og ráðgjafafyrirtækið Fura media. Um leið hættir Kristjana sem umboðsmaður Guðmundar.

Devin Booker á Ís­landi

Körfuboltastjarnan Devin Booker er staddur á Íslandi og fór bæði í Fjaðrárgljúfur og að eldstöðvum Sundhnúksgígaraðar.

„Þetta hefur öfug á­hrif og fólki líður bara verr“

Sjálfsræktarskilaboð sem leggja áherslu á ábyrgð einstaklingsins á eigin hamingju hafa neikvæð áhrif á þá sem glíma við kvíða, þunglyndi eða neikvæða sjálfsímynd. Að kenna fólki í fátækt um eigin heilsufarsvanda án þess að horfa til samfélagslegra þátta sé óraunhæf einföldun.

Vera Illuga leiðir á­horf­endur gegnum skilnað

Fyrsta stiklan úr nýjustu mynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar er komin á Vísi. Hin þýða rödd Veru Illugadóttur leiðir áhorfendur inn í veröld fjölskyldu sem er á barmi skilnaðar líkt og um væri að ræða sögulegan viðburð.

Loft­gæði mun betri á höfuð­borgar­svæðinu

Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast töluvert betri í dag en í gær. Enn er þó svifryksmengun yfir Reykjanesskaga og á Ísafirði mælast loftgæði óholl. Á miðvikudag gæti síðan aftur farið að byggjast upp mengun á gosstöðvunum vegna hægs vinds.

Pöntuðu „perrapizzu“ með flugi frá Ísa­firði

Bókaklúbburinn Gormar pantaði pítsur frá Hamraborg á Ísafirði með flugi því barnaperri í glæpasögunni Hildi eftir Satu Rämö elskar að fá sér Hamraborgarpítsu með rækjum, ananas og kjúklingi. Pítsurnar voru barnaafmælisvolgar en ljúffengar.

Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum

Neysla á ketamíni hefur aukist verulega á síðustu árum og síaukið magn mælist í fráveitu. Lögregla hefur lagt hald á yfir þrjúhundruðfalt meira magn af efninu það sem af er ári en allt árið 2022.

Sjá meira