„Mér líður pínu eins og ég hafi verið að vakna úr dvala“ Í kjölfar stórkostlegar velgengni fyrstu útgáfu Global Music Match árið 2020 snýr samstarfsverkefnið aftur frá 7. júní en alls kemur 78 tónlistarfólk frá 17 löndum og fjórum heimsálfum til með að taka þátt. Lífið 4. júní 2021 13:01
Hópsýking hjá hælisleitendum Sjö greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Um er að ræða hópsmit hjá hælisleitendum á höfuðborgarsvæðinu að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Innlent 4. júní 2021 11:39
Sjö greindust með Covid-19 í gær og allir utan sóttkvíar Sjö greindust með Covid-19 í gær. Allir voru utan sóttkvíar við greiningu. Innlent 4. júní 2021 10:57
Svona raðast árgangarnir í bólusetningu næstu þrjár vikur Dregið var í handahófskennda bólusetningarröð árganga 1976 til 2005 klukkan tíu í morgun. Vísir var í beinu streymi frá drættinum. Innlent 4. júní 2021 09:31
Segir Delta afbrigðið 30 til 100 prósent meira smitandi Hið svokallaða Delta-afbrigði kórónuveirunnar SARS-CoV-2, áður kennt við Indland, er 30 til 100 prósent meira smitandi en Alfa-afbrigðið, áður kennt við Bretland. Þetta segir einn helsti sérfræðingur Breta í smitsjúkdómum. Erlent 4. júní 2021 09:00
Panta 300 milljónir skammta af ósamþykktu bóluefni Indversk stjórnvöld hafa pantað 300 milljónir skammta af bóluefni við kórónuveirunni sem ekki hefur verið samþykkt af lyfjaeftirliti landsins. Önnur bylgja faraldursins ríður nú yfir landið og á annað hundrað þúsund greinast með veiruna á hverjum degi. Erlent 4. júní 2021 08:48
Bólusettir en Covidþreyttir samstarfsfélagar Það neita því fæstir að heimsfaraldurinn hefur tekið á. Sóttvarnarreglur, boð og bönn, fjarvinna, lokun vinnustaða, hólfaskiptir vinnustaðir, öðruvísi matartímar, atvinnumissir, jólakúlur, páskakúlur, grímuskylda og spritt. Atvinnulíf 4. júní 2021 07:01
Fyrsta skemmtiferðaskipið frá upphafi faraldursins leggur að bryggju í Feneyjum Fyrsta skemmtiferðaskipið hefur lagt að bryggju í Feneyjum frá því að kórónuveirufaraldurinn skall á, þrátt fyrir að slík skip megi ekki koma nálægt miðborg Feneyja. Erlent 3. júní 2021 21:38
Svíþjóð orðin grá á Covid-kortinu Ísland er enn flokkað grænt á uppfærðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu, sem segir til um stöðuna í hverju ríki vegna kórónuveirufaraldursins. Stór hluti Finnlands er nú einnig flokkaður sem grænt svæði. Erlent 3. júní 2021 18:58
Bandaríkin ætla að gefa 80 milljónir skammta í júní Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í dag að til stæði að gefa 80 milljónir skammta bóluefna til annarra ríkja í júní. Mest allt af því mun fara til COVAX-áætlunar Sameinuðu þjóðanna en hingað til hafa ríki þar sem þörfin er mikil fengið 76 milljónir skammta í gegnum áætlunina. Erlent 3. júní 2021 18:05
Átta greindust í Færeyjum í gær Átta kórónuveirusmit greindust í Færeyjum í gær. Landlæknir Færeyja segir veiruna leika lausum hala í samfélaginu. Erlent 3. júní 2021 16:50
„Þetta hefur farið miklu betur en við reiknuðum með“ Tekjuskatts- og útsvarsstofn landsmanna hækkaði um 5,7% í fyrra frá árinu 2019 þrátt fyrir mikinn efnahagssamdrátt og stóraukið atvinnuleysi. Er það sama aukning og sást milli áranna 2018 og 2019. Hagfræðiprófessor segir að staðan hafi reynst mun betri en svartar spár gerðu ráð fyrir. Viðskipti innlent 3. júní 2021 15:30
Ábyrgð á eftirliti með vottorðum færð yfir á flugfélög Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. Innlent 3. júní 2021 14:26
Draga alla hópana á morgun og raða niður í bólusetningarröð Á morgun verður dregið um hvernig hópar í handahófskenndri bólusetningarboðun á höfuðborgarsvæðinu raðast niður. Fyrirkomulagið verður því ekki með þeim hætti að hópar verði dregnir og boðaðir samstundis, heldur mun röð hópanna liggja fyrir. Innlent 3. júní 2021 14:09
Sænsk þingnefnd segir ríkisstjórnina hafa brugðist Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur brugðist þegar kemur að viðbrögðum við heimsfaraldri kórónuveirunnar. Þetta er niðurstaða rannsóknar stjórnarskránefndar sænska þingsins sem kynnt var í dag. Erlent 3. júní 2021 12:34
Íslendingur á gjörgæslu eftir Covid-smit á Everest Íslensk-kúbverski fjallgöngumaðurinn Yandy Nunez Martinez, sem reyndi að klífa að toppi Everest í síðasta mánuði, er nú á gjörgæslu í Katmandú í Nepal eftir að hafa fengið blóðtappa í lungu ofan í Covid-19 smit. Eiginkona hans segir hann heppinn að vera á lífi en hann er nú á batavegi. Innlent 3. júní 2021 12:33
Stærð ferðaþjónustunnar ástæða lengra bataferlis Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins. Viðskipti innlent 3. júní 2021 11:11
Tæplega 300 milljarðar króna söfnuðust á áheitaráðstefnu Mögulega verður unnt að bólusetja um 30 prósent fullorðinna í þeim rúmlega 90 þjóðríkjum sem COVAX samstarfið nær til. Heimsmarkmiðin 3. júní 2021 11:02
Einn greindist innanlands Einn greindist með kórónuveiruna innanlands í gær og var viðkomandi í sóttkví við greiningu. Innlent 3. júní 2021 10:57
Vísbendingar um tengsl milli bóluefnis Pfizer og hjartavöðvabólgu Heilbrigðisráðuneyti Ísraels hefur greint frá því að vísindamenn þar í landi hafi séð nokkur tilfelli hjartavöðvabólgu meðal ungra karlmanna sem hafa fengið bóluefni Pfizer gegn kórónuveirunni og að tengsl kunni að vera þar á milli. Erlent 3. júní 2021 08:04
Helmingur belgíska EM-hópsins vildi ekki láta bólusetja sig Helmingur belgíska hópsins sem keppir á Evrópumótinu hafnaði því að láta bólusetja sig fyrir kórónuveirunni af ótta við aukaverkanir. Fótbolti 3. júní 2021 08:01
Enginn upplýsingafundur vegna Covid-19 í dag Embætti landlæknis og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa tekið þá ákvörðun að sleppa í dag vikulegum upplýsingafundi vegna stöðu kórónuveirufaraldursins, sem jafnan hefur verið haldinn á fimmtudögum. Innlent 3. júní 2021 06:31
Innlit inn í nýja sýnatökugáminn á Keflavíkurflugvelli Nýr sýnatökugámur var tekinn í notkun á Keflavíkurflugvelli fyrir helgi. Aðstoðaryfirlögregluþjónn vonar að afkastageta aukist um helming en með auknum straumi ferðamanna sé þó spurning hvenær starfsemin sprengi utan af sér þessa nýju aðstöðu. Innlent 2. júní 2021 21:54
Ísland verður síðasta þróaða ríkið til að endurheimta fyrri efnahagsstyrk Ekkert þróað ríki verður jafn lengi að endurheimta fyrri efnahagsstyrk eftir heimsfaraldurinn og Ísland, samkvæmt nýrri spá OECD. Við matið er verg landsframleiðsla á mann notuð sem mælikvarði á þetta. Innlent 2. júní 2021 17:44
Sex hópar verið dregnir og boðaðir í bólusetningu Nú hafa alls sex hópar af sextíu verið boðaðir til bólusetningar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Réttur þeirra sem fá boðun samkvæmt handahófskennda kerfinu helst áfram, þótt það komist ekki á tilsettum boðunartíma. Innlent 2. júní 2021 15:57
500 milljóna viðbótarframlag til COVAX Íslensk stjórnvöld hafa talað fyrir mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu um þróun og framleiðslu bóluefnis og jafns aðgangs ríkja óháð greiðslugetu þeirra. Heimsmarkmiðin 2. júní 2021 15:31
Stigið á bensínið og tekið á sprett til að ná í Laugardalshöll Nokkuð óðagot greip um sig í og við Laugardalshöll í gær eftir að handahófskenndar bólusetningarboðanir árganga eftir kynjum hófust á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 2. júní 2021 14:30
Pfizer gefur í og eykur bóluefnaframboð í Evrópu Gert er ráð fyrir að framboð á bóluefni Pfizer/BioNTech gegn Covid-19 muni aukast verulega á EES-svæðinu með tilkomu framleiðsluaukningar í Belgíu. Lyfjastofnun Evrópu (EMA) gaf út í gær að hún hafi mælt með samþykkt nýrra framleiðslulína í bænum Puurs þar sem ein stærsta verksmiðja Pfizer er starfrækt. Erlent 2. júní 2021 13:50
Íslensku öndunarvélarnar komnar til Indlands Fimmtán öndunarvélar og tólf þúsund töflur af veirulyfinu Favipiravir lentu í Delí á Indlandi snemma í morgun að staðartíma. Um er að ræða gjöf frá Landspítala og íslenskum stjórnvöldum vegna alvarlegrar stöðu kórónuveirufaraldursins á Indlandi. Innlent 2. júní 2021 13:24
Þrír greindust með Covid-19 í gær og einn utan sóttkvíar Þrír greindust með Covid-19 í gær, samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Tveir voru í sóttkví en einn utan sóttkvíar. Alls eru 44 í einangrun og tveir á sjúkrahúsi. Innlent 2. júní 2021 10:55