
Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“
Eygló Fanndal Sturludóttir er komin heim frá Moldóvu með EM gullmedalíu í farteskinu. Framundan hjá henni er heimsmeistaramót og undirbúningsvinna fyrir Ólympíuleikana, þar sem hún ætlar að sækja gullverðlaun, sem Vésteinn Hafsteinsson er viss um að hún geti.