

Sjávarútvegur

Þrettán milljarða króna söluhagnaður Hvals
Hvalur, sem er að stórum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar og fjölskyldu, bókfærði liðlega 13 milljarða króna hagnað af sölu hlutabréfa á síðasta rekstrarári, frá október árið 2017 til september árið 2018, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins, en hagnaðurinn skýrist að mestu af sölu dótturfélagsins Vogunar á þriðjungshlut í HB Granda.

Hvalvertíðin blásin af, veiðileyfi kom of seint
Engar hvalveiðar verða þetta sumarið hjá Hval hf. Skýringin er sögð sú að veiðileyfi hafi komið of seint til að nægur tími gæfist til að ljúka nauðsynlegu viðhaldi á hvalbátunum.

Bálreiðir netverjar herja á sjómennina tvo: „Er allt í lagi að limlesta börnin mín og drekkja þeim af því að ég er svo ógeðslegur?“
Leikarinn Jason Momoa birti á Instagram nöfn skipverjanna sem skáru sporðinn af hákarli og slepptu aftur út í sjó. Síðan þá hafa þeir orðið fyrir miklu níði á samfélagsmiðlum.

Einn nýjasti togari HB Granda seldur til Rússlands
Aðeins tvö ár eru síðan Engey RE 1 kom til landsins.

Jason Momoa lætur skipverjana á Bíldsey heyra það
Leikarinn Jason Momoa er harðorður í garð skipverjanna á bátnum Bíldsey SH-65.

Rís upp til varnar skipverjum á Bíldsey
Ólafur Arnberg sjómaður til áratuga segir til skammar að sjómennirnir hafi verið reknir.

Formlegt samstarf um eldsvoða á sjó ekki til staðar
Slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins segir ramma skorta utan um eldsvoða úti á rúmsjó í íslenskri landhelgi.

Heiðveig tekur annan formannsslag
Heiðveig María Einarsdóttir hefur tilkynnt um framboð sitt til formanns Sjómannafélags Íslands á ný.

Heiðveig María býður fram til stjórnar Sjómannafélagsins
Heiðveig María Einarsdóttir, sjómaður og viðskiptalögfræðingur, hefur ákveðið að bjóða fram til stjórnar Sjómannafélags Íslands.

Hákarl skorinn úr línu án þess að skera sporðinn
Mikið hefur verið rætt um skipverjana á Bíldsey SH 65 sem skárðu sporð af hákarli sem flæktist í línu í bátnum nýverið.

Þriðja skipverjanum sagt upp
Stjórn Sæfells hf. hefur sagt upp þriðja skipverjanum á Bíldsey SH eftir að myndbandsbrot þar sem sjá má skipverja skera sporð af hákarli og sleppa honum lausum komst í birtingu.

Búið að ræða við skipverjann sem bíður sektar eða kæru til lögreglu
Fulltrúi Matvælastofnunar hefur rætt við skipverja á Bíldsey SH sem skar sporð af hákarli sem hafði fest sig í línu bátsins.

Sjómenn miður sín vegna hákarlsmálsins
Gæti reynst erfitt fyrir sjómennina sem uppvísir urðu af dýraníði að finna sér nýtt pláss.

Skipverjunum sem skáru sporð af hákarli sagt upp
Stjórn Sæfells hf., hafa sagt upp skipverjunum tveimur sem skáru sporð af hákarli og slepptu honum svo lausum.

Skáru sporðinn af hákarli og birtu myndband á netinu
Myndskeið af tveimur skipverjum á bátnum Bíldsey SH-65 að skera sporð af hákarli er í mikilli dreifingu á netinu þessa stundina.

Innleiða hvata til að stuðla að laxeldi í lokuðum sjókvíum
Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis leggur til að frumvarp sjávarútvegsráðherra um fiskeldi verði samþykkt. Verði frumvarpið að lögum verður áhættumat vegna erfðablöndunar lögfest. Þá verða innleiddir fjárhagslegir hvatar fyrir fyrirtæki í sjókvíalaxeldi að styðjast við lokaðar sjókvíar í stað opinna.

Repjuolía á íslenska skipaflotann
Fyrsta tilraunaræktun á repju til olíuframleiðslu á Íslandi hófst 2009 á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum og hefur sú tilraun gefist vel.

Gengið „hægt en örugglega“ að ná Sóley að landi
Það er lyginni líkast hve vel hefur gengið að ná rækjutogaranum Sóley Sigurjóns GK200, frá Garði, að landi á Akureyri samkvæmt Finni Sigurbjörnssyni, skipstjóra á Múlabergi, en áhöfn skipsins tók Sóleyju í tog eftir að eldur kom upp þar um borð á föstudaginn.

Rafmagnstöflur brunnu í vélarrúmi Sóleyjar
Rafmagnstöflur brunnu í vélarrúmi rækjutogarans Sóleyjar Sigurjóns þegar eldur kom upp á tíunda tímanum í gærkvöldi. Vegna rafmagnsleysis hefur ekki verið unnt að draga tvö troll skipsins inn og því er tímafrekt að draga skipið til Akureyrar, að sögn skipstjóra rækjutogarans Múlabergs sem dregur Sóleyju til hafnar.

Fyrirtæki í eigu eiginmanns þingkonu vill veiða hrefnu á nýjan leik
Þrjú fyrirtæki hafa óskað eftir því við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið að fá leyfi til hvalveiða til ársins 2023. Eitt fyrirtækið er í eigu eiginmanns þingmanns Framsóknarflokksins.

Segir sjómenn miklu kynþokkafyllri en bændur
Jonni Þorvaldar skorar á aðra sjómenn að stíga ölduna og fækka fötum.

Telur eldismenn makka með stjórnvöldum um frumvarp um fiskeldi
Lögfræðiálit SFS ekki lagt fram opinberlega.

Óska eftir rannsókn á meintum ólöglegum veiðum Hvals hf.
Jarðarvinir hafa óskað eftir því að lögreglustjórinn á Vesturlandi taki til tafarlausrar rannsóknar og eftir atvikum sæki forsvarsmenn Hvals hf. til saka þar sem þeir telja veiðileyfi þeirra hafa runnið út árið 2018.

Aflaverðmæti strandveiða gæti orðið fimm milljónir á hvern bát
Strandveiðarnar fóru vel af stað á þessum fyrsta veiðidegi sumarsins. Búist er við að allt að sexhundruð smábátar verði á strandveiðunum í sumar.

Telja makrílfrumvarp sjávarútvegsráðherra í þágu stærri útgerðarfyrirtækja
Verði frumvarp sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu makríls að lögum mun það fækka enn frekar þeim smábátum sem möguleika hafa á að stunda makrílveiðar að mati smábátaeigenda. Í frumvarpinu er miðað við tíu ára veiðireynslu sem hentar helst stærri útgerðum sem mokveiddu makríl á fyrstu árunum eftir hrunið.

Búist við 500-600 bátum á strandveiðum í sumar
Fyrsti dagur strandveiðanna er í dag að þær færa jafnan mikið líf í hafnir landsins hringinn í kringum landið. Breytt lög tryggja hverjum báti núna að lágmarki tólf veiðidaga í hverjum mánuði.

Ríkissaksóknari vill halda áfram rannsókn
Af fjórum kæruatriðum Jarðarvina gegn vinnubrögðum Hvals hf. eru tvö enn til rannsóknar. Lögreglustjórivildi hætta rannsókn á brotum er varða verkunaraðferðir Hvals en ríkissaksóknari skipaði að rannsókn skyldi halda áfram.

Samherji kærir stjórnendur Seðlabankans til lögreglu
Höfða einnig skaðabótamál.

Myndavélakerfi þurfi í fiskiskip til að koma í veg fyrir brottkast
Fiskistofustjóri telur myndavélakerfi í skipum og bátum nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að fiski sé kastað aftur í hafið. Alls eru sjö mál til rannsóknar hjá stofnuninni vegna meints ólöglegs brottkasts afla.

Fiskistofa rannsakar að minnsta kosti sjö skip og báta vegna meints ólöglegs brottkasts
Fiskistofa hefur alls sjö mál til rannsóknar hjá stofnuninni vegna meints ólöglegs brottkasts á skipum og bátum. Forstjóri Fiskistofu segir að nýlega hafi að minnsta kosti fjögur mál komið upp við eftirlit stofnunarinnar og þá sé verið að rannsaka meint brottkast þeirra þriggja fiskibáta sem Landhelgisgæslan myndaði. Gögn bendi til umfangsmikils brottkasts