

Olís-deild karla
Leikirnir

Tveir Brassar til viðbótar á leið til Harðar
Ef allt gengur eftir teflir Hörður fram fjórum brasilískum leikmönnum í Olís-deild karla í vetur.

Harðarmenn sækja áfram á brasilísk mið
Hörður heldur áfram að safna liði og hefur samið við brasilískan miðjumann, Jhonatan Cristiano Ribeiro Dos Santos.

Kross 3. umferðar: Mutombo á Ísafirði og bangsaknús Róberts
Þriðja umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Handkastið um Stjörnuna: „Þeirra bestu leikmenn eru ekki að stíga upp og þá endar þetta svona“
„Á meðan tveir af bestu leikmönnum deildarinnar, eins og er endalaust verið að tala um, eru með fretið upp á bak - Hergeir [Grímsson] og Tandri Már [Konráðsson] - þá fer þetta svona hjá Stjörnunni,“ sagði Styrmir „Snickers“ Sigurðsson í síðast þætti af Handkastinu þar sem farið var yfir óvæntan sigur Gróttu á Stjörnunni í Olís deild karla í handbolta.

Þreyttur á umræðunni um Gróttu: „Þetta eru ekki einhverjir gúbbífiskar“
Arnar Daði Arnarsson segir tíma til kominn að Grótta sé tekin alvarlega sem gott Olís-deildarlið.

„Þetta er Klopp-syndrome“
Farið var yfir stemninguna hjá Gróttu í síðasta þætti Seinni bylgjunnar. Róbert Gunnarsson, þjálfari liðsins, fagnaði sigrinum á Stjörnunni vel og innilega með leikmönnum sínum.

„Ungur strákur sem átti margt ólært“
Slegið var á létta strengi í síðasta þætti Seinni bylgjunnar. Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi hafði nefnilega grafið upp fermingarmyndir af sérfræðingum þáttarins sem og sjálfum sér. Ásamt Stefáni Árna voru þeir Þorgrímur Smári Ólafsson og Jóhann Einar Gunnarsson að þessu sinni.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Valur 18-27 | Valur ekki í vandræðum með nýliðana
Valur var ekki í vandræðum með nýliða Selfoss í 2. umferð Olís deildar-kvenna. Varnarleikur Vals var vel skipulagður sem Selfyssingar áttu engin svör við. Valur var sex mörkum yfir í hálfleik og setti tóninn strax í upphafi síðari hálfleiks og áttu nýliðarnir aldrei möguleika. Valur endaði á að vinna níu marka sigur 18-27. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Magnús Óli: Öflugur varnarleikur lykillinn að þessum sigri
Magnús Óli Magnússon var sáttur við spilamennsku Valsliðsins þegar liðið vann sannfærandi sigur gegn FH í þriðju umferð Olís deildar karla í handbolta í Kaplakrika í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: FH-Valur 28-33 | Íslandsmeistararnir áfram á sigurbraut
Íslandsmeistarar Vals unnu fimm marka sigur á FH í Olís deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 33-28 gestunum í vil sem byrja mótið á þremur sigrum. FH er á sama tíma án sigurs.

Þór fær risavaxna króatíska skyttu sem á leiki í Meistaradeildinni
Þór Akureyri, sem leikur í Grill 66 deild karla, hefur samið við króatísku skyttuna Josip Vekic.

Einar: Við fokkuðum upp lokamínútunni í síðasta leik og nú klárum við þetta
Fram sigraði í kvöld Aftureldingu upp í Úlfarsárdal með tveimur mörkum, 28-26 lokatölur. Einar Jónsson, þjálfari Fram, var að vonum ánægður með leik og hugarfar sinna manna.

Umfjöllun og viðtöl: Fram-Afturelding 28-26 | Framarar enn taplausir eftir þrjár umferðir
Fram vann í kvöld sinn annan sigur í Olís-deild karla þetta tímabilið með sigri á Aftureldingu í Úlfarsárdal. Lokatölur 28-26, í kaflaskiptum spennutrylli.

Umfjöllun og viðtal: Haukar - Selfoss 27-26 | Haukar unnu í spennutrylli að Ásvöllum
Haukar unnu eins marks sigur á Selfossi í þriðju umferð Olís-deildar karla í handknattleik í kvöld. Lokatölur 27-26 þar sem Stefán Huldar Stefánsson markvörður Hauka var hetja þeirra í lokin.

„ Við ætlum að njóta í kvöld en þetta er langhlaup“
„Mér líður náttúrulega bara mjög vel og nú féll þetta okkar megin. Þetta var alveg eins, næstum því, fyrir viku síðan á móti Selfossi og þá féll þetta ekki með okkur. Það var mjög þung vika og erfitt að tapa, við erum allir keppnismenn en núna erum við allir mjög glaðir. Við ætlum að njóta í kvöld en þetta er langhlaup,“ sagði Róbert Gunnarsson, þjálfari Gróttu, eftir sigur á Stjörnunni í kvöld.

Rúnar: Síðustu tuttugu mínúturnar spiluðum við 5-0 vörn, það var ekkert annað í boði
„Við vorum ekki jafn beittir fyrstu tíu mínúturnar í seinni hálfleik eins og við vorum í fyrri. Síðustu tuttugu mínúturnar í leiknum erum við bara meira og minna einum færri. Þetta var mjög strembið, mér fannst við alltaf vera einum færri,“ sagði Rúnar Sigtryggsson þjálfari Hauka eftir eins marks sigur hans manna gegn Selfyssingum í Olís-deildinni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-ÍR 43-28 | Stórsigur Eyjamanna gegn nýliðum ÍR
ÍBV tók á móti ÍR í Olís-deild karla í handbolta í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn í leit að sínum fyrsta sigri en ÍR með það í huga að sjokkera annað stórlið eftir sigur á Haukum. Golíat hafði hinsvegar betur gegn Davíð og vann ÍBV með fimmtán mörkum, 43-28.

Umfjöllun: Hörður-KA 27-31 | Fyrsti heimaleikur Harðar í efstu deild endaði með tapi
Hörður á Ísafirði spilaði sinn fyrsta heimaleik í efstu deild er KA mætti í heimsókn vestur á firði í kvöld. Gestirnir höfðu forystuna frá upphafi til enda og unnu að lokum fjögurra marka sigur, 27-31.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Stjarnan 29-28 | Grótta vann á Nesinu
Grótta og Stjarnan áttust við á Seltjarnarnesi í Olís-deild karla í kvöld. Leikurinn var hnífjafn bróðurpart leiksins en áræðni Gróttumanna sigldi þessu heim. Lokatölur 29-28.

Leigir fimm samherjum sínum sem stökkva stundum í barnapössun
Óli Björn Vilhjálmsson, fyrirliði Harðar, segir að Ísfirðingar bíði í ofvæni eftir fyrsta heimaleik sínum í efstu deild. Þrátt fyrir að leikmenn Harðar komi víða að er leikmannahópurinn samheldinn sem sést best á búsetu erlendu leikmanna liðsins.

Talaði við fjölskylduna, fór til Noregs og þeim leist best á mig
Tvær af allra stærstu handboltastjörnum heims eru í hópi skjólstæðinga umboðsmannsins Arnars Freys Theodórssonar sem var gestur í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar í vikunni.

Kross 2. umferðar: Svín flugu í Skógarseli
Önnur umferð Olís-deildar karla í handbolta fór fram í síðustu viku. Hverjir áttu góðan dag og hverjir slæman? Hverjir þurfa að hafa áhyggjur og hvað sagði tölfræðin? Vísir fer yfir umferðina á léttum og gagnrýnum nótum.

Valskonur einar um að fljúga frá Íslandi
Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli.

Handkastið: „Þolpróf dómara er leikþáttur“
Ekki virðast vera gerðar miklar þolkröfur til dómara í Olís-deildunum í handbolta eins og fjallað var um í Handkastinu.

Logi um ótrúlegan sigur ÍR: „Orka sem Haukarnir náðu ekki að brjóta“
„Við ætlum að fara í einhvern ótrúlegasta handboltaleik sem hefur verið spilaður á landinu í mörg ár,“ sagði Stefán Árni Pálsson í síðasta þætti Seinni bylgjunnar er umræðan snerist að ótrúlegum leik ÍR og Hauka í Olís deild karla í handbolta á föstudaginn var.

Umfjöllun og viðtöl: KA-ÍBV 35-35 | Dramatískt jafntefli tryggði liðunum sín fyrstu stig
KA og ÍBV gerðu 35-35 jafntefli í annari umferð Olís-deildar karla í handbolta í KA-heimilinu í dag. Heimamenn leiddu með þremur mörkum í hálfleik en Eyjamenn sýndu styrk sinn í þeim seinni og komust yfir þegar fjórar mínútur voru eftir. KA tókst þó að jafna og liðin skiptu því stigunum á milli sín.

„Ég er bara helvíti sáttur með þetta“
KA og ÍBV gerðu dramatíkst 35-35 jafntefli í KA-heimilinu í dag. KA leiddi í fyrri hálfleik en Eyjamenn komu sterkir inn í síðari hálfleik og úr varð alvöru leikur.

„Gefur þeim ákveðið forskot á leikmenn á sama aldri í öðrum löndum“
„Ég held að fyrsta tímabilið hafi verið þegar ég var nýorðinn sextán ára,“ sagði Arnór Atlason aðspurður hvenær hann hefði byrjað að spila með meistaraflokki í handbolta. Arnór, sem er í dag aðstoðarþjálfari danska stórliðsins Álaborgar sem og danska U-20 ára landsliðið ræddi við þá Stefán Árna Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson í hlaðvarpi Seinni bylgjunnar.

„Þeir verða alls ekkert fallbyssufóður í vetur“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var skiljanlega sáttur með fyrri hálfleikinn gegn Herði enda unnu meistararnir hann, 22-9.

„Vandamálið var að við spiluðum í þrjátíu mínútur en ekki sextíu“
Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar, sagði að fyrri og seinni hálfleikurinn gegn Val hefði verið eins og svart og hvítt.