

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Sá sem liggur undir grun laus úr haldi lögreglu
Karlmaður sem var handtekinn í þágu rannsóknar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna í húsi við Auðbrekku í Kópavogi í fyrrinótt er laus úr haldi. Húsið var ekki samþykkt íbúðahúsnæði.

Neitaði ítrekað að lækka háttstillta tónlist
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði ítrekuð afskipti af manni í nótt vegna hávaða frá heimili hans. Um var að ræða verulega háttstillta tónlist en maðurinn var í annarlegu ástandi. Var hann ítrekað beðinn um að lækka og að lokum tilkynnt að hann yrði ákærður fyrir brot á lögreglusamþykkt.

Slógust á Selfossi og talið að myndband sé í dreifingu
Til átaka kom meðal fjögurra drengja á unglingastigi á Selfossi um tíuleytið í morgun. Þetta kemur fram í tölvupósti skólastjóra Vallaskóla til foreldra og forráðamanna. Hann segir hluta drengjanna nemendur við skólann og grunur á að myndskeið af átökunum sé í dreifingu. Hugrakkt starfsfólk hafi skorist í leikinn.

Skemmdarverk unnin á rússneska sendiherrabústaðnum
Skemmdarverk hafa verið unnin á húsi rússneska sendiráðsins við Garðastræti í Reykjavík. Lögreglu barst tilkynning fyrir hádegi í dag um að spreyjað hafi verið á vegg sendiherrabústaðsins.

Handtekinn vegna brunans í Auðbrekku
Einn hefur verið handtekinn í tengslum við eldsvoðann í íbúðarhúsnæði við Auðbrekku í Kópavogi í nótt, grunaður um íkveikju. Þetta staðfestir Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi.

Þegar kerfið segir nei
Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel ekki til að hætta ógnandi samskiptum verða þau að martröð. Þá verðum við að treysta á aðstoð lögreglu og dómskerfisins. En hvað ef kerfið segir nei?

Er allt í góðu?
Kynferðisbrot eru ólíðandi glæpur og samfélagsmein sem berjast þarf gegn með öllum tiltækum ráðum. Frá því ég tók við sem dómsmálaráðherra hef ég lagt mikla áherslu á aðgerðir til að sporna við kynferðisofbeldi.

Neitaði að yfirgefa hótel í miðborginni
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu þurfti að sinna ýmsum verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Talsvert var um umferðaróhöpp og að ökumenn hafi verið stöðvaðir undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Munu kæra ef lögreglan heldur yfirheyrslum til streitu
Ritstjóri Kjarnans á ekki von á að lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra muni halda til streitu yfirheyrslum á fjórum blaðamönnum eftir að héraðsdómur kvað upp úr um ólögmæti þess að einn þeirra yrði yfirheyrður með stöðu sakbornings. Hann segist munu kæra ef lögreglan geri slíkt.

Skera upp herör gegn kynferðisofbeldi á djamminu
Dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan kynntu vitundarvakningu gegn kynferðisofbeldi á blaðamannafundi í dag. Tilkynntum nauðgunum fækkaði um 43% árið 2020 þegar samkomutakmarkanir voru í hámarki.

Rússneskir fjölmiðlar fjalla um „árás“ á sendiráðið í Reykjavík
Rússneskir fjölmiðlar hafa það eftir Míkhaíl Noskov, sendiherra Rússlands á Íslandi, að ráðist hafi verið á sendiráð Rússlands í Reykjavík. Lögregla staðfestir að afskipti hafi verið höfð af einstaklingi við sendiráðið í gær, en skráði ekkert um ofbeldi eða skemmdarverk í kerfi sitt.

Saksóknari segir viðkvæma blaðamenn eiga heima í blómaskreytingum
Lögregluembættið á Norðurlandi eystra var gripið í landhelgi þegar það gaf Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni réttarstöðu sakbornings og vildi yfirheyra hann sem slíkan. Héraðsdómur segir það ólögmætt. Lögregluembættið fyrir norðan ætlar að kæra úrskurðinn til Landsréttar.

Handteknir eftir tölvustuld á hóteli
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo karlmenn vegna gruns um að hafa stolið tölvum af hóteli í miðbæ Reykjavíkur um klukkan 17 í gær.

Mikill erill fyrstu djammnóttina eftir afléttingar
Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt ef marka má dagbók hennar. Sextíu og átta mál voru skáð frá klukkan 17 í gærkvöldi til klukkan fimm í morgun. Þrír gistu fangageymslur og níu ökumenn voru teknir fyrir akstur undir áhrifum.

Skotárásin í Grafarholti: Tveir úrskurðaðir í áframhaldandi varðhald
Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði í dag tvo karlmenn í áframhaldandi gæsluvarðhald til föstudagsins 4. mars vegna rannsóknarinnar á skotárásinni í Grafarholti í Reykjavík að morgni 10. febrúar síðastliðinn.

Ágreiningur um fjölda skota og staðsetningu lögreglumanns
Lögreglumenn sem tóku þátt í aðgerðum vegna skotárásar á Egilsstöðum í ágúst báru vitni fyrir Héraðsdómi Austurlands í gær. Lögreglumaðurinn sem skaut manninn taldi sig hafa skotið mun sjaldnar úr byssu sinni en kom í ljós í vettvangsrannsókn.

Blaðamenn segja greinargerðina einkennast af dylgjum og getgátum
Ýmissa grasa kennir í greinargerð Eyþórs Þorbergssonar aðstoðarsaksóknara, þar sem afstaða Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra og lögregluembættisins birtist til rannsóknar á hlut blaðamanna í sakamáli sem snýr að eitrun, símastuldi og svo dreifingu kynferðislegs efnis.

Óvissustigi lýst yfir vegna slæmrar veðurspár
Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugular viðvaranir á morgun og nú er einnig búið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna veðursins sem framundan er.

Sagðist hafa ætlað að láta lögreglu binda enda á líf sitt
Árnmar Jóhannes Guðmundsson, sem skotinn var af lögreglu eftir að hann skaut af byssu á íbúðarhús á Egilsstöðum í ágúst, neitar því að vera sekur um tilraun til manndráps er hann hleypti af byssu í átt að lögreglumönnum á vettvangi. Í dómsal í dag sagðist Árnmar hafa, eftir að það hafði runnið upp fyrir honum hvað hann hafði gert, ætlað að láta lögreglu binda enda á líf sitt. Hann lýsti yfir mikilli eftirsjá vegna málsins.

„Eitt umfangsmesta og alvarlegasta dýravelferðarmál“ sem komið hafi upp hér á landi
Matvælastofnun hefur kært til lögreglu alvarlega vanrækslu á búfé á nautgripa- og sauðfjárbúi á Vesturlandi. Stofnunin segir á þriðja tug nautgripa og um tvö hundruð fjár, auk fimm hænsna, hafi drepist eða verið aflífuð vegna skorts á fóðri og brynningu.

Grunaðar um þjófnað úr verslun í verslunarmiðstöð
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um þjófnað í verslun í verslunarmiðstöð í hverfi 103 í Reykjavík upp úr klukkan 18:30 í gærkvöldi. Tvær konur eru þar grunaðar um að hafa stolið vörum að verðmæti 60 þúsund króna.

Lögmaður Aðalsteins: Fjarstæðukennt að blaðamenn hafi gerst sekir um kynferðisbrot með því að skoða efni
Tekist var á um meint brot blaðamanna í tengslum við umfjöllun um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja í Héraðsdómi Norðurlands eystra í dag. Tíðindamaður Vísis var á vettvangi og færði til bókar það helsta. Saksóknari telur ljóst að blaðamennirnir hafi gerst sekir um stafrænt kynferðisbrot en lögmaður blaðamanns segir hann ekki hafa séð umrætt efni og kenningu lögreglu líkjast samsæriskenningu.

Blaðamennirnir grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni
Greinagerð Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra vegna rannsóknar á blaðamönnum vegna umfjöllunar um hina svokölluðu Skæruliðadeild Samherja var lögð fram fyrir dómi í dag en þar kemur fram að lögregla rannsaki kynferðisbrot gegn Páli Steingrímssyni, skipstjóra Samherja. Blaðamennirnir fjórir eru grunaðir um dreifingu á kynferðislegu efni og brot á friðhelgi.

Meint brot blaðamanna tengjast ekki gögnum sem birtust í umfjöllun um Samherja
Fyrirhuguð skýrslutaka lögreglustjórans á Norðurlandi eystra yfir fjórum blaðamönnum tengist ekki þeim gögnum sem voru birt í umfjöllun þeirra um hina svo kölluðu „skæruliðadeild“ Samherja. Blaðamennirnir eru grunaðir um brot gegn friðhelgi einkalífs vegna annarra gagna en þeirra sem notuð voru í viðkomandi umfjöllun.

Gaf lögreglu upp rangt nafn og reyndist próflaus
Hæst bar í störfum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt að lögregla stöðvaði ökumann á öðrum tímanum sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna, ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum og að hafa gefið lögreglu rangar upplýsingar þegar hann var spurður um skilríki og nafn.

Fjölga á tilkynningum um kynferðisbrot til lögreglu
Frá árinu 2010 hefur tilkynningum vegna kynferðisofbeldis fjölgað nær stöðugt hjá lögreglu. Fjölgun eða fækkun skráðra kynferðisbrota getur verið vegna raunverulegra breytinga í samfélaginu en einnig vegna ytri þátta sem hafa áhrif á skilgreiningu brota og það hvort þau eru tilkynnt eða ekki.

Kölluð út vegna alelda bíla í Kópavogi
Slökkvilið og lögregla á höfuðborgarsvæðinu voru kölluð út eftir að tilkynnt var um eld í bíl í hverfi 203 í Kópavogi um miðnætti.

Leit að Sigurði ekki enn borið árangur
Leit stendur enn yfir að Sigurði Kort Hafsteinssyni, 65 ára gömlum karlmanni sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag. Leit fór fram við Kársnesið í dag en sú leit bar ekki árangur.

Lýsa eftir Sigurði Kort
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Kort Hafsteinssyni sem er 65 ára. Hann er 184 sentimetrar á hæð, grannvaxinn og með grásprengt hár.

Mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði
Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, og Heiðar Örn Sigurfinnsson, fréttastjóri Ríkisútvarpsins, segja mikilvægt að fjölmiðlar geti tekið við upplýsingum í trúnaði og án þess að þurfa að gera grein fyrir uppruna þeirra.