Lífið

Stjörnurnar kalla á G7 ríkin að gefa bóluefni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Velgjörðasendiherrar UNICEF sendu opið bréf til efnameiri ríkja heims. Billie Eilish, Liam Neeson, Katy Perry og Orlando Bloom eru á meðal þeirra sem skrifa undir áskorunina.
Velgjörðasendiherrar UNICEF sendu opið bréf til efnameiri ríkja heims. Billie Eilish, Liam Neeson, Katy Perry og Orlando Bloom eru á meðal þeirra sem skrifa undir áskorunina. Samsett

„Faraldurinn verður ekki búinn fyrr en hann er búinn allsstaðar og því er mikilvægt að öll samfélög, um allan heim, hafi jafnan aðgang að bóluefnum gegn COVID-19,” segir David Beckham, velgjörðarsendiherra UNICEF.

Alls 28 velgjörðarsendiherrar UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, hafa sent opið bréf til efnameiri ríkja heims þar sem þau eru hvött til að gefa umframskammta af bóluefnum til efnaminni ríkja. Ákallinu er sérstaklega beint að G7 ríkjunum sem munu hittast á leiðtogafundi í Bretlandi í dag.

Þau sem skrifa undir ákallið eru Ramla Ali, Fernando Alonso, David Beckham, Orlando Bloom, José Manuel Calderón, Sofia Carson, Gemma Chan, Priyanka Chopra Jonas, Olivia Colman, Billie Eilish, Pau Gasol, Whoopi Goldberg, David Harewood, Sir Chris Hoy, Angelique Kidjo, Téa Leoni, Lucy Liu, Juan Manuel López Iturriaga, Ewan McGregor, Alyssa Milano, Andy Murray, Liam Neeson, Liam Payne, Katy Perry, Sergio Ramos, Claudia Schiffer, Teresa Viejo og Pink.

Bréfið í heild má lesa hér.

Veiran virðir engin landamæri

Í bréfinu er ítrekað að ef efnaminni ríki eru skilin eftir þá skapast raunveruleg hætta á að veiran haldi áfram að stökkbreytast og að heimurinn endi aftur á byrjunarreit með tilheyrandi skólalokunum, röskun á heilbrigðisþjónustu og djúpstæðum áhrifum á efnahag landa. UNICEF hefur áður sent ákall til G7 ríkjanna og bent á að ef ríkin skuldbinda sig til að gefa 20% af bóluefnaskömmtum sínum fyrir lok ágúst verði hægt að dreifa yfir 150 milljónum skammta af bóluefni í gegnum COVAX-samstarfið án þess að verði neinar verulegar tafir á núverandi bólusetningaráætlunum G7 ríkjanna.

„Lönd þurfa ekki að velja á milli þess að berjast við sjúkdóminn heima fyrir eða berjast við hann erlendis. Við getum og við verðum að gera bæði samtímis og það strax. Þegar öllu er á botnin hvolft þá virðir veiran engin landamæri á korti. Barátta okkar við veiruna og afbrigði hennar ætti ekki að gera það heldur,“ segir Henrietta Fore, framkvæmdastjóri UNICEF.

Eins og staðan er nú hefur minna en eitt prósent af bóluefnum sem hafa verið framleidd skilað sér til efnaminni ríkja heimsins og COVAX-samstarfinu vantar nauðsynlega 190 milljónir skammta til að geta staðið við áætlanir sínar. Ástandið sem hefur skapast á Indlandi hefur dregið verulega úr framboði bóluefna til COVAX-samstarfsins og því er mikilvægt að efnameiri ríki, sem mörg hver hafa tryggt sér mun fleiri skammta en þau þurfa, deili þeim með heiminum strax til þess að hægt sé að tryggja öryggi heilbrigðisstarfsfólks og viðkæmra hópa.

Komum því til skila

Eins og kom fram á Vísi í gær hefur UNICEF farið af stað með söfnun undir yfirskriftinni Komum því til skila. Þar kallar UNICEF eftir stuðningi almennings, fyrirtækja og stjórnvalda til að tryggja jafna dreifingu bóluefna gegn kórónaveirunni meðal efnaminni ríkja heimsins.

Fyrirtæki á Íslandi hafa brugðist við ákallinu og næstu vikur munu Krónan, Te&Kaffi og BM Vallá bjóða viðskiptavinum sínum að styðja söfnun UNICEF og gefa fyrirtækin framlag á móti. Þá þegar hafa Alvogen og Alvotech gefið 100 þúsund dollara í átakið. Einnig taka Vörður, Deloitte og Lindex þátt í átakinu.

UNICEF leiðir innkaup og dreifingu bóluefnanna til efnaminni ríkja heimsins fyrir hönd COVAX-samstarfsins. 

„Þetta ógnarstóra verkefni bætist ofan á öll önnur verkefni UNICEF í þágu barna og því er mikil þörf á auknum stuðningi. Hægt er að styðja átakið með því að senda SMS-ið COVID í númerið 1900 og tryggja þar með dreifingu bóluefnis fyrir þrjá einstaklinga,“ segir í tilkynningu UNICEF.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×